Alþýðublaðið - 14.06.1960, Síða 14
Kongo
Framhald af 16. síðu.
Átökin í Kongó eru á milli
ungra þjóðernissinna og ætt
arhöfðingjanna. Þjóðernis-
sinnarnir óska eftir sterku
ríki og sameinuðu eins og
í Ghana, en ættax-höfðingj-
arnir vilja að ættflokkarnir
séu aðeins laust tengdir, —
svipað og er í Nigeríusam-
bandinu.
Ættarhöfðingjarnir eru
fastastir í sessi í tveimur
mikilvægustu héruðum Kon-
go, Katanga og Neðra-Kon-
gó. Ríkið fær ekki staðist
nema bæði þessi svæði standi
að því. í Neðra-Kongó nær
Leopoldvilie til sjávar og
þar er helzta akuryrkjubelti
landsins, í Neðra-Kongó er
atkvæðamesti maðurinn Ka-
sabuvu, hinn ókrýndi kon-
ungur Bakongoættflokks-
ins, en hann áttí stærstan
þátt í óeirðunum, sem leiddu
til sjálfstæðis Kongó.
Kasabuvu er merkilegur
maður á margan hátt. Hann
er sonur kínversks verka-
manns en móðir hans var
af ættflokki Bakongo. Hinn
stórj draumur hans er að end
urreisa hið forna Bakongo
konungdæmi, sem á sínum
tíma náði yfir Belgíska Kon-
go, Angola og Franska Kon-
go. Kasabuvu gekk í skóla
hjá Jesúítum og nam heim-
speki og fornmálin. Hann er
tortrygginn í garð Belgíu-
manna og óttast að þeir ætli
sér að hafa hönd í bagga með
stjórn landsins eftir að það
fáer sjálfstæði, enda verður
herstjórnin og flest opinbera
í þeirra höndum um sinn.
Helzti bandamaður Kasa-
buvu er Tshombe, sem vann
mikinn kosningasigur í náma
héraðinu Katanga þaðan,
sem 64 prósent af þjóðar-
tekjunum koma. Hann er
vellauðugur og áhrifamikili,
mikill vinur Belgíumanna
þrátt fyrir stuðningin við
Kasabuvu. Þeir tvímenning-
arnir hafa lítil áhrif utan
héraða sinna.
Leiðtogi hinna æstu þjóð-
ernissinna er Lumumba, for
ingi stærsta stjórnmálaflokks
landsins. Hann er mikill að-
dáandi Nkrumah í Ghana og
leitar oft stuðnings hjá hon-
um. Belgíumenn höfðu Iengi
álit á LumUmba en nú er það
úr sögunni.
Belgíumenn eru milli
tvggja elda, og takist ekki
að fá sterka stjórn. í Kongó
er landið hlýtur sjálfstæði
I eftir tvær vikur, má búast
við átökum milli hinnía
tveggja andstæðna, Kasa-
buvu og Lumumba þaðan en
langt um líður.
ÍÞRÓTTIR
Frh. af 11. síðu.
Bezti rAaðurinn á vellinum
var Hafsteinn Guðmundsson
miðframvörður Keflvíkinga,
sérlega öruggur og traustur,
rólegur og æðrulaus á hverju
sem gekk. í liði Akureyringa
var miðframvörðurinn Jón Stef
ánsson beztur. Dómari var, eins
og fyrr segir, Jörundur Þor-
steinsson, úr Reykjavík. Var
hann heldur óákveðinn framan
af, en sótti sig verulega, er á
leikinn leið.
Kvennaskólinn
Framhald af 4. síðu.
skólanum gjafir og óskuðu hon
um allrar blessunar.
Frú Þuríður Hjörleifsdóttir
mælti' fyrir hönd þeirra, er
brautskráðust fyrir 10 árum.
Færðu þær Systrasjóði minn-
ingargjöf um látna skólasyst-
ur sína, frú Sólveigu Ólafs-
dóttir, er lézt 15. marz 1957.
Fyrir jólin í vetur höfðu
nemendur 4. bekkjar C, er
brautskráðust 1954, fært skóia
sínum að gjöf vandað os gott
segulbandstæki.
Þakkaði forstöðukona eldri
nemendum alla þá vináttu og
hlýhug og þá tryggð, sem þeir
hefðu alla tíð sýnt skóla sín-
um.
Verðlaun úr Minningarsjóði
frú Þóru Melsted hlutu Jóh-
anna Sigursveinsdóttir, 4.
bekk Z og Gerður Ólafsdóttir,
4. bekk C. Eru þau veitt fyrir
ágæta ástundun og glæsileg-
an áarngur við bóklegt nám
og eru siliurskei'ð með merki
skólans á skaftinu. Eru þetta
virðulegustu verðlaun er skól-
inn úthlutar. Verðlaun fyrir
mest og bezt afrek í fatasaumi
úr Verðlaunasjóði frú Guð-
rúnar J. Briem hlaut Sigur-
laug Indriðadóttir, 4. bekk C.
