Heimskringla - 23.06.1948, Síða 1
Always ask íor the
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeq Phone 37 144 ;
Frank Hannibal, Mgr.•
•
; Alwcrys ask íor the—
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
^************^******—
LXII. ÁHGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 23. JÚNf 1948
NÚMER 39.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Engisprettuplága
Vesturlandsins
Samkvæmt hinum fornu sögn-
um biblíunnar átti Pharaoh, —
Faraó — Egyptalandskonungi
að hafa þótt nóg um, þegar drott-
inn tók til þeirra ráða, til þess að
frelsa sinn útvalda lýð undan
þrældómsokinu á Egyptalandi,
að láta 10 hræðilegar landplágur
ganga yfir konungsríkið. Þótt
svo hafi nú um skipast síðan á
hinni fornu tíð, að nútíma menn-
ing leggi lítið upp úr því, að
landplágur og pestir séu refsi-
dómur yfirnáttúrlegra valda fyr-
ir einhverjar drýgðar syndir
einstakrá þjóða, eða alls mann-
kynsins, þá er það nú svo, að enn
þann dag í dag eiga ýms lönd og
landshlutar við að stríða margar
af þeim plágum, sem biblíusagn-
irnar greina frá að gengið hafi
yfir Egyptarland.
Er þar næst til að taka, að svo
er að sjá eins og Vesturhluti
þessa mikla meginlands hafi ekki
farið varhluta af mörgum þeirra
á þessu vori og sumri.
Má þar til nefna óvanalega
LÝKUR PRÓFI I
LÆKNISFRÆÐI
Dr. Guðmundur Lambertsen
Þann 19. maí síðastliðinn, lauk
þessi ungi og gerfliegi maður
fullnaðarprófi í læknisfræði með
ágætiseinkunn við Manitoba-há-
skólann, og á hann óvenju glæsi-
legan námsferil að baki; að loknu
námi við alþýðuskóla Glenboro-
bæjar, ákvað Guðmundur að leita
sér æðri mentunar og varð þá
nám í læknisfræði honum hug-
stæðast; þess vegna innritaðist
hann við læknavísindadeild há-
skólans og fékk brátt orð á sig
fyrir frábæra námshæfileika, á-
stundun og viljaþrek; leið eigi á
löngu að hann ynni ein námsverð-
launin af öðrum; um sumarið
1942 varð Guðmundur fyrir þeirri
sæmd, að hljóta námsverðlaun
mentamálaráðs Manitoba-fylkis
til tveggja ára, $650 fyrir hvort
árið um sig; árið eftir vann hann
hin svonefndu David A. Stewart
verðlaun og óx í áliti kennara
sinna með hverju líðandi ári.
Guðmundur læknir er af góðu
og gáfuðu fólki kominn; hann er
sonur Guðmundar Lambertsen
gullsmiðs og stórbónda frá Glen-
boro, sem fyrir skömmu er lát-
inn, og eftirlifandi ekkju hans,
Brynjólfnýjar Asmundsdóttur,
sem ættuð er úr Núpasveit í
Þingeyjarþingi.
Þessi ungi og efnilegi læknir,
er þegar hefir aukið all verulega
á hróður íslenzka þjóðarbrotsins
í þessu landi, hefir afráðið að
setjast að í Brandon og stunda
þar lækningar í félagi við Dr.
Fjeldsted frá Gimli.
E. P. J.
skaðvænleg flóð, skógarelda,
skemdir af frosti, uppskeru orm-
um, ofþurkum, foki gróðrarmold-
ar, og síðast, en ekki sízt, engi-
sprettum.
Byrjuðu þessi leiðu kvikindi
að unga út fyrir um tveimur vik-
um síðan, í miðhluta Saskatche-
wan-fylkis, og hafa sökum þurka
og hita, ráðist í billjónatali inn á
stór svæði í fylkinu. Einnig hafa
þær ungað út á svæðum í suð-
vestur hluta Alberta, og nálægt
Emerson, McGregor og Glad-
stone í Manitoba, þótt ekki sé
það í stórum stíl enn þá .
