Heimskringla - 30.04.1941, Blaðsíða 2

Heimskringla - 30.04.1941, Blaðsíða 2
2. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 30. APRÍL 1941 SUMARKOMAN Rœða flutt í Sambandskirkju 27. april af séra Philip M. Péturssyni. Eg hefi valið texta minn í kvöld úr Davíðs sálmunum, þar sem ritað stendur: “Hann gerði tunglið til þess að ákvarða tíðirnar, sólin veit hvar hún á að ganga til viðar. . . . Hversu mörg eru verk þín drottinn, þú gerðir þau öll með speki, jörðin er full af því, er þú hefir skapað.” (104: 19, 24). Eg var þegar búinn að velja mér efni fyrir þetta tækifæri, hér í kvöld, sem eg nefndi “Frelsi til að trúa.” En þá varð eg þess var, að eftir íslenzku tímatali, værum við að byrja sumarið, og að þessi dag- ur í dag, væri fyrsti sunnudag- ur sumars. Mér fanst eg geta ómögulega látið þennan dag líða hjá, án þess að minnaát hans, eða að minsta kosti, að láta það, sem eg ræddi við þetta tækifæri, vera í samræmi við daginn og árstíðina. Vér vitum að sumarið, í allri blómlegri fegurð þess, er ekki meira en rétt að byrja. En samt, er vér lítum í kring um oss, getum vér ekki annað en orðið þess vör, að jörðin og öll náttúran er full af því, sem Guð hefir skapað, full af vakn- andi fegurð, og bjartri von um frjósamar tíðir, sem sumarið veitir, er það færist yfir oss! Náttúran er full af dásemdum, og fyllingum lögmáls guðs, sem hann hefir fyrir sett, og sem veitir mönnum alskonar gæði, er þeir læra að hagnýta sér það lögmál og alt, sem það hefir í för með sér. Þegar mennirnir læra að hagnýta sér þetta mikla náttúrulögmál, þá fyllist líf þeirra einnig af als- konar fegurð og fullkomleika, M* I nJ>. ínl/t nákvæmlega eins og heimurinn umhverfis þá. En er mennirnir snúa sér frá lögmáli guðs, þegar þeir gleyma því, eða loka augunum fyrir því, eða gefa því lítinn eða engan gaum, eða kannast ekki við það, þá fyllist líf þeirra af alskonar tegundum hins illa og ófagra og ófullkomna. Og er vér lítum út yfir heim- inn þennan fyrsta sunnudag á þessu sumri, verðum vér þess átakanlega vör að heimurinn er fullur af þessu hvorttveggja. Jörðin er full af því, sem guð hefir skapað, fegurð og von um frjósamar og hagstæðar tíðir. Og jörðin er einnig full af því, sem mennirnir hafa skapað, bæði því, sem þeir hafa skapað í samræmi við lögmál guðs, og sem er gagnstætt því, og þess vegna ófagurt, ófullkomið og ljótt á að líta. En þó ætla eg, eða vil eg, við þetta tækifæri, ræða aðallega um það, sem guð hefir skapað, en gleyma eða snúa mér frá, miklu af því, sem mennirnir hafa skapað. Og er eg geri það, eða geri tilraun til að gera það, vil eg endurtaka að nokkru leiti hugsun sem eg lét einu sinni í ljósi við sumardags fyrsta samkomu. Sagt er í textanum, að Guð hafi skapað tunglið til að ákvarða tíðirnar, og að sólin viti hvar hún á að ganga til viðar. Sköpunarverkið, undir stjórn náttúruiögmálanna sem sett voru, er sköpunarverkið hófst, fylgir vissum reglum og vissu fyrirkomulagi. Þannig kemur vorið, og þar næst sumarið, á sínum tíma. Alt lifnar og grær og klæðir jörðina nýjum skrúða! Ný fegurð og nýtt líf breiðist yfir alt, og hylur það sem áður sýndist vera dautt. Þannig, á hverju vori, og á hverju sumri, og í raun og veru, árið um kring, sannast það, em ritað var fyrir mörgum öld- um, og lýst var sem sáttmála guðs við jörðina og alt, sem i henni býr, “Meðan jörðin stend- ur, skal ekki linna sáning og uppskera, frost og hiti, sumar og vetur, dagur og nótt.” — (1, Móseb. 