Heimskringla - 26.03.1947, Qupperneq 7
WINNIPEG, 26. MARZ 1947
HEIMSKRINGLA
7. SIÐA
FRÉTTIR FRÁ ISLANDI
150 íslendingar hlustuðu á
Einar Kristjánsson syngja
í Stokkhólmi
Mjög margir Islendingar,
sennilega um 150,voru viðistadd-
ir í sænsku óperunni þegar Ein-
ar Kristjánsson söng þar í fyrsta
skipti í byrjun þessa mánaðar.
Hann söng hlutverk Rodolphe í
óperunni Bohéme eftir Puccini,
°g hlaut hann góða dómá í
Stokkhólmsblöðunum.
Söngur Einars var auglýstur
nokkru áður, en þá fekk hann
hastarlegt kvef og gat ekki sung-
ið. Munu allmargir íslendingar
hafa verið búnir að kaupa að-
göngumiða það kvöld og notað
þá, enda þótt Einar syngi ekki.
Er því merkilegt hversu margir
voru viðstaddir seinna kvöldið,
þar eð menn ógjarna sjá sömu
óperuna tvisvar með svo stuttu
millibili.
S æ n s k u Gagnrýnendunum
kemur saman um, að Einar hafi
gert hlutverki sínu góð skil og
^ödd hans sé óvenju björt og
lyrisk tenórrödd. Svenska Dag-
bladet segir, að hann hafi sungið
hlutverk sit með auðsæjum létt-
leik og greinilega persónulegri
túlkun. Stockholms Tidningen
segir, að enda þótt rödd Einars
sé björt og lyrísk, þá aukist
styrkur og breidd hennar eftir
því sem hann syngur hærra. Um
leik Einars segir Dagens Ny-
heter, að hann hafi verið lifandi
og eðlilegur. Aftonbladet segir,
að Einar hafi sungið Puccini
með srnekkvísi og festu.
—Alþbl. 16. febr.
★ ★ ♦
Islenzk söngkona, sem vann
sér frægð á meginlandinu
Fáir fslendingar munu hafa
heyrt getið óperusöngkonunnar
Nönnu Egilsdóttur, er á stríðs-
árunum vann sér frægð og
frama á meginlandinu í hinum
vandasömustu óperuhlutverk-
um í mörgum kunnustu söng-
leikjiahúsum Austurríkis og
Þýzkalands. Eftir stríðið fór hún
til Graz og söng þar á ýmsum
hljómleikum og á vegum brezka
hersins og hefur nú boðizt staða
við ríksóperuna þar næsta vet-
ur. í desember í vetur kom söng-
konan til íslands og hyggst að
halda söngskemmtun í Gamla
Bíó um næstu mánaðamót, og
sér Tón'listarfélagið um hljóm-
leikana.
“Það var oftN erfitt á stníðsár-
unum”, sagði Nanna Egilsdóttir
í viðtali í gær, “en þó var eg svo
heppin að komast vel af, því eg
lauk óperuprófi í Munchen í árs-
byrjun 1942, og gat alltaf haft
oifan af fyrir mér með söngnum.
Eg hafði ekkert samband við
ættingja mína hér heima frá því
1941; eftir það fekk eg engin
bréf og öll bróf sem eg skrifaði
fekk eg endursend.
Eg upplifði loftárásir í öllum
iNNKÖLLUNARMENN HEiMSKRiNGLU
Revkjavík
A ÍSLANDI
__________Björn Guðmundsson, Reynimel 52
1 CANADA
Amaranth, Man____________________Mrs. Marg. Kjartansson
Arnes, Man_____________Sumarliði J. Kardal, Hnausa, Man.
Árborg, Man............................G, O. Einarsson
Baldur, Man------------- ------------------O. Andarson
Belmont, Man...............................G. J. Oleson
Bredenbury, Sask._Halldór B. Johnson, Churchbridge, Sask.
Churchbridge, Sask.r_________________Halldór B. Johnson
Cypress River, Man...................Guðm. Sveinsson
Dafoe, Sask______________O. O. Magnússon, Wynyard, Sask.