Farið hefir verið með eitur í
tonnatali flugleiðis á þá staði í
Saskatchewan, þar sem engi-
sprettanna varð fyrst vart, og þar
sem þær nú þegar eru búnar að
eyðileggja þúsundir ekra af
þeirri uppskeru, sem vel var á
veg komin. Bændur og búalið er
sífelt á vettvangi með öll upp-
hugsanleg tæki til þess að eyða
þessum ófögnuði. Eitrinu er
dreift um með allskonar hætti,
heimatilbúnum verkfærum og
öllu sem gripið verður til.
Þá að stórrigning og kaldara
veður á plágusvæðunum myndi
eyða enginsprettunum fljótar en
nokkuð annað, þá geta ekki hinir
langþreyttu bændur og skyldu-
lið þeirra, sem berst má heita
dag og nótt, beðið eftir því
Ef þeim féllust hendur í þess-
um bardaga, myndi öll uppskera
þeirra og lifibrauð eyðileggjast.
með öllu fyrir augunum á þeim,
af þessari voða plágu.
Eyðsla og ódrýgindi
Það er haft eftir Harry Cohen,
verzlunareiganda frá Birming-
ham á Englandi, sem hefir verið
hér á ferð um endilanga Canada
í verzlunarerindum, og til þess
að kynnast hag lands go þjóðar,
að hann hafi sagt í Montreal,
áður en hann lagði af stað heim-
leiðis, síðastl. föstudag, að með
matvæli væri farið svo illa og
ódrýgindalega í Canada, bæði á
heimilunum og á matsölu-hús-
um, að slíkt væri hneykslanlegt.
Einnig það, hvernig fólk í Can-
ada fleygði hálfslitnum fötum,
myndi gera Englendinga grá-
hærða!
Kvað Mr. Cohen Canadamenn
borga of hátt verð fyrir innflutt-
ar vörur frá Bretlandi; sagði
hann að sá ágóði á varningnum
umfram það sem hann væri seld-
ur fyrir á Englandi, væri blátt á-
fram stórhneyksli.
Hversu mikið er að byggja á
ummælum þessa manns, er örð-
ugt að vita, en þau sýna þó, sem
raunar áður var vitað, að ekki er
alt með feldu, og þau minna ó-
neitanlega á, hvílíkt allsnægta-
land Canada gæti verið, ef rétt-
lát stjórnarvöld og vitur lands-
lýður tækju höndum saman.
Ruglaður í skammstöfunum
Það var í Ottawa nýlega, að
Rt. Hon. C. D. Howe, verzlunar-
og viðskiftamála-ráðherra, var að
verja áætlanir deildar sinnar í
neðri deild þingsins gegn að-
finslum og gagnrýni andstæð-
inganna, að hann játaði, að jafn-
vel hann sjálfur ætti stundum
erfitt með að átta sig á hinum
alt of tíðu og frekar hégómlegu
styttingum, — skammstöfunumi
ýmsra þjóða — og alheimsmála-
heita.
Hann var að tala um E. C. A.,
þegar A. L. Smith, (PC—Cal-
gary West) tók fram í fyrir hon-
Ströndin mín
Fjallkonan ávarpar börn sín
2.
Flutt að Hnausum, 19. júní 1948
Árla á æskunnar dögum,
Þá orka var lítil í hönd.
Eg sá þig og söng um þig kvæði
Ó sviphýra fjarlæga strönd.
Þar dreymdi mig fegursta drauma.
Þar dreymdi mig framtíðar lönd.
Og þar naut eg æskunnar unaðs,
Ó indæla fjarlæga strönd.
Eitthvað sem enginn fær skilið,
Eflir þau dulrænu bönd,
Sem draga mig heim til þín héðan,
Ó hjartkæra fjarlæga strönd.
Gullið og skógarnir grænu
Glepja ei þreyandi önd.
Á meðan eg lifi mig langar
Að líta þig fjarlæga strönd.
