Heimskringla - 15.12.1948, Blaðsíða 15
WINNIPEG, 15. DES. 1948
HEIIfSKRINGLA
15. SIÐA
sumville, Mulvihill, Ashern, Vog-
ar, Steep Rock og víðar. Fundar-
stjóri var kosinn Rudolph Che-
ski. Einnig sóttu fundinn þing-
maður Wm. Bryce og séra Philip
M. Pétursson, sem fluttu báðir
hvatningarorð. Er útnefningar
fóru fram voru tveir útnefndir
en annar dró nafn sitt til baka,
og þannið var hinn sem eftir var,
Mike Taczynski, kosinn í einu
hljóði og var þeirri útnefningu
tekið með miklu lófaklappi. Mr.
Taczynski er ungur maður, bóndi
við Gypsumville. Hann var fimm
ár í flughernum, og að stríðinu
afloknu hvarf aftur heim og tók
að sér rekstur á landi föður síns,
þar sem hann hafði alist upp. —
Kosningin fer fram 23. desember.
* * «
Leiðrétting
Það hafa slæðst þessar villur
inn í æfiminning Áskels Brands-
sonar: Foreldrar Oddnýar, konu
Áskels, v o r u: Guðmundur
Hjálmsson (ekki Hjálmarsson)
og kona hans, Sigurlaug Guð-
mundsdóttir, bæði ættuð úr
Skagafirði. Heimili þeirra Ás-
kels og Addnýar, í Saskatchew-
an, var tvær mílur norðaustur
(ekki norður) frá Elfros. Helga,
fósturdóttir Oddnýar, er ekki
systurdóttir hennar, heldur eru
þær systradætur. Banamein Ás-
kels var hjartabilun. A. E. K.
* * *
Hjónavígsla
Gefin saman í hjónaband, laug-
ardaginn 4. desember að 905 Ban-
ning Street, Winnipeg, Oddur
Sveinn Sveinsson og Ásta John-
son, bæði til heimilis í Selkirk,
Man. Giftingin fór fram að
heimili Mr. og Mrs. R. Tomkins.
Við giftinguna aðstoðuðu Miss
Anna Johnson og Mr. John S.
Swanson. Séra Sigurður Ólafs-
son gifti.
* * *
Hafið þér náð í nýjustu bókina
Lundar Diamond Jubile^? Þar er
um bók að ræða, sem inn á hvert
heimili þarf að komast hér vestra.
Hún er 175 blaðsíður að stærð
með 180 myndum eða nærri 250
Lítið vel út
ájólunum..
Látið hreinsa veizluklæðn-
n
y að yðar, og uppáhalds
klæðnað og alt, sem þér
. • »# . I T) 1 1 ' I f *«»1 1 Þuríið að vera í á jólunum.
rorseti JVIontreal oankans varar vio pvi ao hagtræoilegur
herstjórnar-rekstur yrði öilum ánauð ein
einstaklingum, því sumt eru hóp-
myndir, sem verði hleypa fram á
hverri bók. Samt kostar bókin
aðeins $2.00. Eftir núvei'andi
verði bóka er það undir hálfvirði.;
Til sölu hafa hana Björnsson’s
Book Store, Winnipeg, Paul \
Reykdal, 979 Ingersoll St., Win-|
nipeg og útgáfunefndin á Lund-1
ar. Vegna myndanna og góðs
frágangs á bókinni, er hún valin |
til jólagjafa. Pantið hana semj
fyrst.
★ ★ *
Dánarfregn
Vilhjálmur Peterson, ættaður
úr Árnessýslu á íslandi, andað-
ist eftir stutta legu en all-langa
heilsubilun, á heimili sínu í
Langruth-bygð, miðvikudaginn,
1. des., 76 ára að aldri. Hann var i
jarðsunginn af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni, sunnudaginn 5. des.
Kveðjumálin voru flutt í ís-
lenzku kirkjunni í Langruth ogí
í grafreit norðanvert við bæinn.
Synir hins látna, sex, Pétur,
Benedikt, Theódór, Jónas, Vil-
hjálmur, Franklin og Ralph, báru
hann til grafar. Einn þeirra,
Jónas, kom alla leið frá Van-
couver. Dætur hans báðar, Mrs.
Halla Jónasson og Mrs. Margrét
Carson voru þar einnig, svo öll
börnin voru þar til huggunar
móður sinni, Mrs. Helgu Peter-
son, við útförina, ásamt fjöl-
menni. Hann lifa einnig tvö syst-
kini hans: Magnús Peterson í
Gladstone, Man., og Mrs. Guðrún
Jónasson í Reykjavík. Vilhjálm-
ur var mætur maður.
INNILEGAR JóLA OG NÝÁRSÓSKIR
til okkar íslenzku vina og viðskiftamanna
SUNNYSIDE
BARBER and BEAUTY SHOP
875 Sargent Ave. Sími 25 566
Winnipeg, Man.
