Heimskringla - 05.06.1946, Qupperneq 1
vVe recommend for
your approval our
"BUTTER-NUT
LO AF "
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
We recommend for
your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LX. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 5. JÚNI 1946
NÚMER 36.
FRETTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Manntjón og hótelbruni
Skeyti í morgun sunnan frá
Chicago, hermir, að eldur hafi
komið upp í LaSalle hótelinu í
nótt og sé það að brenna. 52
menn hafa farist ,en um 200
meiðst. Hótelið var 20 gólfhæðir
og í miðju viðskiftahverfi borg-
arinnar.
í minningu um Roosevelt
I>að hefir um skeið verið mikið
um það hugsað, að reisa Roose-
velt forseta minnismerki í Can-
ada. Góðhugur hans til þessarar
þjóðar, var alveg sérstakur, eins
og kunnugt er, og lýsir sér í ítök-
um þeim, sem hann á hér í hvers
manns hjarta. Nefnd sú í þessu
landi sem um verijd sögulegra
minja sér, hefir haft mál þetta
til athugunar og leggur nú til,
að Roosevelt verði reist minnis-
merki á eyju þeirri, er hann
reisti sér sumarheimili á og
dvaldi í um tíma úr hverju ári.
Eyjan heitir Compobello Island
í Fundy-flóanum.
Orð forsetan um, “að ef ráðist
yrði á Canada af utan að kom-
andi þjóð, mundu Bandaríkin
ekki sitja hjá,” vöktu hér þá at-
hygli, er þau voru töluð, að seint
munu fyrnast.
Kolaverkfallið í B.ríkjunum
Verkamenn í linkolanámum
Bandaríkjanna gerðu verkfall
um sama leyti og verkfalli þjóna
á járnbrautum lauk, en því er
nú einnig lokið. Stjórnin skarst
þar í leikinn og bauð um 18 Va
centa kauphækkun og veitti auk
þess ýms önnur hlunnindi. En
það skrítna við þetta verkfall,
var, að John L. Lewis, foringi
verkamanna lét aldrei meðan á
verkfallinu stóð neitt uppi um
hve mikla kauphækkun verka-
menn færu fram á. Það var ann-
að mál, sem honum var ríkara í
huga. En það var myndun sjóðs
sem hann vildi, að tekin væri af
framleiðslunni, sem svaraði 5
cenutm af hverju tonni. Sjóður
þessi átti að vera verkamönnum
til velferðar, ef sjúkir yrðu, eða
atvinnu brysti. Kolaframleið-
endur greiða nú fé í sjúkrasjóð,
en það sem John L. Lewis vildi,
var -að verkamannasamtökin
hefðu alt eftirlit með sjóð þess-
um. Það vildi hvorki þing né
stjórn heýra og varð svo að
samningi, að sameiginlegt eftir-
]it stjórnar, kolaframleiðanda og
verkamannasamtaka yrði falið
það. Sjóður þessi er gert ráð fyr-
ir að nemi um 70 miljón dölum
á ári.
En með kauphækkuninni, sem
Truman forseti veitti I8V2 centi
á kl.st., hækkar kaup verka-
manna um $1.85 á dag. Miðað
við vikukaup, fær námaverka-
maður, sem áður hafði $10 á dag,
nú kaup yfir 5 daga viku, er
nemur $59.25, en fyrir 6 daga
viku $75.25. Áður var kaup hans
á sama tíma (5 dögum) $50 og
$63.50. 1 viðbót við þetta fá
verkamenn hvíldardaga, með
kaupi, alt upp að $100. Verka-
menn munu hafa haft frá 25
centa til 35 centa kauphækkun
í huga. En þeir hafa nú sætt sig
við þau hlunnindi, er Truman
forseti bauð þeim og sem alls
ekki voru óaðgengileg og í raun
réttri mikill ávinningur fyrir
verkamenn. Það er því vonandi
að kolaverkföll séu fyrst um sinn
úr sögunni. Verkamenn í stein-
kolanámum hafa nú að vísu hót-
að verkfalli, nema því aðeins að
hagur þeirra verði bættur að
sama skapi og verkamanna í lin-
kolanámunum. Mun lítill efi á,
að beiðni þeirra verði veitt.
Jónas Þorbergsson
heiðraður
Veglegt samsæti til heiðurs
Jónasi Þorbergssyni útvarps-
stjóra Islands, var haldið í Fort
Garry gistihöllinni hér í borg-
inni, síðastliðið fimtudagskvöld,
30. þ. m. Veizlustjóri var séra
V. J. Eylands, sem kynti þennan
góða gest samkvæminu. Aðal-
atriðið var löng og skipulega
samin ræða sem heiðursgestur-
inn flutti, var þar drepið á aðal-
drætti úr sögu útvarps fyrirtæk-
is Islands, og var bæði ánægju-
legt og fræðandi að hlusta á
þessa ræðu.
