Heimskringla - 01.10.1947, Blaðsíða 4

Heimskringla - 01.10.1947, Blaðsíða 4
4. SlÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 1. OKT. 1947 WTehnskringla (StofnuO 1886) Kemui út á hverjum miðvikudegi. Eigendur:,THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Ávenue, Winnipeg — Talsími 24 185 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist: The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON "Heimskringla" is published by and printed by i THE VIKING PRESS LIMITED 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185 Usðcosoeosieecccooeooccoðooooosooosooðosciðoccooosoooo’.' Authorized as Second Class Mail—Post Office Dept., Ottawa WINNIPEG, 1. OKT. 1947 Heimskringla komin á annað árið yfir sextugt i. Með þessu tölublaði byrjar sextugasti og annar árgangur Heimskringlu. Eru þá í alt sem næst 3,172 blöð komin út af henni. Ef í einni bók væru, yrði hún 20,000 blaðsíður, í fjórum til sex sinnum stærra broti, en vanalegar bækur. Frá byrjun hefir hver árgamgur til jafnaða kostað $2.40. Svarar það til verðs ein-nar nýrrar bókar eða sögu, jafnlangri þeirri, sem í hvejum árgangi blaðsins hefir birst. Það er því ekki, hagfræðislega skoðað, langt úr vegi, að alt annað efni blaðsins hafi verið gefið með sögunni. II. Innihald Heimskringlu hefir verið líkt annara vikuiblaða. Það hafa verið fréttir vikunnar í fám orðum sagðar. Hefir í vali þeirra að sjálfsögðu verið lögð mest áherzla á að halda til haga þvi, sem verið hefir að gerast á meðal Vestur-lslendinga. Það hafa að sumu leyti mátt heita dægur-fréttir. En þegar nú er litið yfir þær, eru þær samt sem áður dýrmætur skerfur til sögu Vestur- Islendinga. Þær eru nokkurs konar spegill af athafnalífi þeirra. Með þvií sem úr blöðum að heiman hefir verið flutt nú í sextíu og eitt ár í Heimskringlu, hefir íslendingum, sem að heiman komu gefist nokkurt tækifæri að fylgjast með því, sem þar hefir gerst. Má fullyrða, að fáar fréttir hafi verið þeim kærkomnari. Og þeim hefir ekki sízt verið það ómenguð gleði, að frétta af framförunum miklu síðustu árin heima. Þau risaskref, sem hin fámenna áslenzka þjóð hefir stigið og sú alhliða menning, sem því hefir fylgt, mun æði einstæða mega kalla. Það er ekki sízt þetta innihald blaðsins, sem blásið hefir að kolum þjóðrækninnar. Það er og ómældur skerfur, sem Heims- kringla hefir að öðru leyti til þjóðræknismálanna lagt og stofnun hinna miklu samtaka — Þjóðræknisfélagsins — hér vestra. En eitt stærsta verkefni íslenzku vikublaðanna hér, hefir oss þó ávalt virst það, að þau eru tengitaugin milli íslendinga vestra. Dreifðir út um alla Norður-Ameríku, eins og þeir eru, mundi öll vitneskja um þá vera týnd og tröllum gefin, ef blöðin hefðu ekki verið til. Sú kynning, sem íslenzkur almenningur hefir um þá, og vitneskj a ekki einungis um hvar eru, heldur og um athafnir þeirra, er frá blöðunum sprottin. Við vissum ekki einu sinni hvort ís- lendingar væru nokkrir í næstu bæjum við Winnipeg, án blaðanna. III. Að gera lítið úr áhrifum íslenzku blaðanna, eins og einstakir menn stundum gera, á þjóðlíf Islendinga hér, er fjarri allri raur. og sanni. Hin íslenzku áhrif þeirra hafa verið og eru meiri eri nokkurrar annarar