Heimskringla - 23.04.1947, Blaðsíða 1
vVe recommend tor
/our approral our
//
BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
I__________Frank Hannibal, Mgr |
LXI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 23. APRIL 1947
NÚMER 30.
HEIMSKRINGLA ÓSKAR AÐ FÖGRUM 0G FORNUM ISLENZKUM SIÐ
GLEÐILEGS SUMARS!
21 árs
Elizabeth prinsessa Bretlands varð 21 árs s. 1. mánudag
(21. apríl). Hún er nú stödd í Capetown í Suður-Afríku. En á
afmælisdaginn flutti hún ræðu, sem útvarpað var innan
Breatveldis. Kvað hún starf sitt til daganna enda verða helg-
að velferð þjóða brezka ríkisins.
Hún sagði að þó hún væri um 6,000 miílur frá landinu,
sem hún væri fædd í, fyndist sér, að hún vera heima hjá sér.
Svo hefði það Verið hvar sem hún hefði ferðast um hina fögru
Suður-Afríku og Rhodesia.
Heillaóskum og gjöfum rigndi til hennar á afmælinu.
FRETTAYFIRLIT 0G UMSAGNIR
Danakonungur dáinn
Kristján X Danakonungur lézt
síðast liðinn sunnudag. Hann var
?6 ára og hafði verið við stjórn í
35 ár.
Hann tók við völdum 12. maí
1912, að föður sínum Friðriki
VIII látnum.
I stríðinu sem hófst 1914 hepn-
aðist honum að halda landi sínu
lilutlausu.
1 siíðasta stríði hófu Þjóðverj-
ar innrás í Danmörku 9. apríl
1940. Kaus hann þá uppgjöf til
að bjarga landinu frá eyðilegg-
’ugu. Innrásarliðið lét hann í
Iriði þar til 1943, að því þóttu
Danir ósamvinnuþíðir og lokuðu
þeir þá konunginn inni í Sorgen-
Irí-kastalanum.
Kristján var tilkomumikill
stjórnari; hann var 6 fet og 7
Þumlunga á hæð og tignarl'egur
a svip og virtur og elskaður af
Þegnum sínum. Þegar fréttin
^arst út um að konunginum
hefði þyngt, söfnuðust um 5,000
^anns saman fyrir utan kon-
Ungshöllina. Er lát hans var til-
^ynt, hrutu mörgum tár af aug-
um.
Islendingar munu lengi minn-
ast viðhorfs Kristjáns konungs í
sJalfstæðismáli þeirra með þakk-
látum huga.
Leifar Kristjáns verða í Hró-
aldsdómkirkju lagðar.
Við konungsstjórn hefir Frið-
rik sonur hins látna konungs
tekið. Er hann 48 ára, hinn tígu-
^egaisti á velli og aðeins einum
Þumlungi lægri en faðir hans.
Uann er mjög sbnghneigður
sagður, hefir ferðast mikið og
'nn eini Danakonunga, er num-
*ð hefir í sjóliðinu. Hinir hafa
allir verið í lahdhernum. Hann
er útskrifaður bæði úr skóla flot
ans og frá Kaupmannahafnar há-
skóla.
Koná hans, Ingrid drotning, er
einkadóttir sænska krónprinsins
og er sögð flestra eða allra drotn-
inga fegurst í heimi. Þau eiga
þrjár dætur.
Nýi konungurinn er sagður
njóta mikilla vinsælda hjá þjóð
sinni nú þegar.
íslenzk kona erfir $240,000
Margrét Laxdal
Sijðast liðna viku barst ís-
lenzkri konu í Winnipeg, sem
Miss Margrét Laxdal heitir frétt
um það, að hún væri erfingi að
$240,000, sem maður að nafni
Thomas B. Campbell hefði áskil-
ið henni í erfðaskrá sinni, en
hann dó 30. júní 1946 í Minne-
apolis.
