Heimskringla - 30.06.1948, Síða 5
WINNIPEG, 30. JÚNÍ 1948
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
Eg bið afsökunar
Þegar herðir á einhverjum
hnútnum milli stórveldanna,
segja þau hvert við annað: “We
apologize!”
“Hvað höfðingjarnir hafast að
hinir ætla sér leyfist það.”
*
Eg finn til þess bezt sjálfur,
hvað ég hef gengið lengi með
þessar afsakanir. Eg hafði hugs-
að mér, að vera orðinn full frísk-
ur fyrir löngu, en það sigla fáir
byr Hrafnistumanna í heilsu-
fræðinni þegar eitthvað af mask-
ínuverki líkamans gengur úr
skorðum; og er það sú eina af-
sökun, sem eg hef fyrir mig að
bera á öllum þessum drætti, að
þakka fyrir mig.
f þann mund er þjóðræknis-
andvarinn strýkst um elzta topp
íslenzka mannfélagsins í Vestur-
heimi á hverjum vetri, koma fyr-,
ir margir annarlegir atburðir,
sem engin gerir ráð fyrir og kom
einn þeirra fram á líkama mín-
um á síðastliðnum vetri, er gigt-
in hljóp í mig, alveg upp úr
þurru, og hertók tjaldbúð mína,
og hefir haft þar tögl og haldir
síðan.
Á þeim píslarvikum, er þá
gengu í hönd, bárust mér bréf og
bréfkort víðsvegar að, en fæðst-
um þeirra hef eg getað svarað
enn. Er þessi bunki orðinn nú
svo hár, að eg blóðroðna, eins og
stúlka sem kyst er í fyrsta sinn,
er eg lít hann augum. En fram-
kvæmdir verða þær, að eg skamm-
ast mín niður í hrúgu og snauta
í rúmið, breiði upp fyrir höfuð,
les faðir vor, bið himnaföðurinn
að fyrirgefa mér ódugnaðinn og
fel honum allar framkvæmdir í
þessu máli og þar við situr fram
á þennann dag.
Vildi eg því, með þessum lín-
um, friðmælast við alla hlutað-
eigendur og biðja þá, að sjá aum-
Ur á mér, en kenna andskotans
gigtinni um dráttinn, en ekki
niér, sem dæmdur var til að vera
krossberinn í báðum þessum til-
fellum. Aftur á móti lofa eg þess-
Um vinum mínum, að strax og
Umhægist fyrir mér, andlega sem
líkamlega, skal eg senda þeim,
hverjum út af fyrir sig, sína
ögnina af hverju: guðs blessan
og minni.
★
Úr því eg fór að rabba um þessi
bréf og bréfkort, get eg ekki
stillt mig um að prjóna hér neð-
an við árlitla aukagetu.
Það mun hafa verið einn ill-
viðrisdaginn í marzmánuði, að
Oiér barst, í hendur bréfkort með
tnexikönsku frímerki, með fall-
egri hvanngrænni landslags-
tnynd á annari hlið, en áritan á
hinni. Hvert í logandi, lagsmað-
Ur! Mexico! Þaðan hafði eg
aldrei fengið nokkurn skapaðan
hlut áður, annað en frásögn um
nauta- og hana-at, og þar vissi eg
ekki til að nokkur væri sem eg
þekti. Eg hafði ekki, það augna-
blikið, gleraugun á nefinu svo
eg greindi ekki nafn sendanda.
Eg spenti upp brillurnar í hasti
og sjá, það var frá Boða litla
Sædal (reyndar kalla allir hann
hú Bobbie, en hann heitir samt
&oði). Seinna sendi hann mér
kort frá Panama-skurðinum, með
hiynd af því mikla mannvirki, og
þriðja kortið kom frá honum
skömmu síðar, frá einhverjum
stað einhver staðar, líklega þar
suður frá. Þeir hefðu nefnilega
klest póstmarkinu svo rækilega
ofan á frímerkið, að ekkert sást
nema ein kolsvört kléssa. Svona
meðferð á alsaklausum póstkort-
um ætti að vera bönnuð með lög-
um, að viðlagðri flengingu svo
tekið væri mark á löggjöfinni,
því póstþjónum sem öðrum, er
sárast um sinn eigin skrokk.
