Heimskringla - 11.12.1940, Side 1

Heimskringla - 11.12.1940, Side 1
The Modern Housewife Knows ! Quality That is Why She Selects j “CANADA BREAD”j The Quality Goes in Before the Name Goes On” j Wedding Cakes Made to Order j PHONE 39 017 ALWAYS ASK FOR— “Butter-Nut Bread” The Finest Loaf in Canada Rich as Butter—Sweet as a Nut Made only by CANADA BREAD CO. LTD. LV. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 11. DES. 1940 NÚMER 11. 4 4 HELZTU FRÉTTIR - - Stríðið Stríðið hefir haldið eins á- kaft áfram s. 1. viku og nokkru sinni fyr. Á Egyptalandi hallaði illa á ftah, eftir frétt að dæma þaðan s- 1- mánudag. Um 4000 ítalir v°tu teknir fangar af brezka iiðinu. Fyr um daginn var hermt, að 500 ítalskir hermenn hefðu verið á flótta undan hrezku liði suður af Sidi Bar- rani, en það er þar eða nálægt hví, sem fjögur þúsundin voru tekin. Sidi Barrani er um 70 mílur trá landamærum Libýu inni í ^gyptalandi. Komst Graziani Úalski hershöfðinginn þangað a s- 1. sumri, en hefir svo strandað þar og lítið hafst að siðustu 3 mánuði að minsta kosti. Hann er sagður á borð við aðra allgóða herforingja, en hykist ekki viss um vistir og v°Pn, ef út í stórorustu fer. S.l. sunnudagsnótt hófu Þjóð- verjar eina hina svæsnustu flugárás á London. Stóð hún yfir í 12 klukkustundir. Flug- shipin sem þátt tóku í henni voru líklegast fleiri en í nokk- Urri árás áður. Það var í spít- ala hverfi, sem sprengjur féllu héttast og gerðu einhvern skaða á 9 spítölum alls. Einn heirra var kvenspítali. 1 öðr- Um voru um 700 sjúklingar og Urðu þar miklir skaðar, en ^auðsföll ekki mikil borin sam- au við fjölda sprengjanna, þó vitanlega færust margir, og nokkrir af þeim gamlir menn, er ekki þoldu loftþrýstinginn, er sprengjunum fylgdi, ef ná- *®gt sjúkrahúsunum komu niður. Kirkjur þrjár eða fjórar skemdust. Á einni buldu kúl- Urnar og eyðilögðu þakið, en í kjallaranum voru tugir manna, Sein þangað flúðu úr íveru- húsum og sakaði ekki. Það var hálf borgin London, Sem fyrir þessari árás varð. Eldar, sem gusu hingað og hangað upp, kæfði hið æfða slökkvilið Breta ótrúlega skjótt. Viðstaða hvers þýzka loft- shipsins hefir hlotið að vera sfntt, því fá voru skotin niður. Endanfarna daga hafa ^úkkir verið að vinna sigra í Álbaníu . Þeir unnu hafn-borg- lna Edda (Porto Edda), um !*úðja s | viku. Er talið að 3,000 Italir hafi verið teknir fangar 0g nokkuð af skotfær- Urn- Síðar ná Grikkir borginni Áfgirocastro norðar í Albaníu eg nú er heróp þeirra að verða homnir til Tiranna um jól. Tir- nna er höfuðborg Albaníu. Einn fimti af allri Albaníu, r, nú í höndum Grikkja, eftir úmt 6 vikna stríð. Þrjár af 6 f^rstu borgum landsins hafa ,rikkir tekið. I vopnum er aetið að þeir hafi tekið af ítöl- lm 510,000,000 virði. Með þessu r ekki talið það sem þeir náðu Árgirocastro, síðustu borg- nni. ^feð þessum sigrum sinum afa Grikkir lokað öllum syðri afnborgum Albaníu fyrir inn- útningi hers eða vöru þang- > sem Itölum er mikill bagi • 1 sumum borgunum, eins S Porto Edda, sem Mussolini efndi eftir dóttur sinni, þegar v&nn tók Albaníu, en sem nú erður skirð sínu fyrra nafni, Um ^ .