Heimskringla - 15.06.1949, Qupperneq 7
WINNIPEG, 15. JÚNI 1949
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
VESTUR-ÍSLENZK KOXA
í HEIMSÓKN
Frú Sólveig hefur alið nær
allan aldur sinn í Vesturheimi,
lengst af búsett í Chicago, en
hún ólst upp í Nýja íslandi við
Winnipeg. Foreldrar hennar, —
Veronika Þorkelsdóttir og
Sveinn Kristjónsson voru úr
Bárðardal í Þingeyjarsýslu og
fluttu vestur um haf 1882. Frú
Sólveig kom til Reykjavíkur 20.
apríl s. 1. og dvelur sem stendur
á heimili frú Elínborgar Lárus-
dóttur, skáldkonu. Frú Sólveig
er frænda og vinamörg á íslandi,
hún er systurdóttir sr. Jóhanns
Þorkelssonar, fyrrum dómkirkju
prests, einnig náskyld frú Val-
gerði, konu Þórhalls Bjarnason-
ar, fyrrum biskups. Maður henn-
ar Símon Sveinsson, húsgagna-
meistari, sem nú er látinn, var
líka af góðu bergi brotinn, meðal
nákominna ættmenna hans var
Benedikt Sveinsson sýslumaður.
Frú Sólveig talar ágæta ís-
lenzku og er hittin á orð, kemur
henni þar sjálfsagt að liði, að
þegar hún var 18 ára, kom hún
heim til fslands, og dvaldi um
tveggja ára skeið hjá sr. Jóhanni
frænda sínum. Þau árin lék hún
með leikfélaginu hér, tók m. a.
að sér hlutverk frú Stefaníu Guð-
mundsdóttur í forföllum hennar.
Þessi ár kenndi hún einnig við
barnaskólann í Reykjavík, enda
hafði hún þá lokið kennslukonu-
námn
— Gekk ferðin ekki vel?
— Prýðilega segir frú Sólveig.
Eg bar saman í huganum margra
vikna erfitt ferðalag foreldra
minna fyrir nálega 7 tugum ára.
Eg fór á milli Ameríku og fs-
lands á fáum tímum. Mér fannst
himininn taka mig snöggvast í
fang sér, og skila mér síðan úr
örmum sínum á Keflavíkurflug-
völl. Það var dásamlegt að finna
ísland undir fótum sér. Um lang-
an aldur hef eg hlakkað til þess
að koma heim. Kuldinn, sem all-
ir tala um, snertir mig ekki, eg
nýt hlýju þeirra kunningja
Installed at a cost of $8,000 for furnishings and equipment, the Barley Improvement Insti-
tute on June 2 officially opened its new research laboratory in Winnipeg. The Institute, spon-
sored by the brewing and malting industries of Canada is headed by T. J. Harrison, one of the
country’s outstanding authorities on quality barley. One of its main works will be to assist
plant breeders in evaluating the quality of new barley hybrids. These will be tested in the new
laboratory. The picture, taken at the opening ceremonies of the laboratory is, left to right, T.
J. Harrison, Director of the Institute; Cecil Lamont, President, Northwest Line Elevators As-
sociation; H. G. L. Strange, Director agricultural research branch, Searle Grain Co., Stanley
N. Jones, president, Winnipeg Grain Exchange; Dr. J. A. Anderson, chief chemist in grain re-
search laboratory of the Board of Grain Comm is,sioners for Canada; Dr. W. O. S. Mereditfa,
barley chemist in research laboratory of the Board of Grain Commissioners; and V. M. Ben-
delow, chemist in the Barley Improvement Institute’s new laboratory.
minna, sem eg hef þegar haft
tíma til að hitta.
—Hvernig hefur þú kunnað
við þig í Chicago?
— Eg heyri á ýmsum hér
heima að Chicago muni enn vera
borg “gangstera” og glæfra. —
Slíkt er fjarri sanni. Hún hefur
reynst mér og fjölskyldu minni
friðsæll samastaður. En eg hef
saknað þess, að vera ekki nær
Íslendingabyggðunum, ekki sízt
vegna barna minna, þá hefðu þau
frekar lært að tala íslenzku. Þau
eru öll fjögur búsett í Ameríku
og gift ameríkönum, en þau eru
stolt af því, að vera íslenzk að
þjóðerni.”
—Finnst þér ekki Reykjavík
hafa stækkað?
MARGAR NÝJUSTU TEGUNDIR AÐ VELJA ÚR
Nvtízku gleraugu vor bæta útlit yðar, gera andlitið nteira að-
laðandi, hjálpa yður að sjá langt éða skamt, lesa smæðsta letur,
þræða minstu nál.
BEINT FRA VERKSMIÐJUNNI TIL YÐAR
Að verzla við oss, er að verzla við eina af stærstu augna vísinda
stofnunum í Canada. Þér losnið við milliliðs ágóðann. Glet-
augun eru eftir n justu tízku.
