Heimskringla - 11.12.1940, Page 8

Heimskringla - 11.12.1940, Page 8
8. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 11. DES. 1940 FJÆR OG NÆR Heimskringla hefir náms- skeið (scholarship) til sölu á beztu verzlunarskólum þessa fylkis. — Það er hverjum sem nám hugsar sér að stunda á þessu hausti eða vetri hagur að sjá oss þvi viðvíkjandi. * * * MESSUR 1 ÍSLENZKU SAMBANBSKIRKJUNUM Messur í Winnipeg N. k. sunnudag, við mess- urnar í Sambandskirkjunni verður umræðuefni prestsins kl. 11 f. h. “This Is My Boat” en við kvöldguðsþjónustuna, kl. 7, “Eg leita sannleikans”. Allir eru ætíð velkomnir í Sam- bandskirkjuna í Winnipeg. * * * Séra Guðm. Árnason messar í Wynyard næstkomandi sunnudag, þ. 15 þ. m. kl. 2 e. h. * * * Sala á heimatilbúnum mat Kvenfélag Sambandssafnað- ar efnir til sölu á heimatilbún- um mat í fundarsal kirkjunn- ar' á laugardaginn kemur 14. des. Verða þar til sölu allskon- ar gómsætir réttir t. d. rúllu- pylsa, brúnt brauð, lifrapylsa, blóðmör, vinartertur o. fl., o. fl. Salan hefst kl. 2.30. Að kveld- inu gefst fólki tækifæri að spila og drekka kaffi. * * * Leiðrétting í “Bréfi frá G. Grímson” í síðasta blaði, féll úr nafn eins er kosinn var. í blaðinu stend- McCURDY SUPPLY CO., LTD. COAL & WOOD Hafa kolin og viðin sem þú hefir verið að óska eftir Dominion Sask. Lignite Wildfire Drumheller Western Gem. Drumheller • Þeir hafa re_ynsluna fyrir sér, og eru áreiðanlegir í öllum sínum viðskiftum og þeir þekkja eldiviðinn sem þið þarfnist. Símið 23 811—23 812 ur J. M. Snowfield, Bottineau, en átti að vera: J. M. Snow- field frá Cavalier og O. B. Ben- son frá Bottineau. Bensons- nafnið féll úr. * * * Gifting Laugardagskvöldið s. 1. 7. þ. m. voru gefin saman í hjóna- band Mr. Ellsworth Alfred Gisel og Miss Elsabet Gíslason, dóttir þeirra hjóna Sveinbjarn- ar Gíslasonar og Jónu Guð- mundsdóttur. Giftingarathöfn- in fór fram að 1302 Wellington Crescent, að fjölda ættingjum og vinum viðstöddum. Aðstoð- armaður brúðgumans var Mr. W. L. Morrison en brúðarmey var systir brúðarinnar, Mrs Margaret Brown. Séra Philip M. Pétursson framkvæmdi giftingarathöfnina. Framtíðar- heimili ungu hjónanna verður í Winnipeg. * * * Það verður opið hús fyrir vini foreldra okkar, 15. des. hæstk. frá kl. 1. til 9 e. h., ef að einhverjir vildu koma og óska þeim til lukku á 40 ára gifting- arafmæli þeirra Mr. og Mrs. Stefáns Johnson og Guðrúnar Guðmundsdóttir frá Sauðár- krók í Skagafjarðarsýslu á Js- landi. Með vinsemd, Börn gömlu hjónanna * * * Þjóðræknisdeildin “Esjan” í Árborg, Man., hélt fund 19. nóv. s. 1. Margt kom til tals á fund- inum, en aðal spursmálið var hvort möguleikar væru til þess að setja á stofn íslenzku kenslu hér í bygð. Var kosin þriggja manna nefnd til að grenslast eftir áhuga fólks þessu viðvíkj- andi, og til að hrinda þessu máli í framkvæmd ef undir- tektir yrðu góðar. Því næst fór fram margvís- leg skemtun: tvær ungar stúlk- ur höfðu fram sögn; íslenzkir söngvar voru sungnir, og síð- asta atriðið var samkepni (true and false contest). Allar spurningar um ísland og ís- lendinga. Þótti fundarfólki þetta svo spennandi að talað var um að hafa svona lagaða skemtun oftar. Eftir að veitingar höfðu verið frambornar héldu fundargestir heim, mettir á sál og líkama og fullir af velþóknun yfir því að vera svona þjóðræknir. S. J. Prjónapeysur frá Skotlandi CARDIGANS Sterling er mark á skíru silfri, “Gerðar í Skotlandi” er því áþekt á prjónuðum flíkum. Kjósið um margs- konar snið—Cardigans úr Botany ull eða úr ull | tvinnaðri við angora, með ýmislegri áferð og prjóna lagi. Peysur vel prjónaðar | úr fallegu bandi—sumar með stuttum, sumar með löngum ermum. 