Fyrst eg minnist á Boða litla
með nafni, verð eg að segja ögn
meira um hann. Hann er sonur
þeirra hjóna Ágústs Sædal og
Mínervu Jónsdóttur. Ágúst hef
eg þekt um lengri tíð og Mínu
alla hennar ævi. Boða kyntist eg
fyrst er hann var ósköp lítill hjá
foreldrum sínum í Wynyard,
Sask. Heimili Sædals hjónanna
þar handan yfir götu frá heimili
mínu, en góðan spöl frá götunni
þó ekkert hús væri á milli. Þessi
gata, er hér um ræðir, var í þá
daga, það endemis forardýki á
vorin, að nálega var engum fær
nema fuglum himinsins, og þar
við bættist, að hún var skorin
svo upp í rastir af hjólförum, að
hryggirnir náðu hæðstu mönn-
um í klof. Á milli hryggjanna
lágu dalir og lautir, er fullar voru
af aur og vatni. Yfir þetta átti
Boði að sækja er hann heimsótti
mig, er oftast var á hverjum
degi, ef veður eða mamma hindr-
uðu ekki ferðalagið. Var gaman
að sjá til snáða er hann skreið
lafmóður af sundi upp á há-
hryggina og hvíldi sig um stund
áður en hann lagði til sunds á
ný. Alldrei gafst hann upp við
ferðalagið, svo eg til vissi, en
verkunin var óskapleg, og enga
mansmynd á honum að sjá annað
en það, að hann stóð uppréttur
með sigurbros um alt sitt foruga
andlit. Að reyna að hreinsa hann
nokkuð upp var ekki til neins,
því hann átti sama veg heim að
sækja. Ef máltækið, “að vera eins
og hundur af sundi dreginn”.
hefir nokkurntíma átt við, þá
átti það sannarlega við litla Boða
er hann kom úr þessum svaðilför-
um.
En þá var Boði lítill — svo lít-
ill, að eg þurfti að horfa niður
til að sjá hann allan. Nú er hann
orðinn stór fyrir löngu — svo
stór, að eg verð að horfa upp til
að sjá hann allann.
Boði gekk í sjóher Canada
strax í byrjun stríðsins og þjón-
aði þar landi og lýð til stríðs-
loka. Fór hann víða um heim og
sigldi hin sjö heimshöf og þar
á meðal tvisvar til íslands, þó
eigi fengi hann landgönguleyfi
í hvorugt sinn. Að stríðinu loknu
gekk hann úr herþjónustu og
vann um tíma með föður sínum
við málningu í Winnipeg, en er
framliðu stundir undi hann ekki
landkrabba-lífinu og innritaðist
aftur í sjóher þessa lands, og þar
er hann nú. Boði er einn af
maskínumönnunum á hinu stóra
og skrautlega herskipi canadisku
þjóðarinnar, Ontario, er frægt
var fyrir að flytja Pál S. Pálsson
og frú, og Jóhann Beck og frú
á skemtisiglingu þeirra um
kyrrahafið í fyrrahaust. Boði var
þar, innanborðs þó ferðafólkið
rækist ekki á hann, og hann ekki
á það.
Boði er kvæntur konu af her-
lendum ættum og eiga þau tvo
efnilega drengi; eru þau búsett
í Victoria, B. C. því þaðan liggja
sjóferðir Boða í hvert sinn út um
víða veröld.
★
Og fyrst eg er kominn í þenn-
ann habít, finn eg mig knúðann,
innvortis auðvitað, til að minn-
ast á annað kort, er mér barst á
sængina. Var það af gráskegguð-
um hundi með gleraugu, rauða,
lafandi tungu með barðastórann
stráhatt á hausnum og hárauð-
an trýnisbrodd. Undir hattbarð-
inu vinstramegin er ofur lítill
blár fugl sem stungið hefir gogg-
inum inn í hlustina á hundkvik-
indinu og gargar hástöfum: “Get
well Quick”. Þetta er nú alt gott
og blessað nema rauða trýnið.
Hvenær hefir nokkur heyrt eða
séð hund með blóðrautt tríni?