^runar allmiklir, af Itöl- > áður en þeir flúðu þaðan. Þeir kveiktu í miklu af skot- færa forðabúrunum til þess að Grikkir hefðu sem minst af því. En sumt af vopnabirgðum Al- baníu er nú þegar notað á móti Itölum sjálfum. í her ítala er mikill óhugur. Herforingjar þeirra hafa hver um annan þveran verið að segja af sér. Herforingi þeirra í Albaníu, hefir sagt stöðu sinni lausri. Hann heitir Petro Badoglio og var yfirmaður landhers ftala í Evrópu. Á- stæða hans fyrir að stökkva af hólminum, er sögð vera sú, að hann hafi haft alt aðra skoðun á rekstri þessa stríðs, en fas- ista-flokkssprauturnar, og telji fæst af því vit, er þær komi upp með. Að dæmi Badoglio, höfðingja landhersins, hefir yfirsjóliðs- foringi Itala farið. Hann sagði stöðu sinni sem flotaforingi lausri s. 1. sunnudag. Hann heitir Dominico Cavagnari. Á- stæða hans fyrir burtför sinni, er svipuð og Badoglios, að hann vilji ekki bera ábyrgð á starfi, sem honum sé sagt að framkvæma, þegar dómgreind hans segi honum’>að það sé óframkvæmanlegt. Stjórnandi Dodecanes-eyja Itala, suður undan Litlu-Asíu ströndum, er þriðji maðurinn, sem beðið hefir um lausn frá sínu starfi. Hann hefir her- stjórn á eyjunum með höndum eigi síður en pólitíska stjórn. Hann heitir Cesare de Vecchi og er greifi. Þessum 14 eyj- um, sem ítalir tóku 1912, hefir hann stjórnað síðan 1936. Her er þarna nokkur og Mussolini ætlaði þessar herstöðvar ávalt til þess að ná völdum á austur- hluta Miðjarðarhafsins. Síðan Bretar komu til Krít, hafa eyj- ar þessar verið umgirtar her- skipum og mun nú vera. þurð orðin á vistum og fleiru þar. Flýr greifinn að likindum frá starfi sínu vegna þessa. Eins og nærri má geta, hefir alt þetta andbyri haft mikil á- hrif á ítölsku þjóðina. Henni getur ekki dulist, ef þannig gengur, að Italía er töpuð fyrir það óráð Mussolinis, að fara að æða út í þetta stríð. íslendingar vissir um að tapa ekki frelsi sínu Þjóðræknisfélag yngri ís- lendinga í Winnipeg, hélt sam- komu í Marlborough Hotel 1. desember. Hefir félagið nokk- ur undanfarin ár minst sjálf- stæðis íslands þennan dag. Var stutt ræða flutt um þetta efni, af S. Sigmundsyni á samkom- unni. Kvaðst hann þess full- viss, að Island héldi áfram að verða sjálfstætt, og öðrum þjóðum óháð, fyrir núverandi vernd brezka ríkisins. Að brezkt setulið væri í landinu, kvað Mr. Sigmundsson bera þess ótvíræðan vott, að ísland hefði meiri hernaðarlega þýð- ingu orðið en flest af okkur hefði dreymt um. Og sjálfstæð- isbarátta landsins væri í aug- um vor vestra nú þýðingar- meiri en nokkru sinni fyr. Svo kvað Mr. Sigmundsson virðast sem forlög íslands og Canada væru saman tvinnaðri að fornu og nýju en maður gerði sér oft grein fyrir. Þegar sögur fara fyrst af því, var það nafn Leifs hepna, sem löndin tengdi saman, þ. e. Vínland og ísland. Og nú aftur á þessari yfirstandandi tíð, hefði Can- ada og ísland bundist þeim böndum, er sameiginleg áhuga- mál geta bezt tengt þjóðir saman. Þjóðsöngvar Islands og Can- ada voru sungnir af jafnmikilli hrifningu hins fjölmenna hóps er þarna var saman kominn. En aðal-skemtunin var dans. Ágóði af samkomunni var gef- inn Rauða krossinum. (Lausl. þýtt úr Wpg. Tribune) Einbúalandið Járnbrautalestaferðir voru fyrir skömmu hafnar að nýju milli Sviss og Marseille og borganna Lyon, Vichy og París. En s. 1. fimtudag voru ferðir þessar aftur lagðar niður, að skipun yfirmannsins þýzka, þeim sem þýzka hlutanum af Frakklandi stjórnar. Er af þessu hægt að gera sér nokkra grein fyrir því, við hvað Sviss á nú að búa. Þetta litla land, sem vakið hefir aðdáun út um allan heim fyrir hvað vel það hefir verndað frelsi sitt, er nú umkringt löndum á allar hlið- ar, sem undir