Svo mintist heiðursgesturinn
veru sinnar hér vestra frá 1910
til 1916. Var hlýhugur hans til
íslendinga hér vestra mjög auð-
sær, bæði í sambandi við dvalar-
ár hans þá og eins viðvíkjandi
þessum stutta tíma sem hann nú
hefir verið hér vestra.
Hr. Jón Bíldfell hélt þá stutta
og snjalla kveðjuræðu til heið-
ursgestsins og þakkaði honum
erindið og komuna. Var samsæti
þetta í alla stað hið ánægjuleg-
asta.
Há útgjöld
Á sambandsþinginu í Canada,
voru rekiningar nýlega birtir
yfir útgjöld stjórnardeildanna,
með greinum þeirra eða undir-
deildum sem eru 44. Reikningur-
inn nam 20 miljón dölum fyrir
marzmánuð og þykir óheyrilega
hár. í stjórnarþjónustu eru
147,049. Eru þó ekki í fjárhæð
þessari talin laun senatóra eða
þingmanna, heldur ekki riddara
lögreglu Norðvesturlandsins. —
Póstmáladeildin kostar mest, eða
um $3,363,857. Þar eru 27,360
menn á kaupi. Næst er deild
hermanna (war veterans), með
14,285 þjóna og mánaðarútgjöld-
um, er nema $2,344,632.
Útgjöld þessi svara til tveggja
dollara skatts á mánuði, af hverj-
um íbúa landsins.
Það er ekki hægt að segja nú
lorðið, að við eigum heima í
landi, þar sem ekki þurfi neina
| skatta að greiða.
I
Helgidagur næsta mánudag
Næstkomandi mánudagur, 10.
júní, er helgidagur (Civic holi-
day) í Winnipeg. Það er fæðing-
ardagur George VI Bretakon-
ungs og hefir stjórnin í Ottawa
ákveðið að hans skuli minst, sem
borgaralegs helgidags. Munu
flestir bæir og borgir í landinu
gera það. Stórverzlanir bæjar-
ins hafa lýst yfir að þær hafi
lokað þennan dag; bankar og
stjórnarskrifstofur einnig. Skóla-
ráð þessa bæjar hefir ekki enn
ráðið við sig, hvort skólar skuli
lokaðir, en kvað ætla að íhuga
það á fundi á morgun (fimtudagi.
Er það hverjum í sjálfsvald lagt,
sem á öðrum borgar^-helgidög-
um, hvort unnið er eða ekki.
BRÉF
Silfurbrúðkaup í Riverton
Washington, D. C.,
14. maí, 1946
Kæri ritstjóri:
Erum nú á förum heim til Is-
lands, líklega með skipi frá New
York um næstu helgi.
Sendum hugheilar þakkir og
kveðjur öllum löndum okkar
þarna í Islendingabygðunum. —
Gestrisni þeirra, vinsemd og
yfirleitt allar samverustundim-
ar í vetur verða okkur ætíð
minnisstæðar. Óskum ykkur öll-
um gæfu og gengis.
Ykkar einlæg,
Oddný og Ing. Gíslason
tJR ÖLLUM ÁTTUM
Ræðumenn Islendingadagsins í Norður Dakota
Nels Johnson
Séra Egill Fáfnis
Eins og getið var um í síðasta
blaði, halda Dakota-lslendingar
þjóðhátíðardag Islands 17. júní.
Ragnar H. Ragnar, er eftirlit
^iun hafa með undirbúning há-
úðarinnar, sér eflaust fyrir
miklum og góðum söng. En
ræðumenn dagsins verða Niels
Johnson, dómsmálaráðherra N.
Dakota og séra Egill Fáfnis. —
Skemtiskráin í heild sinni verð-
ur birt í næsta blaði.
Póstmálastjórn Bandaríkjanna
er að vinna að því, að koma á
póstflutningi með helicopter-
flugvélum. Segir stjórnin að
með því sé hægt að greiða mikið
póstflutning innanlands, einkum
bæja og þorpa á milli. Nú þurfi
oft lengri tíma til að senda bréf
100 mílur, en hægt sé hafa á
milli í flugförum.
* ★ * *
Inn í háskóla Manitoba út í
Fort Garry var brotist s. 1.
þriðjudagsnótt og stolið úr fjár-
hirzlu háskólans 44,000 dölum.
