Heimskringla - 03.10.1945, Side 3
WINNIPEG, 3. OKTÓBER 1945
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA
gekk einn af starfsmönnum hans
inn í skrifstofuna og rétti honum
pappírsblað.
Á blaðinu stóð sú fregn, að
flugkennarinn, sem var með hon-
um í flugvélinni daginn áður,
hefði hrapað með flugvél sinni
°g beðið bana.
10.
Nokkrum vikum síðar kom
líkt atvið fyrir. Churchill fór
reynsluflug með nýrri tegund
sjóflugvélar. Var lagt upp frá
Southampton, og reyndist vélin
hin bezta á fluginu.
Eftir reynsluflugið lagði Chur-
chill af stað til Sheerness og var
hinn ánægðasti. Þegar þangað
kom, biðu hans þær fregnir, að
flugvélin, sem þremur tímum
áðurhafði reynst óaðfinnanleg til
flugs, hefði hrapað í sjó niður og
týnst, ásamt þremur sjóliðsfor-
ingjum, sem með henni voru.
11.
Á vígstöðvunum í Frakklandi
árið 1916, skeði það, að Chur-
chill, sem þá var orðinn majór í
landhernum, fékk skipun um að
hitta herforingja herliðsins á til-
teknum stað, nokkrum kílómetr-
um að baki víglínunnar.
Hann kom til mótsins á á-
kveðnum tíma, en er hann kom á
staðinn, sem tiltekin var, veit-
ingahús, sem hafði verið skotið
næstum því í rústir, beið hans
riðilsforingi, sem tilkynti að bif-
reið, sem þeir áttu að hafa til
afnota hefði sökum misskilnings
verið send eitthvað annað, og að
herforingjanum hefði leiðst bið-
in og væri hann nú farinn aftur
til aðalstöðvanna. Annars hafði
erindið ekki verið áríðandi, her-
foringinn ætlaði aðeins að rabba
við Ohurchill, en þeir voru kunn-
ingjar frá Lundúnum.
Þegar Churchill náði aftur til
herdeildar sinnar, komst hann
að raun um, að skotgrafarbyrgi
hans hafði orðið fyrir sprengi-
kúlu og gereyðst.
12.
Skömmu eftir að fyrri heims-
styrjöldinni lauk munaði min§tu
að Churchill brynni til bana í
flugvél. Hann hafði flogið yfir
Ermarsund, lent sem snöggvast í
Lympe og var á flugi til Lund-
úna, er hann skyndilega varð
þess var, að vélin breytti skyndi-
lega um stefnu og hélt til hafs,
en siðan aftur til lands og lækk-
aði flugið með þeim hætti, að
bersýnilega var, að flugmaður-
>nn hafði ekki lengur stjórn á
henni.
Á sama augnabliki sá Chur-
chill reyk leggja úr flugmanns-
lefanum. Vélin átti aðeins
undrað metra ófarna til jarðar,
en hækkaði þá alt í einu aftur
fiugið. .Eldur tók nú að brjótast
m í vélÍHHi, en á síðasta augna-
bhki tókst samt að ráða niður-
öpim hans með slökkvitækjum.
okst þar giftusamlegar en að ■
stæður lágu til, annars hefði
enginn, sem með flugvélinni var,
komist lífs af.
13.
13. desember 1931 lenti Chur-
chill enn í lífshættu, en með öðr-
um hætti, er bifreið ók á hann í
New York.
Hann var lagður í sjúkrahús.
Sár hafði hann hlotið á höfði og
nam það að beini. Einnig hlaut
hann meiðsl á nefi. í sjúkrahús-
inu veiktist hann af lungnabólgu,
en líkamshreysti hans bar sigur
úr býtum eins og í þessari heims-
styrjöld, er hann veitkist aftur
af lungnabólgu, og varð að halda
kyrru fyrir í Egyptalandi, en
hann var þá á leið til Englands
frá Norður-Afríku.
14.
Einu sinni, er hinum miklu
loftárásum var beint að Lundúna
borg, 1940—1941, var Churchill
staddur í borðsalnum í Downing
Street 10, að enduðum stjórnar-
fundi.
Kvað þá við brestur mikill.
