Heimskringla - 23.06.1948, Blaðsíða 4

Heimskringla - 23.06.1948, Blaðsíða 4
4. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 23. JÚNÍ 1948 Heitnskringla (BtofnvB 1899) Kemui út á hverjum mlðvikudegl. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24185 Verð blaðsins er S3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskiftabréf biaðinu aðlútandi sendist: The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON “Heimskringla" is published by and printed by THE VIKING PRESS LIMITED 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185 Authorized as Second Class Mail—Post Office Dept., Ottawa WINNIPEG, 23. JÚNÍ 1948 Kirkjuþing Kirkjuþing Hins Sameinaða Kirkjufélags íslendinga í Norður- Ameríku, verður í ár haldið að Gimli og hefst n. k. fimtudag (25. júní). Nýja-ísland fær í þetta sinn notið starfs kirkjuþingsins í ríkum mæli. Þar hefir nú á öðrum stað eða á Hnausum verið háð þing íslenzkra frjálstrúar kvenna undanfama daga, sem oss hafa borist fregnir af, að hafi verið eitt hið bezta. Þetta þing verður ef til vill ekki frábreytt öðrum ársþingum félagsins. Þó sjáum vér að gest- urinn vinsæli frá íslandi, frú Elinborg Lárusdóttir flytur þar erindi. Er kirkjuþinginu happ að því, að hafa slíkan gest, eins og félagslífi voru hér öllu hefir verið. Hún flutti fyrirlestur á þjóðhátíðinni á Hnausum s. 1. laugardag, erindi á þingi kvenna s.l. mánudag, “um sumardvalar heimili barna á fslandi”. Áður hefir hún flutt hér ótal erindi og þar á meðal fyrirlestur um leikment, þróun hennar og þjóðleikhúsið sem í smíðum er á íslandi. Erindi hennar eru með afbrigðum glögg og bregða upp ljósri og óafmáanlegri mynd af hverju því er hú tekur sér fyrir hendur að segja okkur frá úr þjóðlífinu heima. Við lítum á íslendinga sem heimsækja okkur, sem fulltrúa fslands. Frú Elinborg er vissulega góður fulltrúi þjóðar vorrar. Hvað á þinginu gerist, fáum við fréttir af síðar. En hins er að vona, að það komi einhverju raunverulegu til leiðar í þarfir hug- sjónarinnar, sem stefnt er að með auknu frelsi og víðsýni í trú- málum. Sá er þetta ritar minti eitt sinn í ræðu, er hann var svo frægur að flytja í kirkju, á efni, er H. G. Wells sálugi vakti máls á, en það var um þörfina á að skrifa nýja biblíu. Það liggur nú ef til vill ekki í bókstaflegum skilningi mikið eftir frjálstrúar samtökin hér í þessu efni, en að stefna þeirra sé í öðru fremur fólgin efast eg um. Hún hefir að því miðað, að losa trúfræðina við hégiljur og skurðgoðadýrkun, sem svo oft og í mörgum myndum skýtur upp í trúarkenningum hverrar kirkju sem er, um leið og hún hefir snúið sér að því að gera sér sem gleggsta grein fyrir tilveru heimsins og viðhorfi mannsins í því efni. Hún vill sjá sem sannasta mynd af þessu og samrýmanlegri þekkingu nútímans en flest eða öll eldri trúarbrögð hafa að bjóða. Þetta er oft lagt út sem trúleysi, en það er þvert á móti til þess að gera veg drottins beinni, því þá töluðu verk hans krókalaust til vor mannanna og á skiljanlegri hátt, en oft er upp á boðið. Blekkingarnar sem í mörgum trúfræðibókum felast, eiga þar og sízt af öllu heima og væri hart á þeim tekði, ef í fari einstaklingsins kæmu fram — að ekki sé minst á allar villurnar, sem í vanþekkingarskörð eldri tíma er drepið, en sem nútíma skilningur manna á heiminum er áð útrýma og vissulega hefir leitt til meiri vantrúar, en nokkuð annað. Þetta er efnið, sem íhuganir frjálstrúaðra hafa snúist um og gera á þessu þingi, sem í hönd fer, einu frjálstrúuðu kirkjunnar, sem íslendingar eiga og hafa átt. Áfangarnir hafa ekki ávalt verið eins langir og æskilegt hefir verið, en það eitt er víst( er á þetta starf í trúarefnum er sanngjarnlega litið, að það hefir ekki haft svo