Heimskringla - 01.06.1949, Blaðsíða 4
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 1. JÚNÍ 1949
ítjcimskrinijla
fStofnuO 188«/
Kemui út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24 185
Verð blaðsins er 53.00 árgangurinn, borgist fyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viöskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Uíanáskrift til ritstjórans:
' f'DITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185
Authorized as Second Class Mail—Post Office Dept., Ottawa
WINNIPEG, 1. JÚNÍ 1949
Vikuhátíð í Winnipeg
LÖGVERND FÁTÆKRA
Laga-félag Manitoba hefir
komið því til leiðar, að fátækum
verður veitt öll sín lögvernd, sem
þeir þurfa með sjálfum sér að
kostnaðarlausu. Um 150 lög-
fræðingar í Winnipeg hafa boð-
ist til að gefa starf sitt í þessu
skyni. Er lögmannafélag Winni-
peg hið fyrsta í Canada, sem fyr-
ir þessu hefir gengist.
Þetta er mjög hrósvert og þarft
verk. Það er svo með marga, sem
verða að verja mál sitt sjálfir, að
þeim lætur það fæstum. Fyrir
rétti geta fæstir sagt alt sem
þeim býr í brjósti eins og lög-
menn mundu gera. Það er varla
orðið annara en lögfræðinga að
verja mál fyrir rétti. Réttvísinni
eru tæplega gerð full skil án
þess.
*
COUNTESS OF DUFFERIN
Fyrsti járnbrautarketill er kom til Winniperg. Stendur enn íyrir íraman C.P.R. stöðina.
var extra blað gefið út 8. okt. 1877 með rfrétti nni af komu Countess of Dufferin.
.. ,V
Sjötíu og fimm ára afmæli Winnipeg-borgar, verðut háríðlegt
haldið hér næstu viku. Stendur það yfir alla vikuna frá 5. júní til
hins ellefta. Það helzta sem fram fer hvern dag, verður þetta:
SUNNDAGINN 5. JÚNÍ verður 75 ára afmælisins minst í
öllum kirkjum bæjarins. Einnig fer fram þennan dag hin árlega
skrúðganga hermannafélagsins (Veterans), og þar með tilheyrandi
ræðuhöld.
MANUDAGINN 6. JÚNf, verður helgidagur að hálfu eða
öllu leyti. Viðskiftahús loka að líkindum upp úr hádegi. Stjórnar
skrifstofur verða allar lokaðar. Þennan dag setur borgarstjórnin
hátíðina. Afmælis konungs verður þá minst, en að öðru leyti verður
dagurinn tileinkaður bændastéttinni og sýningar hans því, er hana
áhrærir. Þá sýnir sig Alexis Smith hinn frægi leikari, fæddur
Canada-maður. Með leikjum og íþróttum verður skemt, götudöns-
um og flugelda sýningum. Skrúðför fer hér mikil fram og verður
hún helguð sögu og menningu borgarinnar.
ÞRIÐJUDAGURINN 7. JÚNf, er tileinkaður Canada. Verður
þann dag hér að sjá alt það sem Canada menn kenna í íþróttum og
fimi, leikjum og listum.
MIÐVIKUDAGURINN 8. JÚNf er helgaður Bandaríkjunum.
Eitt af því er fram fer, verður skrúðganga bandarískra hornleikara-
flokka. Barbara Ann Scott skautar. Winnipeg Symphony Or-
chestr spilar, og þar kemur fram Gladys Swarthout, Metropolitan
stjarna. Leiksýning, golf, sund, o. fl., fer fram. •
FIMTUDAGURINN 9. JÚNf er helgaður Sameinuðu þjóðunum.
Margskonar skemtanir verða allan daginn. Þar gefst að líta heim-
ilislaust fólk frá Evrópu. Leikir ýmsra þjóðerna verða sýndir.
Barbara Ann Scott sýnir enn list sína á svellinu. Gamaldags sam-
kepni í fiðluspili fer og fram.
