Heimskringla


Heimskringla - 24.10.1945, Qupperneq 8

Heimskringla - 24.10.1945, Qupperneq 8
8. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 24. OKTÓBER 1945 FJÆR OG NÆR MESSUR t ÍSLENZKU SAMBANDSKIRKJUNUM Messur í Winnipeg Séra Philip M. Pétursson messar við báðar guðsþjónustur Sambandssafnaðar í Winnipeg n. k. sunnudag, kl. 11 f. h. á ensku, og kl. 7 e. h. á íslenzku. Ung mennafélagið heldur fund á hverju sunnudagskveldi kl. 8.30. Söngflokkarnir koma saman á æfingar á hverju miðvikudags- kvöldi og föstudagskvöldi. ★ ★ ★ Messuboð Wynyard, 28. okt. kl. 2 e. h. Leslie, 4. nóv. kl. 2 e. h. Wynyard, 11. nóv. kl. 2 e. h. Wynyard, 18. nóv. kl. 2 e. h. H. E. Johnson ★ ★ ★ Kvenfélag Sambandssafnaðar efnir til spilasamkomu fimtu- daginn 8. nóvember kl. 8 að kvöldi ’í samkomusal Sambands- kirkju á Banning og Sargent. Verðlaun veitt fyrir spil og kaffi frítt. ♦ ★ * Gifting Þriðjudaginn, 25. september fór fram giftingarathöfn í Sam- bandskirkjunni í Winnipeg er prestur safnaðarins, séra Philip M. Pétursson, gaf saman í hjóna- band Captain Voris Smee Peden og Jónu Ingibjörgu Bellingham. Þau voru aðstoðuð af Edward W Kutch, mági brúðarinnar og Mrs. Lorraine Anderson systur henn- ar. Brúðurin er dóttir þeirra hjóna Guðjóns Ingólfs Goodman og konu hans, Björgu Elisabeth Björnson Goodman. Brúðgum- Tilkynning um fulltrúa okkar á fslandi Umboðsmaður okkar á Islandi er Björn Guðmunds- son, Reynimel 52, Reykjavík. — Hann tekur á móti pöntunum á blöðunum og greiðslum fyrir þau. Heimskringla og Lögberg Þrjár stúlkur óskast í vist Elliheimilið Betel á Gimli, þarf að fá þrjár íslenzkar stúlkur nú þegar í vist. Gott kaup í boði, og fyrsta flokks aðbúnaður. Umsóknum veitir viðtöku forstöðukonan á Betel, Miss Sveinsson. inn er í Bandaríkja hernum, og gera brúðhjónin ráð fyrir að framtíðar heimili verði syðra, i Bandaríkjunum, í Lincoln, Neb * ★ ★ W. J. Lindal dómari 'leggur af stað í kvöld vestur til Saskatoon. Hann situr þar fund með nefnd úr þremur vesturfylkjunum, er fjallar um atvinnumál; Mr. Lin- dal er forseti þessa fundar. ★ ★ ★ Skírnarathöfn Mánudaginn 22. okt., Skírði séra Philip M. Pétursson, Mur- ray John, son þeirra íhjóna Omar Myron Black og Regínu Guðrúnar Halldórson Black, að heimili hans, 640 Agnes St., í Winnipeg. Mrs. Blaok er dóttir þeirra Mr. og Mrs. John Háll- dórson í St. Vital. * * * Jóns Sigurðssonar félagið efn- ir til minningar hátíðar 11. nóv. n. k. í Fyrstu lút. kinkju. ★ ★ ★ Mrs. Sólveig Guðrún Johanns- son, ste 14—602 Agnes St., dó síðast liðinn máudiag að heimili sínu. Jarðarförin fer fram í dag (miðvikudag) frá Fyrstu lút. kirkju. Hin látna var 86 ára, ekkja eftir Skúla Jöhannsson, bróður Ásmundar P. og Gunn- laugs Jóhannssona. ★ ★ ★ Magnús G. Guðmundsson frá Wynyard, Sask., hefir d.valið hér í bænurti nokkra undanfarna daga í heimsókn hjá skyldmenn- um og vinum. Hann heldur heim aftur í kvöld. * ★ ★ Kominn til íslands Fréttin barst hingað í morgun um að Emil Guðmundsson frá Lundar, sem ætlar að nema guð- fræði í Reykjavík, hafi komið þangað í gær, 23. okt., með Skip- inu “Fanney”. Það er fyrir frið að vinna! Til þess að við getum kallað sigurinn algjörann, verður hver og einn okkar að taka sinn skerf í endurreisnar starfinu sem nú kallar að. Særða og lamaða verður að lækna . . . hungruðum og klæðlausum verður að líkna . . . borgir verður að byggja að nýju. Konur vorar og menn, sem með hugprýði og sjálfsafneitun hafa borið hita og þunga dagsins, ætlast nú til þess, að við gefum þeim hlut- deild í hinum fegurri og betri heimi sem bari$t hefir verið