8:22). Einnig er sagt, að guð hafi gefið sýnilegt tákn, eða merki, til þess að hvorki hann né mannkynið gleymdi nokkurn tíma sáttmálanum, sem hann PRICES SLASHED! Kveðjuorð frá Jósep til Þórunnar Þitt líf var svo fagurt og hjartað svo hlýtt Á heiðríkum vordegi liljan mín unga. í laufsölum æsku þú blundaðir blítt Og brosið þitt skein yfir mannlifsins drunga Eg átti þann draum sem þú ein hefir þýtt Og anda minn vakti þín hljómfagra tunga. Eg kveð þig nú hljóður í síðasta sinn Og sorgskuggar leggja á bliknaða dalinn, ^ En yonleysið hylur nú vordrauminn minn. 1 vornætur frostinu, er liljan mín kalin Samt finst mér sem ástin og armurinn þinn Sé enn um mig vafinn, og þar er eg falinn. Mér sýnist þú, ástin mín halda í hönd Á höfundi lífsins á vormorgni blíðum, Og engiarnir beri þér blys út um lönd Og brosin þin lifi í himninum víðum. Svo finst mér við eigum á eilífðar strönd ✓ Útsýni fagurt og bjómskraut í hliðum. G. O. Einarsson gerði um að menn ættu, frá þeim degi, að fá að njóta alls, sem náttúran hefir að bjóða, og að þeir mættu fá að búa í öruggleika og fullnaðar trausti undir vernd hans, og lögum hans. Ritað er: “Og guð sagði: Þetta er merki sáttmálans, sem eg geri milli mín og yðar og allra lifandi skepna, sem hjá' yður eru, um allar ókomnar aldir: Boga minn set eg í skýin, að hann sé merki sáttmálans milli mín og jarðarinnar. Og þegar eg dreg ský saman yfir jörðunni og boginn sést í skýj- unum, þá mun eg minnast sátt- mála míns, sem er milli mín og yðar og allra lifandi sálna í öllu holdi, og aldrei framar skal vatnið verða að flóði, til að tortíma öllu holdi, og boginn skal standa í skýjunum og eg mun horfa á hann, til þess að minnast hins eilífa sáttmála milli guðs og allra lifandi sálna í öllu holdi, sem er á jörðunni.” Menn urðu þess varir mjög snemma, í sögu þeirra, sem skynjandi verur, að alt í heim- inum, var stjómað af vissum föstum lögum. Og meðal ann- ars notuðu þeir sögur eins og þessa í tilraun þeirra til a£S gera grein fyrir þeim, fyrir reglunni í heiminum, fyrir árstíðunum, sáningu og uppskeru, frosti og hita, ljósi og myrkri, lífi og dauða. Þeir dáðust að þessari reglu í heiminum, og vörpuðu þakkarbænum til guðs í undr- un og lotningu. Og það gerum vér enn, og segjumst vilja að líf vort, alt sem vér gerum eða hugsum eða segjum, geti verið í samræmi við hinn ytra heim náttúrunnar. En hvernig er lífi mannanna og þjóðanna hagað? Eins og eg gat um, um daginn, við páskadags guðs- þjónustu vora, eins og vér sjá- um öll, sýnist alt það, sem er undir stjórn mannanna, oft fylgja engri reglu eða lögmáli, og heiminum, sem þeir stjórna er sí og æ steypt í myrkur, þegar minst varir, og alt þeirra verk lendir í stjórnleysu! Þeir hlutir, sem þeir hafa á sinu valdi sýnast vera á ringulreið, og það, sem þeir þóttust einu sinni ráða, sýnist sjálft oft taka völdin af mönnunum og stjórna þeim í stað þess að þeir stjórni því. En í þessu, eins og í öllu sem þeir gera, ef að þeir hafa augu til að sjá og eyru til að heyra, geta þeir lært af náttúrunni, því þar gengur alt í röð og reglu eftir þeim lögmálum, sem sett hafa verið og ef að menn- irnir gerðu tilraun til að fylgja hinum sönnu lögmálum, og að hagnýta sér þau, og það, sem þau kenna, gæti líf þeirra, og líf þjóðanna í heiminum, verið eitthvað alt annað, háleitara og fegurra, en það nú er orðið. Eða eins og sagt er í sálminum góðkunna eftir Valdimar Briem sem bendir svo skýrt á þetta ó- samræmi: Sjá, himinljósin hverja nátt sinn halda veg í friði og sátt og brosa blítt í hæðum; ef saman gengi svo á jörð ATKVÆÐAGREIÐSLAN í GIMLI KJÖRDÆMI $50,000 Stock Reduction SALE USED CARS Better Looking Better Prices Better Conditioned Better Terms Better Trade-ln Allowances $595 $645 $765 $795 1940 Dodge De Luxe (PQ7C Sedan ..... ■ ö 1938 Ford Sedan .... 1937 Buick Sedan ... 1938 Buick Sedan .... 1940 Chevrolet Coach ......... 1938 Hudson Sedan ......... 1937 Nash-Lafayette ^^0g 1938 Nash-Lafayette $695 1937 Oldsmobile Sedan ......... 