Heimskringla - 11.07.1945, Qupperneq 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. JÚLl 1945
FJÆR OG NÆR
MESSUR 1 ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messur í Piney
Séra Philip M. Pétursson held-
ur tvær guðsþjónustur í Piney,
sunnudaginn 22. júlí, á vanaleg-
um stað og tíma. Bygðarmenn
eru góðfúslega beðnir að láta
þetta fréttast.
* * *
Messa að Lundar
Messað verður að Lundar,
sunnudaginn 15. júlí, kl. 2 e. h.
H. E. Jóhnson
W ★ ★
Skírnarathöfn
Sr. Philip M. Pétursson skírði
fimm börn s. 1. miðvikudags-
kvöld, 4. júlí, að heimili Mrs. S.
V. Einarsson, Gimli, Man. Fjög-
ur þeirra voru börn Mr. og Mrs.
Arnthor Benediktson og heita,
Jóhann Arnthór, Moyra Joan,
Constance Carol og SJieila Do-
reen. Fimta barnið var Wilma
Ellen Stefanía, dóttir Stefáns V.
heitins Einarsson og konu hans,
Elínar Sigríðar Bensdiktson Ein-
arsson. Guðfeðgin barnáhópsins
voru Miss Anna Benedictson og
Mr. E. A. Einarson.
* * *
Úr bréfi
P. S. Pálsson,
853 Sargent Ave., Winnipeg
Eg innlegg hér með 5 dali í
Útvarpsmessusjóð ykkar.
Síðasta ræða séra Philips yfir
loftið var svo óvenjulegt kirkju-
mála hreinlæti, til að þvo af
mannlífinu hugsunarviJJur og
vana meinlæti.
Með virðing fyrir öllu sem
felur í sér betrandi mannlíf sem
verðandi möguleiki lífsins.
Einhver.
Hallur Magnússon frá Seattle,
sem verið hefir hér eystra um
hríð að finna forna kunningja,
Iagði af stað heimleiðis s. 1. mið-
vikudag.
* » *
Próf. Ásmundur Guðmunds-
son fer vestur til Vatnabygða
undir helgina að hitta forna
kunningja, en hann var prestur
þar um slóðir 2 ár fyrir stríðið
1914—1918. Vestur á strönd
býst hann einnig við að halda
flugleiðis og verða kominn til
Vancouver 22. júlí og dvelja þar
og í Seattle nokkra daga.
★ ★ *
Fyrir helgina leit inn á Heims-
kringlu L.A.C. Gunnar Kjartan-
son frá Amaranth, Man.; hann
var á ferð frá Vancouver til Fort
William, þar sem hann býst við
að dvelja um nokurn tíma.
W ★ ★
Meðtekið í Útvarpssjóð
Sameinaða kirkjufélagsins
Mr. og Mrs. A. J. Jóhannsson,
Hallson, N. Dak. $2.00
Björn Stefánsson,
Hallson, N. Dak. 1-10
“Einhver” í Manitoba - 5.00
★ ★ *
íslendingadagsnefndin fyrir
Blaine, Vancouver, Point Ro-
berts og Bellingham hefir nú
lokið undirbúningi fyrir sitt ár-
lega hátíðahald í Peace Arcih
Park. (Sjá skemtiskrá á öðrum
stað í blaðinu).
Eins og að undanförnu hefir
nefndin gert sér alt far um, að
vanda til hátíðahaldsins eftir
föngum og vonar að þessa árs
Islendingadagur verði ekki síður
ánægjulegur öllum er hann
sækja en hinir fyrri.
Aðal ræðumaðurinn, próf.
Sveinbjörn Johnson, er þjóð-
kunnur fyrir þekkingu sína á
Islendingadagurinn í Blaine
SUNNUDAGINN 29. JÚLÍ, 1945
S K E.M T I S K R Á :
1. Ó, guð vors lands.....................Sönflokkurinn
2. Ávarp forseta................................Andrew Danielson
3. Einsöngur..........................Frú O. S. Laxdal
(a) Stóð eg úti’ í tunglsljósi.Sveinbjörnsson
(b) Draumalandið..............Sigfús Einarsson
4. Ræða...............................Séra G. P. Johnson
5. Söngflokkurinn:
(a) Fannhvíta móðir
(b) Þið þekkið fold..............H. Helgason
(c) Fjallkonan.................... O. Lindblad
6. Kvæði....................Jónas Stefánsson, frá Kaldak
7. Einsöngur.........................Frú Ninna Stevens
(a) Gígjan...................Sigfús Einarsson
(b) Svanasöngur á heiði............Kaldalóns
8. Kvæði.........................Séra A. E. Kristjánsson
9. Einsöngur...........................Mr. Carl Julius
10. Söngflokkurinn:
(a) Þú stóðst á tindi..................Ibsen
(b) Þótt þú langförull legðir... Björgvin Guðmundss.