34 til 40 að stærð. Litir — rós, ryð, royal, grænir, hárauðir, aqua, grár, svartur, dökk-grænn og hvítur. PEYSUR $3.95 $2-95 Prjónafatadeild kvenna, Fjórða gólfi, miðju // // Ducky Dandy SNJÓFÖT úr ullar þófa “Ducky Dandy” líkar einna bezt snjóklæða af betra tagi— með Eatons gæða marki. Sam- föst með leðri á hnjám og góðu fóðri—sundurlaus treyja fóðr- uð með renniloki, brók með leðri á hnjám. Þófahúfa sam- lit. Stærð 2 til 7 _ __ ára. Hver.... 4>/.DU Fatadeild unglinga, Fimta gólfi, ^T. EATON Gjafir í Blómasjóð Sumarheim- ilis ísl. barna að Hnausa, Man.: Mrs. Sigríður Jakobson, 626 Agnes St., Winnipeg.....$10.00 í minningu um ástkæra systir sína, Mrs. Ingibjörgu H. Sig- urðsson að Lundar, Man., dáin 17. nóv. s. 1. Meðtekið með samúð' og þakklæti. Emma von Renesse —Árborg, 9. des. 1940. * * * Þakkir Öllum þeim sem einhvern þátt tóku í sjötugs afmælishá- tíðinni, sem mér var haldin 26. nóv. síðastl., og öllu því sama fólki sem þá mintist þess að eg hefi á þessu ári, verið 41 ár prestur og konan mín og eg, höfum verið 40 ár í hjónabandi. Þökkum við hjónin af hrærðu hjarta. Við þökkum Jón Bjarnason Academy Ladies’ Guild, sérstaklega Mrs. A. S. Bardal og Mrs. H. McCaw, þeim nefndarmönnum A. S. Bardal og S. W. Melsted, séra Valdi- mar Eylands sem stýrði sam- sætinu; ræðufólkinu, sem á- varpaði okkur, Dr. B. J. Brand- son, séra Sigurði ólafsson, Mrs. S. ólafsson, Dr. Richard Beck, G. F. Jónasson og Mr. og Mrs. A. S. Bardal; skáldunum, Dr. Sig. Júl. Jóhannesson, Hirti Brandson og L. Kristjánsson, Mrs. Unni Simmons, sem söng solo; Miss Snjólaugu Sigurðs- son, sem lék á píanó og söng- flokk undir stjórn Mr. Ragnars. Við þökkum fjölda af kveðjum, hraðskeytum, bréfum, og “birthday cards”. Meðal þeirra voru margar kveðjur frá fyr- verandi nemendum. Við þökk- um fyrir peningagjafir, að upp- hæð $261.60. Við höfum engin ráð til að þakka einstaklingum þær gjafir, því við vitum ekki nema í einstaka tilfelli hverjir gáfu eða hvað þeir gáfu. Okkur féll það einstaklega vel að allir áttu frían aðgang að samkomunni að meðtöldum veitingunum. Með því var eng- inn fátæklingur útilokaður. Við þökkum ritstjórum ís- lenzku blaðanna í Winnipeg fyrir vingjarnlegan stuðning. Sumum fanst það óviðeig- andi að láta ræðurnar vera fluttar á ensku, en tilfellið var að viðstaddur var stór hópur af enskum fyrverandi nemend- um Jóns Bjarnasonar skóla og öðru óíslenzku fólki. Við vitum að sumt af þessu blessaða fólki lagði fram mikið erfiði, gaf stórar upphæðir, tók í sumum tilfellum frábærlega nærri sér, og hjá þeim öllum birtist einlægur hlýhugur. Al- máttugur guð launi alla þá vel- vild og blessi alt þetta fólk. Rúnólfur Marteinsson Ingunn Marteinsson * * * Matthildur Johnson, eigin- kona séra Halldórs E. John- sons, í Blaine, andaðist á sjúkrahúsi í Bellingham, Wash., þann 5 þ. m. eftir lang- varandi vanheilsu. Þessarar látnu merkiskonu verður nán- ar getið síðar í þessu blaði. ★ * * Gefin saman í hjónaband af séra Sigurði ólafssyni á prest- heimilinu í Selkirk, Man., þann 7. des.: David Gilman Foreman, St. Anthony Gold mines, On- tario, og Ranveig Thorey Jónasson, Árborg, Man. Fram- tíðarheimili ungu hjónanna verður við St. Anthony Gold