Einn þriðji eða um Ý4,000 dalir
voru í peningum, en afgangur-
inn í ávísunum. Er ekki búist
við að greitt verði að gera sér fé
úr þeim. Bófarnir brutust inn
um glugga í bygginguna og
mölvuðu svo hverja hurðina af
annari inn í skrifstofurnar, unz
þeir fundu f járhirzluna, sem þeir
brutu opna og náðu fénu. Þjóf
arnir hafa ekki náðst.
* * *
Næstkomandi föstudag flytur
Mackenzie King, forsætisráð-
herra Canada, ræðu í veizlu sem
honum verður haldin í bústað
forsætisráðherra Breta, númer
10 Downing St., í London. —
Stjórnarformaður Canada hefir
verið á fundi um skeið í London
með stjórnarformönnum sjálf-
stjórnar landa Breta. Hrósa
brezk blöð 20 ára stjórn Kings í
Canada og telja hann hafa bæði
reynslu og þekkingu til að tala
um mál Bretaveldis, hvert sem
málefnið er og frá hvaða sjónar-
miði, sem honum sýnist. Á mánu-
dag er gert ráð fyrir að kveðja
hann með öðru samsæti, þar sem
stjórnar hans verður minst, og
blaðið London Evening Stand
ard segir að hafið hafi Canada
upp í tölu stórvelda heimsins. —
King leggur af stað heimleiðis n.
k. þriðjudag með skipinu “Queer
Mary”.
★ ★ ★
Stjórnin í Ottawa hefir borið
upp í þinginu frumvarp, sem að
því lítur, að færa sér atom-orku
meira í nyt en gert er. Mælist
þetta vel fyrir af öllum flokkum
þingsins. Fer frumvarpið fram
á, að einstökum stofnunum sé
veittur réttur til rannsókna, sem
að notkun kjarnorku lúta, en alt
á það þó að vera undir eftirliti
stjórnarinnar. Á Bretlandi og í
Bandaríkjunum er mælt, að lög
svipuð þessu hafi verið samin.
Stjórnirnar ætla sér að leggja
féð fram og eftirlitið verður því
í þeirra höndum.
* « *
Dr. David L. Marsh, forseti
Boston-háskóla, hélt nýlega
fram í ræðu, sem mikla eftirtekt
hefir vakið, “að það væri kom-
inn tími til þess, að vekja athygli
á þeim sannleika, að fulltrúar
Alþjóðafélagsins mundu hugsa
gleggra og sýna meiri þolin-
mæði, ef þeir hefðu minna áfengi
um hönd en þeir gerðu! Það er
ekkert að furða, þó ýmislega
fari, á alþjóðafundum, með öðru
eins framferði,” segir háskóla-
forsetinn.
Háskólaforsetinn lét undrun
sína í ljósi yfir fréttunum í blöð-
unum af því, að utanríkisráð-
gjafarnir fjórir á Parísar-fundin-
um, Byrnes, Molotov, Bevin og
Bidault, hefðu lokið fundinum
með drykkjuveizlu, eftir að þeim
hefði mistekist algerlega að gera
uppkast að samningi um alheims
frið! “Áfengið ruglar hugsunina,
gerir menn óþolinmóða og stelur
dómgreind þeirra. Maður mætti
ætla, að með hungrið og bágindi
manna í kring um sig, hefðu ráð-
herrarnir séð ósamræmið í þvi,
að sitja í dýrum drykkjuveizlum,
á sama tíma og þeir áttu að vera
vinna að því, að bæta hag hinna
bágstöddu og þeir höfðu annað
við vitið að gera, en að reka það
út.”
★ ★ ★
Vegna skorts á íbúðarhúsum í
Canada, er margri giftingu sleg-
ið á frest. En það hefir ekki
dregið úr barnsfæðingum. Þeim
fjölgar um alt land. Skýrslur frá
Halifax segja fæðingar óskilget-
inna barna helmingi hærri árið
1945, en 1936. í Edmonton hafa
þær aukist um 8%. 1 Winnipeg
er eitt af hverjum þrettán börn-
um óskilgetið; í Regina eitt af
hverjum fjórum.
í öllu Canada var tala óskil-
getinna barna 3% af öllum sem
fæddust fram að 1920. Nú er
hún 4.61%; eða 6,581 barn á
fyrra helmingi ársins 1945.
Mr. og Mrs. Sveinn Thorvaldson
Tuttugu og fimm ára gifting-
arafmælis Sveins kaupmanns
Thorvaldsonar í Riverton og
Kristínar Thorvaldson, konu
hans, var minst mjög myndar-
lega sunnudaginn 19. maí, með
fjölmennu samsæti í samkomu-
húsi Riverton-búa. Fast að 400
manns var þar samankomið; þó
mikið gestanna væri úr bygðum
Nýja-íslands, voru eigi síður í
hópnum nokkrir frá Winnipeg og
úr hverjum bæ og þorpi þaðan
alla leið norður til Riverton.