Sprengju hafði verið varpað á
byggingu fjármálaráðuneytisins,
næsta hús við Downing Street
10. Tólf menn fórust.
Ljósakróna féll niður á borðið
sem Churchill sat við í borðsaln-
um. En enginn þeirra, sem þar
voru staddir, varð fyrir slysi.
—Alþbl. 12. ágúst.
FRELSIÐ f RÚSSLANDI
Kommúnistar hér á landi og
erlendis gera mikið að því að lof-
syngja hið dásamlega frelsi, sem
ríkir í Rússlandi. — Hafi ein-
hverjir lítilsigldir Rússa sinnar
orðið til þess að taka undir iþenn
an óð, hafa kommúnistar rokið
upp til handa og fóta, þýtt áróð-
ur þeirra á fjölmargar tungur og
lagt sig alla fram um að slá þessa
menn, sem annað hvort eru skyn
litlir sakleysingjar eða málaliðs-
menn kommúnista, til riddara,
eins og sagan af djáknanum af
Kantaraborg sannar glegst. En
hafi einhverjir orðið til þess að
láta í ljós gagnstæða skoðun,
hafa kommúnistar veitst að þeim
með fúkyrðum og skreytni, sem
einkenna málaflutning þeirra
allan.
•
Aðbúð erlendra blaðamanna í
Rússlandi mætti vera hlutlaus-
um mönnum sönnun iþess, að því
fer alls fjarri, að í Rússlandi ríki
frelsi og lýðræði. — Hvað eftir
annað hafa borist fnegnir af því,
að Rússar hafi bannað erlendum
fréttariturum að ferðast um í
löndum þeim, sem 'herir þeirra
hafa náð á vald sitt, svo og að
ferðast um heim í Rússlandi.
Hins vegar hafa Rússar sótt það
fast, að fréttariturum blaða
þeirra og útvarps væri leyft að
ferðast um í löndum þeim, sem
herir vesturveldanna ráða yfir.
Hefir hinum rússnesku fréttarit-
urum reynst þetta auðsótt, svo og
að starfa að vild sinni í heima-
löndum Engilsaxa og annara
lýðræðisþjóða.
AlþýðUblaðið flutti í þessari
viku ummæli brezka fréttaritar-
ans heimsfræga, Pauls Winter-
tons, um kjör og starfsskilyrði
erlendra fréttaritara í Rússlandi.
Hefir Winterton dvalist lang-
dvölum í Rússlandi og verið tal-
inn mjög vinsamlegur Rússum.
En rússnesku stjórnarvöldin
hafa lagt áherzlu á að torvelda
honum og samherjum hans störf
sín. Winterton kemst þannig að
orði, að rússneska ritskoðunin
geri erlendum fréttariturum ó-
kleift að starfa í Moskvu. Er-
lendu fréttaritararnir í Rúss-
landi telja starf sitt þar vonlaust
og fýsir að komast þaðan brott
hið fyrsta. — Winterton sá sér
ekki annað fært en hverfa brott
frá Rússlandi, og hafa velflestir
hinna erlendu fréttaritara í
Moskvu farið að dæmi hans. —
Winterton gefur þær upplýsing-
ar, að rússn<eska ritskoðunin geri
það að verkum, að ómögulegt sé
að birta óhlutdrægar lýsingar af
afstöðu Rússa til Breta og þess
sem hinir síðar nefndu hafi lagt
af mörkum í styrjöldinni. Sama
gildir um ástandið í Eystrasalts-
ríkjunum, Póllandi, Rúmeníu og
öðrum þeim löndum, sem Rúss-
ar hafa á valdi sínu, svo og um
meðferð stríðsfanga og hernárn
Rússa á Þýzkalandi.
Einu fréttaheimildir erlendu
blaðamannanna í Moskvu. eru
rússnesku blöðin og gömul ein-
tök af ferðabók Baedeckers. -
Rússnesku stjórnarvöldin láta
Tass-fréttastofuna annast dreif-
ingu frétta og örfáar aðrar frétta
stofur, en þessari stefnu þeirra
til grundvallar liggur tortryggni
þeirra í garð útlendinga.