Mines. NÝKOMNAR ÍSLENZKAR BÆKUR Lífið er leikur, skáldsaga eftir Rósu B. Blöndals. Bókin er 244 bls., í ágætu gyltu bandi. Verð $2.00. Skrítnir náungar, eftir Huldu (Unnur Benediktsdóttir). — Eru þetta 12 þættir um þetta skritna fólk. Alls er bókin 227 bls. Verð í bandi $1.50. Sagnaþœttir og þjóðsögur, skrásett hefir Guðni Jóns- son. Alls 160 bls. Verð í kápu $1.00. Rauðskinna. í kápu, I. bindi .80 m. bindi 1.00, IV. bindi 1.00 Áður auglýstar bækur: Ritverk Jóns Trausta, 1. bindi, (Halla og Heiðarbýlið).Verð: í skinnbandi $4.50, í lérefts- bandi $3.50, í kápu $2.75. Á bökkum Bolafljóts, skáld- saga eftir Guðmund Daníels- son, tvö bindi, alls 434 bls. Verð í bandi $3.50 bæði bind- in. I síðustu viku sendi eg sög- una Eldeyjar-Hjalti til allra þeirra er höfðu pantað hana, og einnig Eimreiðina, 3. hefti, og Ganglera síðara heftið. MAGNUSPETERSON Horace St.. Norwood, Man. Verðlœkkun Rétt núna um helgina bárust mér upplýsingar um það, að verð á Bókmentasögu Norður- landa (The History of Scandi- navian Literature), sem um var getið í síðasta blaði, hafi verið lækkað úr $4.00 í $2.50. Má það gjafverð kallast fyrir svo stóra bók og vandaða. Richard Beck Styrktarnefnd Norðmanna heldur hátíð Roald Amundsens í nýju norsku kirkjunni, Minto Street, föstudaginn 13. des. kl. 8 að kveldi. Karlakórinn ísl. lætur til sín heyra. Miss Marian Kummen og Ragnar H. Ragnar spila saman á piano. Mr. Bratvold talar. Fleira á skemtiskrá. Veitingar í neðri sal. Dregið verður Silver Fox og Comfort- er verðlaun afhent þeim sem sigruðu í Bridge kepninni. — Inngangur 35c. * * * Verzlunarnámskeið til sölu Þjóðræknisfélag fslendinga í Vesturheimi hefir til sölu nú þegar námsskeið (Scholarship) við Angus School of Commerce og Dominion Business College með kjörum, sem félitlum nem- endum koma að miklu haldi. Upplýsingar fást munnlega eða bréflega, hjá Ásmundi P. Jóhannssyni, 910 Palmerston Ave., Winnipeg. ★ * * Bœkur til sölu á Heimskringlu Endurminningar, 1. og II. hefti, alls 608 blaðsíður, eftir Friðrik Guðmundsson. Verð upphaflega $2.50, báðar bæk- urnar; nú $1.00. Hetjusögur Norðurlanda, um 200 blaðsíður að stærð, eftir Jacob A. Riss. íslenzkað hefir Dr. Rögnvaldur Pétursson. — Verð 35c. Upplag þessara bóka er lítið. Þeir sem eignast vilja þær, ættu því að snúa sér sem fyrst til ráðsmanns Hkr. * * * Heimilisiðnaðarfélagið held- ur næsta fund á miðvikudags- j kvöldið 11. desember, að heim- ili Mrs. Albert Wathne, 700 Banning St. Byrjar kl. 8 e. h. Iceland * * * Lúterska kirkjan i Selkirk Sunnud. 15. des. — Sunnu- dagaskóli kl. 11 f. h. Ensk messa kl. 7 e. h. S. Ólafsson Messur í Gimli Lúterska prestakalli 15. des. — Betel, morgun- messa. Gimli, íslenzk messa kl. 7 e. h. 22. des. — Mikley, messa og jólatréssamkoma kl. 8 e. h. 24. des. — Gimli, jólatrés- samkoma kl. 7.30 e. h. 25. des. — Betel, morgun- messa. Gimli, íslenzk messa kl. 3 e. h. Víðines, messa og jólatréssamkoma kl. 8.30 e. h. B. A. Bjarnason SARGENT TAXI and TRANSFER SÍMI 34 555 eða 34 557 7241/2 Sargent Ave. Contracts Solicited TIL SÖLU Greiðasöluhús á hentugum stað í Winnipeg. Öll nýtísku þægindi. Sérstakt tækifæri fyrir íslenzka matreiðslukonu |eða rnann, með sérþekkingu í því starfi. $1,000 niðurborgun. Allar upplýsingar fást hjá H. JOHNSON 235 Somerset Block, Winnipeg Sími 23 249 HELZTU FRÉTTIR Frh. frá 1. bls. argeilsunum og vatnsgeymir- inn, kosta milli 200 og 300 doll- ara. Þessi áhöld á heimilun- um