lítil áhrif á trúarviðhorf einstaklingsins íslendinga á meðal, hvort sem við það er kannast eða ekki. Og þegar þess verður í framtíð minst, sem Þorsteinn Erlingsson á við er hann segist “heilsa með fögnuði veginum þeim, sem eitthvað í áttina líður”, mun frjálstrúarstarfs Vestur-fslendinga hér getið. KORNI STOLIÐ FRÁ WALLACE Nýkomnar fréttir frá Rúss- landi hljóta að vera Henry Wal- lace nokkur vonbrigði. Hvað sem um stjórnmálavit Wallace verður sagt, neitar eng- inn honum um það, að hann er einn með fremstu mönnum i heimi að þekkingu á sköpuft nýrra korntegunda. Með starfi sínu við akuryrkjudeild ríkis síns, hefir hann komið af stað algerðri breytingu í kornrækt í heiminum og hefir um leið gert sér þessa þekkingu sína arðbæra sér. En nú koma svo blöðin frá Rússlandi, sem síðustu vikurnar hafa ekki þreyst á að hrósa Wal- lace, með þá staðhæfingu, að rússneskir vísindamenn hafi fundið fyrstir manna upp blönd- un allra hinna þektu korntegunda sem til séu. Wallace er með þessu skipað í hinn stóra hóp lýðræðissinnaðra uppgötvara, — þeirra sem fundu upp gufuvél- ina, rafljós, útvarp, radar, peni- cillin og ótal margt annað, en sem öllum hefir verið af stóli steypt með áróðursvél Rússa og strikaðir út úr veraldarsögunni, eins og hún er kend í Rússlandi. Kornraðirnar hans Wallace, verða því ekki lengur í sögunni sýndar þar. Það getur verið auð- velt fyrir Wallace að afsaka þjóð ríkja þjófnað Rússa í Evrópu. En ætli það verði eins auðvelt fyrir hann að undirskrifa þennan kornstuld vina hans frá honum sjálfum? PRAIRIE PANORAMA Eftir Ingvar Gíslason Bók þessa, sem nefna mætti á íslenzku “Hringsjá Sléttufylkj- anna”, hefir nýlega verið gefin út af Western Canadian Indus- tries Ltd. og prentuð af Common- wealth Press Ltd., Calgary Alta. Af því það tíðkast að afreks- verka landa í þessari álfu er get- ið í íslenzku vikublöðunum, — finst mér viðeigandi að ofan- greindrar bókar sé þar að ein- hverju getið svo landar höfund- arsins viti, að bókin er til. Og þó mér þyki líklegt, að hún verði notuð í skólum Vestur-Canada, er ekkert á móti því, að eitthvað sjáist um hana á íslenzku, þó það sé ekki haft eftir þeim ensku. Hringsjá þessi er mjög yfir- efni bókarinnar. Þá er og próf- gripsmikið fræði-rit, og munu fá dæmi til, að svo miklum fróðleik hafi verið þjappað saman, í sam- hengi, í ekki lengra lesmál. Bók- in er aðeins 200 bls., margar hverjar uppteknar til hálfs eða að fullu með myndum, sem nema 139. Þess utan vísar höfundurinn til heimilda fyrir öllu sem nokkru skiftir. Að líkindum hef- ir honum verið sett takmark um stærð bókarinnar, og er það út af fyrir sig afreksverk frá hálfu höfundarins, hversu víða hann kemur við en gengur þó skil- merkilega frá hverju atriði, án þess að lesmálið lendi í slitur, og beri með sér þurleik og kulda sem vanalega einkenna alfræði- rit. Að vera þannig sett fyrir um efni og pappír er síður en svo örfandi fyrir höfundinn, og mót allri von að bókin beri með sér mókmentalegt gildi. En þrátt fyrir þessar hömlur og þrátt fyr- ir gætni og varfærni hins sanna óhlutdræga fræðimanns, gætir hér að mínu áliti rithöfundar hæfileika í bókmentalegum skilningi. Ingvar hefir tekist furðuvel, að skapa heild úr þessu ógrynni af fróðleiksmolum, sem hann varð að sanka saman og blása svo lífsanda í sköpunarverk sitt. Og þetta tekst honum vegna þess, að alstaðar má lesa mannúð höf- undarins milli línanna. Hvað helzt sem bókin fjallar um, hvort sem það er landafræði, jarðfræði, saga sléttufylkjanna, eða skýrsl- ur um fríðindi þeirra og afurðir, fær þýðing, vegna íbúanna. Án áróðurs og predikana kemur höf- undurinn þeirri hugmynd inn hjá lesendunum, að auðæfi og fegurð landsins er sem dauður bókstafur sem