Flutt af Mrs. S. W. Sigurgeirson að Hnausa, Man., 19. júní 1948
Börnin mín góð!
Þó eg sé komin í heimsókn til ykkar um óravegu, er það
ekki einungis vegna þess, að mig langaði til að kynnast högum
ykkar og háttum, því í rauninni hefi eg ávalt verið í andlegri
nálægð við ykkur og fylgst með þroskaferli ykkar, áhugamálum
og athöfnum. Þetta er í sjálfu sér hvorki nýtt né öðru fremur
markvert, því allar mæður láta hugann dvelja við börn sín, er í
fjarlægð búa.
Metnaður minn er mikill yfir því áliti, er þið hafið unnið
ykkur í hinu nýja kjör- og fæðingarlandi; eg finn til þess hve
eg er rík, og börnin mín heima, fyrir það að eiga þessa glæsilegu
fylkingu afkomenda, starfsglaðra manna og kvenna, í þessu
fagra landi, Canada. Eg hefi fagnað yfir því hve sömu sér-
kennin, er frá landnámstíð hafa svipmerkt börn mín heima,
hafa skotið djúpum rótum í vitundarlífi ykkar hér vestra, og
á eg þar einkum við hina djúpu og óbifanlegu frelsisást, sem
hugsjónir lýðfrjálsra þjóða grundvallast á.
Eg veit að þið hafið int af hendi margar fómir og það hefi
eg líka gert í þágu mannréttinda á þessari fögru jörð.
Hugurinn flýgur án fjaðra
Um fegurstu ódáins lönd.
í fjarlægð nú syngja mér svanir
Frá sólbjartri minninga strönd.
Lárus B. Nordal
Með íslenzkri hugást eg horfi í dag
á hópinn minn glæsifríða.
Við hlustir mér ómar ljúflings lag
frá landnámi fyrri tíða.
Hvert norrænt orð og hvert æðaslag
skal ódreymdra sigrá bíða.
Þótt himininn sökkvi í hjóðan mar
og hrynji hver borg til grunna,
eS ykkur út yfir aldirnar
að upptökum lífsins brunna.
f uppsprettum ljóðs eg lauguð var
og lærði þar fyrst — að unna.
Börnin mín! Heill og hamingja fylgi ykkur á ókomnum
árum og öldum!
um og spurði hvað E. C. A. væri.
Kvað hann svo mikið af stytting-
um ýmsra heita, að hann þekti
ekki allar þær skammstafanir í
sundur. Mr. Howe kvað það;
meina “Economic Co-operation
Administration”, Það eru Marsh-i,
alls-fyrirætlanirnar, sagði Mr. ,
Howe. “Það er hvorki meira né
minna, en framkvæmd og fyrir-:
greiðsla Marshalls-fyrirætlan-l
inna”.
Mr. Smith: “Eg var ekki að
reyna til að vera fyndinn, það er
bara svo margt af þessum skamm-
stöfunum, að eg get ekki munað
þær allar”.
Mr. Howe: “Já, auðvitað, það
er svo langt frá því að eg muni'|
þær allar sjálfur.”
Lagabre>i;ingar
Rt. Hon. J. L. Ilsley, dóms- •
málaráðherra, sagði nýlega 1
neðri deild þingsins í Ottawa,
að annaðhvort fimm eða sjö
manna nefnd yrði mynduð til
þess að endurskoða lagakerfið í !
Canada, einkum sakamálalögin.
Frumvarpið um myndun slíkrar 1
nefndar ákveður að fimm manns '
skuli vera í henni; en Mr. Ilsley
kvaðst hafa í hyggju að fjölga 1
nefndarmönnum, til þess aði
nokkur hluti þeirra gæti alger-
lega gefið sig við endurskoðun
og umbótum sakamála og hegn-
ingarlaga.