Etfros, Sask................._._Mns. J. H. Goodmundson
Eriksdale, Man..........................Ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask___________Rósan. Árnason, Leslie, Sask.
Foam Lake, Sask-------------Rósm. Árnason, Leslie, Sask.
Gimli, Man.........I.—.*—................K. Kjernested
Geysir, Man___________________________G. B. Jóhannson
Glenboro, Man..............................G. J. Oleson
Hayland, Man...........................Sig. B. Helgason
Hecla, Man..........................Jóhann K. Johnson
Hnausa, Man...............-.............Gestur S. Vídal
Innisfail, Alta________Ófeigur Sigurðsson, Red Deer, Alta.
Kandahar, Sask----------O. O. Magnússon, Wynyard, Sask.
Keewatin, Ont.........................Bjarni Sveinsson
Langruth, Man-------------------------...Böðvar Jónsson
Leslie, Sask..........................Th. Guðmundsson
Lundar, Man................................D. J. Líndal
Markerville, Alta_____Ófeigur Sigurðsson, Red Deer, Alta.
Morden, Man__________________________Thorst. J. Gíslason
Mozart, Sask. ......—T------------------Thor Ásgeirsson
Narrows, Man_________________S. Sigfússon, Oakview, Man.
Oak Point, Man........................Mrs. L. S. Taylor
Oakview, ‘Man..............................S. Sigfússon
Otto, Man________________.Hjörtur Josephson, Lundar, Man.
Piney, Man................................-S. V. Eyford
Red Deer, Alta...........-..J.......Ófeigur Sigurðsson
Riverton, Man..........._.............Einar A. Johnson
Reykjavík, Man—........................Ingim. Ólafsson.
Seikirk, Man_________________________Mrs. J. E. Erickson
Silver Bay, Man..........................Hallur Hallson
Steep Rock, Man...........................Fred Snædai
Stony Hill, Man__________Hjörtur Josephson, Lundar, Man.
Swan River, Man_____________________Chris Guðmundsson
Tantallon, Sask........................Árni S. Árnason
Thornhill, Man__________Thorst. J. Gíslason, Morden, Man.
Víðir, Man__________________Aug. Einarsson, Árborg, Man.
Vancouver, B. C_______Mrs. Anna Harvey, 4487 Quebec, St.
Wapah, Man_______________Ingim. Ólafsson, Reykjavík, Man.
Winnipeg_____S. S. Anderson, 800 Lipton St. Winnipeg, Man.
Winnipegosis, Man.............................S. Oliver
Wynyard, Sask......._.._................O. O. Magnússon
í BANDARÍKJUNUM
Akra, N. D_____________.Bjöm Stevenson, Akra P.O., N. D.
Bantry, N. Dak_____________E. J. Breiðfjörð, Upham, N. D.
Bellingham, Wash___Mrs. Jóhn W. Johnson, 2717 KuLshan St.
Rlaine, Wash.......................Magnús Thordarson
Cavalier, N. D_________Björn Steyenson, Akra P.O., N. D.
Crystal, N. D_________C. Indriðason, Mountain P.O., N. D.
Edinburg, N. D_________C. Indriðason, Mountain P.O., N. D.
Gardar, N. D__________C. Indriðason, Mountain P.O., N. D.
Grafton, N. D______:—C. Indriðason, Mountain P.O., N. D.
Hallson, N. D___________Björn Stevenson, Akra P.O., N. D.
Hensel, N. D___________C. Indriðason, Mountain P.O., N. D.
Ivanhoe, Minn________Miss C. V. Dalmann, Minneota, Minn.
Milton, N. Dak............—...............-S. Goodman
Minneota, Minn......................Miss C. V. Dalmann
Mountain, N. D________C. Indriðason, Mountain P.O., N. D.
National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E. 24th St.
Point Roberts, Wash.„Jr...................Ásta Norman
Seattle, 7 Wash_______J. J. Middal, 6522 Dibble Ave., N.W.
Upham, N. Dak____________________________E. J. Breiðf jörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg Manitoba
borgunum, sem eg dvaldi í, og í
Kablenz varð eg að skilja allt
við mig; komst aðeins í burtu
með hörpuna mína, og raunar
var hún mér meira virði en allt
[ annað sem eg átti.