(c) Að fjallabaki.....................Mozart
11. Ræða..........................Próf. Sveinbjörn Johnson
12. Kórsöngur: “Heyr oss”..............A. E. K. of H. S. H.
13. Almennur söngur.................H. S. Helgason leiðir
(a) Ó, fögur er vor fóstur jörð
(b) Hvað er svo glatt
(c) Ólafur reið með björgum fram
(d) Svíf þú nú sæta
(e) Eg man þá tíð
(f) Eldgamla Isafold
(g) America
Oh) God Save the King.
Skemtiskráin hefst stundvíslega kl. 2 e. h.
Undir stjórn Mr. L. G. Sigurdson, flytur gjallarhorn
skemtiskrána til áheyrenda.
Góð Mentun eflir Mann8ildið
Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein-
mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun,
og það fólk sem hennar nýtur hefir venju-
lega forgangsrétt þegar um vel launaðar
stöður er að ræða.
Vér höfum nokkur námsskeið til sölu við
fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg.
Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu
viðvíkjandi, það margborgar sig.
The Viking Press Limited
Banning og Sargent
WINNIPEG :: MANITOBA
forníslenzkum fræðum, einkum
forníslenzkum lögum. Hefir
hann, meðal annars, þýtt á enska
tungu hina fornu lagabók Is-
lendinga, “Grágás”, og með því
vakið athygli annara þjóða á ein-
um hinum merkasta þætti í
menningu þjóðarninar á fyrri
öldum. Þetta verður hans
fyrsta heimsókn til okkar land-
anna á þessum slóðum og er
nefndin sannfærð um að menn
fagni því, að fá þetta tækifæri til
að kynnast honum.
Hinn undur fagri reitur, Peace
Arch Park, stækkar og prýkkar
með hverju árinu sem líður, og
er hinn tilvaldasti staður fyrir
frændur og vini að mætast á.
Hann er í sjálfu sér fyrirheit um
frið á jörð og bræðralag mann-
anna.
Þá hefir ekki heldur veðrið
1 brugðist okkur þennan dag á
liðnum árum og hefir nefndin
bjargfasta trú á því, að svo muni
það enn reynast.
“Hann gaf mér hveitibrauð,
hangikjöt líka af sauð”, sagði
skáldið forðum, og þarf enginn
að kvíða því, að ekki bjóðist
tækifæri til að “gleðja líkam-
ann”, þrátt fyrir alla matar-
skömtun stjórnarvaldanna. Þeg-
ar íslenzku kvenfélögin okkar, í
Blaine, leggjast á eitt með það,
j að seðja gest og gangandi, er
: óhætt að reiða sig á það, að þær
I láta engan hungraðan frá sér
j fara.
Munið eftir stað og stund. —
Staðurinn: Peace Arch Park. —
Stundin: Sunnudagurinn 29. júlí
1945,—A. E. K.
* ★ *
Ótti við sólmyrkva
Um þessar mundir hafa blöðin
og einstaklingar talað mikið um
! hinn nýafstaðna sólmyrkva.
Vísindamenn höfðu fyrir |
J löngu vitað um hvenær fyrir- j
brigði þetta mundi eiga sér stað,
og hvar það yrði sjáanlegt. Þeir
reiknuðu svo nákvæmlega út, að
ekki munaði sekúndu.
Almenningur var þannig við
þessu búið, svo það vakti engan
ótta í hugum manna, heldur var
skoðað sem eðlilegt fyrirbrigði.
Fyr á öldum var þetta skoðað
sem tákn og stórmerki, sem boð-
aði stórviðburði, er guðirnir
vildu birta mönnunum fyrir-
fram, eða gefa þeim til kynna
vadþóknun sína á athöfnum
þeirra. Þannig var í hinni sögu- j
legu orustu, er Cyraxares Mediu 1
konungur háði, árið 610 f. Kr.,
við Alyttas Lydiu konung. Þegar
orustan stóð sem hæðst dimdi alt
í einu, og kólnaði svo í lofti, að
menn hugðust að þeir mundu
frjósa. Ótta og skelfingu sló yfir
allan herinn, og er svo varð dimt,
að eigi var vígljóst, fékk óttinn
svo algerlega yfirhöndina, að |
herskararnir tvístruðust, svo við j
ekkert varð ráðið, því allir héldu J
að guðirnir hefðu reíðst, og tekið
sólina af himninum, og mundi
tortíma öllu lífi.