nazistastjórn eru. Að vestan %r Frakkland, að sunnan ítalía, að norðan og austan Þýzkaland og Austur- riki. Við útheiminn er það þvi slitið úr tengslum, sem alvar- legt er fyrir land, sem lifir hlutfallslega meir á viðskiftum við önnur lönd, en nokkru öðru og öllum öðrum löndum frem- ur. Áróðri halda Þjóðverjar þar sleitulaust uppi um að Sviss semji sig að þýzkum lifnaðar- háttum. Tónninn í honum má orðið heita að sé: “gerið eins og við segjum ykkur.” Það lítur orðið út, sem nazistar geti ekki lengur horft á þetta litla lýð- veldi þarna, sjálfstætt og sjálfu sér ráðandi. Að smána það og brígsla því á allan upphugsan- legan hátt, má orðið heíta að sé daglegt brauð nazista-ill- þýðsins. Sviss hefir verið ákveðið í því, að vernda lýðræðið eins lengi og þess er kostur og enda þótt óspart þurfi í sölurnar að leggja fyrir það. En þetta er eitt versta bragðið sem hægt er að gera því, að loka það al- gerlega inni viðskiftalega. Það er það sem Þjóðverjar eru að gera með þessu banni á sam- göngum. Útlitið er að Sviss megi ekki einu sinni skifta við Frakkland og önnur hernumin lönd Þjóðverja, að ekki sé minst á lönd, sem þeir drotna ekki yfir. Svissland á vissulega í stríði með að halda sjálfstæði sínu óskertu. En Svisslendingar ör- væntu ekki og virðast með festu og hugrekki reiðubúnir að vernda frelsi sitt — jafnvel þó ofbeldi nazista keyri fram úr hófi. Skuld Manitoba lækkuð um 3 miljónir Á sex mánuðum, frá 1. maí til 31. október, 1940, lækkaði skuld fylkisins um $3,151,956. I lok október-mánaðar nam öll skuldin $127,019,406. Skuldin er í þessu fólgin: Manitoba skuldabréfum (Gov- ernment stock) $8,156,694; fylkisskuldaskírteinum (de- bentures) $79,726,587; fyrir drainage héraðið (skuldaskír- teini) $2,158,000; í lánum frá einstökum mönnum (Treasury bills) $30,022,937; fylkisfjár- hirzlu skuldabréf (exchequer bonds) $6, 954,989. I þessari skuld er talinn vara- sjóður $4,258,457 að upphæð, og auk þess skuldir fyrir ýms stjórnarfyrirtæki, sem í hefir verið ráðist og sem vexti gefur af sér; nemur það af skuldinni sem arðberandi má kalla $46,- 960,460. Þegar þetta er dregið frá allri skuldinni, verður nett- skuld fylkisins nú eða við lok októbermánaðar $75,800,489. Lækkun skuldarinnar á und- anförnum sex mánuðum, segir Hon. S. S. Garson, stafa af því að tvö lán, sem í gjalddaga féllu 1940 hafi verið greidd með lánum, sem fengust með mikið rýmilegri kjörum. Þýzkir kafbátar Nokkrir þýzkir kafbátar, segir blaðið London Times s. 1. laugardag, að séu til og frá um höfin. Þýzkar sjósprengjur hafa fundist við Tasmaníu- strendur og herskipið, Admiral Scheer, sem flutningaskipin réðist á, sem Jervis Bay fylgdi, er ætlað vera í Suður-Atlanz- hafinu. I Indlandshafinu er og ætlað að þýzkur kafbátur sé. Öll verða þau að varast að láta sjá sig, því sjái herskip þau, eru þau dauðadæmd. i' f Viðskifti rýrna í París Síðustu fréttir frá París, bera með sér að smærri viðskifta- húsum er þar að fækka vegna vöruþurðar. Þýzkir hermenn bera í burtu með sér rúmfötin úr gistihúsunum. Enskum þegnum upp að 65 ára aldri, er hrúgað í vinnuverin þýzku, aðallega í Saint Denis. Þeir höfðu búið í Frakklandi, þó brezkir þegnar væru margir fyrir stríðið. 