Heimskringla - 01.06.1949, Side 2
2. SIÐA
HEIHSSRINGL/I
WINNIPEG, 1. JÚNÍ 1949
Aldnir íslendingar segja frá fyrri árum
Winnipeg-borgar
Heimskringla fann að máli
nokkra eldri íslendinga í Win-
nipegborg og mæltist til við þá,
að þeir segðu í fáum orðum frá
því er þeir myndu hér fyrst eft-
ir. Urðu margir vel við því, en
einn þeirra Arinbjörn S. Bárdal
á mikla bók skrifaða í förum
sínum, er frá ýmsum bráðskemti-
legum atvikum segja er fyrir
hann komu. Minningar þær ná
yfir alla æfi hans, en kafla þann
sem hér fer á eftir og lýtur að
komu hans til Winnipeg, leyfði
hann Heimskringlu góðfúslega
að birta í þessu tölublaði, sem
helgað er 75 ára afmæli Winni-
pegborgar. Sagan hér byrjar í
Skotlandi vegna eftirtektaverðs
atviks, en öll er frásögnin hér
ekki nema ofurlítið brot, af hin-
um margþáttuðu minningum
Mr. Bardals frá fyrri árum hans.
En eigi margir Vestur-íslend-
ingar hér slíkar æfiminningar,
væri það þess vert, að ná í þær
og gefa út.
Úi söguminningum
Arinbjöms S. Bardals:
Eitt söguríkt atvik kom fyrir
þessa 4 daga sem við dvöldum í
Glasgow. Við töpuðum einni
stúlku úr hópnum. En mér þykir
slæmt að muna ekki nafnið henn-
ar. Við gátum ekkert að gert, og
fórum á skip án hennar. En ári
seinna kom hún til Winnipeg og
þeir sem mættu henni fengu
hennar hlið á málinu. Og sú saga
var mér sögð, á þessa leið: Stúlk-
an var á gangi ein, ekki langt frá
Emigranta húsinu í Glasgow, þá
sá hún barn detta út um glugga
á fjórða lofti. Hún var í víðu
íslenzku ullar pilsi sem nú kom
sér vel. Hún breyddi það út og
tók á móti barninu. En fallið var
svo mikið að hún datt aftur á
bak og rotaðist. Móðir barnsins
hrópaði út um gluggann, svo lög
regluþjónn, sem stóð þar skamt
frá hljóp til stúlkunar og tók
hana og barnið upp á loft til
móður barnsins. Þau hafa víst
verið í vandræðum að finna út
hvaðan þessi hjálpar-engill kom,
svo móðirin tók hana til fóstuts
sem sitt eigið barn, og þar var
hún í heilt ár. Útbjó hana
svo með farbréfi og peningum
og nægri skozku, til að hjálpa
sér áfram. Mér þætti gaman að
vita hvar sú kona væri nú niður-
kominn, ef hún er á lífi enn.
Við vorum ellefu daga á haf-
inu við mjög vondan útbúnað,
lítið betra en á norður hafinu.
Það hafði verið slegið upp rúm-
um úr borðum með hey-dýnum
í. Matarfiæfi var bæði ilt og lít-
ið, þá sjaldan að fólk gat borð-
að fyrir sjósótt. Svo það var ekki
lítil gleði á ferðum þá við kom-
um til Montreal í myrkri að
kveldidags og sáum alla ljósa-
dýrðina í borginni. En þegar
kom á hörðu bekkina í járn-
brautarlestinni þá batnaði lkið.
Eitt atvik man eg vel, sem kom
fyrir á leiðinni til Winnipeg. —
Lestin stansaði í smá bæ í kletta
belti, en við Laugi vöktuðum
vélina sem dróg lestina, og ef
hún var tekin frá, þá vorum við
farnir til að skoða okkur um. Og
í þessum bæ, sáum við háan klett
rétt hjá okkur svo eg st^kk upp
á því, að fara upp á klettinn og
vita hvað við sæum þaðan. Þegar
upp á glettinn kom, þá sáum við
járnbrautarlest, sem hafði orðið
fyrir slysi, skamt vestur þaðan
og lá á hliðinni. Við tókum til
fótanna og flýttum okkur alt sem
við gátum til að skýra frá þessu,
svo við lentum ekki í sömu vand-
ræðum. Þegar kom til vagnstjór-
ans, þá gátum við ekki látið hann
skilja okkur, en það var auðséð
að hann vissi ekkert um slysið,
svo við tókum hann á milli okkar
upp á klettinn þar sem hann gat
séð hvað hafði skéð. Hann klapp-
aði okkur á bakið og það var allt
og sumt.
Eg veit að við Laugi höfum
bjargað mörgum mannslífum, og
sparað C. P. R. stórfé. Hefðum
átt að fá “Gull” medalíu fyrir.