Eftir að Nanna komst til Vlín-
'iar var hún byrjuð að æva þar
við óperu, en hætti vegna þess
hve illa hún var haldin af fæðu-
^skorti. Sagði hún' m.a. frá því,
að hún hefði þrisvar sinnum
hnígið niður á æfingu. — “J
þriðja sinn er þrautreynt og þá
hætti eg”, sagði hún.
i Nanna Egilsdóttir er ættuð úr
Hafnarfirði, dóttir EgilS Guð-
mundssonar og Þórunnar Einars-
dóttur. Hún fór til Þýzkalands
fyrst árið 1934 og hóf þar nám
í hörpuleik og söng, en eftir
1936 lagði hún aðallega stund á
söngnám hjá óperusöngkonunni
Mörtu Pohlamnn-Tummler, sem
starfaði við ríkisóperuna.
j Sumarið 1938 hélt hún fyrstu
j söngskemmtun sína hér í Reykj-
[ avík, en órið áður hafði hún
’haldið hörpuhljómleika í Iðnó.
I Sama haust var hún ráðin til að
syngja í útvarpið í Hamborg og
söng auk þess sópranhlutverkið
,í “Bílla grímarnir”, sem flutt var
í Péturskirkjunni. Nokkru sáðar
söng hún íslenzk lög á hljóm-
leikum í Tónlistarhöllinni í
Hamborg. Eftir að stríðið brauzt
út ferðaðist Nanna með stórri
hljómsveit og söng í öllum stór-
borgum Þýzkalands, auk þess
sem hún lék á hörpu. Með því
tókst henni að sjá fyrir sér og
kosta nám sitt, en eins og áður
segir lauk hún óperuprófi í
Munchen í ársbyrjun 1942. Eft-
ir það var hún ráðin, sem Ijóð-
rænn sópran til óperunnar —
“Innsbruck í Austurríki, — og
þar dvaldi hún til 1944 er hún
réðist til óperunnar í Koblenz.
Þetta sama ár var öllum óperu-
leikhúsum í Þýzkalandi og Aust-
urríki lokað og fór hún þá til
Vínar og dvaldi þar til stríðsloka
en þá fór hún til Graz eins og
áður segir og bauðst þar staða
við ríkisóperuna. En um það
leyti kvaðst hún hafa hugsað um
það eitt að komast heim og enn
ekki vera ákveðin hvort hún
muni fara; ekki glæsilegt.
Á þessum árum hefur Nönnu
oftlega boðist tækifæri til að
leika í kvikmyndum, en þvi
hefur hún hafnað, og kveðst
heldur vilja halda sig að óper-
unni, því i kvikmyndum þroskist
röddin ekki eins vel og í óperun-
um.
Af óperuhlutverkum þeim
sem Nanna Egilsdóttir hefur
Sungið á þessum árum má nefna
Margarethe, Schneider von
Sohönau, Nótt í Feneyjum, Káta
ekkjan, Cherubin í “Brúðkaup
Figarós”, greifafrúna í “Weiner-
blut” og fleira.
Á hljómléikum þeim, sem
Nanna Egilsdóttir heldur hér
mánaðarmótin annast dr. Urb-
antschitsoh undirleik. Verkefn-
in verða m.a. ljóðalög eftir
Beethoven, Schumann og Joseph
Marx, lög eftir Sigfús Einarsson
Karl O. Runólfsson og Kalda-
lóns og loks aríu Sherbins úr 1.
þætti “Brúðkaups Figarós”, aríu
úr “Tosca” og “Caro nome” úr
Rigoletto. — Alþbl. 22. febr.
* ★ ★
Bæjarútgerð Reykjavíkur
Koma Ingóltfs Arnarsonar,
sem nefndur hefur verið “fýrsti
landnemi nýsköpunarinnar” og
ber heiti hins fyrsta landnáms-
manns er kaus sér Reykjavík
fyrir bólfestu, er atburður 1 at-
vinnusögu íslendinga, sem lengi
mun verða minnzt. Hinir nýju
togarar, sem fest hafa verið
kaup á og væntanlegir eru til
landsins í ár og á næsta ári,
munu valda straumhvörfum í ís-
ienzkum sjávarútvegi og verða
upphaf nýrrar og merkilegrar
atvinnuþróunar.