1 París skiftast menn í tvo flokka, þá, sem fýs- ir einlæglega, að Bretar vinni, og þá, sem óttast að þeir vinni. Á hreyfimyndahúsum eru oft myndir, er sýna að Frakkar eru fylgismenn Breta( Pro-British) og hver sem getur, hlustar á brezkt útvarp. Þýzkir yfir- menn í borginni, eru skágengn- ir alt sem unt er. Spjaldaug- lýsingar er kref jast að barist sé á móti Bretum, er iðulega snúið við þar sem þær hanga eða krotað yfir orðin á þeim. — (London Times, 7. des.) “Að sigra allan heiminn” Á fundi í iðnaðarstofnun í Berlin, hélt Hitler því fram í gær, að hann ætlaði sér “að sigra allan heim heiminn.” — Hitler hefir nú áður haldið þessu fram. En þar sem á hann hlýddu aðallega verkamenn, mun honum hafa fundist á- stæða að - segja frá hver þörf væri á stríðinu. Og á henni stóð ekki. Hitler kvaðst vera sósíalisti og gæti ekki horft upp á það ófrelsi sem verka- menn ættu við að búa í Eng- landi og Bandaríkjunum, þess- um fyrirlitlegu kapitalista löndum heimsins. Þessum þjóð- um yrði að sigrast á til þess allir gætu við frelsi búið. Þess- vegna væri hann í stríði. Þess- vegna yrðu verkamenn Þýzka- lands að fara í stríð. Á Italíu og stríðið þar mintist Hitler ekki í ræðunni. Hvað næst vekti fyrir honum að gera til þess að vinna stríðið, mintist hann heldur ekki á einu orði. Á Churchill og sér sjálfum sagði Hitler þennan mun, að Churchill vildi stríð, en hann sjálfur ekki, að Churchill léti kasta sprengjum á íveruhús, en Hitler aðeins á hergagna- forðabúr. Og þannig var öll ræðan, eintóm lýgi, ef kalla skyldi hana annað en vitleysu, sem verkamönnum er á hlýddu, hefir hlotið að vera auðsætt. Vöru-innflutningur og nýju tollarnir Nýju tollar stjórnarinnar i Ottawa, eru ekki líklegir til að hafa neinar stórbreytingar í för með sér. ívilnun á tolli, sú er Bretum er veitt, nemur ekki miklu. Á s. 1. ári nam verð þeirrar vöru, er tollarnir áhræra, $13,340,000. Tollurinn á þeim var $1,950,000. Þetta eru engin ósköp, sem Canada er að gera með þessu fyrir Breta. Á vörum frá Bandarikjunum verða tölurnar hærri. Innflutn- ingur á vörum sem nú eru bannaðar, nam $52,800,000 á s. 1. ári. Innflutningur vöru sem nú er tollaður hærra, nam á s. 1. ári $71,150,000. Sá inn- flutningur hlýtur nú að minka. Og það gefur Canada og Bret- landi meiri markað hér. Það er skritið hvað liberalar eru nú einrdegnir með tollhækkun, sem þeir þykjast ávalt hafa hatað. Það er þegar til al- vörunnar kemur eitthvað áfátt við tollstefnu þeirra. Roosevelt lofar Grikkjum aðstoð 1 símskeyti frá Roosevelt for- seta Bandaríkjanna til Georgs Grikkjakonungs s. 1. laugardag, var að því vikið, að Bandaríkin mundu aðstoða land það, sem eins hraustlega hefði varið frelsi sitt og Grikkland hefði gert. Forsetinn sagði það stefnu Bandaríkjanna, að stuðla að vernd, eftir því sem hægt væri, þeirra þjóða, sem ofbeldi og ó- réttur væri sýndur. Skeytið sendi Roosevelt, sem svar við skeyti frá konungin- um, er þakkaði bandarísku þjóðinni fyrir hlýleikann, sem hún hefði í ljósi látið í garð Grikkja í striði þeirra. Virkjun sólargeislanna Það hefir lengi verið hugboð manna, að beizla mætti sólar- geislann og nota hita-magnið sem orkugjafa, bæði til ljóss og hitunar á heimilum og við iðn- rekstur — eins og foss-aflið. Fyrsta tilraun í þessa átt, mun hafa verið sú, er brezkir verk- fræðingar gerðu 1913, í grend við Cairo, á Egyptalandi. Var þar félag stofnað er gera skyldi tilraun með þetta; hét það “Eastern Sun Power Ltd.” Kom það upp stofnun er safnaði með stórum kúftum málm-speglum í eitt hita sólargeislanna, eins og leikið er sér oft að með brennigleri. Var við