Þegar kom að lestinni sem
þarna lá öll möl brotinn, þá kom
önnur lest að vestan og við urð-
um að hafa selfluttning á milli
lestanna, klifra yfir klettanna
með allt dót og börn. Þeir tóku
5 dauða menn úr lestinni sem
þarna lá. Eg held alla sem unnu
á lestinni. Það var fluttnings
lest.
Við komum til Winnipeg þann
12. sept. (1886). Þá var Emi-
granta húsið á Fonsica Ave, sem
nú er Higgins Ave. Þar mætti
Páll bróðir minn okkur systkin-
unum, Ásdísi og mér. Hún var
kona Gunnlaugs Hinrikssonar.
Þau voru með 2 ung, börn, tvö
drengi, Hinrik, sem er látinn.
Var ekkja hans Þjóðbjörg Hin-
riksson kennari hér í borg, Þau
áttu 4 börn sem öll eru á lífi.
Hinn drengurinn dó um haustið
hann hét Sigurður.
Páll bróðir tók okkur heim
með sér til 190 Jemima Ave., sem
nú er Elgin Ave. Á leiðinni
þangað tók eg eftir því, að öll
húsin sem eg fór fram hjá til-
heyrðu einum manni, svo eg
spurði l&óðir minn að því, —
hvernig stæði á því. “Hvernig
færðu þá hugmynd”, sagði hann.
Eg sagði að “Forsale” ætti þau
öll. Hann sagði mér að lesa það
sem stæði fyrir neðan það orð,
og þar sá eg ýms nöfn. Iþá sagði
hann að þetta orð Forsale meinti
að það væri til sölu. Gott og vel
sagði eg. er þá öll borgin til sölu.
Þá bara hló hann.
Halldóra Björnsdóttir kona
Páls tók vel á móti okkur. Þau
hjónin höfðu bústað til handa
Gunnlaugi og Ásdísi upp á lofti
þar í næsta húsi. Páll bjó upp á
lofti en séra Jón Bjarnason og
frú Lára niðri. Þar kyntist eg
Jiin n Hikli
FORINGI
CANADA
LOUIS ST. LAURENT, Forsætisráðherra Canada
Á kjörstöðunum 27. júní, verður kjósandinn að
spyrja sjálfan sig, framar öllu öðru, hver ætti að
vera Forsætisráðherra.
Canada á ágætan þjóðarleiðtoga þar sem um
Louis St. Laurent er að ræða.
Að hann var maður góðum gáfum gæddur var
auðsætt í lögfræSistarfi hans. Hyggindi hans og
hæfilegleikar voru öllum bersýnilegir strax og
hann gekk í ráðaneytið, og sýndi hann það ótvírætt
í hluttöku sinni við afgreiðslu stórmála á þinginu.
1 Utanríkismálum, sem einn af hinum fyrsti/tals-
mönnum Atlantshafssáttmálans, flaug hróður
hans vítt um heim fyrir þátttökuna í umræðum
þess máls á fundum alþjóða bandalagsins. Þar
talaði hann á þann hátt sem enginn Canada-maður
hafði áður gert.
Þar kom í ljós skilningur hans á hugsun alþýðu-
fólksins, enda er hann sjálfur tilheyrandi þeim
flokki.
Þannig er þessi vingjarnlegi og óbrotni maður,
St. Laurent, fæddur og fóstraður í smábæ, við lítil
efni og örðuga atvinnu, meðal margra systkina
og vingjarnlegs sveitafólks.
Að kyni, tungumáli og eðlishvöt, er hann afkom-
andi tveggja merkra kynflokka.
Til kjósendanna er það mjög áríðandi að St.
Laurent sé foringi hins sannnefnda þjóðlega
fiokks^ sem sýnt hefir ótvírætt styrkleika sinn
frá hafi til hafs og er eini flokkurinn sem von er
um geti myndað ábyggilega stjórn eftir kosning-
arnar. Staðfesta hans, hæfileikar og framkvæmd-
ir, gera hann verðan þess að vera leiðtogi Canada
þjóðarinnar.
VOTE LIBERAL!
A-T-T-E-N-T-I-O-N
ALL YE ICELAJVDERS} OF THE
SAN FRANCISCO BAY AREA
on June 18 at 8 p.m. there will be A Grand Carnival
at th'e MT. DAVIDSON MASONIC HALL
corner of Ocean and Ashton Streets, San Francisco, Calif.
under the auspices of the Northern California Icelanders
Community for the benefit of
The Old Folks Home at Blaine, Washington
COME ONE, COME ALL — There will be lots of fun
and plenty of opportunities for giving and winning
One of the many prizes will be a 9 cubic foot latest model
FRIGIDAIRE
Oh yes, — the ORCHESTRA will be one of the best!