Neitunarvaldið
að engu virt
Seint í síðastliðinni viku gerð-
ist sá sögulegi atburður, að þing-
ið í Washington samþykti lög-
gjöf, þvert ofan í neitunarvalds-
beitingu Trumans forseta. Var,
það í þriðja sinni á fjórum dög-
um, að þingið gekk upp á móti
neitunarvalds skipunum, (veto)
forsetans. En deilan hófst um
frumvarp um verðlagssamninga
járnbrautafélaga, er fyrirbygðir
voru með móttryggingarlögum.
Elztu þingskörungar segja þessa
lítilsvirðingu fyrir neitunar-
valdi forsetans, algerlega eins-
dæmi í þinginu.
Þeir í Moskva
Rú§* *ar hafa nú fallist á tillögu
Ameríkumanna að halda 10-þjóða
ráðstefnu 30. júlí næstkomandi,
til þess að undirbúa frjálsar al-
þjóðasiglingaleiðir um Danube-
ána.
f svari, sem ríkisdeildin hefir
birt, segir að Rússar hafi dregið
til baka þau mótmæli sem þeir
nýlega hófu gegn því að Aust-
urríki tæki þátt í ráðstefnunni.
Segja þeir í Moskva nú, að þeír
séu viljugir til að bjóða Austur-
ríki þátttöku, þó með því móti,
að það hafi engan atkvæðisrétt.
Þar fylgir böggull skammrifi!
FRÉTTIR t FÁM ORÐUM
Falskir bandarískir 10 dollara
seðlar, kváðu vera í umferð í
Winnipeg. Þeirra hefir orðið
vart í búðum. Er haldið að seðl-
arnir séu eftirgerðir með mynd-
tökuvélum og þeir er það gera,
geti verið úr hópi Bandaríkja-
manna er hafi peningafölsun með
höndum. Seðlarnir kváðu auð-
þektir á því, að pappír í þeim sé
ekki eins sterkur og í vanalegum
seðlum.
★
Manitoba-stjórnin hefir neitað
C. D. Howe, verzlunarmálaráð-
herra, að semja lög er heimili
Hveitiráðinu að hafa sölu á
byggi, höfrum og öðru komi með
höndum. Howe fór fram á að
öll fylkin geri þetta.
HITT OG ÞETTA
Þegar Wilhelmina Hollands-
drotning var á ferð í Bandaríkj-
unum á stríðsárunum, heimsótti
hún meðal annara staða, hinn víð-
kunna herforingjaskóla að West
Point.
Herforingjaefnin höfðu verið
marg-æfðir og þjálfaðir svo dög-
um skifti, og hvert smáatvik í
sambandi við þessa virðulegu
heimsókn, hafði verið vandlega
athugað og undirbúið, alt, nema
aðeins eitt, — engum hafði hug-
kvæmst að segja forstjóra lúðra-
sveitarinnar hvaða lag ætti að
leika þegar æðstu yfirvöld
Bandaríkjanna kæmu með henn-
ar hágöfði, drotninguna inn á há-
tíðasvæðið. Valdi því hljómsveit-
arstjórinn eitt af sínum uppá-
halds lögum, án þess að hugsa
mikið um hvernig á stóð. Svo
þegar merkið var gefið um að
drotningin væri að koma, og
heiðursvörðurinn, og allir aðrir
hermenn stóðu þar, stífir eins og
merki-kerti, drotningunni tili
virðingar, byrjaði lúðrasveitin að
leika með fullum krafti; “The
Old Gray Mare, She Aint What
She Used To Be”! — sem verðui;
á íslenzku, í fremur losaralegri!
þýðingu: Gamla gráa merin er
ólík því, sem (hún) áður var!
*
Mrs. Maude Ethel Pope
hreiðraði um sig í húsinu sem
hún sjálf reisti sér í Atlanta, Ga.
nýlega, og beið þess að (22) tutt-
ugasta og annað barnið hennar
fæddist í þennan synduga heim.