FÖSTUDAGURINN 10. JÚNf er helgaður Bretaveldi. Verður
skrúðför brezkra bifreiða þann dag. Hljómleikar frá öllum þjóðum
tilheyrandi Bretaveldi fara fram. Auk þess margskonar aðrar
skemtanir.
LAUGARDAGURINN 11. JÚNf, er helgaður Winnipeg. —
Æskulýðs skrúðganga og 50 mílna hjóla veðreið, er ef til vill það
helzta, auk skautasýningar Barbara Ann Scott. Veizla aldraðra
fer fram þennan dag.
Þetta gefur aðeins hugmynd um það sem fram fer. Veizlur og
ræðuhöld verða nálega á hverjum degi. Þeir s»m kost eiga á að
njóta þess alls, verða margs vísari um sögu Winnipeg-borgar eftir
en áður.
Það er búist við mesta sæg gesta. Þeir sem einu sinni hafa átt
heima í Winnipeg, munu þvar sem eru hátíð þessa keppast við að
sækja. Hóps borgarstjóra bæði úr Canada og Bandaríkjunum, er
vænst. Hefir mikið verið unnið að því, að útvega öllum dvalar-
staði.
Það kvað ganga hið bezta með skrúðvagninn, sem íslendingar
eru að gera úr garði og sem í einni skrúðförinni verður. Mun þar
mega líta Fjallkonuna og Heklu gömlu, ásamt sýningum úr þjóð-
Mfi frumíherjanna íslenzku hér vestra.
EKKERT SAMKOMULAG
UM BERLÍN
f fréttum í gærkvöldi frá Par-
ís, stendur: “Það hefir nú hvor
aðili felt annars tillögur um sam-
einingu Þýzkalands. Er þá ekki
öllum samkomulags tilraunum
með því lokið?
Fyrir vorum augum er ekki
annað að sjá.
Það næsta fyrir vesturþjóðirn-
ar, verður nú það, að semja við
Rússa um að fá haldið opnum
vega og járnbrautarleiðum að
vestan til BerMn. Rússum verður
vissulega mikil ánægja að því að
nota sér þetta og vita hvað vest-
lægu þjóðirnar vilja ganga langt
í að greiða þeim fyrir það.
Samningar um vald Rússa til
að loka vegum til Berlínar, eru að
vísu engir. til, nema óbeinlínis,
og sem leiðir af alt annari skift-
ingu landsins, en fyrst var ráð
fyrir gert. En af valdi vestlægu
þjóðanna í Berlín, leiðir af
sjálfu sér, að Berlín á ekki að
vera þeim lokuð. Og sú hliðin á
málinu er alveg jafngild lokun-
inni.
Ef Rússar vissu ekki, að vest-
lægu þjóðunum mætti treysta til
að fara ekki í stríð út af þessu,
hefði þeim aldrei komið þetta
vegahann til hugar.
Samt talar Vishinsky svo um
það núna, sem honum sé í hendur
lagt, að hafa það fyrir að halda
vegunum opnum fyrir vestlægu
þjóðunum, sem hann vill.
Það tekst í raun og veru vel
til, ef þessu heldur mikið lengur
friðsamlega áfram.
688 SÆKJA
í kosningunum til sambands-
þings, sem fara fram 27. júní,
sækja 688 nú þegar. Tilnefningu
er enn ekki lokið og verður ekki
fyr en 13. júní. Það þykir ekki
ólíklegt, að um það er lýkur,
verði 1,000 þingmannsefni, sem
glímuna heyja um 260 sæti, eða
minst 3 um hvert sæti.
Nú þegar sækja af hálfu lib-
erala 242, en íhaldsmanna 210,
C.C.F. 154, Social Credit 22,
Union of Electors 26; aðrir
smærri flokkar 17.
MIKILL SIGUR
LIBERALA
f Nýfundnalandi, hinu tíunda
fylki í Canada, unnu liberalar
mikinn sigur í fylkiskosningun-
um, sem fóru þar fram fyrir helg-
ina.
Þingsæti liberala eru 19, í-
haldsmanna 6, annara flokka 2.
Úr tveimur kjördæmum eru
fréttir ókomnar; þingsæti eru
alls 28.