En koma Ingólfs Arnansonar
táknar einnig tímamót í stjórn-
málasögu Reykjavíkur bæjar,
því að um leið og hann er af-
hentur borgarstjóra má segja að
JUMBO KÁLHÖFUÐ
Stærsta kálhöfðategund sem til er,
vegur 30 til 40 pund. Óviðjafnanleg
í súrgraut og neyzlu. Það er ánægju
legt að sjá þessa risa vaxa. Árið sem
leið seldum vér meira af Jumbo kál-
höfðum en öllum öðrum káltegund
um. Pakkinn 10í, únza 80$ póstfrítt.
FRÍ—Vor stóra útsœðisbck fyrir 1948
Enn sú bezta 16
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
bæjarútgerð Reykjavíkur hafi
byrjað. Reykjavíkurbær hefur
eignast fyrsta togarann, sem
gerður verður út af bæjarfélag-
inu sjálfu, og þó að sá atburður
sé fyrst og fremst tengdur at-
vinnusögunni, markar hann
einnig kapitula skipti í stjórn-
málasögunni eins og öllum þeim
mun ljóst, er fylgst hafa með
bæjarmálum Reykjavíkur und-
an farin ár. —Alþbl. 20. febr.
* ★ *
Pétur Sigurgeirsson
vígður á sunnudag
Á sunnudaginn verður cand.,
teol., Pétur Sigurgeirsson, son-
ur biskupsins yfir íslandi, vígð-
ur til prests, en hann hefur ver-
ið ráðinn aðstoðarprestur um!
eins árs skeið hjá séra Friðrik
Rafnar vígslubiiskupi á Akur- [
eyri.
Séra Friðrik Rafnar hefur!
sökum veikinda og að læknis- j
ráði sótt um leyfi frá prest- j
störfum um eins árs skeið, ogj
samkvæmt beiðni hans hefur
Pétur Sigurgeirsson verið ráð-
inn aðstoðarprestur hjá honum
þennan tíma, og verða honum
greidd laun úr ríkissjóði. Pétur
mun fara norður strax að aflok-
inni vígslu. —Alþbl. 21. febr.
* ★ ★
Skipasamgöngur við
Norðurlönd truflast
Miklar truflanir eru nú að
verða á skipaBamgöngum við
Norðurlönd. 1 gær var sagt frá
því, að Selfoss væri frosinn inni
í Kaupmannahöfn, og nú hefur
Lagarfoss orðið að breyta áætl-
un sinni vegna frostanna. ^
Lagarfoss lagði af stað frá
Leith á mánudaginn og átti að
fara til Gautaborgar eða Kaup-
mannahafnar, en komst þangað
ekki vegna isa, og varð því að
fara til Kristiansand í Noregi og
losa þar vörur ytfir í e.s “Anne”,
sem mun bíða þar, þar til fært
verður, en þá á skipið að fara til
Gautaborgar og Kaupmanna-
hafnar. Aftur á móti fer Lagar-
foss aftur frá Kristianssand til
Hull og lestar þar vörur til
Reykjavíkur. —Alþbl. 21. febr.
t* ★ ★
Útsvörin í Reykjavík í ár áætl-
luð 9. milljónum hærri en í fyrra
Fjártiagsáætlun Reykjavíkur
fyrir árið 1947 var lögð fyrir
bæjarstjórn í gær. Áætlunin er
nú mun hærri en hún heifur
nokkru sinni verið, og er þar at-
hyglisverðast, að útsvörin eiga
að hækka enn um rúmlega 9
milljónir króna frá áætluninni
fyrir árið sem leið. I fyrra voru
þau áætluð rúmar 35 milljónir,
en eru nú bæði 44 milljónir og
284 þúsund krónur og auk jæss
bæði árin 5—10% viðbót. 1 fyrra
fóru útsvörin meira eri 4 milljón-
ir fram úr áætlun, og má búast
við að svo fari enn, svo að þess-
ar tölur eru alls ekki endanleg-
ar. — Alþbl. 21. febr.