Samsætinu stjórnaði Gísli
Einarsson; setti hann það með
mjög skemtilegri ræðu og sagði
gestum frá hvað í efni væri. Bað
hann því næst viðstadda að
syngja sálm og séra Eyjólf J.
Melan að flytja bæn.
Borð voru hlaðin krásum og
var því næst sezt að snæðingi.
Höfðu konur úr bygðinni séð
fyrir þessu.
Að hressingu lokinni, byrjuðu
ræðuhöld og söngur; gekk svo
um hríð, að hver ræðan rak aðra
og var ræðumönnum óspart
klappað lof í lófa, enda höfum
vér heyrt að þeim hafi öllum
tekist vel. Ræðuefnið var bæði
mikið og gott, þar sem var 50
ára starf Mr. Thorvaldsonar í
jygðarmálum og viðskifftim, sem
hvorttveggja hefir sér það til á-
gætis, að hafa reynst Nýja Is-
landi eitt hið farsælasta, sem
nokkur sonur þess hefir því unn-
ið . Leyndi sér ekki í ræðunum
hin mikla vinátta og virðing, sem
Mr. Thorvaldson nýtur.
Ræðurnar fluttu þessir: Frú
Ólafía Melan, ávarp til silfur-
brúðurinnar; S. V. Sigurðsson;
Gísli Sigmundsson, hann afhenti
og silfurbrúðhjónunum klukku
dýra, og metfé hið mesta; dr.
Thorbergur Thorvaldson, Guðm.
O. Einarsson, ræðu og kvæði; G.
J. Guttormsson; John Laxdal,
kennari á Gimli, hann flutti
kveðju frá Reglu frímúrara. Dr.
S. O. Thompson þingmaður, Frið-
rik P. Sigurðsson kvæði. Mrs.
Hope söng og var aftur kölluð
fram. Á milli ræðanna var og
sungið.
Þá var frú Thorvaldson afhent
hálsnisti frá Sambandskvenfé-
laginu, sem hún hefir veitt for-
stöðu lengi.
Silfurbrúðhjónin þökkuðu
hlýhug vinanna og þ'etta stór-
rausnarlega samsæti rríeð sinni
ræðunni hvort.
Mr. Thorvaldson kom vestur
um haf 1887, þá 15 ára gamall.
Hann á því langt og mikið æfi-
starf sér að baki. Og það eftir-
tektarverða við það er, eins og
einn ræðumanna komst að orði,
þennan dag, að yfir því er heið
ríkt og bjart. Þar hefir aldrei í
skugganum verið unnið, heldur á
opinberan og heiðarlegan hátt,
almenningi og þjóðfélaginu til
heilla og fyrirmyndar í miklu
stærri stíl, en um framkvæmda-
frömuði verður alment sagt. —
Virðingin, vináttan og traustið,
sem þessi ókrýndi kóngur Ný-ís-
lendinga nýtur, er alt afleiðing
verka hans og framkomu.
FRÉ'TTIR FRÁ ISLANDI
Guðsþjónusta, ferming og alt-
arisganga í lútersku kirkjunnl á
Lundar, kl. 2 e. h. á hvítasunnu.
R. Marteinsson
Minningarsjóður stofnaður í
Færeyjum til heiðurs Paturson.
í tilefni af áttræðisafmæli
Joannesar Paturson, sem var
þann 6. máí s. 1. ákvað Lögþingið
að stofna minningarsjóð að upp-
hæð 250,000 krónur.
Skal tilgangur sjóðsins vera
að styðja færeyskt mál, bók-
mentir og listir.—Mbl. 9. maí.
★ ★ ★
Islenzkur ríkisborgari dæmdur
í 10 ára fangelsi í Danmörku.
Þrjátíu og sex ára gamall Is-
lendingur, Sigmundur Sigmunds
son hefir verið dæmdur í 10 ára
fangelsi og sviftur borgaralegum
réttindum æfilangt. Dómurinn
var kveðinn upp af borgarrétti
Kaupmannahafnar í gær. Sig-
mundur var í Schalburgssveit-
inni og S.S.-sveitinni á Sjálandi.
Vann meðal annars í útbreiðslu-
deildinni, safnaði fyrirlestraefni
og var einstöku sinnum á verði
meðfram járnbrautum.
—Mbl. 8. maí.
Frúin: “Þú talaðir heilmikið
upp úr svefninum í nótt, góði
minn.”
Maður hennar: “Nú, einhvern
tíma verð eg að fá að tala.”