stofnunar, sem við eigum til vestra. Þau eru al-íslenzkustu samtökin, sem við eigum og hin virkustu, að því er viðhald íslenzku snertir. Þau hafa í háði hér verið kölluð officialis þjóðrækni, en þau eru það ekki síður de facto. — Háðið er því minna en ætlað er. Það er um hitt, sem nokkrir hér eru ekki sammála, hvaða stoð canadiskum eða bandarískum Is- lendingum sé að því, að halda óslitnu sámbandi við menningu ls- lands og uppruna áa sinnia. Um það hefir verið deilt, enda þótt þess sé engin þörf. Vestur-Islendingar eru fyrst og fremst þegnar ríkjanna Canada og Bandaríkjanna og þeirra fyrsta skylda er að reynast góðir borgarar þeirra ríkja. En það er margt annað sem til greina kemur í því efni. Innan hvers ríkis eru menningarleg samtök mynduð, sem að heill almennings lúta eða því, að gera borgarana að sem nýtustum og beztum mönnum. Allar þær marg- víslegu stofnanir þjóðfélagsins, mega heita ríki innan þjóðríkisins. Og það er að því, sem stefnt er, með þjóðræknissamtökum Islend- inga. Náttúra íslands er einkennileg. Menning þjóðarinnar er einnig sérstæð. Að halda við kynningu af því, eins og hverju öðru broti fagurrar og sérkennilegrar menningar hvar í heimi, sem er, er eitt af þegnréttarskyldum okkar hér og þegna allra landa. Hvers j vegna ættum við ekki, sem brot af íslenzkri þjóð, að gefa menn-1 ingarerfðum vorum neinn gaum, sem tilfinningum og hugsunum vorum eru svo samofnar sem mest má verða? Værum við göf- ugir menn og trúir sjálfum oss, ef við ekki gerðum það? IV. Islendingar hafa hér ekki reynst verri borgarar fyrir erfðim- ar, sem þeir fluttu með sér vestur að heiman. Það er sagt, að þeir hafi komið hingað mállausir og fákunnandi á flest sem hér fór fram. Einhverju skýtur hér skökku við. Bygðimar sem þeir hafa hér einir stofnað, hafa ekki orðið neinir eftirbátar anmiara bygða. Þar sem þeir hafa sezt að innan um aðrar þjóðir, hefir ekki lengi orðið að bíða þess, að þeir væm valdir til ýmsra forastustarfa. Það er satt, að þeir skyldu ekki landsmálið og það hefir orðið þeim fjötur um fót í fyrstu. Það sem var þó enn verra en að skilja ekki enskinn, -var hitt, að uxamir skyldu ekki óslenzku. En það stóð ekki lengi á því, að Islendingar gætu bjargað sér í ensku máli. Og bygðir þeirra og þátttaka í hverju sem gera þurfti, sýna að þeir höfðu óvenjulega mikla náttúragreind og skildu oft öðram skjót- ara náttúraskilyrðin hér og sáu öðram gleggra, hvemig hægt væri, að gera hlutina. Þetta var mermingin sem þeir komu með að heiman, en sem aðrir innflytjendur komu ekki með. Þetta var arfurinn, að sjá og skilja hið nýja og vita hvemig haga átti sér eftir kringumstæðunum, sem þeir áttu í drýgra mæli, en aðr- ir. Þeir höfðu glímt við brigðula náttúra heima, en höfðu mikið af því lært. Þeir vora einnig manna fremstir þeirra er hingað höfðu komið, í bóklegum fræð- um. Þeir stóðu á merg gamallar bókmentaþjóðar með göfugum hugsunarhætti, og sem réttvísi í allri breytni var vel þroskuð hjá. Þetta gerði Íslendinga hér strax eftirtektaverða og aflaði þeim orðstír, er seint mun fimast. Að | halda í þetta, jafnvel þó hingað væri komið, lá í augum uppi, að gera þurfti. Til þess á hér alt þjóðræknisstarf rætur að rekja. Hvernig