Verðlaunin voru áletraður si'lf
urspaði. Verðlaun úr Thom-
senssjóði fyrir beztan árangur
í útsaumi hlaut Margrét Sig-
ursteinsdóttir í 2. bekk C. Elli-
og hjúkrunarheimiðil Grund
vei'tti námsmeyjum Kvenna-
skóalns verðlaun. Var það ís-
lendinga saga Jóns Jóhannes-
sonar veitt fyrir beztu íslenzku
prófritgerðina á lokaprófi. —
Guðrún Valdís Óskarsdóttir, 4.
bekk Z hlaut þau verðlaun.
Námsstyrkjum var úthlutað
til efnalítilla stúlkna í lok
skólaársins, úr Systarsjóði
námsmeyja 10.000.00 kr., —
Styrktarsjóði hjónanna Páis
og Þóru Melsted 1500.00 kr.
og úr sjóðnum Kri'stjönugjöf
2000.00 kr. AIIs 13.500.00 kr.
Að lokum ávarpaði forstöðu
kona stúlkurnar, sem höfðu
brautskráðst og óskaði þeim
gæfu og gengis.
Lánuö og jbó
Framhald af 3. síðu.
halda, að fréttatilkynning
póst- og símamálastjórnar-
innar hefði verið betur ó-
skrifuð, nema þá þrír fyrstu
liðirnir um talrásirnar. Hvað
snertir frímerki verkfræð-
ingsins eru skýringarnar
loðnar og jafnvel tvísaga.
Samt verður séð á tilkynn-
ingunni, þegar hún er lesin
ofan í kjölinn, að verkfræð-
ingurinn hefur fengið frí-
mcrkin sem greiðslu, enda
viðurkennt, að hvergj stend-
ur að þau hafi verið lánuð.
Breytir engu í því efni, þótt
nú sé svo komið, að einhver
vildi heldur að þau væru
komin að láni í hendur verk-
fræðingsins.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma
GUÐRÚN KRISTVEIG DANÍELSDÓTTIR,
Bústaðaveg 77, sem andaðist í Landspítalanum 8. júní, verður
jarðsungin frá Fossvogskikju, miðvikudaginn 15. júní kl. 10,30
f. h. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Bergsteinn Guðjónsson, börn, tengdabörn og barnabörn.
þökkum auðsýnda saroúð og vinarhug við andlát og út-
för
ÞORSTEINS ÞÓRÐARSONAR, Stýrimannaskólakennara
Sérstakar þakkir til skólastjóra og kennara stýrimannaskól-
ans, vina og vandamanna.
Stella Eyvindsdóttir Lilja Þorsteinsdóttir
Heiða Þorsteinsdóttir Elisa Þorsteinsdóttir
Eygló Þorsteinsdóttir Emilía Davíðsdóttir
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
GUNNARS SIGURÐSSONAR, múrara.
Margrét Ketilsdóttir, börn og tengdabörn.
tB/EBBL2BSB3BB8KnEBBB3S3B3EBðSBBSBií2SS53BSEBSM3SBBBUEtBB3SU3n3MSXn^mUEES3Xí*i*2B!EKSfBfaB5X3B3BSS23^EEttSnn3BI
J.4 14. júní 1960 — Alþýðublaðið
Slysavarðstoían
er opin allan sólarhringinn.
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 18—8. Sími
15030.
o----------------------o
Gengin. Kaupgengi.
1 sterlingspund .... 106,65
1 Bandaríkjadollar .. 38,00
1 Kanadadollar .... 39,93
100 danskar kr......551,40
100 norskar kr...... 532,80
100 sænskar kr...... 734,70
100 vestur-þýzk mörk 911,25
o-----------------------o
Silungsveiðimenn,
kastið ekki girni á víða-
vang. Það getur skaðað bú-
smala. — Samband Dýra-
verndunarfélags íslands.
ur. Tröllafoss fer frá Hull 14.
6. til Antwerpen og Hamborg
ar. Tungufoss fór frá Vest-
mananeyjum 10.6. tii Árhus,
Kmih. og Svíþjóðar.
Jöklar h.f.:
Drangajökull er í Oslo. —<
Langjökull er væntanlegur
til Akureyrar í kvöld. Vatna-
jökull fór í gærkvöldi frá R-
vík til Hornafjarðar.
Hafskip:
Laxá er á leið til Kork á
írlandi
Brúðkup: — 4. júní voru gef-
in saman í hjónaband af sr.