múgurinn einn, konur, menn og börn megna að gefa líf. Höfundi Hringsjár er maðurinn mesta áhugumálið: að hin misleita þjóð Sléttufylkj- anna, sem runnin er frá fleiri en þrjátíu mismunandi þjóðflokkum njóti auðs þess og unaðar, sem þetta land geymir í skauti sínu. Hvernig Hringsjá vekur þessa hugsun hjá þeim sem les, er erfitt að gera grein fyrir. En áhrifanna mun hver kenna sem les bókina. Og þetta fyrirbrigði vekur grun um að höfundurinn búi yfir þeim hæfileikum sem kæmu enn betur í ljós, ef hann ritaði bók, sem ekki væri bundin við dauð ‘data’, eins og Hringsjá er. Þó er gaman að sjá hversu honum hefir tekist að lauma inn orðum og setning- um, sem eiga ekki heima í al- fræðibók, án þess að skapa nokkrar misfellur. Hann hefir jafnvel lag á að haga svo orðum, að yl leggur frá köldum og hversdagslegum staðhæfingum. Eg ætla að taka til dæmis fyr- ir sagnir hinna tíu kafla, sem bókinni er skift niður í, og bera þær saman við fyrirsagnir sem vænta mætti í fræðibók af þessu tægi: 4. kap. nefnir hofundurinn The People, sem er miklu hugð næmara en Inhabitants. — 5. kap. Their Work on the Land ekki Agriculture. — 6. kap., Their Work in the Mines. því ekki Minning eða The Mining Ind- ustry? — 7. kap., Their Work in the Factories. Ekki Manulactur- ing Industries. — 8. kap., Work- ing Together. — Ekki Co.oper- átion. — 9. kap., Their Mutual Welfare. Ekki Public Health. Vegna slíkra blæbrigða, sem eru algerlega látlaus, hafði þetta fræðirit önnur áhrif á mig en nokkurt annað, sem eg hefi lesið, a6 undanteknum bókum Vil-j hjálms Stefánssonar. — Sviparj Ingvari einnig til hans með ó-\ hlutdrægni og varfærni í stað- hæfingum sínum. Þá er stíllinn! á Hringsjá íburðarlaus og blátt' áfram og bókin því mjög létt af- lestrar. Og það kalla eg snild hversu vel höfundinum hefir tek- ist að tvinna saman mannúð og fræðimensku, án þess að til baga sé. Myndirnar eru ágætar og hefir höfundurinn viðað þær að sér úr öllum áttum, eins og annað arkalestur óaðfinnanlegur. Það eitt mætti finna að þessari bók er, að hún átti skilið glæsilegra format, en útgefendur hafa séð sér fært að leggja kostnað í. Að endingu verst eg ekki þeirri ósk að eg eigi eftir að lesa aðra bók eftir Ingvar Gíslason, bók sem hans innri maður er einn um, óbundinn við hagskýrslur og fyrirskipanir útgefenda. /. P. Pálsson —1330 Hampshire Road, Victoria, B. C. ÍSLAND BIÐUR AÐ HEILSA Eftir próf. Richard Beck, vara- ræðismann Islands í N. D. (Ávarp flutt á fslendingadegi, að Mountain( N. Dakota, 17. júní 1948) ísland biður að heilsa. Já, ætt- jörðin biður hjartanlega að heilsa öllum börnum sínum og þeirra börnum, sem hér eru saman kom in víðsvegar að, til þess að minn ast hennar og hylla hana á sig urbjörtum frelsisdegi hennar Af eigin reynd veit eg, að heima- þjóðinni liggur þannig hugur til okkar þjóðsystkina sinna vestan hafsins. Og þeim ummælum til staðfestingar tel eg mér sérstaka sæmd að því að flytja hér eftir- farandi símkveðju frá forsætis ráðherra íslands, í nafni ríkis- stjórnar og þjóðar: “Vinsamlega færið tslendinga deginum þessa kveðju: Fyrir hönd ríkisstjórnar íslands og ís- lenzku þjóðarinnar sendi eg öllum Islendingum vestan hafs kærustu kveðjur heimaþjóðar innar á þjóðhátíðardeginum og þakka forna og nýja tryggð og vináttu. Megi íslenzk menning lifa og blómgast beggja megin hafsins. — Stefán Jóhann Stef- ánsson forsætisráðherra.” Þessi hlýja og drengilega kveðja forsætisráðherrans túlkar fagurlega djúpstæðan góðhug og ræktarhug heimaþjóðar okkar, sem lýst hefir sér eftirminnilega í verki í margskonar vináttu merkjum og virðingar okkar til handa íslendingum í Vestur- heimi. Eg er þess einnig fullviss, að þessi faguryrta kveðja heiman um haf vekur