Heimskringla - 30.04.1941, Blaðsíða 7

Heimskringla - 30.04.1941, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 30. APRÍL 1941 HEIMSKRINGLA 7. SIÐA LÝSINGARORÐ Eftir Jón úr Flóanum Af öllum “pörtum ræðunnar” þykir mær vænst um lýsingar- orðin. Það er vegna þess að þau eru það, sem á nýjustu ís- lenzku er kallað: “vængjuð orð.” Það er með lýsingarorð- unum sem vorir gáfuðustu rit- höfundar hefja sig til flugs, þegar ímyndunarafl þeirra brýzt fram eins og vatnsflóð í stórleysingum. . . . Já, þetta getur hver maður séð. Hvað eru nafnorðin t. d. á móti lýs- ingarorðunum? Alls ekkert. Þau eru bara hversdagsleg heiti á hversdagslegum hlutum. Tökum t. d. orðið stóll. Hver getur orðið hrifinn af slíku orði? Stólar og aðrir hlutir, sem við táknum með nafnorð- um eru alt of algengir til þess að þeir komi nokkurri hreyf- ingu af stað í ímyndun vorri. .... Nei, ímyndunaraflið kemst þar ekki að. Sama er að segjd um sagnorðin: þau segja frá einhverju, sem er að gerast, hefir gerst eða mun gerast. En með lýsingarorðin er alt öðru máli að gegna, með þeim má gera hin mestu undur; þau eru saltið í málinu, eða réttara sagt: þau eru alt kryddið í því; máttur þeirra til að breyta allra hversdagslegustu hlutum og umskapa þá er blátt áfram óumræðilega mikill. ... Tökum til dæmis lýsingarorðið glœsi- legur. Hafið þér íhugað, les- endur góðir, hversu fagurt og máttugt það orð er, hversu miklum ljóma það bregður yfir alt, sem það er notað um, hversu handhægt og þægilegt orð það er fyrir alla, sem segja álit sitt um eitthvað. Það má nota það orð um alla hluti að heita má; það má tala um glæsilegt fjall, glæsilegan skóg, glæsilegt hús, glæsilega menn og konur, glæsilega bún- inga, glæsilega framkomu, glæsilegar hugmyndir, glæsi- legan kosningasigur, og svo framvegis. Er nokkur furða þó að rithöfundar noti þetta orð mikið? Mér finst furða, að það skuli ekki vera meira notað en það er. Athugum vel hvað það þýðir, þegar sagt er um einhvern mann t. d. að hann sé glæsileg- ur. Manninum er í einni svip- an lyft upp í einskonar æðra veldi, hann er settur ofar öðr- um dauðlegum mönnum. Og ekki aðeins það, heldur hefir sá, sem orðið notað sýnt, að hann á yfir óvenjulegu ímynd- unarafli áð ráða, hann er ekki f jötraður við þessar hversdags- legu hugsanir, sem aldrei lyft- ast til flugs fremur en moldar- kekkir í flagi. Orðið varpar þess vegna ljóma ekki aðeins á þann, sem það er notað um, heldur líka á þann, sem notar það. En ef einhver vill spyrja, hvað orðið glæsilegur þýði, ná- kvæmlega talað, þá er því til að svara, að það hefir enga ná- kvæma merkingu, og á ekki að hafa hana; það hefir umtaks- merkingu en ekki inntaks- merkingu, eins og þeir segja í rökfræðinni. Það er hljómur- inn í því og hrifningin, sem maður verður fyrir, þegar mað- ur sér þetta orð á prenti, sem ekki aðeins réttlæta það, held- ur líka gefa því einskonar heið- urssess í málinu. Að spyrja eft- ir nákvæmri merkingu þess er eitthvað likt því að ætla sér að handsama kvöldroðann eða ganga undir regnbogann. Orð- ið sjálft er fyrir ofan allar smá- smuglegar útskýringar; það er orð, sem aðeins er notað á augnablikum hrifningarinnar og hugarflugsins; það felst í skáldskapur, hljómur eins og af hvellandi bjöllu. Það er í einu orði sagt dýrlegt orð. Það mætti kalla það hæstu blóm- krónuna í akri málskrúðsins, þeim akri sem er ræktaður af vorum snjöllustu rithöfundum og skáldum. . . . Megi notkun þess, jafnvel í daglegu máli, fara vaxandi eftir því sem tím- ar líða. Og þá dettur mér í hug ann- að lýsingarorð, sem að vísu er ólíkt þessu, en þó að öllu leyti merkilegt. Það hefir djúpa og dularfulla merkingu, alveg mátulega óákveðna til þess að maður er ekki alveg viss um við hvað er átt, þegar