á að halda í þennan andlega 'arf Islendinga? Þó margt sé nú til þess aðhafst, er sjáanlegt, að stefnan er að breyt- ast. I fyrstu var hún álitin í því fólgin, að halda við íslenzkri tungu. Nú er skroppin úr eggi sú stefna, að það geti alt gerst á ensku máli. En verður óslenzk- um arfi hér haldið við með því, eða menningarlegu sambandi við Island? Vér höfum ávalt verið hræddir um, að það blessaðist ekki til lengdar. Það virðist ó- eðlilegt, að Islendingar heima haldi nokkru verulegu sambandi við hið ensku-mælandi þjóðlif vort hér. Sú stefna lítur svo út, sem við ætlum að fara að kenna þeim heima menningu þessa lands, fremur en að halda sam- bandi við íslenzka menningu. En satt bezt sagt, höfum við Can- adamenn ekki af rótgróinni menningu að státa, þó maður voni, að hún sé á uppsiglingu. Bygging landsins er of ung til þess og má enn heit’a fortíðar- laus og fálmandi, þrátt fyrir kosti og hinar miklu framtíðar vonir fóstrannar. V. Auk þess sem Heimskringla hefir á liðnum áram átt sinn þátt í að benda á hvernig við gætum skapað hér .“íslenzkt ríki innan ríkisins”, hefir hún ávalt látið sig landsmálin hér eðlilega skifta. I pólitískum flokksmál- um fór hún sér hægt í fyrstu og lýsti sig jafnvel óháða. En eftir að Lögberg fór af stað, varð af- staða hennar ákveðnari og um kosningar mælti hún bæði á tíð Frímanns Andersonar og Gests Pálssonar með íhalds-flokknum, en Lögberg með frjálslynda flokkinum. En verulega kvað þó ekki að flokksfylgi hennar nema á tíð Baldvins L. Bald- vinssonar, eða frá 1898 til 1913, en hann var íhaldsflokkmaður í stjórnmálum. Eftir það tóku nokkrir ritstjórar hennar ekki nema að litlu leyti í þann streng, og auðsætt var, að framfaramát j landsins í heild sinni og menn- ingarmál öll skipuðu þar fremur öndvegi, en pólitísk flokksmál. Má það segja um fyrstu ritstjór- ana er tóku við eftir að Viking Press félagið keypti blaðið, en það voru séra Rögnv. Pétursson og séra Magnús skaptason, og um hið mikla og góða lesmál, er séra Friðrik Bergmann lagði blaðinu til á ritstjómartáð O. T. Johnson er hið sama að segja. Hinu sama gegnir um ritstjórn Sigfúsar Halldórs frá Höfnum. En í Bandaríkjastjórnmálum hefir blaðið ávalt verið demó- krata megin, þrátt fyrir þó sá flokkur sé þar talinn frjálslyndi flokkurinn. Stafar það eflaust af því að aðstandendur blaðsins syðra fylgdu þeim flokki en fylgjendur Lögbergs republik- unum. Það virðist því mega segja, að stjórnmálin hafi ekki alvarlega verið tekin, nema á tíð Baldvins við Heimskringlu. — Enda hafa þau lítið rúm í henni skipað, sem flokksmál s'íðan. Heimskringla hefir siíðan 1913 ávalt stutt únitara eða frjáls- trúar hreyfinguna. Annars hefir það verið keppi- keflið, að flytja sem mest af læsi- legu og nýtilegu máli um hvaða efni, sem verið hefir. Og margt af þvlí, sem hinir frjálssinnuð- Ustu rithöfundar heima og djörf- ustu hafa skrifað, hefir hún flutt. Fyr meir, á meðan blaðið var minna og hér var fjöldi manna, sem til lesmálsins lagði, var að vísu minna prentað* að heiman. En eftir því sem íslendingar hér ílengjast, virðist áhuginn fyrir að skrifa u' blöðin hafa dvínað, sem ekki er hægt, að líta á sem neinn góðsvita um framtíð ís- lenzkra