Á sigri liberala þarf engan að
furða. Hann var fyrirfram vís.
Að landið sameinaðist Canada,
var aðallega fylgi eins manns í
Nýfundnalandi að þakka, liberal-
ans Joseph Smallwood, sem nú
er forsætisráðherra. Af hálfu
Canada var ríflegur fjárstyrkur
í boði, að ógleymdu barnameð-
laginu, sem sent var um kosning-|
arnar. Það efldi vissulega fylgi;
Smallwoods.
Um stjórnmál Canada vitaj
Nýjalandsmenn auðvitað ekkertj
enn. Kosningarnar snerust því
ekki um stjórnmálaflokkana.
FRÁ AUSTUR CANADA
Arnþór Marino Kristjánsson
Ph.D.
Við nýaflokin próf við McGill
háskóla í Montreal, hefir Mr.
Kristjánsson hlotnast doktors
nafnbót í efnafræði, eftir tveggja
ára nám. Útskrifaðist Marinó frá
Saskatchewan háskóla voriS 1942,
með beztu einkunn. Gekk hann
í herinn snemma á árinu 1943.
Eftir að hann lauk herþjónustu
í sept. 1945, tók hann að sér
kennarastörf við Saskatchewan
háskóla. Haustið 1947 var hon-
um veittur styrkur af The Na-
tional Research Council, og fór
hann austur til Montreal að^
stunda nám við McGill. Doktors
ritgerðina nefnir hann “Ex-
change Reactions of Radioactive
Sodium Iodide With Aromatic
Iodides”. Efalaust á hann glæsi-
lega framtíð fyrir höndum, sem
tileinkuð verður þróun og vel-
megun Canada á sviði vísind-
anna. Þorvaldur
Fréttir frá San Francisco
S. O. Thorlakson, prestur í San
Francisco, var heiðraður nýlega
segir í fregn frá Ellis Stoneson,
með því, að páskaræða hans var
valin af kollegum hans til birt-
ingar í Berkley Gazette, sem
bezta ræða vikunnar.
Vestur þar er og verið að efna
til íslendingadags 18. júní, og
/erður arði af deginum varið til
styrktar elMheimilnu í Blaine.
Winnipeg 75 ára
Frh. frá 1. bls.
Manitoba um eða yfir 75 milljón
mælar.
í Winnipegborg eru um 30
lystigarðar, sem skreyttir eru
trjám og blómum og gosbrunn-
um.
Ráð hús (Ciíy Hall) var hér
fyrst bygt 1876 og sama árið var
fyrsta leikhús bæjarins reist. —
Ráðhús borgarinnar sem nú er,
var bygt 1886, því hitt hrundi
eða brann. •
Af öðrum veglegum bygging-
um bæjarins má nefna þinghús-
ið, þó fylkiseign sé. Var það
opnað 15. júlí 1920. Önnur veg-
leg bygging er Winnipeg Aud-
itorium, sem bygt var 1932. Var
það opnað af Rt. Hon. R. B. Ben-
nett, forsætisráðherra Canada,
15. október 1932, yfir útvarp frá
Ottawa. Kostaði húsið fullgert
$1,133,430, auk húsalóðarinnar,
en hana lagði bærinn til. Að
öðru leyti var kostnaður hússins
greiddur út úr atvinnubótafé, er
sambandsstjórnin, fylkið og bær-
inn lögðu fram að jöfnu.
Auk annara stórhýsa hér má
nefna hinar miklu búðir Hud-
son’s Bay félagsins og T). Eat-
on félagsins, sem sagt er að ekki
gefi eftir veglegustu húsum
þeifrar tegundar í stærstu borg-
um þessa lands og jafnvel annara
landa.
Bókasöfn, sjúkrahús, kirkjur
og óteljandi aðrar stofnanir,
sem hverri menningar borg eru
samfara, finnast hér eins full-
komnar og jafnvel í stærstu
borgum þessa lands. Að telja alt
slíkt upp er ekki hægt í stuttri
blaðagrein.
