Heimskringla - 14.12.1949, Síða 2
2. SlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 14. DES. 1949
æ / CDernyJNv j&
í&' Chri^tmar
NEW YEAR TERM
O P E N S
Tuesday, January 3rd
RESERVE YOUR DESK EARLY
As we expect our classes to be filled early in the
New Year Term we suggest that you enroll
between Christmas and the New Year. Our
office will be open every business day during
the holiday season from 9:00 a.m. to 6:00 p.m.
DAY and EVENING
CLASSES
Call at our office, write, or telephone for addi
tional information on the air-conditioned, air-
cooled College of higher standards.
COMMERCIAl COLLEGE
Portage Avenue at Edmonton Street
Telephone 926 434
Hugheilar hátíðaróskir
TIL VINA OG VIÐSKIFTAMANNA
Owned and Operated by Spencer W. Kennedy
SELKIRK — MANITOBA
INNILEGAR JÓLA OG NYARSÓSKIR
til vorra mörgu vina
Canada Pacific Hotel
SELKIRK, MANITOBA
W. G. POULTER, eigandi
til Islendinga
cAullan kafjó
Veítan
Fisheries
Keystone
272 MAIN ST
Limited
WINNIPEG
G. F. JÓNASSON, framkvæmdarstjóri
COMPLIMENTS OF THE SEASON
Roberts & Whyte Ltd
SARGENT at SHERBROOK
Phone 27 057
Roanonga iávarður
Eftir Hugh B. Cave
Þegar Kahóhe fann brotna bát-
inn, datt honum það sízt í hug
í fyrstu, hversu þýðingarmikill
sá fundur gæti orðið. Hann hafði
staðnæmst á eyju, sem hét Smá-
ey. Það var örlítil eyja og af því
fékk hún nafnið en var í daglegu
tali oftast kölluð “Moldarhnaus-
inn. Hann hafði verið að leita að
skrautskeljum.
Hann var ekki viss um að hann
fyndi nokkra skel sem nokkuð
væri varið í. Engum hafði nokk-
urn tíma dottið það í hug að leita
á þessum “moldarhnaus”. En
Hann hafði lofað henni Tótí,
unnustunni sinni, fallegum fiski,
og honum hafði gengið illa að
efna það loforð. Ef hann fyndi
fellegar skeljar í hálsband, þá
bætti það úr skák. Það var eins
og augun ætluðu út úr höfðinu
á honum þegar hann fór inn í
dimma helliskútann, og sá þar
gamlan bát. Hann var óhræddur
og klifraði upp í bátinn til þess
að skoða hann. Þegar Banda-
ríkjamenn voru þar og rennislétt
vatnið í Víkinni var haft þar
fyrir lendingarstað flugvéla, þá
hafði hann oft séð þesskonar
báta.
Þessi bátur var orðinn slitinn.
Hliðarnar á honum voru hálfétn-
ar í sundur af ryði. En í bátnum
voru yfir tuttugu tunnur úr
málmi; þær voru svartar og enn
þá Htið skemdar. Undir pallinum
í skutnum voru nokkkrir kassar.
Það leit út fyrir að báturinn
hefði slitnað upp í ofsaroki,
hrakið hingað eða rekið í brim-
róti. Og hér hafði hann legið án
þess að nokkur tæki eftir hon-
um vegna þess að enginn hafði
stígið fæti á Smáey síðan. Opið
inn í hellisskútann hafði verið
hulið með vafningsjurtum.
Kahóhe opnað kassana og fanr.
í þeim ýmsa parta úr flugvél.
Það var góður fundur, en ekki
til mikils gagns fyrir hann. Ekki
gat hann borið þetta á sér til
prýði, það var of þungt til þess,
og ekki gat hann búist við að
eignast nokkurn tíma flugvél.
Hann fór nú að skoða tunn-
urnar. Hann braut gat á þá ryðg-
uðustu og fór inn í það með
höndina. Þegar hann dró hönd-
ina að sér, voru fingurnir blaut-
ir. Hann þefaði af þeim og gretti
sig. Það var þá ólukku gasolía?