blaða hér. Bygðarfréttir eins og í fyrri daga sjást nú varla orðið og er mikil eftirsjá í því. Hefir Heimskringla oft far- ið fram á það, að menn sintu því meira, að segja henni fréttir, af Islendingum sérstaklega, en við því hefir verið daufheyrst. Er hún enn að vona, áð einhverjir eigi eftir að taka sér fram um að senda henni línur og sem víð- ast að. Það er eitt af því skemti- legasta fyrir lesendur og getur haft sitt gildi fyrir framtíðina og söguna. Það hlýtur að bera margt það við á meðal Islendinga, er aðrir á fjarlægari stöðum hafa gaman að heyra. Svo era land-lýsingar eða bygða ávalt kærkomnar. VI. Hugmundin með því s’em sagt hefir verið hér að framan, er ekki sú, að á það skuli litið, sem sögu Heimskringlu. Það sem til hefir verið tínt, er ætlað til þess að benda á tilgang blaðsins, eða hugsjónir þær, sem það hefir stjórnast af, fremur en að rekja starfið, spor fyrir spor. Leið ísl. blaða hefir aldrei verið blóm- um stráð, sem að líkum lætur, svo fámenn sem þjóð vor er. En þó er því svo varið, að fáar þjóð- ir eða engin, hefir tekið henni fram um bókmentaleg störf. Það er líklegast þessi heill, sem ís- lenzku vikublöðin hér hafa not- ið að, og sem hinn hái aldur Heimskringlu ber vott um. Ef bókhneigð íslenzkrar þjóðar hefði ekki með vesturförunum iborist vestur um haf, væri Heimskringla nú ekki að minn- ast yfirstandandi afmælis síns. Þegar spurt er, eins og nú er oft gert, hvað langur aldur ís- lenzku vikublöðunum sé hér skapaður, er kanske réttasta svarið við því, að hann fari eftir því, hvað vel við verndum hér iíslenzkar erfðir t. d. bókhneigð- ina. En þar horfir ekki sem bezt við. Yngri kynslóðirnar eru með því að hverfa frá íslenzku, úr sögunni, þó í eitthvað haldi af öðram erfðum. — Það era því hinir eldri eingöngu, sem nú er orðið á að treysta. Guð gefi að þeir verði manna elztir! VII. Þar sem hér hefir nú verið minst á stefnur og strauma ís- lenzks þjóðlífs, frá sjónarmiði Heimskringlu, er ef til vill rétt, að taka til athugunar það senf dr. Jóhannes Pálsson hélt fram í ræðu á Islendingadegi á Hnaus- um, en álit hans var eitthvað á þá leið, að stefna íslenzku blað- anna beggja væri sú, að flytja ekkert nýtt um það, sem kallað er stjómarfarslegar umbætur eða framfarir; í þeim sæist aldrei neitt nema grátt afturhald. Það er um Heimskringlu að segja, að hún hefir bent á alveg nýja leið í stjórnmálalegum skilningi, sem ekkert annað blað hefir bent á og sem sá, er þessar línur ritar, á- lítur að sé til farsældar og auk- ins jafnréttis í hvaða þjóðfélagi, sem er, og hvar sem er. Leiðin er að veita almenningi það frelsi, sem til þess þarf, að hann geti með sánu atkvæði átt beinni þátt lí löggjöf lands síns, en hann nú á með þingræðinu í lýðræðis- löndum heimsins. Þetta á við það, í fám orðum sagt, að almenn ingur greiði beint atkvæði um hvert mál, sem'að lögum er gert í landinu. en ekki þingið. Það fel- ur það í sér, að löggjafarvaldið sé tekið af þinginu. Þetta viðgengst ekki í neinu landi nema að nokkru í Sviss, sem takmarkað hefir löggjafar- vald siíns þings. Ástæðan fyrir að halda með þessu, er reist á þvi að frelsið sé undirstaða allra umbóta. Og með þjóðfélagslegu frelsi getur ekki við annað