Öllum sem Winnipeg hafa
heimsótt, kemur saman um það.
að hún sé ein með fegurri og
skemtilegustu borgum að kynn-
ast. Hinar fögru raðir íverhúsa
um borgina, þykja bera langt af
því, sem í flestum öðrum bæjum
gefst á að líta. Strætin bein og
breið og með vel hirtum breið-
um bölum fyrir framan þau eftir
öllu strætinu, fer ekki fram hjá
augum þeirra, sem í öðrum borg-
um eru kunnugir.
Á síðustu árum hefir verið
komið upp hér tveggja miljón
dollara gufuupphitunarstofnun
af bænum. .
Það er ef til vill djarft að hafa
það eftir, en einn af skörpustu
íslenzku fasteigna- og fjármála-
höldum hér hélt fram við þann
er þetta skrifar á 60 ára afmæli
Winnipegborgar, að áður ert
stjórnir tóku í stórum stíl til að
koma upp húsum muni ekki vera
fjarri, að af öllu sem bygt var af
Jjölhýsum og fjölskylduhúsum
til íbúðar í þessari borg, hafi
fslendingar reist um 10%, þó
aldrei væru hér fleiri en 3% af
íbúunum. Þeirra getur því tals—
vert, er verið er að tala um hinn
bráða vöxt og viðgang þessarar
borgar, höfuðborg Manitoba
fylkis. Lega borgarinnar og að
hún er eins og nokkurs konar
fordyri hinna auðugu vestur
fylkja, á auðvitað sinn þátt
þessum hraða vexti hennar. En
dugnaður, áræði og framsýni í-
búanna, kemur að sjálfsögðu
einnig til greina. Winnipeg
hefði ekki á 75 árum eflst að
fólksfjölda úr 215 í um 300,000,
án starfsfórnar borgaranna. Ef
talan um húsabyggingar, sem að
ofan er minst á, er rétt, mega
því íslendingar vel við sinn hlut
una.
75 ára afmæli Winnipeg
(5. — 11. júni 1949)
Hátíðahöld borgarinnar hefj-
ast í næstu viku. Á sunnudaginn
verður þessara tímamóta í sögu
borgarinnar minst við guðsþjón-
ustur í kirkjunum. Að öðru leyti
verður daguriðn helgaður minn-
ingu hermanna.
Haldið verður upp á afmæli
hans hátignar, George konungs
á mánudaginn; verður þá al-
mennur frídagur; þann dag fara
fram hinar sögulegu og menn-
ingarlegu skrúðsýningar —hist-
orical and cultural parade —. í
þeirri skrúðlest verður skrúð-
vagn “float” V. íslendinga.. —
Hann er nú hér um bil fullgerð-
ur. Fimm manna nefnd, sem skip-
uð var úr aðal hátíðanefnd ís-
lendinga, hefir nú valið það fólk,
sem á skrúðvagninum verður. —
Skrúðlestin fer af stað frá Red-
wood Ave., kl. 3.00 e. h. á mánu-
daginn, heldur suður Main street
til Portage Ave., og vestur Por-
tage til Sherbrook St., og það-
an suður til Broadway og að
þinghússvöllum. Þetta verður
sennilega einn tilkomumesti lið-
ur hátíðahaldsins og ætti fólk að
gera sér far um að vera viðstatt.
Um aðra sérstaka þátttöku ís-
lendinga í hát;ðahaldinu vísast
til greinar eftir frú Soffíu
Wathne í þessu blaði. Munu ís-
lendingar vafalaust fjölmenna á
hina íslenzku sýningu og skemt-
un í Hudson Bay byggingunni á
miðvikudaginn.
Fólk, sem búsett var í borginni
fyrir 1886, mun njóta sérstakra
virðinga og hlunninda á hátíð-
inni og því munu verða gefnar
gjafir til minningar um daginn.
Eyðublöð fást á skrifstofum fs-
lenzku blaðanna og ætti fólk,
sem hefir skilyrði til að þiggja
þessi vinarhót, að fylla þau inn
sem fyrst og senda þau til Mr.