For THE COMMITTEE,
S. O. Thorlaksson
þeim góðu hjónum fyrst. Eftir
nokkra daga kvíld, fórum við
þrír, Gunnlaugur, Jakob bróð-
ir hans og eg út á suðvestur
C P R brautina að leggja teina,
frá Boissevain til Deloraine.
Fyrsta morguninn sem við vor-
um þar, þá hrópaði einhver —
‘Look Out”! (Varaðu þig). Eg
skyldi það ekki, og útkoman
varð sú, að það kom járnbrautar
band þar í loftinu og lenti á
sköfnungnum á vinstri fæti á
mér, en það hjálpaði mér, að eg
stóð rétt á röðinni á upphleypta
veginum og rann útaf með band-
inu. En það risti af mér bjórinn
fram á stóru tá. Það gerði mér
þann grikk að eg varð að hvíla
mig í 5 vikur. Svo þá eg fór að
vinna, þá skuldaði eg $20.00 fyr-
ir fæði. Hefði skuldað meira,
hefði það ekki verið fyrir góð-
hjartaðan matreiðslu mann, sem
þar var og kendi í brjóst um mig.
Hann lét mig fara út að Sand
pyttinum í heila viku, þá hann
markaði niður tímann vinnu-
mannanna, og svo leiðis slapp
eg. Mér datt í hug þá eg varð
fyrir slysinu, er eg sá andvara
reiðhestin hans föður míns detta
undir honum, þá hann var að
ríða út í langferð, þá sagði fað-
ir minn “Fall er fararheill”. Mér
varð það að orði þá eg varð fyrir
þessu slysi og það hefir komið
fram, því flest hefir orðið mér
til góðs, í þessu landi.
Eg mætti frænda mínum Ben-
idikt Jónssyni Benson frá Stóru
völlum í Barðardal. Hann var að
vinna þarna líka, þá var oft tek-
ið lag. Þá lærði eg af honum —
“Þú stjarnan mín við skyjaskaut’
Okkur var borgað $1.50 á dag,
sem þótti gott.
Eitt var það sem kom fyrir
þarna á járnbrautinni. Einn dag-
ur sem festist í minni mér, —
Mest af þeirri ensku sem við
höfðum lært, voru blótsyrði og
einn daginn kom vagn, sem var
dreginn af hestum með járn-
brautar stálteina. Það var flutt
þangað út á endan á stálinu.
Okkur, sem vorum að negla nið-
ur þau járn, var gefin aðvörun
þá hestarnir komu með talsverðri
ferð, því vagnin var svo þungur
að það var ervitt að koma honum
á stað, og varð svo að halda á-
fram án þess að stoppa. Það var
þar maður, s^rn vaktaði þetta og
kallaði fyrir að allir skyldu fara
úr vegi. Þar sem eg var staddur,
var Pálmi Sigtryggsson, (bóndi
síðar í Argyle-bygð). Hann rak
naglana á ytri röð, en gamall
Englendingur að innan. Hpnn
stóð á milli teinanna, þegar
kallið kom. Hann hljóp á und-
an vagninum, en varð, fótaskort-
ur og datt, og vagninn fór yfir
báða hans fætur, braut þá, —
annan fyrir ofan hné, en hinn
fyrir neðan. Þartma lá þessi gamli
maður og blótaði svo voðalega
að hvert orð fór í gegnum mig
sem hafði lært þessi blóts yrði
Fyrsta ÁTTHAGAFLUGIÐ til
ÍSLANDS
(ef nægileg þátttaka fæst)
FRÁ WINNIPEG 2. JÚLÍ
\ (til baka frá Reykjavík 23. júlí)
Opinberar móttökur í Reykjavík ráðgerðar.
Karlakór Reykjavíkur syngur o. fl.
Fararstjóri og kvikmyndari með í förinni.
Fjöldi þátttakenda takmarkaður.
Flugfarið fram og aftur AÐEINS $550 Á MANN
Þeir sem taka vilja þátt í för þessari eru vinsamlega
beðnir að gera oss aðvart hið fyrsta, og greiða helm-
ing farsins, en síðari hlutinn greiðist eigi síðar en
15. júní n.k.
VIKING TRAVEL SERVICE
165 BROADWAY NEW YORK 6, N.Y.
Á þessum merku tímamótum
Winnipeg-borgar
75. ára afmælis hennar, erum vér minnugir þess, að
fslendingar hafa lagt drjúgan skerf til framfara
hennar og velgengni. Heiður sé þeim.
Oxford Hotef
Joseph Stepnuk, Pres. S. M. Hendricks, Mgr.
PHONE 926 712 216 NOTRE DAME AVE.
INSERTED BY NATIONAL LIBERAL COMMITTEE