safna sólargeislunum sam- an af því sem næst 50 ferfeta fleti. * t # Blöð í þessum bæ hreyfðu því, að á þessu hausti væri verið að selja kol í Canada, sem keypt hefðu verið í Þýzka- landi — fyrir stríðið. * * * Hon. J. L. Ralston, hermála- ráðherra Canada, er í Eng- landi og talaði við konunginn í gær um það, sem verið væri að gera í Canada í þágu stríðs- ins. * * * Tónninn í ræðu Hitlers í Berlín í gær, er sagður ólíkur því, sem vanalegast er í ræð- um hans. Ræðan virtist vera varnarræða öllu öðru fremur. * * * Á fyrstu 10 mánuðum yfir- standandi árs, nam bílasmíði Canada þessu: 87,659 fólksbíl- um og 88,340 vöruflutningsbíl- um. HITT OG ÞETTA Jón bókabjeus var maður nefndur. Hann var einn þeirra er altaf liggja í bókum. Var hann ráðyandur maður og góð- menni. Einu sinni að sumar- lagi kom hapn að bæ einum á Vesturlandi. Var honum boðið að drekka kaffi inn í baðstofu. Var skuggsýnt inni. 1 einu horninu stóð barnsvagga og lá barn í. Jón var barngóður og fór að gera gælur við barnið: MESSUR og FUNDIR í kirkju Sambandssafnaðar Messur: ó hverjum sunnudegi Kl. 11 f. h. á ensku Kl. 7 e. h. á íslenzku. Safnaðarnefndin: Fundir 1. föstudag hvers mánaðar. Hjálparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld í hverjum ' mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðjudag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Söngœfingar: islenzkri söng- flokkurinn á hverju fimtu- dagskveldi. Enski söngflokkurinn á hverju föstudagskveldi. Sunnudagaskólinn: Á hverjum sunnudegi, kl. 12.15 e. h. ----------—______-------_____ , : ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ISLENDINGA i! Forseti: Dr. Richard Beck l! University Station, ! !; Grand Forks, North Dakota ! 1; Allir Islendingar í Ame- ríku ættu að heyra til Þjóðrœknisfélaginu ;! Ársgjald (þar með fylgir ; ;| Tímarit félagsins ókeypis) l; $1.00, sendist fjármálarit- ! ! ara Guðmann Levy, 251 ; !; Furby St., Winnipeg, Man. ; 1 VIÐ KVIÐSLITI Til linunar, bóta og styrktar reynið nýju umbúðirnar, teyju- lausar. Stál og sprotalausar. — Skrifið: Smith Manfg. Company, Dept, 160, Preston, Ont. “Ósköp ert þú góður, unginn minn, að liggja svona stein- þegjandi”. Þá gellur við kerl- ing ein: “Sussu, sussu, ekki tala við barnið. Barnið er dautt”. Jón spurði hvers vegna það væri látið liggja svona og ekki jarðað. “Það er nú annað að gera hér á Eyri um hásláttinn, en að jarða börn,” svaraði kella. * * * Auðbjörg gamla sagði einu sinni draum sinn á samkomu í Hjálpræðishernum: “Mig dreymdi”, sagði hún, “að eg kom til himnaríkis. Þar sat guð faðir í hásæti og sonur- inn honum til hægri handar. Út frá þeim til beggja hliða sátu spámenn, dýrlingar og annað stórmenni og sýndist’ mér þar fullskipað. Eg stóð þarna á miðju gólfi og svipað- ist um og sá ekki nokkurt autt rúm. Þá heyri eg að faðirinn segir: “Stattu upp, faðir Abra- ham, og lofaðu maddömu Ei- ríksson að sitja.” Frá þeim koma gjafir sem bjóða “Gleðileg Jól” með höfðinglegum hætti Föt úr loðskinnum—Föt kvenna—Föt karlmanna OLIKIR SKATTAR Beinir skattar á strætisvögnum vorum og fólksflutningavögnum, eru 8.10% af öllum tekj- um félags vors, en eru 5% fyrir canadisk félög að meðaltali. Fyrir hverja 1000 farþega í Toronto sem fluttir eru, er skatt- urinn $1.68, Montreal $2.90, Que- bec $3.15, Hamilton $4.32, Ottawa $4.55, Winnipeg $5.66. WINNIPEG ELECTRIC C O M P A N Y

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.