C. F. Greene, City Hall. Winni-
peg'
Up plýsmgarnefndin
Gömul kona (vandræðaleg):
—Hafið þér ekki séð gráan hund
með hvítt skott?
Prófessorinn: Eg skal segja
yður, frú mín góð, að eg hef nú
séð Coloseum í Róm, Eiffel-
turninn í París og frelsisgyðju-
styttuna í New York. Það ge.tur
meir en verið, að eg hafi líka ein-
hvern tíma séð gráan hund með
hvítt skott, en svei mér af ef eg
man það!
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
Qtbreiddasta og fjölbreyttasta
islenzka vikublaðið
Atburðirnir 30. marz
(Grein þessi birtist nýlega í
kirkjublaðinu og þykir rétt að
endurprenta hana hér til þess að
sýna hvernig óháðir og hleypi-
dómalausir menn líta á þau mál.)
f sambandi við samþykkt Al-
þingis hinn 30. marz síðastl. um
það, að ísland skyldi gerast
stofnaðili að hinu svo nefnda
Norður-Atlantshafs bandalagi
gerðust þeir hryggilegu atburð-
ir, er seint munu gleymast, og
hljóta að verða hverjum hugsandi
manni ærið umhugsunarefni. —
Hópur manna gerði tilraun til
þess að torvelda eða hindra lög-
lega afgreiðslu málsins á lög-
gjafarþinginu með ópum og hót-
unum og með því að kasta ó-
þverra og grjóti í þinghúsið,
brjóta þar rúður með þeim af-#
leiðingum, að jafnvel sumir
þingmenn hlutu nokkur meiðsli.
Úti fyrir þinghúsinu urðu einn-
ig allmiklar ryskingar og meið-
ingar og fékk ekki lögreglan við
ráðið fyrr en hún að lokum
sundraði mannf jöldanum með
tára gasi.
/ Það er kunnara en frá þurfi
að segja að harla fá mál eru af-
greidd á Alþingi á þann veg að
öllum líki, sízt hin stærri málin.
En þingræði og lýðræði í siðuðu
þjóðfélagi byggist á því, að meiri
hluti þingmanna ráði úrslitum
mála í þinginu en þoli síðan dóm
þjóðarinnar við' næstu kosningar
tyrir framkomu sína í hinum
ýmsu málum, hvort heldur nei-
kvæða eða já-kvæða.
Sé þessum grundvelli raskað,
er frelsi og lýðræði þjóðarinnar
í voða. Skýlaus viðurkenning
borgaranna á rétti Alþingis til
þess, í umboði þjóðarinnar að
ráða málum hennar til lykta með
löglegri atkvæðagreiðslu er skil-
yrði þess að hægt sé að stjórna
Iandinu á lýðræðislegan og þing-
legan hátt.
Þeir atburðir, sem gerðust við
Alþingishúsið hinn 30. marz s.l.
sýna hins vegar þá staðreynd, að
til eru menn í þessu þjóðfélagi,
sem ekki viðurkenna þenna rétt,
beita hótunum til þess að freista
að hræða þingfulltrúana til þess
að greiða atkvæði gegn sannfær-
ingu sinni, óvirða löggjafarsanr^
komuna með því að kasta að
henni aur og grjóti og stofna
með óspektum lífi og limum
þingmanna og annarra samborg-
cra sinna í hættu.
Framtíðin ein getur úr því
skorið til fullnustu hvort sú á-
kvörðun, sem yfirgnæfandi
meiri hluti á Alþingi tók þenna
dag, í örlagaríku stórmáli, var
rétt eða eigi. En um hitt ber sam-
tíðinni að dæma, hvort hún tel-
ur það þjóðinni heppilegra að
cfbeldi og hótanir fárra manna
skeri úr vandasömum þjóðmál-
um, eða hitt, að þau séu afgreidd
á þinglegan hátt af kjörnum full-
trúum þjóðarinnar við löglega
atkvæðagreiðslu á Alþingi. Sé
hugsað með stillingu um málið,
getur sá dómur naumast orðið
nema á einn veg. S. V.
—Vísir