Herforingjarnir sáu engan
annan veg færan, er svo var
komið, en semja frið sem allra
fljótast.
Napopolasar frá Babylon,
stýrði her Mediu-manna, en Sen-
nesis var fyrir liði Lydiu-manna.
M0RE AIRCRAFT
WILL BRING
QUICKER
^JCTQRY
WAR SflVINGS
CERTIFICATES
Þannig endaði skyndilega ófrið-
ur er varað hafði í 6 ár, milli
Meda og Lydiu manna. Það sem
skeði var sólmyrkvi. G. E. E.
t ★ ★
Til sölu
Þrír kvartar af góðu heylandi
og þrír kvartar rentaðir, sem
fylgja. Ágætis beit alt í kring.
Flæðibrunnur, nógur eldiviður
nálægt, sæmilegar byggingar. —
Verð $2,000. Eina mílu frá Otto,
P. O. og IV2 mílu frú Norður-
stjörnu skóla.
Ágúst Eyjólfson,
Otto, Man.
★ ★ ★
“Brautin” II. árgangur
Nýkomin út. Fæst hjá útsölu-
mönnum víðsvegar. — Sjá um-
boðsmanna-skrá á öðrum stað í
blaðinu. — Einnig hjá Björns-
sons Book Store, Winnipeg, og
P. S. Pálsson, 796 Banning St.,
Winnipeg. — Kostar aðeins $1.
Mikið stærra rit iheldur en I. ár-
gangur. Tryggið yður eintak
með því að kaupa strax.
★ * *
Ileimskringla á fslandi
Herra Björn Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík, hefir
aðalumboð fyrir Heimskringlu á
íslandi. Eru menn beðnir að
komast í samband við hann, við-
víkjandi áskriftar-gjöldum, og
einnig allir þeir sem gerast vilja
kaupendur hennar, hvar sem er
á landinu.
Hr. Guðmundsson er gjaldkeri
hjá Grænmetisverzlun ríkisins
og þessvegna mjög handhægt
fyrir borgarbúa að hitta hann
að máli.
★ ★ ★
Til sölu
er á Gimli við sanngjörnu
verði þægilegt íbúðarhús (cot-
tage), 6 herbergi, lóðin 66 fet.
100 fet á lengd. Baldur Jónas-
son, Gimli, sýnir húsið og selur.
★ ★ ★
Messur í Nýja íslandi
15. júlí — Riverton, ferming
og altarisganga kl. 2 e. h.
22. júlí — Geysir, rnes^sa kl. 2
e. h. Víðir, messa kl. 8.30 e. h.
B. A. Bjarnason
★ ★ ★
Séra B. Theodore Sigurðsson
messar sunnudaginn 15. júlí að
Silver Bay, Man., kl. 2 e. h.
★ ★ ★
Áætlaðar messur í Sask.
Sunnud. 15. júlí — Foam Lake
kl. 11 f. h. Leslie, kl. 2 e. h.
Wynyard, kl. 7 e. h.
Ásmundur Guðmundsson
S. Ólafsson
★ ★ ★
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.
♦ ★ ♦
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld ^
sted, 525 Dominion St. Verð
$1.00. Burðargjald 5#.
★ ★ ★
Heimskringla er tjl sölu hjá
hr. bóksala Árna Bjarnarsyni,
Akureyri, Island.
★ ★ ★
Undirritaður óskar eftir að fá
keyptar þessar bækur: Árbækur
Espólíns, Sýslumannaæfir B. B„
Prestatal S. Níelssonar, Skóla-
meistarasögur, Færeyingasögu,
Sverrissögu, Atla.
S. Baldvinson,
Gimli, Man.