Miss Laxdal var um tvítugt,
er hún kom til Winnipeg frá
Norður-Dakota og byrjaði að
vinna á hóteli, er Korsíkumaður
hafði reist, er Frank Marriaggi
hét og bar gistiihúsið nafn hans.
Síðan varð eigandi Marriaggi
hótelsins Campbell sá, er nú er
látinn og hafði Miss Laxdal unn-
ið mjög lengi hjá honum og starf
hennar sjáanlega verið mikils
metið.
En hótelið hefir Campbell nú
fyrir löngu selt og hefir síðari
árin stundað umboðssölu.
Miss Laxdal vann um skeið
hjá T. Eaton félaginu, en mun
hafa verið hætt störfum; hún er
68 ára að aldri, kom ung til
Graðar-bygðar í N. Dak., og naut
þar barnaskólafræðslu.
Afnám verðlags-eftirlits
Því miðar nú óðum áfram, og
kom einhver hin stórkostlegaista
skriða á því. sviði þessa síðustu
daga. Hon. J. A. Mackinnon,
verzlunar og viðskiftamála-ráð-
herra gaf út heilan lista varnað-
ar, er verður ekki undir verðlags
eftirliti eftir 21. þ. m.
Er þar meðtalið mikið af
ýmsri fæðutegunda framleiðslu,
svo og margir aðrir hlutir svo
sem: leður, postulín og leirvör-
ur, og allar tegundir togleðurs-
framleiðslu nema teygj ubönd
(elastic^ sem klædd eru að utan
með bómull. Alls voru í skýrslu
þessari talin upp 136 vöru-teg-
undir, er verðlags-áfnámið nær
til.
Einnig vóru í yfirlýsingu þess-
ari taldur upp þær Vöru-tegund-
ir, sem halda áfram að vera háð-
ar eftirlitninu svo sem:
1. Vissar fæðutegundir, sök-
um samninga Canada við ríkja-
samband Breta, UNRRA, vegna
bindandi loforða við alþjóðlega
bráðábirgða vistaráðið.
2. Baðmull, ull, hálfsilki og
nylon vefnaðarvörur, sökum
heimilisþarfa.
3. Byggingarefni, þar með tal-
ið viður, naglar, lagningapípur
og þessháttar, sökum þess,
hversu þörfin er mikil og sár
fyrir að koma upp eins miklu af
nýjum húsum og mögulegt er.
4. Járn og stál, þar sem svo
mikill skortur er á því, og hin
mesta hætta á því, að afnám
verðlags á þeim vörupi, valda
margvíslegum ruglingi í sam-
bandi við járn og stál, sem hin
mesta þörf er á í margskonar
vörur til útflutnings.
5. Vopn, skotfæri og verkfæri
til hernaðar eða stríðsbúnaðar —-
af hernaðarlegum ástæðum.
“Ilt öl, og illa drukkið”
Frá PalestínU — 1 síðastliðinni
viku var Dov Gruner, fyrrumj
hermaður í brezka hemum, líf-1
látinn (hengdur) og þrír aðrir
uppreisnarfélags-menn í Acre-
fangelsinu, en á meðan á því
stóð, vóru 100,000 brezkir her-
meni/ á verði gegn uppreisnar-
árásum, sem fyllilega var búist
við.
Aftöku þessa uppreisnar-
manns, Dov Gruner, hefir verið
frestað oft á síðastliðnum mán-
uðum, og stundum jafnvel litið
svo út, að brezk hervöld neydd-
ust til að láta hann lausan.
Leyni-uppreisnarsamtökin —
Irgun Zvai Leumi, sem Gruner
og hinir aðrir er líflátnir voru
tilheyrðu, hafði þrásinnis varað
VEITIÐ ATHYGLI
Ákveðið hefir verið að sýna
2 stutta ísl. sjónleiki í kirkjusal
Sambandssafnaðar í Winnipeg,
miðvikudags og fimtudagskveld,
14. og 15. maí næstkomandi.