Nei, rautt nef heyrir ekki hund-
um til — nema þá þeirri hunda-
tegund er eigi má nefna við
greftranir eða í eftirmælum.
Jæja, hvuti var límdur saman
á kviðnum svo eg varð að gera
á honum uppskurð, og er eg hafði
opnað hann valt innan úr honum
kort með árituðum tveim vísum
eða versum til mín. Voru ljóð
þessi bæði hjartnæm og hress-
andi; kveðandin var skásneidd
stúthenda, og er sá bragarháttur
alræmdur fyrir fegurð. Efnið er
svo hugnæmt að það “svalar
hverri hjartans und”. Vísur
þessar eru jafnt ættjarðarljóð
sem gaman kvæði, saknaðarstef
sem ádeiludrápa, tilbeiðslusálm-
ur sem drykkjuvísur. Alstaðar
eiga ljóðlínur þessar jafnvel
heima, en lestrinum verður að
haga svo, að hornin reki sig
hvergi hvert á annað, og að alt
renni inn í hin hjartnæmu og
áhrifaríku-orð skáldsins er síðari
vísan endar á: “Vað vil you have
for vask?”
Eins er með lagið. Þú getur
sungið þær með hvaða lagi serrf
þér þóknast eða engu lagi ef þér
sýnist svo, á hvaða tónstiga sem
er og í hvaða rnoll eða dúr sem
þú kýst. Er þetta mikill kostur
nú á dögum, þar sem engum
kemur saman um hvernig syngja^
skal þetta eða hitt. Einnig má
kveða erindi þessi með hvaða
stemmu sem er, því þó önnur vís-
an sé níu ljóðlínur en hin sjö
gerir það ekkert til fyrir kveð-
andina; það eina sem þarf að
gera í fyrra tilfellinu, er að búta
aftan af eina línu, en í hinu síð-
ara að draga seiminn og endir-
inn á langinn þar til síðustu rok-
urnar enda með hávaða og hrifn-
ingu á orðunum “for vask?”
Að eg hvorki birti vísurnar eða
nafn höfundar, kemur til af því,
að hann er persónulegur vinur
minn og vil eg honum vel í alla
staði. Ef eg birti nafn hans og
sýnishorn ljóðgerðar hans, mundi
afleiðingin verða sú, að yfir hann
mundi rigna áskorunum um, að
hann léti ljóð sín á þrykk út
ganga á sinn eigin kostnað. —
Hvernig fer með slíkar útgáfur
má lesa á blaðsíðu 162 í hinni
nýju kvæðabók Káins.
Sveinn Oddsson
Barley Entries Close July 15
The Contest Committee in
charge of the 1948 National Bar-
ley Competition this week issued
its final warning that entries
are to be n by July 15.
Entry form should be mailed to
the Provincial chariman in the
province in whcih the grower re-
sides.
This deadline applies to the
two competitions, both sponsor-
ed as before by the brewing and
malting industries. One is de-
signated as a Farmers’ Compe-
tition for which the entry re-
quirement is a carload of at least
1,667 bushels.
The other is a Seed Growers'
Competition for which the re-
quirement is an acreage sufficí-
ent to produce at least 500 bush-
els of clean seed, eligible for
sealing. While 500 bushels is the
minimum, a larger quantity may
be submitted.
GILDI BÆNARINNAR
Fyrir allöngu síðan var eg beð-
inn að birta í Heimskringlu skýr-
ingu lúterskrar trúar á bæninni,
samkvæmt bókinni “Höfuðlær-
dómar”. Fyrir alveg óheyrilegar
annir hefur það dregist fyrir mér
til þessa og bið eg hlutaðeig-
anda velvirðingar á þessum
drætti. Nú vil eg verða við þess-
ari kvöð og gefa mína skoðun á
efninu.
Á 34 blaðsíðu hinnar umræddu
bókar stendur þetta um bænina:
“Á hvern hátt eða að hve miklu
leyti bænin getur breytt ráð-
stöfunum guðs, er hvergi tekið
fram. Þó virðist svo mega ráða af
heilagri ritningu, sem drottinn
hafi oft breytt ráðstöfunum sín-
um vegna bæna trúaðra. Samt
hlytur guð vegna alvísi sinnar að
hafa séð bænina fyrir. Má þá af
því ráða, að mönnunum hafi í
rauninni dulizt hinn upphaflegi
tilgangur hans; hafi hann þá lát-
ið annan tilgang í veðri vaka en
þann, sem var hans verulegi og
eiginlegi tilgangur, til þess að
knýja mennina til auðmýktar,
bænar og trúar.”