Ekki gat hún orðið honum til
mikilla nota!
En nú datt honum samt nokk-
uð í hug.
Þegar hann lenti í aðaleyjunni
fór hann beina leið í gegnum
þorpið og þangað sem No Toes
Rosea átti heima. Það var hinu
megin við illgresis kelduna 4
leirbakkanum við ána. No Toes
var að bæta föt. Kahóhe settist
hjá honum og fór að tala um
fiskiveiðar; hversu lítið veidd-
ist — og svo þessar miklu rign-
ingar, sem hefðu hálf eyðilagt
alla garða. Hann spurði No Toes
hvernig honum liði í fætinum —
Heljar stór skelfiskur hafði
klemt sig utan um hægri fótinn
á honum þegar hann var að busla
úti í voginum. Svo sagði Kahóhe
“Eg hefi verið að hugsa um
nokkuð. Eg ætla að giftast henn
Tótí eins og þú veist, og eg ætti
að gefa henni að minsta kosti
einhverja gjöf, sem hún ætti ek’ki
von á. Ef verðið væri ekki ósann-
gjarnt, þá .gætir þú kannske tal-
að mig upp í það að losa þig við
þennan vélarræfil sem japanski
höfðinginn lét þig hafa.”
“Hvað gæti Tótí gert við báts-
vél?” spurði No Toes.
“Hún gæti haft hana til þess
að sýna vinum sínum. Fyrir
hvað mikið vildir þú selja hana?”
Kahóhe vissi að verðið yrði
býsna hátt, því enginn annar lif-
andi maður í allri Roanonga átti
vél í djúpferðabát. En samt varð
hann steinhissa þegar No Toes
heimtaði fyrir vélina hákarls-
tanna beltið hans og japönsku
byssuna hans, sem þar að auki
var kúlnalaus. En ef vélaróhræs-
ið skyldi svo vera ónýt eftir að
hann hafði borgað þessi ósköp
fyrir hana. En hvað sem öllu
verði leið, gekk hann að kaupun-
um, og No Toes sótti vélina
þangað sem hann hafði falið
hana; hún var ágætlega tilhöfð,
alveg eins og hún hafði verið
þegar japanski höfðinginn gaf
No Toes hana fyrir einhver
leynistörf sem hann hafði unnið
fyrir hann. No Toes hafði fágað
hana alla með cókó olíu og vafið
hana svo með trjáberki. Jafn vel
öll verkfærin í strigapokanum
voru fægð og hrein. Kahóhe fór
kátur og stoltur með vélina sína
á öxlinni þangað sem hann
geymdi bátinn sinn í Víkinni.
Og hann tók tafarlaust til starfa.
Þó hann væri glorhungraður,
skeytti hann því ekki. Hann
hafði lofað því að koma við hjá
Tótí, en steingleymt því.
Þegar nóttin breiddi svarta
vængina yfir eyna og fult tungl-
ið reis upp úr djúpinu, var hann
enn ekki hættur að vinna.
“Já, hvað er nú þetta! Svo þú
ert hér enn!” sagði rödd á bák
við hann. Hann stóð niðri í
sjónum upp í hné og var að festa
vélina í bátinn. Kahóhe leit við
og kinkaði kolli rétt í svip, en
hélt svo áfram að vinna.
“Hefirðu alveg gleymt mér?”
spurði Tóti.
“Eg hefi öðrum störfum að
gegna núna sem stendur,” svar-
aði hann.
Hún hleypti brúnum, öslaði
út í sjóinn og gætti að því hvað
hann væri að gera. Alt sem hann
gerði eða ætlaði að gera, var eða
varð áhugamál hennar.