það er notað, en heldur samt, að mað- ur fari nokkuð nærri um það. .... Það er orðið íhyglisverður. Það er lítill hljómur í þessu orði, það er ekki hægt að segja að það sé fagurt. En þegar sagt er um eitthvað, að það sé íhyglisvert, þá er nokkuð mikið sagt, rheira heldur en margan grunar. . . . Eins og allir vita er stundum mjög erfitt að segja t. d. um eina bók eða ritgerð að hún sé annaðhvort góð eða léleg. . .. Flestir hlutir eru ekki annaðhvort alveg hvítir eða al- veg svartir, það eru til fjölda margir litlir þar á milli, sem allir eru meira eða minna grá- ir. . . . Þetta er nú bara sam- liking. . . . En orðið íhyglisverð- ur samsvarar, ef svo mætti að orði komast, öllum þessum gráu litbrigðum. Það er hvorki of mikið né of lítið sagt, þegar það er notað. Það getur hver og einn skilið hvað sem hann vill, lesið hvað sem honum þóknast út úr þessu dularfulla orði, sem má gera ennþá dular- fyllra með því að setja framan við það forskeytið all-. all- íhyglisverður. Það getur hver maður séð, að þetta breytir orð- inu til muna, gerir það ennþá óljósara, en um leið dular- fyllra og ísmeygilegra. Svona orð eru ekki á hvers manns vörum. Það þarf mikla æfingu og umfram alt auðugt ímynd- unarafl til þess að geta notað þau svo vel fari. Það mætti skrifa langt mál um notkun- lýsingarorðanna, en eg verð að láta hér staðar numið, því ekki vil eg níðast um of á gestrisni Heimskringlu. ▲ Hér aftan í vil eg hnýta kveðju til góðkunningja míns, Manga úr Móanum, og segja honum, að það standa ekki allir á eins gömlum merg, hvað mál- fræðisþekkinguna snertir og hann. Það getur verið, að þ^ð né nokkur afsökun fyrir þá, sem árum saman hafa skrifað í blöð og aldrei lært að beygja algengustu nafnorð rétt; en eg vil halda því fram, að það sé aldrei of seint að læra, eða gera tilraun til þess, jafnvel þó að menn séu farnir að eldast. Núllinu sendi eg líka kveðju og vil mælast til, að það iðki nú skáldskapinn af kappi, því af þessari einu vísu er auðséð, að þar skortir hvorki andagift né snilli. Að svo mæltu: Glegilegt sumar, hálsar. Og megi vorið hvetja yður alla til nýrra dáða. Og gleymið ekki mætti lýsing- arorðanna. ANNAR SPÍTALI I LONDON VERÐUR FYRIR SPRENGJUM Brezkir spítalar eru sem fyr skotspónn sprengja Hitlers. Mynd þessi sýnir tvær deildir í London spítala eyðilagðar í næturárás nýlega. Læknar og ómeiddar hjúkrunarkonur unnu ásaftit björgunarráðinu frá því um miðja nótt og til morguns við að bjarga sjúklingunum sem innilokaðir voru. til að vinna fyrir Social Credit stefnuna, því eg er sannfærð um að það er eina leiðin til að rétta við hag alþýðunnar og bæta lifskjör manna yfir höfuð; hún miðar að jöfnuði og eining innan þjóðfélagsins, og vinsam- legra viðskifta og friðar milli þjóðanna. Salóme Halldórson DANARFREGN TIL KJóSENDA í ST. GEORGE KJÖRDÆMI Mitt innilegasta þakklæti vil eg biðja Heimskringlu að flytja öllum þeim er studdu Social Credit stefnuna í nýafstöðnum kosningum. Þó Social Credit stefnan biði ósigur í bili, eiga þeir engu að síður heiður skilið sem stóðu við sannfæring sína þrátt fyrir áróður og hótanir, og þeim mun verða að trú sinni; að góður málstaður sigri að lokum. Þó þessi stefna sé nú sem stendur rægð og ofsótt af auð- valdi og embættislýð, ætti það ekki að villa almenningi sýn; þær stéttir hafa altaf staðið öndverðar gegn öllum þeim hreyfingum sem miða til hags- bóta fyrir almenning. Eg mun í framtíðinni eins og að undanförnu gera mitt ítrasta Benjamín S. Guðmundsson bóndi við Árborg, Man., andað- ist að heimili sínu þann 7. apríl, eftir miklar þjáningar af inn- vortis sjúkdómi. Hann var fæddur að Ægisíðu í Húna- vatnssýslu, 22. sept. 1879. For- eldrar hans voru Pétur Stefán Guðmundsson og Guðrún Benjamínsdóttir. Fluttist