bergmál í hugum okkar allra, sem íslenzkt blóð rennur í æðum, og hitar okkur um hjartarætur. Hún hefir fært ísland nær okkur og okkur næ íslandi. En fleira lætur okkur, um annað fram, .finna til návist- ar hugumkærs ættlandsins þessum feginsdegi þess, ekki síst það, að hér er staddur í hópi okkar ágætur fulltrúi heima þjóðarinnar, séra Eiríkur Brynj- ólfsson, sem hefir það sonarlega hlutverk með höndum að flytja minni ættjarðarinnar. Hann er okkur öllum mikill ausfúsugest- ur. Þeim tilfinningum ræktarsemi og heimhugar, er bærast í brjóst- um okkar á þessum þjóðhátíðar- degi, hefir Davíð skáld Stefáns son fundið sannan og snjallan orðabúning í þessum erindum úr Alþingishátíðarljóðum sínum: Við börn þín, ísland, blessum þig í dag. Með bæn og söngvum hjörtun eiða vinna. Hver minning andar lífi í okkar lag. Við Lögberg mætast hugir barna þinna. Frá brjóstum þínum leggur ylinn enn, sem aldrei brást, þó vetur réði lögum, , og enn á þjóðin vitra og vaska menn, sem verður lýst í nýjum hetju- sögum. Við tignum þann, sem tryggar vörður hlóð. Við tignum þann, sem ryður nýja vegi. Þó fámenn sé hin frjálsa og unga þjóð, þá finnur hún sinn mátt á þessum degi. Við börn þín, ísland, biðjum fyrir þér. Við blessum þig í nafni alls, sem lifir. Við erum þjóð, sem eld í brjósti ber, og börn, sem drottinn sjálfur vakir yfir. Þau hrifningarorð og heitu bænarorð veit eg vera bergmál huga okkar við kveðjunni bróð- urlegu heiman yfir hafið. Og eins og skáldið segir í kvæði sínu, þá ættu hugir okkar ís- landsbarna hvergi fremur að sameinast, heldur en að Lög- bergi, á helgistað hinnar íslenzku þjóðar, þar sem gerst hafa þeir atburðir, sem örlagaríkastir hafa orðið í sögu hennar. Enginn ís- lendingur, sem nokkuð verulega þekkir til þeirrar sögu, fær sta*- ið að Lögbergi og horft yfir Þingvelli við Öxará, svo að hann finní eigi þyt sögunnar strjúka sér um vanga, og verði glögg- skygnari á það, hve frábærlega merkileg saga hinnar íslenzku þjóðar er og jafn merkileg hin íslenzka menningararfleifð, sem við eigum að bakhjalli. Minnugur er eg þess einnig( að nú í sumar á þessi blómlega og söguríka íslendingabygð hér í Norður-Dakota 70 ára land- námsafmæli. Ljúft og skylt er það vissulega að minnast þeirra manna og kvenna af íslenzkum stofni, sem hér háðu harða en sigursæla brautryðjendabaráttu sína. í nafni heimaþjóðarinnar þakka eg þeim öllum, bæði þeim, er búa mjúka sæng fósturfoldar- innar, og hinum, sem enn eru ofan moldar, fyrir það, hve vel þeir báru merki íslenzks mann- dóms fram til sigurs á þessum slóðum, trúir íslendingseðli sínu og dyggir þegnar kjörlands síns. Hve vel þeim tókst að sameina þetta tvent, ræktarsemina við uppruna sinn og erfðir og þegn- hollustuna við fósturlandið, var, eins og réttilega hefir sagt verið. styrkur þeirra og sómi. Dæmi þeirra má verða okkur hinum, sem göngum þeim í spor, til íhug- unar og fyrirmyndar. Heiður og þökk landnemunum íslenzku! — Bjart er og verður um_minningu þeirra, því að þeir hafa með lífi sínu og starfi greitt veg óbornum kynslóðum. Eg hóf mál mitt með því, að lesa fagra og hjartahlýja kveðju íslenzku ríkisstjórnarinnar og heimaþjóðarinnar. Að málalok- um vík eg aftur að þeirri kær- komnu kveðju. Hún er útrétt bróðurhönd ættþjóðar okkar vestur yfir álana breiðu og djúpu. Eg veit, að við réttum fram heita hönd á móti. Sé eg hendur manna mynda meginþráð yfir höfin bráðu. sagði séra Matthías Jochumsson í ódauðlegum snildarljóðum sín- um til Vestur-íslendinga. Við viljum láta þann draum skáldsins halda áfram að rætast í samskift- um íslendinga austan hafs og vestan. En þeirri brú ræktar- semi og góðhuga skola háar hol- skeflur hafsins aldrei í sæ. í þeim anda flyt eg ykkur kveðjur