1938 Oldsmobile Sedan ......... $695 $595 $695 Over 100 Quality Cars to Choose From Western Canada Motors Ltd. Used Car Showroom — In Our Building Corner Edmonton and Graham Ph. 86 336 USED CAR DEPOT No. 1 Cor. Edmonton and Graham Phone 21 438 USED CAR DEPOT No. 2 Cor. LANGSIDE andPORTAGE (North Star Station) Phone 33 658 USED CAR DEPOT No. 3 215 MAIN ST. SOUTH Phone 94 896 iOPEN EVERY EVENING EXCEPT SUNDAYi íslendingum mun fróðlegt þykja, að sjá hvernig at- kvæði voru greidd þingmanna-efnunum í Gimli-kjördæmi á hverjum kjörstað út af fyrir sig (að 5 afskektum kjörstöð- um undanskildum) í nýafstöðnum kosningum. Samkvæmt- því er meirihluti Joseph Wawrykow 411 atkvæði. Hann sótti undir merkjum C. C. F. flokksins og heitir samvinnu- stjórninni stuðningi eins og gagnsækjandi hans, S. V. Sigurðson, er liberal-progressive flokksmerkið bar. Mr. Wawrykow náði fyrst kosningu 1936, hlaut þá 1800 at- kvæði, en gagnsækjendur hans Thor Lifman 1539 og Ásta Oddson 1066. James Grant, óháður og á móti samvinnu- stjórn, tapaði tryggingarfé sínu. Hér birtist skýrslan: 1—Foley - Sigurdson Lib.-Prog. 10 Wawrykow C.C.F. 107 Grant Ind. (Opp.) 0 2—Husavick 88 88 2 3—Gmli 388 457 5 4—Fraserwood 63 314 5 6—Meleb 35 185 3 8—Camp Morton — 50 48 1 9—Arnes 85 34 1 10—Rembrandt 8 81 0 12—Arborg .. 273 131 5 13—Geysir 122 42 0 14—Hnausa 117 39 3 15—Riverton 397 36 2 16—Ledwyn 37 124 0 18—Vidir 92 33 0 19—Sylvan 17 49 - 0 20—Hecla 144 3 2 22—Shorncliffe 4 137 0 23—Park School 20 118 0 24—Hayek 18 98 0 25—Hamerlik 9 82 0 26—Morwena 8 60 0 27—Silver 19 89 1 28—Jaraslaw 14 74 0 2018 2429 30 John S. Brooks Limited DUNVILLE, Ontario, Canada MANUFACTURERS OF GILL NETTING Okkar net eru búin til úr beztu tegund af hör tvinna og “Sea Island Cotton” Þér megið treysta bœði vörugœðum og verði Allar pantanir fljótt og ábyggilega afgreiddar. Captain M. R. Janes, Leland Hotel, Winnipeg Umboósmaður fyrir Manitoba, Saskatchewan og Alberta í sátt og friði drottins hjörð, vér hvíld í hjarta næðum. Það er meðal annars vegna þessa ósamræmis á milli nátt- úrunnar lögmálanna og mann- lífsins og vegna þráarinnar að geta komist í samræmi við lög- mál heimsins að menn fagna komu vorsins, og sannleikan- um, sem það kennir! Hvar sem íslendingar eru, og halda upp á þennan dag, sem er íslenzkur hátíðadagur í insta eðfi sínu, geta þeir ekki annað en gert þennan samanburð og birt hug- leiðingar af ýmsu tagi, sem benda allar á eitt, þ. e. a. s. á nauðsynina fyrir fullkomnara, kærleiksríkara og guðdómlegra líf hjá öllum mönnum, hverjir sem þeir eru, og hvar sem þeir eru. Þannig, fyrir nokkrum árum, á íslandi, er hann íhugaði komu sumarsins, sagði maður einn: “Aftur er vor yfir landi, og rís hátt veldi ljóss og lifs! Sumar- öflin sigra í ríki náttúrunnar.” En þá spyr hann, er hann snýr sér að ríki mannanna, og íhug- ar það, sem þar gerist, og hann hefir sérstaklega í huga, líf þjóðar sinnar, það er, íslands, en orðin eiga samt við allar þjóðir alstaðar, og alla menn, (hann spyr): “Mun svo einnig í lífi þjóðar vorrar? Verður þeim stökt burt af sumarsól vetrarskuggunum, er dregið hefir saman yfir höfði hennar? Hvernig munum vér bregðast við nýjum verkefnum og nýj- um tækifærum, sem nú gefast oss?” Að svo spurðu, bendir hann á ýmislegt, sem vér, sem þegn- ar þessarar þjóðar megum vel og gaumgæfilega íhuga engu síður en Islendingar á ættjörð- inni og ef til vill miklu fremur. Og vil eg því leyfa mér að hafa eftir honum nokkuð af því sem hann sagði: “Það er auðvelt að benda á margt, sem öfugt er og aflaga fer,” sagði hann, “en harðir dómar hrökkva skamt til þess að bægja frá þjóðarvoða. Sá, sem vill vinna gegn honum, verður fyrst og fremst að stinga hendinni í eigin