Hún var að vísu ekki falleg-
asta stúlkan í Roanonga. Þær
allra fegurstu, t. d. hún Oonatsa
dóttir Mannoniks eyjarhöfðingj-
ang og fleiri ,veittu þeim mönn-
um aðeins eftirtekt, sem meira
kvað að en Kahó'he. En Tótí var
skarpgáfuð og hún var vel að
sér. Hún horfði á Kahóhe með
eftirtekt, þar sem hann var að
koma fyrir vélinni í bátnum sín-
um.
“Til hvers er þetta?” spurði
Tótí.
“Þú skalt fá að sjá það á morg-
un”, svaraði Kahóhe.
“Segðu mér það núna”, sagði
hún. Kahóhe benti henni að fara
upp í bátinn og fór sjálfur upp
í hann með henni.
Enginn lifandi maður var á
ströndinni, og hann gætti þess
vandlega að enginn sæi þau áður
en hann legði af stað. Hann fór
út úr víkinni og umhverfis skag-
ann, þar næst fór hann inn í
smærri vík; hinum megin. Þang-
að fór fólkið úr þorpinu örsjald-
an. Honum var ant um vélina
sína. Hann smeygði bátnum inn
í felustað, þar sem enginn gæti
séð hann, sem ekki vissi af hon-
um, hversu bjart sem tunglsljós-
ið væri.
Að því búnu faðmaði hann
Tótí að sér og kysti hana: “Eg
ætla að verða maður með mönn-
um”, sagði hann, og lagði kinn-
ina við vangann á Tótí. Hún and-
aði þungt í faðmi hans. “Þegar
við erum gift verður húsið þitt
stærra en nokkurt annað hús í
allri Roanonga”.
“Eg kæri mig ekkert um
stærra hús en eitt herbergi —
herbergið sem þú ert í”, sagði
Tótí.
“Þú verður upp með þér af
manninum þínum þegar við erum
gift”, sagði hann.
“Eg er upp með mér af þér
núna”, svaraði hún.
Kahóhe lagðist niður í heit-
um sandinum og lét sig dreyma.
Hann vissi að hún elskaði hann.
En hann vissi meira en henni
kom til hugar: Þegar hann væri
orðinn maður með mönnum,
mundi hún elska hann enn þá
meira.
Sólin var rétt að gægjast upp
fyrir sjóndeildarhringinn, þegar
hann kom til Smáeyjar næsta
morgun. Um það leyti var víkin
undrafögur. Eggslétt vatnið
breiddist út eins og himneskt
bros, sem kysti strendur hinna
lágu og grænu eyja.
Kahóhe tók ekki eftir þessari
fegurð; honum var of mikið
niðrifyrir. Það var líka aðeins
fyrir kvennfólk að dást að slíku.
Skyldi vélin hans vinna? Um það
var hann að hugsa. í skugga
helliskútans titruðu á honum
hendurnar þegar hann var að
ausa gasolíunni úr tunnunni og
fylla vélina. Það heltist hiður
hjá honum nokkuð af gasolíunni
og við það varð honum ilt í skapi.
Hann mátti ekki við því að hella
niður eða ónýta nokkuð af þess-
um dýnmæta hita og aflgjafa;
því þegar þessar tunnur væru
tæmdar, var ekkert eftir, nema
ef hann skyldi geta farið eitt-
hvað langt í burtu, þar sem hvít-
ir menn væru enn þá, t. d. til Ab-
ernama eða Aronita.
Hann hélt tungunni á milli
tannanna, tók í strenginn, og —
aðeins ofurlítið bobs; Jæja, það
var þó betra en ekkert. Hann
reyndi aftur — aftur, og aftur:
Við óskum öllum íslendingum
gleðilegra jóla og farsæls nýárs!
Verzlum með allar tegundir af
málningavörum og veggjapappír
Asgeirson's Paints,
Wallpaper and Hardware
698 SARGENT AVE. SlMI 34 322
BEZTU JÓLA- OG NÝÁRSÓSKIR
H O O K E R’S
LUMBER YARD
Phone 74—The Lumber Number
SELKIRK
MANITOBA