hann ásamt þeim vestur um haf árið 1883, settust þau að í N. Dak., og bjuggu þar unz þau fluttu til Nýja-lslandi 1901; var Stefán meðal fyrstu landnema, er hinn allra fyrsti er bygði þar sem Árborg nú stendur; nefndi hann heimili sitt “Árdal”, og hlaut bygðin öll hið sama nafn. Varð Stefán einn af þeim er framar- lega stóðu í frumbyggja hópi, og ásamt sinni ágætu konu mjög tengdur Sögu bygðarinn- ar, í ýmsri framkvæmd, en þó einkum og sér í lagi í kirkju og safnaðarmálum. Benjamín ólst upp hjá foreldrum sínum en tók land í grend við Árborg, á bökkum íslendingafljóts árið 1905. Þann 7. maí, það ár gift- ist hann Júlíönu Þorsteinsdótt- ir frá Ingólfsvík í Mikley. Þau eignuðust tiu börn, tvö dóu í æsku, en á lífi eru: Stefanía Guðrún, gift Victor Ágúst Borgfjörð, búandi í Framnesbygð. Thorsteinn Valdimar, giftur Merle Sandro, Bissett, Man. Magnús, Benjamín Franklyn, Hermanía Ágústa, Guðrún Elizabeth, gift F. Finnbogasyni, í Geysisbygð. Kristjónína Helga, og Guð- björg Lilja. Þau barnanna sem ógift eru, eru enn heima. Auk konu og barna syrgja Benjamín öldruð móðir, mörg systkini, og fjölment frændalið nágrannar og vinir. Benjamín varð ungur land- námsmaður, fyrst sem hjálp- andi föðurs síns, en siðar í eigin þágu. Full 35 ár bjó hann að landnámi sínu, studdur af á- gætri eiginkonu, varð heimilið þungt og umfangsmikið, hugur hjónanna til framsóknar á* kveðinn og einbeittur; hlífðu þau sér hvergi í lífsbaráttunni, en mættu skyldum dagsins ó- hikandi og með djörfum huga. Nutu þau aðstoðar barna sinna, er stundir liðu. Mér virtist Benjamín, þessi stilti og karmannlegi maður, myndi með þreyttari mönnum umhverfisins, fyrir mann á hans aldri að vera; aðkallandi annir bóndans, ábyrgð hans og framsókn, framþróun búskap- arins, nýar tilraunir og breyttir starfshættir voru því valdandi, því um sumt snertandi korn- rækt, var hann brautryðjandi. Alt þetta er áhugamanninum ærið þreytu tilefni, og móðir- jörð oft svipul í lund og lætur þá er hana yrkja og rækta, tið- um verða fyrir þungum von- brigðum. Benjamín var hagvirkur maður, er vann fyrir sér og sínum með eigin höndum, en nærðist aldrei á annara sveita. Naut hann æfilangt hjálpar og aðstoðar ágætrar eiginkonu. Þau veittu öðrum af glöðum hug, húsið í þjóðbraut, og stóðu opnar dyr gestrisnu og góðvild- ar þeim er um veginn fóru. Hann var þátttakandi í hinu stóra æfintýri; framsókn vaxt- ar og viðgangs nýrrar bygðar og þar sem hann leggur niður störf taka aðrir við; en hann vann vel og dyggilega meðan dagur entist. Þjáningum við lok æfdagsins tók Benjamín með stillingu og karlmennlegri rósemi, sem öllum önnum æfi- dagsins; og nú er stríðinu lok- ið, en söknuður og þakklæti sveipa minningu hans. Hann var kvaddur hinstu kveðju laugardaginn fyrir páska, þann 12. apríl; fór at- höfnin fram frá heimili hins látna og kirkju Árdalssafnaðar, að viðstöddu margmenni, þrátt fyrir nærri ófærar brautir. Sig- urgleði, samfara söknuði, ein- kendi kveðjustundina. Sá er línur þessar ritar, flutti kveðju- orð. Sigurður ólafsson DÁN ARFREGN Friðfinnur Kristjánsson Austdal andaðist þann 19. apríl, að heimili dóttur sinnar, Mrs. Emmu Poulter, í Selkirk, Man. Hann var fæddur 14. maí 1862, að Höfða á Höfðaströnd í Skagafjarðarsýslu. Faðir hans, Kristján að nafni, druknaði er sveinninn var 5 ára að aldri; fór hann þá til afa síns, Guðmund- ar í Ábæ Austurdal, í Skaga- fjarðarsýslu, en Kristín móðir Friðfinns, var dóttir Guðmund- ar bónda í Ábæ. Hjá afa sín- um ólst hann upp, og dvaldi hjá honum til fullorðins ára. 1 Ábæ giftist Friðfinnu Elízabetu Jónsdóttir, var hún systur- dóttir séra Arnljóts Ólafssonar á Sauðanesi. Friðfnnur og Elízabet fluttu vestur um haf 1902, og settust að í Selkirk, stundaði hann þar