Er nafn annars leiksins “Dag-
setur”, og er hann frumsaminn
á íslenzku. Er hann alvarlegs
efnis.
Hinn leikurinn er gleðileikur,
þýddur, “1 borgarafötum”. Ættu
báðir þessir stuttu leikir að verða
sæmileg kveldskemtun.
Sjónleikir þessir verða sýndir
að tilhlutun Leikfélags Sam-
bandssafnaðar í Winnipeg.
Félaginu hefir fatast um fram-
kvæmdir á sýningu ísl. sjón-
leikja nú um nokkur undanfarin
ár, mun það að sjálfsögðu hafa
verið af óbeinum völdum og á-
hrifum stríðsins.
En marga sæmilega úr garði
gerða leiki, hefir þó félagið sýnt
á liðnum árum, þrátt -fyrir ó-
heppilegan húsakost, ófullnægj-
andi leiksviðs-aðbúnað, og marga
aðra trúlega og ótrúlega örðug-
leika.
Getur íslenzkur almenningur,
er mörgum sinnum hefir notið
uppbyggilegra gleðistunda á
leikmótum félagsins, ekki betur
sýnt að hann meti tilraunir þess
fólks, er lagt hefir á sig ótak-
markað erfiði, óþægindi og
kostnað endurgjaldslaust, svo
áratugum skiftir, — en með því
að sækja leiki þ#ssa af allri alúð.
Eigi þarf að taka það fram, að
vandað mun eins mikið til þess-
ara sjónleika, eins og framast
eru föng á.
Verður nánara frá þessu sagt
síðar. R. St.
Breta við, að félagið myndi fyr-
ir .alvöru hefja endalausan ófrið
á hendur þeim, ef Gruner yrði
tekinn af lífi. Skeyti barst tal-
þráða og skeyta-stöðinni v Jer-
úsalem, er hafði það eftir leyni-
félags-útvarpinu, að 10 háttsettir
brezkir herforingjar yrðu hengd-
ir á götum úti í þeim hluta Pal-
estínu, sem Gyðingar búa, í stað
hvers eins af þeirra meðlimum,
(píslarvottum) er Bretar myrtu.
Lt. Gen. Sir Alan Cunning-
ham, aðal-yfirmaður Breta í
Palestínu, gaf skipanir um að
allar hersveitir Breta í Palest-
fnu yrðu settar á varðstöðvar,
daginn sem aftaka Gruners fór
fram, og algert umferðabann í
þeim hluta, er Gyðingar byggja.
Tveimur klukkustundum eftir
bannið, birtust auglýsinga-
spjöld í öllum götum, er á var
letrað: “Mannslíf fyrir manns-
láf! Auga fyrir auga! Tönn fyrir
tönn“, og enn fleiri hótanir frá
uppreisnarfélögum Gyðinga um
ægilegustu ‘ hermdarverk, í
hefndarskyni fyrir líflát þessara
manna.
Má tæplega á milli sjá, hvern-
ig öllum þessum ógnum lýkur.
Forsætisráðh'erra Kína
1 síðastliðii»ni viku varð Gen.,
Chiang Chun forsætisráðherra
lýðveldisins í Kína. Gen. Chun
hafði unnið í tveimur mikils-
varðandi nefndum, er leituðust
af aleíli við að enda borgarastyrj
öldina í Kína, og koma á frið-
Heiðruðu íslendingar:
Hér sjáið þið mynd af einum
þeim mikilvirkasta og fjölhæf-
asta smið af íslenzkum ættstoð-
um borinn sem lifað hefur hér í
fylkinu Manitoba, hr. Jón Rögn-
valdsson Skagfirðing, hann er
fæddur 13. máí 1870 að Hólkoti
á Reykjaströnd. Sonur Rögn-
valdar Jónssonar smiðs, þá
bónda þar, og konu hans Sigur-
laugar Guðmundsd., ættaðri úr
Hegranesi í sömu sýslu. Fluttist
með foreldrum sínum til þesSa
lands sumarið 1876. Þau settust
að í Nýja Islandi og nefndu bú-
jörð sína Mæri, og þar ólst Jón
upp unglings ár sín. Snemma
kom það í ljós að pilturinn Jón
var dverghagur að náttúrufari,
því strax ungur að aldri lagði
hann gjörfar höndur á ýmsar
smiíðar, bæði tré og járn, og þá
atvinnu hefur hann gert að lífs-
tíðar starfi.