Jóni Thorarensen: Ungfrú
Halla Hallgrímsdóttir, Kárs
nesbraut 58, Kópavogi og
hr. Örn Harðarson, Borgar-
holtsbraut 47, Kópavogi. —
iHeimili þeirra verður á
Kársnesbraut 58, Kópavogi.
L* *
K-MC-
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilandaflug:
Hrímfaxi fer
til Glasgow og
Kmh. kl. 08.30
í dag. Væntan-
leg aftur til R-
víkur kl. 22.30
í kvöld.. Inn-
anlandsflug: —
í dag er áætl-
að að fljúga til Akureyrar (3
ferðir), Egilsstaða, Flateyrar,
ísafjarða-r, Sauðárkróks, Vest
mannaeyja_ (2 ferðir) og Þing
eyrar. — Á morgun er áætl-
að að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Egilsstaða, Héllu
Hornafjarðar, Húsavíkur fsa-
fjarðar, Siglufjarðar og Vest-
mannaeyja (2ferðir).
Iæftleiðir h.f.:
Edda er væntanleg kl. 19.00
frá Hamborg, Kmh. og Gtb.
Eer til New York kl. 20.30.
Skipaútgerð
ríkisins;
Hekla er væntan-
leg til Bergen í
dag á vesturleið.
Herðubreið er á
Austfjörðum á
suðurleið. Skjaldbreið er í
Rvk. Þyrill fór frá Rvk 11.
þ. m. áleiðis til Wismar. —
Herjólfur fer frá Vestmanna-
eyjum kl 21 í kvöld til Rvk.
Baldur fer frá Rvk í dag til
Sands, Gilsfjarðar- og
Hvammsfjarðarhafna.
Eimskipafélag íslands h.f.:
Dettifoss fer frá Ventspils
12.6. til Hamina og Lenin-
grad. Fjallfoss fór frá Kefla-
vík 10.6. til Rotterdam og
Rostock. Goðafoss fer frá R-
vík kl. 12.00 á morgun 14.6.
til Akureyrar og Eskifjarðar.
og þaðan til Hamborgar. —
Gullfoss fer frá Leith í dag
13.6. til Rvk. Lagarfoss fór
frá New Yorlc 7.6. til Rvk.
Reykjafoss fór frá Rotterdam
11.6. til Rvk. Selfoss fer frá
Vestmannaeyjum í kvöld 13.
6 til Akraness og Keflavík-
Frá Guðspekifélaginu: Þátt-
takendur í sumarskóla Guð
spekifélagsins komi í Guð-
spekifélagshúsið og greiðl
skólagjald, kr. 125.00, —
þriðjudaga, miðvikudaga
eða fimmtudaga kl. 5-7 síð-
degis, eða láti vita. Æski-
legt er að geta greitt, án þess
að þurfi að skipta.
Kvenfélag Háteigssóknar hef-
ur hina árlegu kaffisölu í
Sjómannaskólanum sunnu-
daginn 19. júní. Safnaðar-
konur, sem hafa hugsað sér
að gefa kökur eða annað til
kaffisölunnar eru vinsam-
lega ibeðnir að koma því í
borðsal skólans á laugardag
kl. 4-6 eða fyrir hádegi á
sunnudag.
Síðasta gróðursetningarferð
Ferðafélags íslands í Heið-
mörk á þessu vori er í kvöld
(þriðjudag) Farið verður
frá Austurvelli kl. 8. Félag-
ar og aðrir, ungir og gaml-
ir, fjölmennið í gróðursetn-
ingarferðina og njótið veð-
urblíðunnar í Heiðmörk í
kvöld. Ferðin er ókeypis.
Tilkynning frá Tæknibóka-
safni IMSÍ. — Yfir sumar-
mánuðina frá 1. júní til 1.
sept. verður útlánstími og
lesstofa safnsins opin frá kl.
1-7 e. h. alla virka daga
nema laugardaga kl. 1-3 e.h.
Þriðjudagur
14. júní;
12.55 „Á ferð og
flugi“: Tónleikar
kynntir af Jónasi
Jónassyni. 20.30
Frá vettvangi
starfsfræðslunnar
erindi — (Ólafur
Gunnarsson sálfr)
20.55 Kórsöngur:
Karlakórinn
„Þrymir“ frá
Húsavík syngur.
Söngstjóri: Sig-
urður Sigurjónss.
21.30 Útvarpssagan: „Alexis
Sorbas“. 22.10 íþróttir. —
22.25 Lög unga fólksins —
(Kristrún Eymundsdóttir og
Guðrún Svavarsdóttir). 23.20
Dagskrárlok.