verið átt en að ná valdinu úr höndum hinna fáu og koma í hendur fjöldans. Þegar þingræði var á laggir sett, var stórt spor stigið í frelsis og mannréttinda áttina frá einræði konunga og keisara. En það þarf lengra að fara í þess- um efnum. LöggjafarValdið alt þarf að komast krókalaust í hendur allra kjósenda landsins. Það getur verið, að almenningur fari ekki ávalt með vald sitt sem skyldi. En kjósendum lærist það smátt og smátt. Og þá fyrst hef- ir þjóðfélagið þau lög er almenn- ingur vill; fyr ekki. Þetta er í fylsta samræmi við þjóðfélagslegar frelsiskröfur allra tíma. Og það er sú sann- gjarnasta leið sem hægt er að hugsa sér til þess, að almenning- ur ráði lögum og lofum en ekki fáir menn. Engin flokkstefna sem vér þekkjum, tekur það tillit til þessa, sem vera ber. Og meðan það er ekki gert, eru flokks- stjómir aðeins stétta stjómir. Það er hver flokkur með því marki brendur, að aka fremur plógi vissarr stéttar, en almenn- ings. En frá siðferðislegu sjón- armiði skoðað, er mikill vafi á að nokkur slíkur flokkur eigi rétt á sér. Hættan sem af þvi leiðir er ríkisvald, einræðisvald, sem einn ílokkur getur með slíku náð og haldið, án þess, að valdinu sé náð rneð byltingu eða ofbeldi, eins og t. d. í Rússlandi. En þetta fer alt í öfuga átt við almennings frelsi, og er hin argasta auðvalds stefna. Og hún ríkir ekki síður hjá einum stétta flokki en öðr- um. Kommúnistar með sitt rík- isvald, eru mestu auðvaldssinn- ar, sem hægt er að benda á, vald auðsins er þar meira og í hönd- um færri, en annars staðar eru dæmi til. Er uppskeran nú þeg- ar af því sú, að þar era að spretta upp miljónarar innan þess fá- menna flokks, sem þar fer með völd. Og það er líklegast væn- legra fyrir hvem einstakling, að vinna fyrir þann flokk, en nokk- urn annan, með það fyrir augum, að bera sem mest úr býtum fyrir flokksfylgið, þVtí það er eini flokkurinn, sem á landið og þjóð- ina með húð og hári. Það er valtara völubeinið á auðvaldinu í hverju lýðræðislandi sem er, en í Rússlandi. Það er fyrir einræðið, tilvon- andi vald yfir auði og efnum, sem flokkum er fylgt, fremur en vegna almenns frelsis, þó allir þykist fyrir það vera að vinna. Það var meira að segja í voninm um að Hitler yrði alráðandi í heiminum, sem margir fyltu flokk hans og fylla enn flokk stétta stjórna. Þetta eru nú þær póltísku hugsjónir, sem fyrir Heims- kringlu hafa vakað síðari árin og hún mun ekki glata sjónumT á og sízt af öllu, þó kommúnistar og aðrir ramir stéttapólitíkusar haldi því fram, að afturhald hennar sé óviðunandi. Og það verður eðlilega í samræmi við þessa frelsisstefnu hennar, sem viðhorf hennar í öðram málum mun hafa hliðsjón af. Eftir ræki- lega athugun á því, væntir hún þess, að mönnum komi síður á óvart viðhorf hennar á ýmsum öðram málum. 