Mrs. Pope sagðist vera orðin dá-
lítið þreytt af því, að láta húsa-
eigendur reka sig út, eða gefa
sér tilkynningu þar að lútandi,
í hvert skifti sem nýr erfingi
væri á leiðinni. Svo hún reisti
sér sitt eigið hús. Varð hún að
borga alla þá peninga sem hún
átti til fyrir lóðina og efnið, en
hún smíðaði það sjálf, nema eig-
inmaðurinn hjálpaði henni með
grunninn! Þessi 38 ára gamla
kona sagðist hafa átt fyrsta barn-
ið, af 17 drengjum og 4 stúlkum,
13 ára að aldri.
★
Frá Stockhólmi — Sérstakur
undirbúningur hefir verið hafinn
í Svíþjóð, til þess að taka sér-
staklega hátíðlega á móti þjóð-
bræðrum og systrum, og afkom-
endum þeirra frá Canada og
Bandaríkjunum, sem ætla heim
til föðurlandsins í heimsókn í
stórum stíl á þessu sumri og vori.
Gerir heimaþjóðin sænska alt
sem í hennar valdi stendur, til
þess að taka vel á móti ferða-
fólki, og sérstökum farþegaferð-
um hefir verið séð fyrir.
A
Trygve Lie, aðalritari og for-
seti Sameinuðu þjóðanna, hefir
látið uppi nýlega.'að hann sé nú
að koma í framkvæmd hugmynd,
er hann hafi lengi haft í hugan-
um, en hún er sú, að Sameinuðu
þjóðimar eignist sérstakt varð-
lið, eða eftirlitssveit, er styrki
framkvæmdanefndir þessarar
miklu stofnunar til þess að við-
halda friði í heiminum.
★
Thomas B. Costain, höfundur
bókanna “The Moneyman” og
“The Black Rose”, lýsti því ný-
lega yfir í Ottawa, að hann bæri
svo mikið traust til almennings,
ISLENDINGADAGUR-
INN Á HNAUSUM
Yfir 1000 manns sóttu íslend-
ingadaginn á Hnausum s. 1. laug-
ardag. Veður var hið ágætasta
allan daginn og skemtiskrá bæði
löng og góð. Gunnar Sæmunds-
son var forseti dagsins. Aðal
ræðurnar, auk ávarpa Fjallkonu
og Miss Canada, fluttu frú Elin-
borg Lárusd. frá íslandi, frú S.
Ólafsson frá Selkirk og Heimir
Thorgrímsson. Kvæði orti Lár-
us Nordal frá Gimli.
íþróttir fóru fram eins og
venjulega. Dagurinn þótti hinn
skemtilegasti.
að hann héldi að fólk yfir höfuð,
hefði meiri dómgreind og sið-
ferðisþrek til að bera en svo, að
það léti afleiðast af slíkum hjá-
guðum, eins og kynferðis og
klám-bókmenntum þeim, er nú
virtust vera í miklu uppáhaldi
hjá mörgum lesendum.
Kvað hann, að þrátt fyrir það
þótt þesskonar bækur hefðu átt
allmiklum vinsældum að fagna
undanfarið, þá hefð,u þær ekki
runnið út, eins og útgefendurn-
ir hefðu búist við.
★
Faðir Joseph Murphy, kaþólsk-
ur prestur, sem tilheyrir Boston
College — Fordham fornleifa-
rannsóknafélaginu, sagði nýlega
í New York að fornleifafundir í
Antilias-dalnum í Lebanon og
víðar, sönnuðu, að mannverur,
eða fólk í mannsmynd hefði ver-
ið komið til sögunnar um 75,000
árum fyrir Krists fæðingu.
\ Faðir Murphy er nýlega kom-
inn til New York úr einni af
rannsóknar ferðum sínum til
Lebanon, með 140 sýnishorn; þar
á meðal beina§;rind af 8 — 9 ára
gömlum dreng, sem var uppi fyr-
ir meira en 60,000 árum síðan.
★
Einvalds-drotningin Irene, sem
réði fyrir Byzantine-stórveldinu
á áttundu öld, var fátækur, en
gáfaður munaðarleysingi.