ríkisstjórnar íslands og íslenzku þjóðarinnar og bið ykk- ur og bygðum ykkar blessunar, Verið þið blessuð og lifið heil! Eina hina fáorðustu og beztu skilgreiningu á frjálsu landi, gerði, eða gaf Winston Churcb- ill fyrir skömmu á ráðstefnu í Hague, um sameiningu Evrópu- landanna: “Vér fögnum hverju því landi, og bjóðum það velkomið í sam- bandið”, sagði hannr “þar sem fólkið á stjórnina, en stjórnin ekki fólkið”. KAUPIÐ HEIMSKRINGLU— bezta íslenzka fréttablaðið THE ADDRESS OF MISS CANADA By Miss Borga Sigurðson at Hnausa, June 19, 1948 Mr. Chairman, Maid of the Mountains, Ladies and Gentlemen: My nationhood has just begun. As a young country, I hold the ancient wisdom of the Fjallkona in high respect. She has been a champion of democracy for ages past, and she has won renewn pnong the nations of the old world. I bow to her this day and woúld that I could become more like her. The Icelandic people have caught the temper of their land and symbolized it satisfactorily in the Maid of the Mountains. They treat her as a spirit with almost human loves and amb- itions, and genuine interest in her children. The spirit blesses them with her flowers and speaks to them in the language of her birds. No poets sing their country’s praises more spontan- eously than do the “skálds” of Iceland. You Canadians are not quite so conscious of the spirit of your land. I cannot blame you although you do not love me as Icelanders love the Fjallkona. You do not know me. I am no more the Maid of Mountains than of Prairie or forests. My char- acter, like the character of my people, has never been defined. The Red Men, the true Canad- ian, play a small part in the life of our nation. Our destiny is now in the hands of my foster child- ren and their children, we have been born here. Many different nationalities are represented a- mong my people, and they came for many different reasons. Some came in search of a strong young country, which could give them abundant food and ready shelter. Some came in search of freedom that they might think, and speak, and worship as they chose. In general, you have not been disappointed, although you faced many difficulties in the early years. As you have learned to care for me more and more. I have been kinder to you. Think back and remember how the fields have grown; and how your homes have improved. Be- cause of all the differences in custom and creed, it is hard for you to think as one nation. There aré many problems which you cannot solve because you have no common ground for discus- sion. Take courage, Canadians! You can be like a family whose members have very different tastes, but who broaden and de- velope each other in the “give- and-take” of their life together. I haye given you what you most needed, and you have brought me great wealth in return. You have brought with you the learn- ing and the beliefs of almost every European nation and some others. The time has come when you will have to decide whether your differences will harden into prejudices or whether they wil! serve as stimulation in your thinking. You have been in much doubt about your goals as a nation. — Your love of country and your hopes for the future are same- thing which you have in com- mon. They will help. Then let me tell you that the finest goal which you can strive for at pre- sent is just to understand each other. If you do that fully, then you will have solved problems of race and religion which have never been solved before. Then you will have realized the most wonderful opportunity which I have to offer. Then you will have given genuine service to the world.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.