þann hita hægt að sjóða vatn. Vél var það svo látið knýja, er vatn pumpaði úr ánni Níl og var land vökvað með því. Er þetta starf félagsins talið mjög merkilegt, ekki sem uppgötvun beinlínis, heldur fyrir það, að það er eina dæmið af þvl, að tilraunir af þessu tæi hafi hepnast fjármunalega. Fyrir tveimur árum, gaf maður nokkur, dr. Godfrey L. Cabot, í Boston, Massachusetts Institute of Technology $647,- 000 til þess að finna upp ein- hver ráð til að beizla orku stjarnanna og nota til að knýja vélar við iðnrekstur. Þrátt fyrir þetta hafa nú íbúar hinna sólríku héraða í Bandaríkjunum notað hita- magn sólargeislans í s. 1. 40 ár í smáum stíl, sem orkugjafa. Og s. 1. viku gaf dr. F. A. Brooks, vísindamaður frá Californíu yfirlit yfir notkun þessa, sem hann kvað all-útbreidda, í skýrslu, sem birst hefir nýlega í riti Smithsonian Institute. — Samkvæmt sögu þessa manns, eru frá 50,000 til 100,000 sveita- heimili, sem nota hita sólar- Ijóssins til vatnssuðu. Þetta á sér stað í héruðum, þar sem lítið er um rafmagn og af- skekt eru. f Norður-Californíu eru að minsta kosti 12,000 slík heimili og í Florida ein 20,000. Með áhöldum, sem einhvers staðar er komið fyrir á húsun- um, oft á þökum, er hitanum safnað saman og er vatn svo við hann hitað. Þetta heita vatn er geymt í stórum vatns- geymir, fóðruðum til þess að vatnið haldist heitt. Frá því snemma á vorin og langt fram á haust, eða í 210 til 300 daga, hafa heimilin á þennan hátt heitt vatn. En úr því verður að nota eldavélar. Útbúnaðurinn, bæði áhöldin til að safna sól- Frh. á 8. bls. “SAGA ISLENDINGA í VESTURHEIMI” Þorsteinn Þ. Þorsteins- son, fyrsta bindi, — Reykjavík 1940. Útgef- andi: Þjóðrœknisfélag Islendinga í Vestur- heimi. Nú er bók þessi komin til bæjarins. Upplagið sem sent var að heiman er þó enn í geymslu hjá tollþjónum stjórn- arinnar, og verður þar að vera unz ritskoðunarnefnd sem skip- uð* er austur í Ottawa hefir, eftir að hafa kynt sér efni bókarinnar, gefið yfirlýsing um að ekkert sé í henni skráð er sviksamlegt geti talist gagn- vart landi og þjóð. Eitt eintak bókarinnar hefir þegar verið sent austur til ritskoðunar. ■— Allar bækur sem koma frá út- löndum verða að fara í gegn um þennan hreinsunareld vegna stríðsins, og tjáir ekki um það að tala eða á móti að mæla. Búist er við að ritskoð- un þessari verði lokið innan fárra daga, og að bókin verði auglýst til sölu nokkru fyrir jól. Kemur það sér vel fyrir þá sem vilja velja hana að jólagjöf handa vinum sínum. Fátt er bókhneigðum Islend- ingum kærkomnara en fjörlega skrifuð, fróðleg bók í fallegu bandi. En þessi Saga íslend- inga í Vesturheimi er alt þetta, auk þess sem efni hennar á sérstakt erindi til vor sem eig- um heima hqr vestan hafs. Þetta fyrsta bindi hins fyrir- hugaða ritverks er 253 blaðsíð- ur af þétt prentuðu lesmáli, og fjallar að nokkru leyti um til- drögin til flutninganna vestur. Er þar miklu efni þjappað sam- an. Þessar kapítula fyrirsagn- ir gefa auk þess hugmynd um. hið fjölbreytta efni bókarinn- ar: “Frá fyrstu árum vestan hafs”, “Útfarirnar á Útförinni”, “Konurnar sem týndust”, “Sig- urvegarar og sögunarkarlar”, “íslendingar dreifast um Vest- urheim”, “Hin sérstæða þjóð- erniskend Vestmanna.” Vonandi getum vér auglýst verð og útsölumenn í næstu blöðum. Gleymið ekki þessari sögu; þetta er sagan okkar. Sögunefndin /

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.