B. C. Gardner kveður álagningu hárra skatta hafa óhagstæð
áhrif á alla sparnaðar-möguleika
. GORDON R. BALL, AÐAL-FORSTJÓRI, GEFUR SKÝRSLU
YFIR VAXANDI ÁGÓÐA; INNSTÆÐUFÉ OG
ÚTLÁN STANDIST AÐ MESTU Á.
B. C. Gardner, forseti Mont-
real Bankans sagði hluthöfum á
131 ársfundi bankans í Montreal
nýlega, að kreddukend jafnaðar
stefna hefði hafið árásir á sið-
ferðilegan og hagfræðilegan
grundvöll þjóðarinnar.
Lagði hann áherzlu á, að eng-
inn Canadamaður gæti vænst
þess, að mögulegt sé að stofn-
setja í þessu landi neinskonar
útvalda hagfræðislega einvalds-
stjórn, sem aðrir yrðu að hlýta,
en skildi hann einan eftir ósak-
aðan. Reynsla annara landa sýndi
það ljóslega, að þegar herstjórn
er einu sinni stofnsett, getur
enginn • skoðana-flokkur mann-
iegs samfélags flúið snörur
hennar og áhrif.
Fullvissaði Mr. Gardner, að
slík árás væri áskorun til allra
Canada-búa, en hún legði sér-
staka ábyrgð á herðar kaupsýslu-
manna. t
Kvaðst hann ekki vita af
neinni stofnun, er á þessum tím-
um starfaði án þess að hafa þátt-
töku og hag almennings fyrir
augum. Góð kaupsýslustjórn
væri fyrst og fremst nauðsynleg,
og til þess að öðlast áhrifaríka
þátttöku almennings, þyrfti fyr-
irtækið að geta skýrt til fulln-
ustu rekstur þess á þann hátt,
sem hvert mannsbarn gæti auð-
veldlega skilið.
Vopn móti verðbólgu
Aðalráðið til þess að laga
þann mikla mismun, sem nú er
á gjaldeyrisbyrgðunum, og
þeirra hluta, sem kaupa þarf,
sagði Mr. Gardner að væri aukin
framleiðsla, sem svo aftur væri
að öllu leyti komin undir hrað-
skreiðari verklegum framförum.
Mikill tilkostnaður sagði hann
að hefði verið við útbúnað fyrir-
tækja í Canada, á síðastliðnum
tveimur árum, uppörvandi fram-
þróun, en til allrar óhamingju
hefði ekki samsvarandi sparnað-
ur haldist í hendur við þessar
framfarir.
Árangurinn væri samkeppnis
kröfur um innstæðufé og neyt-
enda framleiðslu, og þar af leið-
andi stórkostlega hækkandi verð-
lag og dýrtíð.
Eftir að hafa látið í ljósi vel-
þóknun sína yfir þeirri stefnu
stjórnarinnar, að ársreksturs-af-
gangurinn var all-álitleg upp-
hæð, efaðist Mr. Gardner um það
hvort nægilegur gaumur væri
gefinn að meðferð og stjórn út-
gjalda. Vel mætti vænta þess af
stjórnar formönnum, að þeir
gæfu fordæmi í því að eyða ekki
úr fjárhirzlu almennings nema
því allra nauðsynlegasta.
Þetta atriði hélt ræðumaður-
inn fram að breytti viðhorfinu
mjög, þar sem hinn núverandi
jöfnuður á sköttum hefðu bein
og óhagstæð áhrif á sparnaðar-
möguleika almennings, (sérstak-
lega þann hlutann, sem vænta
mætti að hefði yfir álitlegu inn-
stæðufé að ráða.
Forsetinn vék að þeim mögu-
leika, að liðka til með vexti, bæði
til þess að auka sparifé, og draga
úr fjárframlögum og tilkostnaði.
Stefna auðveldrar fjáröflunar
hefði þróast á tímabili kreppu
og atvinnuleysis, og honum fanst
það myndu hiklaust verða skoð-
aðar framfarir, ef hafist væri
handa með nýjum og breyttum
aðferðum viðvíkjandi vöxtum.
Ennfremur sagði hann að það
væri mjög svo ákjósanlegt, að
aukinn hluti sameiginlegs félags-
fjár væri með erfða-fyrirkomu-
lagi, frekar en viðbættri skulda-
kröfu.
Ræða aðalforstjórans
Gordan R. Ball, aðalforstjóri,
skýrði frá því, að veltufé bank-
ans væri sem stæði $1,991,000,000
innstæðufé samtals $1,877,000,000
— væri þetta hvorttveggja hærri
upphæðir en nokkurn tíma áður
hefðu þekst í sögu bankans.
Viðskifti bankans hefðu stöð-
ugt aukist á árinu; ýmsar við-
skifta-aðferðir, sem nauðsynlegt
hefði verið að nota á stríðsárun-
um hefðu verið lagðar niður, og
aðrar hagkvæmari og farsælli
teknar upp í staðinn.
