Alþýðublaðið - 14.06.1960, Page 11

Alþýðublaðið - 14.06.1960, Page 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson. ísfirðingar í I. deild? Sigruðu Þrótt 4:2 MEÐ sigri sínum yfir Þrótti á sunnudagskvöldið í II. deild- inni er ekki ólíklegt að ísfirð- ingar hafi tryggt sér sæti í I. deild næsta ár. Leikurinn í heild var bara allskemmtilegur og var barizt af nokkr.u kappi á báða bóga, enda tilvinnandi að standa sig, skyldi maður halda. Ástæða var til að ímynda sér að Þróttur mundi eiga betri leik en raun varð á, eftir þeim leikjum, sem liðið hefur átt í vor, að vísu voru þeir, Baldur Ólafsson og Þórður Ásgeirsson, ekki með að þessu sinni. í fyrri hálfleiknum, sem lauk með jafntefli 1:1 voru Þróttar- arnir duglegri, en mjög klaufsk ir uppi við markið, skutu yfir af dauðafæri eða veltu knettin- um á undan sér til markvarðar mótherjanna. Loks á 30. mínútu var fyrsta mark leiksins skorað, en það gerði Jens v.innherji Þróttar, eftir mikil mistök ísfirzku varnarinnar, skaut Jens snöggu skáskoti á markið og skoraði óverjandi. Eftir að markið kom hertu ísfirðingarnir sig um stund og sóttu allfast en tókst ekki að skora, þrátt fyrir upplögð tækifæri. Á 43. mínútu hljóp mark- vörður Þróttar fram, en missti Beztir í 5 km. ÞÓ að keppnistímabil frjálsíþróttamanna sé að- eins nýbyrjað, hcfur náðst frábær árangur í mörgum greinum, en einna eftir- tektarverðastur er hann í 5 km. hlaupi og margar nýjar stjörnur hafa kom- izt í fremstu röð. hér eru beztu afrekin miðað við síðustu helgi: Beatty, USA, 13:51,7 Tabori, Ungv.w 13:53,2 Bolotnikov, Rússl., 13:53,8 Halberg, N-Sjál., 13:55,4 Artinjuk, Rússl., 13:55,8 Jefimov, Rússl., 14:03,0 Sjukov, Rússl., 14:03,0 Truex, USA, 14:03,6 Merrimann, Engl., 14:04,4 Power, Ástr., 14:08,2. knattarins, og skot reið að mark inu, en annar tíakvörðurinn komst í markið í tsaka tíð og bjargaði á línu. En mínútu síð- ar jafna þó Ísfirðíngarnir, það gerði v.innherjinn úr sendingu frá Birni Helgasyni. Rétt á eft- ir kemst miðherjinn ísfirzki innfyrir, en vantar skerpu til að fullkomna spyrnu af stuttu fæii. í síðari hálfleiknum eru ís- firðingarnir miklu snarpari. Er 10 mínútur voru af leik sækja þeir fast á, og endar sú sókn með því að v.útherjinn stend- ur einn og óvaldaður fyrir opnu markinu. Hann fór sér að engu óðslega, „lagði“ knöttinn fyrir sig og renndi honum svo í mark ið, örugglega. Þrótti tókst að jafna á 25. mínútu; það gerði Axel Axels- son, með allgóðu skoti utan frá vítateig. Markvörðurinn gerði ítarlega tilraun til að verja, kastaði sér, en náði ekki til knattarins. í fimm mínútur var svo stað- an 2:2, en þá fengu ísfirðingar hornspyrnu og úr henni skall- aði Björn Helgason á markið og skoraði. Þróttur herti sig og reyndi að sækja í sig veðrið um leið og leikur var hafinn að nýju, en þeirri sóknartilrauh var fljótlega snúið á hendur þeim sjálfum, og lauk með 4. mark- inu eftir að Þróttarvörnin hafði hörfað inná markteig og sóknar og varnarleikmönnum lenti þar saman í eina bendu. en v.út- herji ísfirðinga tróð knettinum nánast í Þróttarmarkið. Lið Þróttar í heild var óvenju lint einkum í síðari hálfleikn- um, skorti mjög skerpu og sig- urvilja, að manni fannst. Hvað er orðið af snerpunni og dugn- aðinum frá því í vor? ísfirðingarnir voru fremur óstyrkir framan af og seinir að taka við sér. Þeir áttu að minnsta kosti tvívegis mark- færi í fyrri hálfleik, sem ekki nýttist vegna hiks. En í síðari hálfleiknum var sýnilega kom- inn í þá fullur hugur til að berj- ast og láta ekki hlut sinn að óreyndu o» bað gaf beim sigur- inn, sem var verðskuldaður. EB Tvö heims- met í sundi LEIPZIG, 12. júní (NTB-AFP). Á sundmóti hér um helgina með þátttöku þýzks, ensks og hollenzks sundfólks setti Mar- ianne Heeskerk nýtt heimsmet í 200 m. flugsundi á 2:34,4 mín. Gamla metið, 2:37,0 átti banda- ríska stúlkan Becky Collins. — Hollenzka stúlkan Ria van Velse setti heimsmet í 100. m. baksundi á tímanum 1:11,0 mín. Fyrra metið átti Carin Cone, USA 1:11,4. í þróttafréfti r í STUTTU MÁLt MOSKVA, 12. júní (NTR-AFP). 