Alþýðublaðið - 10.06.1960, Side 3
Ráðuneytið
fylgist með
hneykslinu
Gedda við komu sína til Reykjavíkur. — Guðlaugur Rósin-
kranz (til hægri) tók á móti honum. — (Ljósm. Sv. Sæn.).
Gedda syng-
ur í kvöld
FRÉTT Alþýðubalðsins í gær
um hið nýja frímerkjahneyksli
hefur vakið mikla eftirtekt. —
Hér er um 100 frímerkjasett að
ræða, sem eiga að vera í vörzl-
iim póststjórnarinnar, en hafa
með einhverjum hætti horfið
þaðan. Nú eru þessi sett boðin
til sölu af erlendum frímerkja-
sölum fyrir samtals 150 þús.
danskar krónur, eða sem svar-
ar 825 þúsund íslenzkra króna.
Alþýðuhlaðið átti í gser tal
við Baldur Möller, deildarstjóra
í dómsmálaráðuneyinu, og leit-
aði staðiestingar opinberlega á
þessari frétt.
Baldur svaraði því til, að ráðu
neytið sjálft hefði ekki með
rannsókn þessa máls að gera,
heldur væri hún að mestu leyti
í höndum ríkisendurskoðunar-
i'nnar og póst- og símamála-
stjórnarinnar.
Baldur sagði ennfremur, að
ráðuneytið hefði verið látið
fyigjast með málinu, þótt því
hefði ekki borizt það ennþá
formiega.
Alþýðublaðið hafði einnig
samtoand við Þórð Björnsspn,
settan sakadómara. Hann var
rannsóknardómarinn sem hafði
með að gera hið umfangsmikla
frímerkjamál í vetur.
Aðspurður kvaðst Þórður
aldrei hafa heyrt um þetta nýja
TUTTUGASTI og fimmti Sjó-,
mannadagurinn verður haldinn
hátíðlegur á sunnudaginn kem-
ur. Fánar verða dregnir að hún 1
á skipum í höfninni kl. 8 árdeg-
is, en sala merkja dagsins og
Sjómannadagsblaðsins hefst kl.
9. Klukkan 10 er hátíðamessa
Þær voru
ráðnar
EINS OG menn muna, fóru
fyrir nokkru tvær íslenzkar
stúlkur til Bandaríkjanna á
námskeið hjá Pan American
flugfélaginu. Stúlkur þessar
voru valdar úr stórum hóp is-
lenzkra stúlkna, sem sóttu um
flugfreyjustarf lijá félaginu.
Stúlkur þessar koma heim n.
k. laugardag í vikufríi. Þær
stóðust báðar þau próf, sem þær
gengust undir, og munu nú
brátt hefja starf sitt hjá félag-
inu. Nánar verður sagt frá
þessu seinna í blaðinu.
í Laugnrásbíói, prestur séra
Garðar Svavarsson, en söngkór
Laugarnessóknar syngur undir
stjórn Kristins Ingvarssonar.
**
Klukkan 13,30 leikur Lúðra-
sveit Reykjavíkur sjómanna- og
ættjarðarlög á Austurvelli, þá
verður mynduð fánaborg með
sjómannafélagsfánum og ís-
lenzkum fánum. Útihátíðahöld
hefjast við Austurvöll kl_ 14.
Séra Óskar J. Þorláksson minn-
ist drukknaðra sjómanna; Krist
inn Hallsson syngur. Þá flytja
ávörp af svölum Alþingishúss-
ins: Emil Jónsson, sjávarútvegs
málaráðherra, Hafsteinn Bald-
vinsson, skrifstofustjóri og Eg-
ill Hjörvar ,vélstjóri. Að því
búnu afhendir formaður Full-
trúaráðs Sjómannadagsins, —
Henry Hálfdánarson, Fjalar bik-
arinn. Einnig verða fimm öldr-
uðum sjómönnum veitt heiðurs
merki Sjómannadagsins. Krist-
inn Hallsson syngur einsöng og
LúðrasVeit Reykjavíkur syngur
milli ávarpa.
Sjómannakonur annast kaffi-
• veitingar í Sjálfstæðishúsinu
frá kl. 14. AUur ágóði af kaffi-
sölunni rennur il jólaglaðnings
vistfólks í Hrafnistu.
Að loknum hátíðahöldunum
við Austurvöll hefst kappróður
við Reykjavíkurhöfn. Um það
leyti mun Eyjólfur Jónsson
sundkappi, koma að landi úr
Viðeyjarsundi, þar sem kapp-
róðurinn hefst.
Kvöldskemmtanir verða á
vegum Sjómannadagsins í Breið
firðingabúð, Framsóknarhúsinu,
Alþýðuhúsinu, Silfurtunglinu
og Sjálfstæðishúsinu. Dagskrá-
in verður annars nánar auglýst
í blaðinu á morgun.
Framhald á bls. 10.
HINN frægi óperusöngvari Ni-
colai Gedda kom hingað til
lands í fyrrakvöld. Gcdda mun
syngja hér tvisvar sinnum lilut-
verk hertogans í óperunni „Ri-
goletto“. Gedda syngur í kvöld
og annað kvöld, en óperan verð-
ur sýnd fjórum sinnum.
Gedda, sem er einn eftirsótt-
asti tenórsöngvari í heimi, er
mjög glæsilegur maður. Hann
er 35 ára gamall, og síðan hann
söng fyrst í Stokkhólmsóper-
unni 1952 hefur ferill hans sem
söngvara verið stöðugur frægð-
arferill.
Eftir að Gedda hafði sungið
við Stokkhólmsóperuna nokk-
urn tíma fór hann til Ítalíu og
söng sem gestur við Scalaóper-
una í Mílanó. Síðan fór hánn
til Parísar og söng þar við
Stóru-óperuna. Gedda var fast-
ráðinn við þá óperu í 3 ár, en
þaðan fór hann til Metropolitan
óperunnar í New York, og er
þar nú fastráðinn.
Gedda kann til hlýtar mjög
mörg óperuhlutverk, og getur
sungið og talað á sex tungu-
málum.
Hingað til lands er einnig
komin óperusöngkonan Stina
Britta Melander, en hún syng-
ur hlutverk Gildu í „Rigoletto“.
Stina Britta er öllum íslend-
ingum að góðu kunn, en þetta
er 4. sinn sem hún kemur hing-
að. Stina Britta er fastráðin við
ríkisóperuna í Vestur-Berlín.
'Við hlutverki Gedda í „Ri-
goletto“ mun taka Sven Erik
Vikström, óperusöngvari frá
Stokkhólmsóperunni. Hann er
vel þekktur tenórsöngvari, og
hefur verið fastráðinn hjá óper-
unni í nokkur ár.
10. júní 1960 !3
Sigga Vigga
uNYBYÚJUÐ. OVON £>V/ ENNþA Aí) VERÐA BOFNBLAUT"
Alþýðublaðið —
mál.
25.Sjómannadagur-
inn á sunnudaginn