Kvað hann þjónustufólk Mont-
real Bankans nú 9,300 að tölu.
Mr. Ball mintist ferða þeirra, er
hann hefði tekist á hendur yfir
þvert og endilangt landið, en á
því ferðalagi heimsótti hann 135
útibú bankans í Canada, og
sömuleiðis skrifstofur bankans í
Bandaríkjunum.
Kvað hann ferðir þessar hafa
verið mjög uppörvandi og nyt-
samar; kvaðst hann ekki geta
nógsamlega hrósað hinni ágætu
samvinnu, eldmóð og trumensku,
sem alstaðar hefði komið greini-
lega í ljós.
Hin hraða aukning (fjölgun)
starfskrafta á undanförnum ár-
um hefði valdið örðugleikum að
veita starfsfólkinu nægan undir-
búning og æfingu. Skólar fyrir
byrjendur væru nú sem veittu
fræðslu í Montreal, Toronto,
Winnipeg og Vancouver, og(
námskeið fyrir æfðara starfsfólk
hefði verið sett á stofn á höfuð-j
stöðvum bankans; líka væri í
ráði að farskólum eða farkenslu ■
yrði haldið uppi á næsta ári. j
Mr. Ball gat þess að hin vax-,
andi verzlunarlán, er náðu há-
marki sínu í nóvember 1947,
væru nú í rénun, og taldi hann
að slíkt benti á skapandi fram-
þróun.
Með vaxandi verðlag fyrir
augum og tilkostnað, sem marg-
ir viðskiftamenn bankans færð-
ust í fang, benti þetta á meiri
varfærni og sparnað.
Útlistaði hann aðrar lánsað-
fefðir og stefnur bankans, svo
sem lánveitingu til hveitiverzl-
unar, svo og líka til bænda og
annara aðal-framleiðenda, kvað
hann þau lán hafa aukist á síð-
astliðnu ári.
Kvað hann bankann fagna
þeirri staðreynd, að lánin undir
búnaðarumbóta lánsgreininni
hefðu aukist nálega 50%.
99 af 100 lánum Montreal
Bankans samþykt heima fyrir
í aðal lánsaðferðum sínum og
fyrirkomulagi er Montreal Bank-
inn sérstaklega áfram um að geta
bætt úr þörfum lítilla verzlunar-
fyrirtækja og einstaklinga, sem
lánþurfar eru.
Þrátt fyrir þetta, sagði Mr.
Ball, að það hefði sannast á und-
anförnum tímum, að sökum fjöl-
breyttari og fleiri fjárhagslegra
úrræða í stærri og fjölmennari j
stöðum, hefðu kaupsýslu-fyrir-j
tæki í Canada, sérstaklega hin
smærri, orðið útundan í viðskift-
um við útibús-banka í litlum
bæjum sökum þess, að aðeins til-
tölulega fáir hefðu nægilegt
lánstraust.
Kvaðst hann alls ekki vera
samþykkur slíkri tilhögun.
Allir kaupsýslumöguleikar
bankans til hagræðis við við-
skiftamennina, eru ávalt og æfin-
lega notaðir til fullnustu við
öll útibú banka vors, og hin háa
tala lánsreikninga í bankabókum
vorum, er oss næg sönnun þess,
að þörfum viðskiftavina vorra er
greiðlega og réttlátlega sinnt.
Eg vil geta þess hér, að 30 sept-j
ember síðastliðinn, voru 99% af;
öllum lánum í bókum bankans,
veitt beinlínis, eða með fullu
samþykki útibús-forstjóra vorra
og nærlendis banka-umsjónar-1
manna.
Þurhreinsun gerð fljótt
og vel
SIMI 21 374
Launderers-Dry Cleaners
Fur Storage
Innilegar Jólaóskir
TIL ALLRA ÍSLENDINGA
HVAR SEM ÞEIR DVELJA
J. J. Swanson & Co. Ltd.
308 AVENUE BUILDING
WINNIPEG
GLEÐILEG JÓL
og
GÆFURÍKT NÝTT ÁR
TTM Jólaleytið eru hugsanir okkar aðallega helgaðar heimilum
og fjölskyldum vorum, þá er það sem heimilis-fögnuðurinn
kemst á hæðsta stig. Við leggjum alt í sölurnar til þess að öðlast
þá hluti sem nauðsynlegir eru til þess að við getum notið þeirra
ánægjustunda. Þeir hlutir eru: heimili, efnalegt sjálfstæði og
mentun fyrir börn okkar. Sá grundvöllur sem við leggjum í
dag, verður til framtíðar öryggis og vellíðunar fjölskyldum
okkar, um ókomin ár.
Representatives
Winnipeg Branch
Phone 96 144
Great-West Life
ASSURANCE COMPANY
HEAD OFFICE - WINNIPEC