Hér er guði eignaðar lágar
hvatir til að fá vilja sínum fram-
gengt. Hann brúkar blekkingu til
að knýja menn til auðmyktar.
Þetta er skiljanlegt ef maður
hugfestir hvaðan guðshugmynd-
in er runninn og hvaða fyrir-
mynd er notuð til að skýra guðs-
myndina. Fyrirmyndin var tekin
frá hirðlífi Austurlanda þar sem
drambsamir konunga einvald^r
girntust það fyrst og fremst að
líta knékrjúpandi þegna og vörðu
til þess öllum kröftum, öllum
ráðum og allri mannvonsku að
gera þennan flokk þýlyndra
þegna sem allra stærstan. Hér er
gert ráð fyrir að guð hafi ekkert
annað takmark með sköpun
mannsins og heimsins en að svala
sjálfsþótta sínum með tilbeiðslu
þegnanna og til að þessum guð-
lega ásetningi sé fullnægt, beitir
hann blekkingu. Guði eru hér
eignaðar blekkingar til að auð-
mýkja mennina. Hér er ekki með
éinu orði að því vikið, að guðs til-
gangur sé að göfga mennina né
þroska þá að andlegu atgerfi.
Hlýðni og auðmykt eru aðeins
heimtuð. Sú hlýðni er ekki mið-
uð við neinn sjálfsögð siðferðis
takmörk, aðeins þess krafist að
menn hylli Jehóva sem konung
sinn. Þetta er í nákvæmu sam-
ræmi við guðshugmynd forn-
gyðingdómins, sem hefur verið
undirstaða alls “rétttrúnaðar” um
eftirlkomandi aldir. Þar er talað
um graman guð, afbryðisaman
guð, heiftrækinn guð, harðstjórn-
ar guð og öfundsjúkan guð —
Þetta var, að minstakosti, sú guðs
hugmynd sem mér var innrætt í
bernzku af góðum manneskjum
og langtum betri en sá guð, sem
það tilbað.
Þetta verður nú að nægja í bráð
ina en ef vinur minn vill meira
um mínar hugmyndir heyra skal
eg reyna að verða við kvöð hans.
H. E. Johnson
Þeir sem villja fá myndir
prentaðar í bók þeirri er búist er
við að út komi á komandi hausti
um Álftavatns- og Grunnavatns-
bygðir verða að senda þær til
Jóns Guttormssonar, Lundar, fé-
hirðis útgáfunefndarinnar, fyrir
ágúst mánaðar lok. Fjórir doll-
arar verða að fylgja hverri mynd
fyrir kostnaði nema fyrir þá sem
eiga myndamót, þá verður aðeins
tekið gjald fyrir plássið í bók-
inni. Þetta verður að gerast svo
bókin verði ekki of dýr og svo
cngin mynd verði eftir skilin sem
fólk vill fá prentaða í bókinni.
Hér er átt við smærri andlits-
myndir en stærri myndir verða
eðlilega dýrari.
Mrs. L. Sveinson,
ritari nefndarinnar
H. E. Johnson,
forseti nefndarinnar
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
bezta íslenzka fréttablaðib
f GLAMPANDI SÓLSKINI
Frh. frá 1. bls.
því eftir því sem f jær dró lúðra-
sveitinni, heyrðist minna til
hennar. Þetta ætti þjóðhátíða-
nefnd að hafa í huga næsta ár.
Á Austurvelli var saman kom-
inn mikill mannfjöldi, er skrúð-
gangan kom þangað. Voru allar
götur umhverfis völlinn svo þétt-
skipaðar fólki, að það gat tæp-
lega hreyft sig. Fánaberar í göng
unni mynduðu fánaborg við
minnismerki Jóns Sigurðssonar.