barm og heyja þar stríð við heiðnina, sem er undirrót allra vorra meina, eigingirni, öfund og hat- ur. Án þess getur hann alls ekkert gert þjóð sinni til bjarg- ar. Oss skortir kristindóm, lif- andi trú á guð og kærleiksanda hver til annars. Þann beiska sannleika þurfum vér að sjá og skilja, og snúa oss þangað, sem hjálpina er að fá. Hvert blóm, hver geislastafur, hver vængur, sem vermir egg í hreiðri, hvert bros í barnsauga visar oss veg- inn! Kærleiksmáttur er að baki tliverunni og hann einn getur orðið þjóð vorri “hulinn verndarkraftur.” Innilegt sam- félag vort við hann, og þann, sem hann sendi, . . . er bjarg- ráðið fyrir oss hvert um sig, og þjóð vora í heild sinni .... það er ekki nóg eins og spámaður- inn sagði, að “kveina í rekkjum sinum,” heldur verður að “hrópa til guðs af hjarta,” hans veruleikans mikla og eina, og láta hverja hugsun og handtak verða þögla bæn um heill fóst- urjarðar vorrar. Þá unir þjóðin ekki lengur því ástandi, sem verið hefir. Þá mun endurtak- ast í lífi hennar saga týnda sonarins, sem mælti: “Eg ferst hér í hungri. Eg vil taka mig upp og fara heim til föður míns.” Þá munu sumaröflin sigra.” Mér fanst þessi kafli vera svo vel viðeigandi, og benda svo vel og nákvæmlega á sannleika, sem vér verðum að viðurkenna, að mér fanst eg mega til að taka hann allan eins og hann lá fyrir. Sumaráhrifin og tákn nýs lífs og nýs anda, sem um- kringja oss, geta ekki annað en vákið í hjörtum vorum, hugs- unina sem felst í orðum týnda sonarins, og löngunina til að snúa aftur til þeirrar breytni og þeirrar framkomu, sem eru í meira samræmi við lögmál guðs, sem gefur öllum líf og anda og alla hluti, til að full- komnast og endurnýjast eins og náttúran umhverfis oss er nú að fullkomnast og endur- nýjast. Eg veit að sumir halda að það sé fjarstæða að vera að tala svona, á tímum eins og þeim sem vér lifum á. En þá er það einnig f jarstæða að vera kristinn! Kenningar kristin- dómsins bíða ekki hagstæðra tíða! Þær eiga við á öllum stundum, og þess vegna eins vel við nú og nokkurntíma. Jörðin er full af dásemdum guðs. En á þeim sviðum sem mennirnir ráða yfir er alt ann- að en dásemdir og fegurð. En samt, eins og sézt af kaflanum sem eg las, og eins og sést af sálmunum sem vér höfum sungið hér í kvöld, og eins og sézt af mörgum öðrum fögrum hugsunum og verkum, sem birst hafa, vita menn betur og vilja betur en þeir oft gera. Þeir eru ófullkomnir eins og Páll postulí forðum og finna oft til ófullkomlegleika sinn eins og hann gerði, þegar hann hrópaði “það sem eg vil, geri eg ekki, en það sem eg vil ekki, það geri eg!” Sannleikurinn er sá, eins og Sir Herbert Samuel hafði eftir vísindamanninum mikla, Ein- stein, á fundi brezka heim- spekifélagsins, fyrir nokkrum árum, að “vandræða ástand heimsins stafaði aðallega frá þeirri staðreynd, að hinar vís- indalegu framfarir hefðu verið miklu örari en hin siðgæðislega þróun. Þegar hinar siðgæðis- legu framfarir næðu hinum vísindalegu, þá mundum vér fá betri tíma.” En þó að hinar siðgæðislegu framfarir séu langt á eftir hin- um vísindalegu framförum, þá hafa menn í sér sæði þess í and- legum skilnngi, sem mun að lokum leiða þá til siðgæðislegr- ar fullkomnunar. Og þá mun- um vép geta sagt að hafi vorað í sálum þeirra og að sumar hins fullkomna siðgæðislífs sé í nánd í heiminum með allri sinni fegurð og fullkomnun. Nú er andlegur vetur í heimi, en samt sjást tákn þess, um- hverfis oss, í mörgu sem vér sjáum í mannssálunum, að sæði hins nýja og fullkomna gróðurs bíði aðeins hlýju sólarinnar til þess að það nái þroska og full- um blóma. Þess vegna megum vér flýta fyrir þeim gróðri, í sálum vorum og í sálum allra

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.