lengst af smíðar. Konu sína misti hann fyrir 3 árum síðan. Börn þeirra eru: Kristjana, Mrs. Fuller, Port- land, Oregon. Emma, Mrs. Poulter, Selkirk. Jóhann Pétur í Quebec. Hinn látni var sannur Islend- ingur, tlyggur, vinfastur og sjálfstæður. Hafði heimili þeirra hjóna verið aðlaðandi. Hann naut í elli ágætrar um- önnunar hjá Mrs. Poulter, dótt- ur sinni, og á heimili hennar dó hann, sem fyr er um getið. Viku áður en hún dó, misti hún eiginmann sinn, eftir stutta en þunga legu. , Útför Friðfinns fór fram frá lútersku kirkjunni 21. apríl að mörgu fólki viðstöddu. Gleðilegt eilíft sumar, þreytti langferðamaður! Sigurður Ólafsson Vísindin hafa jafnan and- mælt þeirri hugmynd, að tunglsskinið geti gert fólk sinn- isveikt og mat óætan. En fyrir nokkrum árum var það sannað, að fiskur, sem veiddur var í ánni Níl í Afríku og látinn liggja í tunglsljósi yfir nóttina var orðinn skemdur næsta morgun. ATKVÆÐIN í ST. GEORGE í nýafstöðnum fylkiskosn- ingum skiftust atkvæði á hverj- um kjörstað (að 3 undanskild- um) í St. George-kjördæmi sem hér segir á meðal þing- mannaefnanna. Kosningu hlaut Skúli Sigfússon, er lengi hafði verið fulltrúi kjördæmisins, en tapaði 1936 fyrir Salome Hall- dórsson með 152 atkvæðum. — Meirihluti Sigfússonar nú er 552 atkvæði, eftir þessari óend- urskoðuðu skýrslu að dæma: Sigfús- Hall- son dorson 2— St. Laurent .... 235 130 3— Oak Point 113 90 5— Clarkleigh . .. 113 12 6— Lundar 320 110 8— Deer Horn 88 34 9— Lily Bay 70 13 10— Macross 27 15 11— Eriksdale Í01 78 12— Eastland 27 16 13— Mulvihill 35 75 14— Oatfield 20 32 15— Camper 12 21 16— Ashern 15 23 17— Camper hall —. 31 56 18— Zant 29 11 19— Silver Bay 21 19 20— Darwin 11 44 21— Reykjavík 5 16 22— Wapah 10 4 23— Vogar 99 31 1382 830 BORGIÐ HEIMSKRINGLU— því gleymd er goldin skuld — * - NAFNSPJÖLD - Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstoíusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Sr aS flnnl & skrlfatofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Helmill: 46 Allow&y Ave. Talrími: 33 ÍÍS Thorvaldson & Eggertson Lögfrœðíngar 300 Nanton Bldg. Talsimi 87 034 Omci Phohi Su. Phoni 87 288 72 408 Dr. L. A. Sigurdson 108 MEDIOAL ART8 BUILDINO Omci Hotjks : 12-1 4 P.M. - 6 P.M. &ND BT APPOINTMENT M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINOAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur útl meSðl i vlðlögum ViStalstfmar kl. 2—4 •. h. 7—8 at> kveldinu Simi 80 857 643 Toronto St. Dr. S. J. Johannesðon 806 BROADWAT T&laimi 30 877 VlOt&lstiml kl. S—C e. h. * A. S. BARDAL selur likkiatur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður a& besti. — Ennfremur selur hann allskonar mlnnlsvarða og legsteina. 843 8HERBROOKE 8T. Phone: 80 007 WINNIPEO J. J. Swanson & Co. Ltd. RKALTORS Rental, Insurance and Financial Aoents Sími: 26821 308 AVENUE BLDG.—Winnipeg Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Phone 27 989 S'reah Cut Flowers Dally Planta in Season We specialize in Wedding A Concert Bouqueta & Funeral Deslgns Icelandlc spoken H. BJARNASON —TRANSFER— Baogooe and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutnlnga fram og aftur um bœinn. MARGARET DALMAN TEACHBR OE PIANO 004 BANNINQ ST. Phone: 26 420 DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg. Office 88 124 Res. 27 702 512 Medical Arts Bldg. Dr. K. J. AUSTMANN Stundar eingöngu Augna, ej-rna, nefs og kverka sjúkdóma Dr. J. T. CRUISE, 313 Medical Arts Bldg., lítur eftir öllum sjúkling- um minum og reikningum í fjar- veru minni. THE WATCH SHOP Thorlakson & Baldwin Diamond and Wedding Rings Agent for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 Grenfell Blvd. Phone 62 200

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.