Ef öll þau smíðastörf sem
þessi mikli snillingur hefur unn-
ið væru sýnd í hreyfimynd,
myndum við þjóðbræður hans,
og systur, undrast það, hvað
stóru og þörfu æfistarfi tvær
höndur geta orkað þegar vit og
vilji fylgja þeim að verkum.
Það má með sanni segja. að
Jón Rögnvaldsson hefur smíðað
flest það sem bændur og búalýð-
ur hefir þarfnast, bæði utan
húsa og innan, alt frá gufuskipi
til skónálar, fyrir þá listhæfni
hans hefi eg talið hann framar-
lega í flokk þeirra fjölhæfustu
smiða sem eg hefi þekt. *
1 fréttablaði frá Toronto, sem
nýlega birti mynd af Jóni, er
þess getið, að síðan 1931 hafi
hann smíðað 750 rokka, til frek-
ari skýringar vil eg geta þess, að
flestir af þessum rokkum hafa
verið smíðaðir fyrir T. Eatons
verzlunina. Samt hefur þetta
rokka smíð naumast getað talist
annað en svo lítið aukavik eða
ofanálag á 10 — 12, kl.stunda
vinnu, að öðrum smíðastörfum.
Jón er glöggskygn á fleira en
það, sem lotið hefur að smíðum
hans og atvinnuvegi, hann ber
prýðis gott skyn á stjórnmál og
fylgist vel með gangi tímans á
þVí sviði. 1 þeim málum hallast
hann að jafnaðar stefnu.
Jón var búsettur um 40 ár í
bænum Winnipegosis, hér í
fylkinu Manitoba. Hann var aðal
smiðúr þess bæjar fyrir mörg
ár,og veitti mörgum mönnum at-
vinnu. Hann var giftur. Kona
hans var af enskum ættum, ágæt
eiginkona og húsmóðir, nú dáin.
Þau eignuðust 9 börn, 8 af þeim
lifa, 5. synir og 3 dætur, flest
gift, öll hraust og mannvænleg.
5 af þeim lifa í bænum Acton,
Ontario, og þar á Jón nú heima.
Og að síðustu, þegar hamar og
steðji, hefill og sög hafa lagst í
þagnargildi í smiðjunni hans
Jóns Rögnvaldssonar, þá verða
það verkin hans, sem lofa meist-
ara sinn.
Gamall nágranni,
F. Hjálmarsson
samlegu lýðstjórnar fyrirkomu-
lagi. •
Chun tekur við af T. V. Soong
er mjög var á móti kommún-
isma, og lét af stjórn 1. marz síð-
astliðinn, og var hann borinr.
þungum sökum vegna þess að
stefna hans í þjóðmálum þótti
hættuleg hagsmunum landsins.
Chiang Chun hefir verið fylk-
isstjóri Szechwan-fylkisinis, og
er mikill vinur Generalissimo
Chiang Kai-Shek, síðan þeir
voru saman á japönskum her-
foringja skóla; hefir verið sagt,
að staðið hafi til að hann tæki
við ráðherra stöðunni fyrir 14
mánuðum síðan.
Brýnasta nauðsyn
Washington — George C.
Marshall, ríkisritari, sagði efri
málstofunni í þinginu það síð-
astliðinn mánudag, að hin brýn-
asta þörf væri á, að styrktarmál
Grikklands og Tyrklands næðu
framgöngu. I þvú væri velferð
þessara þjóða innifalin.
/