í Dómkirkjunni fór fram há-
tíðaguðsþjónusta. Séra Jakob
Jónsson prédikaði. Forseti fs-
lands var viðstaddur, svo og rík-
isstjórn, borgarstjóri og aðrir
embættismenn.
Mannfjöldinn umhverfis Aust-
urvöll hlustaði á guðsþjónustuna.
Vegna þess hve veðrið var gott
og fólkið kyrlátt, var sem dóm-
kirkjan næði að þessu sinni yfir
allan Austurvöll.
Að lokinni guðsþjónustu gekk
forseti fslands og forsætisráð-
herra að minnisvarða Jóns Sig-
urðssonar og lagði forseti þar
blómasveig er tvær nýútskrifað-
ar stúdínur báru. Um leið og for-
seti lagði blómasveiginn heilsuðu
fánaberar, en lúðrasveitin lék
þjóðsönginn. Forseti gekk nú
inn í Alþingishúsið og fram á
svalir þess og óskaði mannfjöld-
anum gleðilegrar hátíðar. Mann-
fjöldinn hrópaði ferfalt húrra
fyrir forseta sínum.
Nú gekk Fjallkonan í falleg-
um skautbúningi fram á svalir
Alþingishússiins og flutti hún
hátíðaávarp í ljóðum, er Tómas
Guðmundsson, skáld, hafði orkt
Var Fjallkonunni fagnað með
dynjandi lófataki. Frú Borg
Reumert var Fjallkonan.
Stefán Jóhann Stefánsson, for-
sætisráðherra, flutti ræðu af
svölum Alþingishússins. Ræddi
forsætisráðherra nokkuð um á-
standið, sem skapast hefði síðar.
heimsstyrjöldinni lauk hér í
Evrópu, og benti á að ísland
hefði ekki farið varhluta af þeim
erfiðu viðfangsefnum. Sagði for-
sætisráðherra að verðbólgan væri
íslenzku atvinnulífi hin mesta
hætta og launastéttirnar ættu þar
ekki hvað síst mikið í húfi. —
Sagði ráðherra að með góðri sam-
vinnu og skilningi atvinnustétt-
anna og með aðstoð ríkisvaldsins
ætti að vera unnt að koma í veg
fyrir að verðbólgan stöðvi at-
vinnureksturinn.
Þá vék ráðherra að gjaldeyrs-
skortinum og skömmtun á nauð-
synjavörum. “Þetta eru aðstafan-
ir, sem óhjákvæmilegt hefir
reynst að koma á í þjóðfélaginu”.
Ráðherra fór nokkrum orðum
legu samstarfi við önnur ríki og
um þátttöku íslands í fjárhags-
þá fyrst og fremst við hin Norð-
urlandaríkin. Vonir standa til,
að af því geti orðið nokkur árang-
ur. Um Marshall-aðstoðina, sagði
ráðherra, að þessi samtök þeirra
16 fullvalda menningar- og lýð-
ræðisríkja, sem taka þátt í að-
stoðinni er án efa hið merkileg-
asta fyrirbæri. Ef skynsamlega
er á haldið, ætti það að styrkja
sjálfstæði íslands og jafnréttis-
aðild þess meðal ríkja Evrópu,
sagði forsætisráðherra. “Fjár-
hagslegt öryggi og alþjóðlegt
samstarf í þeim efnum er nauð-l
synlegur þáttur til að treysta
sjálfstæðisgrundvöll hins unga
íslenzka lýðveldis”, sagði ráð-
herra.
Að ræðu forsætisráðherra lok-
inni, var hátíðahöldunum við
Austurvöll lokið og hélt nú
mannfjöldinn af stað suður á f-
þróttavöll.
Við leiði Jóns Sigurðssonar
staðnæmdist mannfjöldinn. Frú
Auður Auðuns, annar vara-for-
seti bæjarstjórnar Reykjavíkur,
lagði blómasveig að leiðinu í
nafni fþróttasambands íslands
og íslenzkra íþróttamanna. Söng
nú karlakór “Sjá roðan á hnjúk-
unum háu”. Var nú haldið áfram
suður á íþróttavöll, en þar fór
fram 17. júní mót íþróttamanna
Kvöldskemtun þjóðhátíðar-
innar fór fram á Lækjartorgi og
Arnarhóli. Á háhólnum var kom-
ið fyrir fallegum ræðustól og
palli fyrir söngfólk og loks var
þar hljómsveitarpallur.