Peningum skilað aftur —Frec Coupon
ef ekki fullnægjandi
Peningum yðar skilað aftur ef gler-
augun eru endursend innan 30
daga. Þau verða að fullnægja yður,
þér dæmið um það. Sendið þetta
eyðublað strax.
VICTORIA OPTICAL CO.
Dept. FLIO 273 Yonge St.
Toronto, Ont. Address.
Victoria Optical Co., Dept. FL10
273 Yonge St., Toronto, Ont.
Send me a pair of your stylish glasses on
Money Back guarantee. Glasses to be re-
turned within 30 days if not satisfied.
Send free of charge your latest style sheet,
eye tester, etc. This places me under no
obligation.
Name_____________---------------Age------
_________P.O_____Prov______
eosoQosoossoðsososððssoseososeosoQOðsooðGooeðecooa
VERZLUNARSKÓLANÁM
Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein-
mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun,
og það fólk sem hennar nýtur hefir venju-
lega forgangsrétt þegar um vel launaðar
stöður er að ræða.
Vér höfum nokkur námsskeið til sölu við
fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg.
Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu
viðvíkjandi, það margborgar sig.
feooooo
The Viking Press Limited
Banning og Sargent
WINNIPEG :: MANITOBA §
...............—..................I
— Hér heima hafa orðið langt-
um stórstigari breytingar en mig
hefur órað fyrir. Reykjavík er
orðin það mannmörg, að hún
hlýtur að vera dálítið brot af
löstum og kostum stórborganna.
Meira að segja kvað hér geta orð-
ið all róstusamt, er sitt lýst
hverjum. f því sambandi vil eg
segja Ameríkumönnum það til
verðugs hróss, að þeir kunna vel
að vera í minnihluta. Þar gengur
mikið á t. d. meðan á kosninga-
baráttu stendur, en allt fellur í
dúnalogn á eftir og þeir, sem
lægri hlut bíða, óska hinum til
hamingju með sigurinn.
— Hefur þú fengizt við
kennslustörf vestra?
— Eg hef helgað heimili og
börnum mínum aðalstörf mín. —
Við heimilin á að leggja rækt;
ef heimilin eyðileggjast, eyði-
legst heimurinn. Síðustu þrjú ár
ævi sinnar lá maðurinn minn
rúmfastur heima. En aðaláhuga-
mál mín hafa jafnframt verið
uppeldismál allmennt og eg hef
dálítið unnið að þeim málum í
sambandi við ungmennadómstól
í Chicago. Mér hefur oft verið
falið að tala við ungmenni, sem
orðið hafa fyrir slæmum áhrif-
um og einnig við ættmenni
þeirra. Nokkuð hef eg skrifað
um þessi mál í blöð. Allt það illa,
sem unglingarnir fremja, hafa
þeir á einhvern hátt lært af full-
orðna fólkinu. Skyldur okkar við
börnin eru æðstu skyldur lífs-
ins, það þjóðfélag, sem ekki ræk-
ir sín uppeldismál er dauðadæmt.
Það er jafnljótt að gera ekki það,
sem manni ber að gera, eins og
að gera það, sem maður á ekki
að gera. Það er slæmur arfur,
sem við látum börnum okkar eft-
ir — ófriðlegur heimur, barma-
fullur af tortryggni og stríðs-
hættu. Við megum skammast
okkar að geta börn in í þennan
ljóta heim..
— f mínu litla staríi, hélt frú
Sólveig áfram, meðal afbrota
unglinga tók mig sárt, hve ungl-
ingarnir sýndu oft mikla tor-
tryggni í garð þeirra, sem vildu
þeim vel. Ef hægt var að upp-
ræta tortryggnina var sigurinn
oftast vís.
— í Chicago eru mjög mörg
uppeidis- og skólaheimili. Einn-
ig hin fullkomnustu barnaheim-
ili. En reynt er að útvega ein-
stæðum börnum uppeldisfor-
eldra. Börn þurfa ást eins og
blóm vökvun. En hver og einn
fær ekki umsvifa laust að taka
börn til fósturs. Fjölskylda, sem
býðst til að taka barn, er rann-
sökuð nákvæmlega, fjárhagur
hennar, samkomulag hjónanna,
og fenginn er vitnisburður um
hegðun og uppeldi þeirra bama,
sem fyrir eru í fjölskyldunni.
Ef heimilin svara ekki fyllstu
kröfum, fá þau ekki að taka
börn til fósturs. í langan tíma er
einnig haft eftirlit með barninu
hjá fósturforeldrunum.”
— Eru ekki munaðarlaus Evr-
ópubörn í Chicago?
— Jú, margt slíkra styrjaldar
barna hefir komið þangað og
eignast heimili og fjölskyldu.
Mér rann til rifja, að sjá 7 og 8
ára börn með alfullorðin andlit,
mótuð rúnum þjáningar og
skorts. Eg mun minnast þess, er
heill skipsfarmur af einstæðings
börnum kom frá'Evrópu, þar á
meðal fjöldinn allur ^f Gyðinga-
börnum. New York borg tók á
móti börnunum með viðhöfn.
Borð voru hlaðin af mat og góð-<
gæti handa þeim og jafnframt
gáfu fjölskyldurnar sig fram, er
áttu að taka við börnunum;
margar komu með einhverjar
gjafir handa hinum nýja fjöl-
skyldumeðlim. En það var eins
og börnin sæu ekkert nema mat-
inn, þó þau væru orðin mett,
gátu þau ekki hætt að horfa áj
þessar ævintýralegu kræsingar.”j
Það er freistandi að tala leng-;
ur við frú Sólveigu Sveinsson, I
ekki sízt um börn og uppeldis-
mál; hún er greind kona og á- j
hugi hennar einlægur og lifandi. j
En tími vinnst ekki lengri að j
þessu sinni.
Víst er, að hver sá, er hittir
frú Sólveigu, þykir vænt um,
að hún hefur látið eftir sér að
stíga aftur á íslenzka grund. Það
er uppörfandi að finna hennar
ósviknu ást og órofa tryggð til
alls sem er íslenzkt. Veri slíkir
gestir ávallt velkomnir. S. I.
—Alþbl.
Ungur brezkur liðsforingi var
á gangi um yfirgefið hermanna-
skálahverfi. Alt í einu varð hann
var við gamla konu, sem var að
þvo skálagólf. Konan leit upp,
þegar hún sá foringjann og kall-
aði:
Halló, þú þarna, ungi maður,
náðu í vatn í fötu fyrir mig.
Ungi maðurinn horfði ^lveg
forviða á gömlu konuna og svar-
cði:
Kona góð, eg er foringi í
brezka hernum, og svona getið
þér ekki verið þekkt fyrir að á-
varpa liðsforingja.
Konan leit upp, strauk hár-
tjásurnar frá sveittu einninu og
anzaði ofboð rólega:
Skítt með allt titlatog, dreng-
ur minn, eg er hertogafrú.
Professional and Business Directory
Office Phone Res. Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment DR. A. V. JOHNSON DENTIST * 506 Somerset Bldg. • Office 97 932 Res. 202 398
Talsími 95 826 Heimilis 53 893 DR K. J. AUSTMANN Sérfræðingur í augna, eyrna, nefs og kverka sjúkdómum 209 MEDICAL ARTS BLDG. Stofutími: 2—5 e. h. ANDREWS, ANDREWS, THORVALDSON & EGGERTSON Lögfrœðingar Bank of Nova Scotia Bldg. Portage og Garry St. Sími 98 291
Dr. P. H. T. ThorJakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS 0 BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith SL PHONE 96 952 WINNIPEG
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Simi 97 538 308 AVENUE Bldg. — Winnipeg H. J. PALMASON & Co. Chartered Accountants • 219 McINTYRE BLOCK • TELEPHONE 94 981
THE WATCH SHOP CARL K. THORLAKSON Diamond and Wedding Rings Agent for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 SARGENT AVE. Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 27 989 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken
WTNDATT COAL XO. LIMITED Established 1898 506 PARIS BLDG. Office Phone 927 404 Yard Phone 28 745 A. S. BARDAL selur likkistur og annast um utfarir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonar mmnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST Phone 27 324 Winnipeg
H. HALDORSON BUILDER 23 Music and Arts Studios Broadway and Carlton Phone 93 055 Winnipeg, Canada L nion Loan & Investment COMPANY Rental, Insurance and Financial Agents Simi 95 061 510 Toronto General Trusts Bldg.
CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors oi Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Phone 26 328 Res. Phone 73 917 GUNDRY-PYMORE Ltd. British Quality - Fish Netting 60 Victoria St., Winnipeg, Man. Phone 98 211 Manager: T. R. THORVALDSON Your Patronage Will Be Appreciated
ÁSGEIRSON’S PAINTS, WALL PAPER AND HARDWARE 698 SARGENT AVENUE Winnipeg, Man. Telephone 34 322 Halldór Sigurðsson Contractor & Builder • 1156 Dorchester Ave. Sími 404 945
The BUSINESS CLINIC Specialize in aiding the smaller business man to keep adequate records and prepare Income Tax Returns. ANNA LARUSSON 508 Mclntyre Blk. Ph. 97 130 FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Bldg. 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 922 496
O. K. HANSSON Plumbing & Heating CO. LTD. For Your Comfort and Convendence, We can supply an Oil Burner for Your Home Phone 72 051 163 Sherbrook St. DR. CHARLES R. OKE TANNLÆKNIR 404 Toronto Gen. Trust Bldg. 283 Portage Ave., Winnipeg • Phone 94 908
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
útbreiddasta og fjölbreYttasto
islenzka vikublaðið
PRINCESS
MESSENGER SERVICE
Við flytjum kistur og töskur,
húsgögn úr smærri íbúðum
og húsmuni af öllu tæi.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Sími 25 888
C. A. Johnson, Mgr
'JORNSQN S
LESIÐ HFIMSKRINGLU
íÓÖKSTÖREI
M 1
702 Sargent Ave„ Winnlpeq, Mcm.