1 trausti þess, að mönnum lærist ávalt betur og betur,- að skilja hvert málefni sem er, frá sönnu og víðtæku samfélagslegu sjónarmiði, en það er eitt af því, sem henni finst enn mikið skorta á, hefur hún ótrauð gönguna fram á árið, sem nú fer í hönd, sextugasta og annað útkomu ár sitt. KAUPIÐ HEIMSKRINGLU— bezta íslenzka fréttablaðið SVARAR VISHINSKY Síðast liðna viku hélt brezki fulltrúinn á þingi Sameinuðu þjóðanna, Hector McNeil, ræðu. Benti hann með mjög viðeigandi orðum á tilgang félagsins og brýndi þörfina á meiri sam- vinnu. Rússa minti hann á að tilvera félagsins ylti beiniínis á því, að þeir flettu við blaði og yrðu samvinnu-betri, en þeir hefðu verið til þessa. Afleiðing- arnar af því ef félagið leystist upp, væru alvarlegri en svo, að nokkur fulltrúi, gæti verið á- jiægður með það. Að öðru leyti svaraði hann ræðu Andrei Vishinsky, rúss- neska fulltrúans, er áður hafði brugðið Bandaríkjamönnum um að manga við stríð og að það væri þeim að kennia, að friður væri ekki enn saminn. McNeil sagði brígsl Vishinsky um hern- aðaranda annara þjóða, vera eina hina ómenguðustu “friðar- komedíu”, er hann hefði séð. McNeil tók og málstað Chur- chills, er Vishinsky bar saman við Hitler. “Barátta Churchills gegn naz- isma, var sú, að við hana jafnast ekki barátta neins manns í flokki komúnista, hvar um heim sem leitað væri,” sagði McNeil. Hann bætti við: “Churohill gekk ótrauður um götur Lund- únaborgar og var með því fyrir- mynd í hugrekki þjóðar sinnar, er sprengjur Þjóðverja dundu á borginni úr flugförum, sem, að öllu er eg veit, voru birgðar upp með olíu frá Rússum.” Á fregnritafundi á föstudag í síðast liðinni viku, hélt Vishin- sky hinu sama fram um stríðs- anda Bandaríkjanna og nefndi nú sérstaklega í hópi þeirra War- ren Austin, senator, og fulltrúa á þingi Sameinuðu þjóðanna; hann bætti og McNeiI við í hóp þeirra. 1 fyrstu ræðu sinni nefndi hann marga eða eina 6 til 8 með nafni, líklegast vegna af- stöðu þeirra til aðstoðarinnar við Grikki, en hann hefir eflaust haldið að vestlægu þjóðunum væri nýung að heyra það og ekki vitað, að það hefir verið texti í ræðum og skrifum kommúnista hér um langt skeið. Annað sem síðast liðna viku íór fram var þetta: 1. Rússar andmæltu því að nefnd væri skipuð frá 55 þjóðum í málið um að takmarka neitun- arvaldið; þessi nefnd, sem kölluð hefir verið “Litla þingið” (The Small Assembly), getur rætt um hvaða mál sem er, og lagt fyrir allsherj arráðið og látið þar gera út um það; þar er ekkert neit- unarvald. Gromyko sagði þessa bandarísku hugmynd brot á lög- um Öryggisráðsins. 2. W. R. Hodgson fulltrúi frá Ástralíu ávítaði Rússa fyrir að reyna að blekkja Sameinuðu þjóðirnar, er farið var fram á að veita Italíu upptöku í félag þeirra, en Rússar hefðu lagt það við því, að Ungverjaland, Rú- manía, Búlgaría og Finnland. fengju einnig inngöngu, sem ekki væru sjálfum sér ráðandi en hefðu rússneskar stjónir yfir sér og væru ekki óháð ríki. 3. Boris Stein, rússneskur fulltrúi var æfur út af að ekkert hefði verið gert í því að mynda fulltrúaráð fyrir hinar fomu ný- lendur Þjóðverja í Suðvestur- Afríku, sem Þjóðabandalagið gamla leit forðum eftir. Það er fátt sem í friði og eftirlitslaust af hálfu stórþjóðanna má nú vera. Kjósandinn: Eg mundi ekki kjósa þig, þó' þú værir sjálfur sarikti Pétur. Frambjóðandinn: Ef eg væri sankti Pétur gætir þú ekki kosið mig. Þú mundir ekki vera í mínu kjördæmi. •* * * — Hvernig líkar þér við nýju tennurnar? —- Þær eru alveg ónýtar til að tyggja með þeim, en hins vegar má vel nota þær t. d. við lestur!

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.