Þar hófst kvöldskemmtunin
með því að Lúðrarsveit Reykja-
víkur lék nokkur lög. Menn
höfðu orð á því, að sveitin hefði
sýnilega æft mjög vel undir
þennan dag, enda leysti lúðra-
sveitin hlutverk sitt vel af hendi.
Hjálmar Blöndal, form. þjóðhá-
tíðarnefndar, setti skemmtunina,
en því næst tók til máls Gunnar
Thoroddsen, borgarstjóri.
Karlakórinn Fóstbræður og
Karlakór »Reykjavíkur sungu
nokkur lög og Sig Skagfield
söng með aðstoð lúðrarsveitar-
innar.
Að lokum söng þjóðkórinn
undir stjórn dr. Páls ísólfsson-
ar. Sagði Páll, að hann hefði að-
eins einu sinni séð stærri kór, en
það var á Þingvöllum 19*f4. Bað
Páll þennan f jölmenna söngflokk
að taka undir en mjög fáir gerðu
það. Þetta atriði hátíðahaldanna
hefði getað verið mjög ánægju-
legt. Hugsum okkur þúsundir
manna, alla syngjandi og í góðu
skapi.
Páll ísólfsson sagði nokkra
góða brandara, og gat þess að
einhver vinur hans hefði full-
vissað sig um, að á Arnarhóli
væru 29,874 karlar og konur.
Er þjóðkórinn hafði lokið söng
sínum, hófst dansinn. Gömlu
dansarnir voru stignir í íngólfs-
stræti milli Arnarhvols og Hverf-
isgötu. Var dansað þar af miklu
fjöri allt kvöldið og var þar fólk
á öllum aldri, ungar stúlkur í
hvítum kjólum og rosknar hús-
mæður á peysufötum. Hljómsveit
frá Góðtemplai;ahúsinu lék fyrir
dansi. Á Lækjartorgi voru nýju
dansarnir stignir og gengu hin-
ir nýútskrifuðu stúdentar fram
fyrir skjöldu og hófu dansinn,
en á eftir komu svo aðrir og var
dansað af miklu fjöri eftir Sí-
Baba og öðrum þekktum dans-
lögum. 15 manna hljómsveit
Bjarna Böðvarssonar lék fyrir
dansinum, en hljómsveitarpall-
urinn var á miðju Lækjartorgi og
var hann vel skreyttur.
Sem aðrar skemmtanir dagsins
fóru dansleikirnir vel fram. •—
Sagði lögreglustjóri Mbl. í gær
að drykkjuskapur hefði verið
mjög lítill og hegðan fólks góð.
Dansleiknum lauk klukkan tvö
um nóttina.
Þar með var þjóðhátíðinni í
Reykjavík, glæsilegustu hátíð
ársins lokið og fór fólk heim í
háttinn þreytt eftir dansinn með
endurminningar um ánægjuleg-
an dag. —Mbl.
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárusi Blöndal, Skóla
vorðustíg 2, Reykjavík, Island.
Kaupendur Heimskringlu og
Lögbergs á Islandi
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað. Dragið
ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna. Æskilegt
að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda
eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON,
Mávahlíð 37, Reykjavík
HOW YOU WILL
BENEFIT BY READING
the world's doily ncwspopcr—
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR. You will find yourself one of
the best-informed persons in your community on world offoirs when
you reod this world-wide doiíy newspoper regulorly. You will gain
fresh, new viewpoints, a fuller, richer understanding of toda/s vital
news—PLUS help from its exclusive features on homemokíng, educa-
tion, business, theater, music, rodio, sports.
Subseribe now to
this spccial /#get-
ocquaintcd" offer
—1 month for
(U. S. íunds)
i The Christian Science Publishing Society PB-5
- One, Norway Street, Boston 15, Mass., U. S. A.
Enclosed is $1, for which pleose send me The Christiort
V Science Monitor for one month.
listen to ’The Christian t \\ Nome •
Science Monitor Views the News" ereni Thursday Street
night over the American Broadcasting Company I^City