★ * *
Landburður af síld í gærmorguu
Það var líf í síldinni hér fyrir
utan hafnina í gærmorgun. Fyr-
ir hádegi komu nokkrir bátar
drekkhlaðnir af síld, enda óð
húri ií torfum hér rétt fyrir utan
hafnargarðinn —Alþbl. 20. feb.
Professional and
----- Directory
Ornci Phow*
94 762
R«s. Phoki
72 409
Dr. L. A. Sigrurdson
116 MEDICAL ARTS BLDG.
Office hours
by appointment
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBY ST.
Beint suður af Banning
Talsimt 30 «77
Viðtaistimi kl. 3—5 e.h.
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental. Inrurance and Financtal
Agentt
Sími 97 538
308 AVENTJE BLDG—Winnlpeg
TIíE WATCH SHOP
CARL K. THORLAKSON
Diamond and Weddlng Ringji
Agent for Bulova Watches
Marriaoe Licenses Issueá
899 SARGENT AVE
DR. A. y. JOHNSON
DKNTIST
»09 .tomerset Bldg
Office 97 932 Res. 202 398
andrews, andrews,
THORVALDSON &
EGGERTSON
Lögfrœðingar
Bank of Nova Scotia Bldg
Portage og Garry St.
Sími 98 291
DRS. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
r- n BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
H. HALDORSON BUILDER 23 Music and Arts Studios Broadway and Carlton Phone 93 055 Winnipeg, Canada
CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Phone 26 328 Res. Phone 73 917
ÁSGEIRSON’S PAINTS, WALL PAPER AND HARDWARE 698 SARGENT AVENUE Winnipeg, Man. Telephone 34 322
THE BUSINESS CLINIC specialize in aiding the smaller business man to keep adequate records and prepare Income Tax Returns. ANNA LARUSSON 508 Mclntyre Blk. Ph. 97 130
A. SAEDAL PAINTER & DECORATOR ★ Phone 93 990 ★ Suite 1 Monterey Apts. 45 Carlton St., Winnipeg
r 1 Frá vini !
PRINCESS MESSENGER SERVICE Við flytjum kistur og töskur, húsgögn úr smærri íbúðum og húsmuni aí öllu tœi. ^ 58 ALBERT ST., — WINNIPEG Sími 25 888 C. A. Johnson, Mgr.
WINDATT COAL Co. Limited Established 1898 307 SMITH STREET Office Phone 97 404 Yard Phone 28 745
H. J.PALMASON&Co.
Cbartered Accountanta
1103 McARTHUR BLDG.
PHONE 94 358
Rovatzos Floral Shop
153 Notre Dame Ave., Phone 37 939
Fresh Cut Flowers Dally.
Plants in Season
We speclaUze ln Wedding & Concert
Bouquets & Funeral Designs
leelandic spoken
A. S. BARDAL
■elur llkklstur og annast um útfar
lr. Allur útbúnaður sá bestl.
Knnfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
•43 SHERBROOKE ST.
Phons 27 324 Winnipeg
Union Loan & Investntent
COMPANY
Rental, Insurance and Finandal
Agenta
Sími 95 061
510 Toronto General Trusts Bldg.
GUNDRY-PYMORE Ltd.
British Quality - Fish Netting
60 Victoria St., Winnipeg, Moa.
Phone 98 211
Manager: T. R. THORVALDSON
Your Patronage Will Be
Appreciated
Halldór Sigurðsson
Contractor & Builder
★
594 Alverstone St., Winnipeg
Sími 33 038
FINKLEMAN
OPTOMETRISTS
and
OPTICIANS
KENSINGTON BLDG.,
275 Porlage Ave. Wmuiper
PHONE 93 942
DR. CHARLES R. OKE
tannlæknir
404 Toronto Gen. Trust Bldg.
283 Portage Ave., Winnipæg
Phone 94 908
/J*. it!a.
iöOKSTOREl
702 Sorgent Ara., Wtnnipag,