Áróðursmenn kommúnista
munu eflaust svara þessum upp-
lýsingum hins heimsfræga,
brezka fréttaritara á þá lund, að
hann sé “Rússahatari”. Þeir
munu, ef að líkum lætur, telja sig
mun fróðari um ástandið í Rúss-
landi en Paul Winterton og aðra
þá, sem dvalist hafa langdvölum
í ríki Stalins og kveða upp dóma
um rússnesk viðhorf á grund-
velli reynslu sjálfra sín. En
hlutlausum mönnum mun ef-
laust finnast þessar upplýsingar
athyglisverð sönnun þess, að í
Rússlandi ríki ekki frelsi og lýð-
ræði, heldur 'harðstjórn og ein-
ræði. Málfrelsi, ritfrelsi og skoð-
anafrelsi er þar óþekt fyrirbæri.
Kjör og starfsskilyrði hinna er-
lendu fréttaritara í Rússlandi
minna á aðbúð þá, sem erlendir
fréttaritarar urðu að una í
Þýzkalandi, Italíu og Japan á
árunum fyrir heimsstyrjöldina.
Hugarfarið er hið sama, þótt ein-
ræðisserkurinn sé annars vegar
brúnn en hinsvegar rauður.
Það gefur að sjálfsögðu að
skilja, hvers konar “frelsi”
starfsmenn rússneskra blaða og
útvarps muni una fyrst búið er
að erlendum fréttariturum þar
í landi á þann hátt, sem Paul
Wniterton lýsir. Það er “frelsi”
skilyrðislausrar þjónustu og
hlýðni við stjórnarvöldin. Það er
“frelsi” þrælslundarinnar og
þrælsóttans.—Alþbl. 11. ág.
€IGI mfl GEFAST UPP...
verk vort er einungis halfgert
CANADA er okkar kjörland. Frá öllum
landshlutum heimsins hefir fólk komið
hingað, og kosið sér þetta land til fram-
tíðar dvalar.
Allir kynflokkar heimsins, mælandi á sína
eigin tungu, hafa horft til Canada sem
“lands vona og vegsemda”, og þeir hafa
ekki orðið fyrir vonbrigðum eða missýn-
ingum. Á allra þjóða tungum hafa inn-
flytjendurnir prísað fegurð, frið og gæði
þessa útvalda lands.
Nú erum við öll Canada fólk . . . sumt
eldra . . . sumt yngra . . . en öll erum
við Canadisk, og þar af leiðandi erum við
öll þátttakendur í öllu því sem Canada
hefir að bjóða.
Á sama tíma sem við höfum borið sigur
úr býtum gegn Þjóðverjum og Japönum,
höfum við enn verk að vinna ... áríðandi
verk.
Höfuðskylda vor er til handa fólks vors
sem herskyldu hefir haft með höndum.
Þúsundir þeirra eru nú á heimleið frá
herstöðvunum, þaðan, sem þeir hafa unnið
sér frægð og frama. Margt þetta fólk
þarf læknishjálpar við . . . aðrir aðstoðar
til ákveðins atvinnu-reksturs.
VIÐ HEIMAFÓLKIÐ, megum ekki svíkja
þessa riddara og skjaldmeyjar. Þeirra er
rétturinn til lánsamara og arðsamara lífs.
Til þess að svo megi verða þarf skatta-
álagningar eða Victory Bonds . . . eða
hvorutveggja.
Að kaupa Victory Bonds er geðfeldara
heldur en að borga með sköttum. Kaupið
tvisvar sinnur meira en áður, og hafið
hugfast, að með sömu hlutföllum við fyrri
lán, fáið þér nú helmingi meira, því nú er
tólf mánaoa borgunar-frestur í stað sex.
Það eru fjórar aðferðir að kaupa þessi
Victory Bonds:
1. Peninga út í hönd.
2. Mánaðar afborganir af kaupinu í tólf
mánuði.
3. Með gjaldfrestunar skilmála, þannig,
að þú festir kaup í Victory Bonds, eftir
því sem þér áskotnast peningar.
4. Með sérstökum samningum við Banka
þinn, lánfélag eða fjárhaldsmann.
Munið, að hver dollar sem þið leggið í
þetta lán, verður borgaður að fullu, ásamt
vöxtum, þegar það fellur í gjalddaga.
Verjið peningum yðar í þarfir lands yðar.
Verið viðbúin að kaupa
VICTORY BONDS