fyrir. Skerfur Manitoba til hins níunda Sigurláns er ákveðinn að vera $100,000,000. Fylkisstjórn vor mun enn á ný leggja tryggingar og varasjóðsfé sitt til þessara verðbréfa kaupa, en til þess að markinu verði náð, verða allir íbúar fylkis vors að leggja fram sína ítrustu krafta. Vegna framtíðar vorrar . . . vegna þeirra sem við elskum og þeirra sem okkur er ant um . . . vegna framtíðarlands- ins, Canada, verðum við nú að taka höndum saman jafn fúslega og örlátlega eins og á fyrri árum, til tryggingar þessu láni. Mr. Björn Stevenson á Akra, N. D., annast um innheimtu fyr- ir Heimskringlu að Akra, Cava- lier og Hallson. Eru áskrifend- ur blaðsins beðnir að minnast þessa. ★ ★ ★ Gifting Gefin voru saman í hjónaband laugardaginn 20. okt., þau Allan Winter og Mary Lila Jane Grim- stead, að heimili séra Philip M. Pétursson. Brúðurin er af ís- lenZkum ættum í móðurætt. — Móðir hennar er Lóa Brynstína Anthony (Antoníusardóttir) Grimstead, ættuð frá Seyðisfirði á íslandi. Brúðhjónin voru að- stoðuð af Mr. G. W. Miller, og Mrs. Miller systur brúðarinnar. ★ ★ ★ % Hörður Einarsson, sem yfir stríðsárin hafði yfirnumsjón þeirrar deildar flugskólans í Winnipeg, er instrumental fly- ing er nefnd, hefir nú í félagi með öðrum manni keypt bílavið- gerðarstöð, sem St. James Gar- age*heitir og er vel útbúin með áhöldum. Hún er vestur með Portage Ave., á Bradford stræti. Löndum hans, sem bíla, eða vagna eiga, skal bent á að við- gerð fæst þarna góð og skjót og á sanngjörnu verði. Sími 62 922. ★ ★ ★ Gefið í minningarsjóð Quill Lake safnaðar, Wynyard, Sask.: Frá Mrs. Kristrúnu Hall $10.00 í minningu um eiginmann henn- ar, Ólaf Hall, dáinn 2. jan. 1942. Með samúð og þakklæti, J. O. Björnson, féhirðir ! * ★ * Stúkan Hekla heldur sína ár- legu Tombólu til styrktar sjúk- um, 5. nóv. n. ík. Drættir eru á- gætir og skemtun verður þarna hin bezta. » ★ * Til kjósenda í St. George Mitt hjartans þakklæti til þeirra mörgu I&lendinga er greiddu mér atkvæði í fylkis- kosningunum þann 15. þ. m. í St. George kjördæmi. Og sér- staklega vil eg þakka því góða fóllki sem lagði mikið á sig að vinna fyrir mig á einn eða ann- an hátt í kosningunum, og alt endurgjaldslaust. Eg eignaðist marga nýja vini og verða ferðir mínar um kjördæmið mér ó- Hársnyrting — beztu aðferðir AMBASSADOR Beauty Salon 257 KENNEDY ST. sunnan við Portage Talsími 92 716 S. H. Johnson, eig. Central Dairies Limited Kaupa mjólk og rjóma Areiðanleg og fljót skil Telephone 57 237 121 Salter St. — Winnipeg Eric A. Isfeld, ráðsmaður Office 96 731 Res. 53 893 DR. K. J. AUSTMANN SPECIALI^T EYE, EAR, NOSE and THROAT 704 McArthur Bldg. Cor. Portage & Main Office hrs.: Tues. & Thur. 5—8 Saturdays 2—5 gleymanlegar, því eg lærði margt og mikið. Oak Point, 22. okt. 1945. Eiríkur Stefánsson ★ ★ ★ Gjafir til Sumarheimilis ísl. barna að Ilnausa, Man.: Leiðrétting: I seinasta gjafalista Sumar- heimilisins er prentað Mr. og Mrs. W. J. Arason og fjölskylda, Gimli $5.00, enn á að vera Mr. og Mrs. W. J. Árnason og fjöl- skylda, Gimli $5.00. ★ ★ ★ íslenzkar skólabækur Margir hafa hugsað sér að láta verða af því, að kenna börnum sínum að lesa íslenzku á þessum vetri. Þjóðræknisfélagið hefir á hendi, forða af ágætum lesbók- um, sem notaðar eru við íslenzku kenslu í skólum á Islandi. Laug- ardagsskólakennarar og foreldr- ar ættu að útvega sér þesjar bækur. Bækurnar eru þessar: : Gagn og gaman (stafrofskv.) 