★ ★ ★
Skrifið stúlkunni
Ung stúlka á íslandi,—19 ára
— óskar eftir bréfaviðskiftum á
íslenzku, við vestur-íslenzkan
pilt eða stúlku, á svipuðu reki
Áritun er:
Ungfrú Hjördís Hjörleifsdóttir,
Sólvöllum, Önundarfirði,
Iceland, Europe
Látið kassa í
Kæliskápinn
WvhoIa
M GOOD ANYTIME
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Prestur, sr. Philip M. Pétursson
640 Agnes St. Sími 24 163
Messur: ó hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir L
föstudag hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Ungmennafélagið: — Hvert
sunnudagskveld kl. 8.30.
Skátaflokkurinn: Hvert mið-
vikudagskveld kl. 6.30.
Söngœfingar: Islenzki söng
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju miðvikudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.30 e.h.
IVI I N N I S T
B-E-T-E-L
í erfðaskrám yðar
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAE
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra ti!
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis 1
$1.00, sendist fjármálarit
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man
Bókamaður einn lánaði kunn-
ingja sínum tvö bindi úr merku
ritsafni, sem hann átti, en fékk
1 þau ekki aftur, hve oft sem hanr
áminti vininn um að skila þeim.
Seinast tók hann það ráö að
j senda manninum öll hin bindin
og þstta bréf með:
— Hér með fylgja bindin, sem
eftir voru, svo að annaðhvor okk-
ar hafi að minsta kosti ritsafniö
heilt.
Daginn eftir var ritsafninu
skilað.
★ ★ ★
Sonurin:n Veiztu það pabbi,
að í sumum hlutum Indlands
þekkja mennirnir ekki konurnar
sínar fyr en þeir eru giftir þeim.
Faðirnin: O-því skyldi Ind-
land vera öðruvísi en önnur lönd
að því leyti.
VIÐ KVIÐSLITI
Ti] linunar, bóta og styrkta:
•eynið nýju umbúðirnar, teyi'J-
lausar. Stál og sprotalausar. —
Skrifið: Smith Manfg. Company.
Dept, 160, Preston, Ont.
Prófessorinn (á prófi): — Eruó
þér í einhverjum vandræðum
með þessa spurningu, maður
minn?
Stúdentinn: — Nei, enga'1
veginn, en eg er í hálfgerðum
með svarið.
Námsskeið til sölu
við fullkomnustu verzlunar-
skóla í Winnipeg. Upplýsingar
gefur:
»
The Viking Press Ltd.
853 Sargent Ave., Winnipe9
m'
LESIÐ HEIMSKRINGLU
bezta íslenzka fréttablaðið
MUSIC
Tólf sönglög, Friðrik Bjarnason ____________ $
Sex sönglög, Friðrik Bjarnason__________________
Tvö kvæði, St. G. St., Jón Laxdal
Að Lögbergi, Sigfús Einarsson
Til Fánans, Sigfús Einarsson_________
Jónas Hallgrímsson, Sigfús Einarsson
Pétur Guðjónssen, Sigfús Einarsson
Fáninn, Sveinbjörn Sveinbjörnsson
Now is the North of Maying, Sv. Sveinbjörnsson
Up in the North, Sveinbj. Sveinbjörnsson
Þrjú sönglög, Bjarni Þorsteinsson
Bjarkamál, Bjarni Þorsteinsson
Huginn, F. H. Jónasson __________________________
Þrjú sönglög, Hallgr. Jónsson _______;___________
Serenata, Björgvin Guðmundsson
Passíusálmar með nótum
Harmonia, Br. Þorláksson
1.
Söngbók ungtemplara, Jón Laxdal _________________
Skólasöngbókin II., Pétur Lárusson_______________
Ljúflingar, Sigv. S. Kaldalóns, Bl. raddir _______
Aive Maria, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur
Suðurnesjamenn, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur
Þrá, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur ______________
Eig bið að heilsa, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur _
Betlikerlingin og Ásareiðin, Sigv. S. Kalalóns, Eins.
Máninn, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur ___________
Kaldalóns þankar, Sigv. S. Kaldalóns, Piano
Serenaði til Reykjavíkur, Sigv. S. Kaldalóns, Eins.
Þótt þú langförull legðir, Sigv. S. Kaldalóns, Eins„-
14 sönglög, Gunnsteinn Eyjólfsson _______________
Ljósálfar, Jón Friðfinnsson
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
.35
60
.50
.35
.25
.00
.50
.35
.30
.50
.75
.50
.35
.50
.25
.25
.50
.50
5 einsöngslög, (með ísl. og enskum texta) Sig. Þórð.
BJÖRNSSON’S B00K STORE
702 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN