Alþýðublaðið - 26.05.1960, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 26.05.1960, Blaðsíða 9
;ði við Eg vil la kon leggja — 500 þús. beggja ganglima 500 þús. handar eða handleggs og ganglims 500 þús. Slysatryggingarskírteini eru mjög óhugguleg. ....OG VÉLIN SPRINGUR!“ Flug-maðurinn sagði, að þotan „okkar“ væri stór af orustuþotum að vera. „Við“ mundum taka þetta rólega, allt yrði í bezta lagi. Hann. spurði, hvort ég væri nokk- uð hrædd, og ég sagði, að ég væri með lífið í lúkun- um. Hann sagði, sem satt var, að hann ætti hið sama á hættu, — og fannst mér það þó nokkur huggun, að deyja með svo viðkunnan- legum manni. Svo klifruðum við upp í þotuna, tókumst í hendur eins og glímumenn fyrir kepprii, og einhver Amerí- kani fór að binda mig við aftursæti þotunnar. Þotan var tveggja manna, sem og orustuþotur af þess- ari gerð munu flestar vera. Rúm var ekki mikið fyrir hvern mann, en allt úði og grúði af tökkum og hand- föngum í öllum regnbogans litum. Þegar búið var að binda mig niður, svo að ég gat mig hvergi hrært, var farið að útskýra, hvernig ætti að fara að því að stökkva út úr þotunni, ,,in case of soiRe- thing happening“, (ef eitt- hvað kæmi fyrir). Það tók manninn a. m. k. stundar- íjórðung að skýra mér frá þessu öllu saman, og hefði hann þó eins getað sleppt því. Mér var eftir sem áður, hulinn leyndardómur, hvaða takka af þessum þúsund átti að styðja á, hvaða handföng átti að grípa hrauslega í o. s. frv. . . . Ég ákvað þeg- ar að deyja fátlaust. Loks kom það, sem ég kveið -mest fyrir, hjálmurinn á höfuðið og súrefnisgrím- an fyrir vitin. Innilokunar- æðið heltók mig, þegar gleri var rennt yfir sætin, flug- maðurinn setti í gang og tal- aði til mín í gegnum hátal- arann í hjálminum. — All í lagi? — Þú sérð rauða ljósið, sem ég depla. Ef ég depla því svona — ró- lega — er allt í lagi, þótt sambandið á milli okkar rofni, — en ef ég depla því --------svona — ------áttu að skjóta þér út eins og þér hefur verið kennt, — og vélin springur. — All right, stundi ég (og ákvað áð líta aldrei á rauða ljósið, svo að ég gerði ekki litlu, fallegu börnin flug- mannsins föðurlaus, af því að mér -hefði sýnzt i skelf- ingu minni og uppæsing, — rauða Ijósið fara nraðar en álitlegt væri). UPP í IIIMINNINN. — Við ökum um flugvöll- inn í leiguakstri, eins og við köllum þaö, sagði fiugmað- urinn. Nú förum við að aka á loft, nú herði ég á, meira, meira . . . nú erum víð kom in upp í himininn. — Líður þér ekki vel? — Ágætlega, (hjálmurinn var svo þungur, að höfuðið virtist á hraðri leið niður á millí herðablaða). — Við fljúgum yfir Reykjavík, við förum . . (og hann sagði mér allt um hraða vélarinnar, hæð flugs ins og allt það, en ég hugs- aði til allra þeirra, sem nú gengju áhyggjulausir niður á guðsgrænni jörðinni). Við flugum yfir Eldey, og sólin skein svo ofsalega á plastið eða glerið yfir höfði mér, að hitinn varð eins og á eyðimerkursandi í sól- skini. —• Flugmaðurinn sneri þotunni á hliðina, og innyflin í mér fóru sömu leið. — En á réttan kjöl aft- ur. — Sólin skein, og hafið var heiðblátt. — Fuglarnir flugu umhverfis Eldey, — og svitinn spratt fram undir súrefnisgrímunni fyrir vit- um mér. Ef frá var dreginn hitinn, útrúsningin, þrengslin og takkarnir, var annars ekki öðru vísi áð fljúga í orustu- þotunni en venjulegri farþegaflugvél. Hraðinn var að vísu mun meiri, en hann finnst að sjálfsögðu ekki í loftinu, þegar himinn er yf- ir, himinn undir og himinn allt í kring. Það var ekki nema, þegar hún dalaði eitt- hvað í loftinu, að einkenni- leg bylgja leið um innyfli og hjartað rykktist til, — og allt virtist vilja upp og út. . . Velgjutilfinning varð öllu yfirsterkari. — Við fljúgum ekki hátt, sagði flugmaðurinn. Það er ekki á það hættandi með ó- vana. (En mér fannst við ofurhátt. Það væri ægilegt að þurfa að stökkva niður. Og enn varð mér hugsað til þeirra, sem í kæruleysi tækju eftir gufustróknum, sem flugmaðurinn sendir út úr vélinni öðru hvoru. Þess- ir gufustrókar hafa myndað hvíta rák á bláum himnin- um). — Við förum bráðum að lenda . . . Við fljúgum aft- ur yfir Reykjavík. Nú fær- umst við naer. Þú getur tal- að við vin þinn, sem kom með þér. Hann er í flugturn ;num ... Talaðu við hann á íslenzku. Ég heyrði ekki neitt í „verndaranum“, og fannst ég heldur lítið hafa að segja, — en þegar flugmaðurinn marg-eridurtók þessar áskor anir, sá ég mig tilneydda til að segja eitthvað um fegurð himinsins, fuglana á sjónum, sólna, vorið og hve gott og fagurt og indælt væri að sitja uppi í loftinu. Þessi hugljúfi ræðustúf- ur kom þó víst aldrei nein- um nema himingeimnum til Framhald á 14. síðu. Alþýðublaðið — 26. maí 1960

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.