45c Litla gula hænan I. og II. og Ungi litli I. og II., 25c heftið. Lesbækur: Fyrsti flokkur, I., II. og II. h. Annar flokkur I. og II. hefti Þriðji flokkur, I. og III. hefti Fjórði flokkur, I. og II. hefti 30c heftið. Pantanir sendist til: Miss S. Eydal, 659 Sargent Ave., Winnipeg ★ * ★ Til sölu Tvö lönd, (V2 section) af góðu landi meðfram Manitoba-vatni, 2 mílur frá járnbrautarstöð, skóla og þjóðvegi. Þriggja her- bergja timburhús er á eigninni og löndin inngirt. Fullkominn eignaréttur á landinu (clear title). Viking Press vísar á. Forsœtisróðherra THE GOVERNMENT OF THE PROVINCE OF MANITOBA n youiMnne, Suy VICTORY BONDS Komið í Drengja Fata-deildina, þar eru Hlýir, Fallegir og Endingargóðir PARKAS Drengja vetrarklæðnaður- inn, parka, eru að ná mikl- um vinsældum vegna þess hve auðvelt er að klæðast þeim, þeir eíu vindheldir, hlýir og áferðar-góðir. Loðbrydda húfan skýlir andliti, eyrum og hálsi. — Renni-lás að framan, teygju 1 band eða draglindi um mitt- ið, hlýlega fóðrað, prjónaðir smokkar og handhægir vas- ar. Saumaðir úr góðu bóm- ullar gabardine, nokkrir hafa corduroy bryddingar. Litirnir eru: mórauðir, blá- ir, brúnir og grænir. Mismunandi stœrðir, 8 til 18 ára...................... -Drengjafatnaðar deildin, fimta gólfi. 6.95,,, S10.95 T. EATON C°u LIMITEQ Látið kassa í Kæliskápinn WynoU The SWAN MFG. Co. Manufacturers of SWAN WEATHER-STRIP 281 JAMES ST., WINNIPEG Phone 22 641 Halldór M. Swan, eigandi Thos. Jackson & Sons LIMITED COAL — COKE BRIQUETTES Phone 37 071 (Priv. Exch.) 370 Colony St. Winnipeg PRINCESS MESSENGER SERVICE Við flytjum kistur og töskur, húsgögn úr smœrri íbúðum og húsmuni af öllu tœi. 58 ALBERT ST. — WINNIPEG Sími 25 888 C. A. Johnson, Mgr. KAUPIÐ HEIMSKRINGLU— bezta íslenzka fréttablaðið MESSUR og FUNDIR i kirkju Sambandssafnaðar Prestur, sr. Philip M. Pétursson, Ph.B., B.D. 640 Agnes St. Sími 24 163 Messur: á hverjum sunnudegi Kl. 11 f. h. á ensku Kl. 7 e. h. á islenz.ku. Safnaðarnefndin: Fundir 1. föstudag hvers mánaðar. Hjálparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðjudag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Ungmennafélagið: — Hvert sunnudagskveld kl. 8.30. Skátaflokkurinn: Hvert mið- vikudagskveld kl. 6.30. Söngœfingar: lslenzki söng- flokkurinn á hverju föstu- dagskveldi. Enski söngflokkurinn á hverju miðvikudagskveldi. Sunnudagaskólinn: Á hverjum sunnudegi, kl. 3 e. h. M/AV/S7 BETEL í erfðaskrám yðar SKEMTISAMKOMA PRÓGRAM OG DANS undir umsjón deildarinnar “Frón” verður haldin MANUDAGINN 29. OKTÓBER 1945 l. O. G. T. HALL, SARGENT AVE. Þar flytur Guðmundur V. Hjálmarsson frá Reykjavík ræðu. Guðmundur skáld Daníelsson frá Guttormshaga les upp og flytur kveðjur. Margrét Helgason synigur einsöng, ásamt f'leiru er á skemtiskrá verður. Red River Ramblers spila fyrir dansinum. AUur ágóði af samkomunni gengur í námssjóð Miss Agnes Sigurðsson Fjölmennið og styrkið gott málefni. Inngangur $1.00 Byrjar kl. 8.15 e.h. Aðgöngumiðar fást hjá báðum íslenzku blöðunum, Bóka búð Davíðs Björnssonar og G. Levy, 689 Sargent Avenue. a/ We made certain promises when our boys went Overseas . .. promises we knew would take money . . « RIGHT? H Those promises included rehabilitation, hospitaliza- ” tion, pensions for wounded and bereaved . . . RIGHT? ^ No one of us would darc suggest that to fulfill those promises to the Ietter would do any more than pay a small part of our debt to our fighting men . . .. RIGHT? Therefore, we must invest in Victory Bonds... more ” than ever before • • • in order to meet this great obligation . RIGHT ? RIGHT! BUY VICTORY BONDS s/ett yotm tttttne fok vtctotty Oiiti T_k|/clfvu I-.... I—— m

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.