'Vladimir Gorev frá Minsk sigr- aði í þrístökki á móti í dag. Hann stökk 16,43 m., en annar STÚLKAN er bandarísk heitir Christine von Saltza og er ein af beztu sundkönum heimsins. Christine er aðeins 16 ára, en þó gei'a Bandiaríkjamenn sér miklar vonir með hana í Róm í 100 og 400 m. skriðsundi. Það er þjálfari Christine. George Haines, ^ var® Vitold Kreer, 16,39 m. — Viktor Bolchov stökk 2,15 m. í hástökki og Bukhantzev kast- aði kringlu 56,24 m. sem stendur á bakkanum. W3im Samkv, símtali við fréttarit- ara Alþ.bl. á Akureyri: Á SUNNUDAGINN var báru Akureyringar glæsilegt sigur- orð af Keflvíkingum í leik þeirra í Knattspyrnumóti Is- lands, sem fram fór á Akur- eyri. Sigruðu heimamenn með þr.emur mörkum gegn einu. 'Veður var gott er leikurinn fór fram og áhorfendur fjöl- margir. Áður en leikurinn hófst lék lúðrasveit Akureyrar og Ármann Dalmannsson formað- ur íþróttabandalagsins flutti stutta ræðu, þar sem hann bauð Keflvíkingana velkomna til leiks jaínframt því sem hann gat þess að þetta væri fyrsti leikurinn, sem leikinn væri í knattspyrnumóti íslands á Ak- ureyri og fyrsti leikurinn af fimm fyrirhuguðum, sem fram ætti að fara á Akureyri í mót- inu á þessu keppnistímabili. í leikbyrjun var fyrirliða Kefl- víkinganna, Hafsteini Guð- mundssyni, færður blómvönd- ur. Dómari leiksins var Jör- undur Þorsteinsson. —□— Áður en 15 mínútur voru af leiknum höfðu Akureyringar skorað bæði þau mörk, er þeir gerðu í fyrri hálfleiknum. Það fyrra kom á 2. mínútu, upp úr snöggri sókn þar sem framherj- arnir léku í gegnum vörn Kefl- víkinganna örhratt og skoraði Steingrímur Björnsson h.inn- herji með allgóðu skoti af stuttu færi. Síðara markið gerði Steingrímur einnig, á 14. mínútu úr hornspyrnu, var því nánast potað inn. Á 25. mínútu skora svo Kefl- víkingarnir þetta eina mark sitt í leiknum, Skúli Skúlason v, útherji gerði það, með fall- rgu skoti. Um miðjan síðari hálfleik bættu Akureyringar þriðja markinu við. Það kom og eftir hornspyrnu og skoraði Stein- grímur það einnig. Lauk leikn- um með 3:1 fyrir Akureyri, eins og fyrr segir. í síðari hálfleiknum fengu Akureyringar vítaspyrnu, en skotið var nær beint á mark- vörðinn og varði Heimir örugg lega. Leikurinn var hinn fjörug- asti og allharður á köflum. Ein- um leikmanna Keflvíkinganna, Gunnari Albertssyni v.bakverði var vísað úr leik án þess að dómarinn gæfi honum áminn- ingu áður. Framhald á 14. síðu. NEW YORK, 12. júni (NTB- REUTER). Á frjálsíþróttamóti í dag sigraði Tom Murphy í 880 yds á 1:48,2 mín., sem cr hans bezti tími. — Á móti í Baltimore sigraði Nick EIIis í 440 yds hlaupi á 46,4 sek. og 18 ára piltur Harry Stoke varfj annar á 47,5 sek. LILLEHAMMER, 12. júní (NT B). Bezti árangur á frjálsíþrótta móti í dag: Reidar Hagen sigr- aði í kringlukasti 50,04 m. Jak- ob Kjersem í 5 km. 15:20,8 og Jakob Rypdahl í langstökki 6,' 88 m. — í Voss sigraði Helge Svaar í 200 m. á 22 sek. og1 Martin Jensen í þrístökki 14,19 m. Guðmundur náði OL-lásmarkinu Á SUNNUDAGINN fór fram úrtökumót í sundi í Sundhöll Reykjavíkuv. — Náðist góður árangur. Guðmundi Gíslasyni, IR, tókst að synda undir OL- lágmarkstíma í 100 m. skrið- sundi, fékk Guðmundur tímann 58,7 sek. í 33% m. laug, sem er ágætt aírek. Annar í sund- inu varð Þorsíeinn Ingólfsson, ÍR, 1:04,1 mín., hans langbezta afrek. Sigurður Sigurðsson, Akra- nesi, sigraði í 200 m. bringu- sundi á hinum frábæra tíma, 2:45,3 mín., sem er aðeins 1,3 sek. lakara, en lágmarkið í beirri grein. Annar varð Einar Kristinsson, Á, 2:50,9 mín. í 100 m. skriðsundi kvenna fékk Ágústa Þorsteinsdóttir ,Á, tímann 1:07.0 mín., sem er 0,5 sek. undir OL-lágmarkinu, er það í annað sinn, sem hún næi1 betri tíma en lágmarkið-er. —. Loks synti Hrafnhildur Guð- mundsdóttir, ÍR, 200 m. bringu- sund á 3:03,9 mín., en það er 3,9 sek. lakara en OL-lágmark- ið. Bæði Sigurður og Hrafn- hildur hafa möguleika á að ná s lágmarkstímunum, þó sérstak- lega Sigurður. —□— Til þessa hafa tveir frjásis- íþróttamenn náð lágmarkskröf- um, þeir Vilhjálmur Einarsscn i og Valbjörn Þorláksson. Reikna má með að 7 til 10 íslenzkir íþróttamenn og konur nái þeim I lágmarkskröfum, sem settar hafa verið, en getur Olympíu- I nefndin sent allt það íþrótta- I fóJk og ef ekki, hvað gerir hún- ( þá? Einnig má búast við 4 til , 5 farastjórar fari til Rómar. Alþýðublaðið — 14. júní 1960 JJ,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.