Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.10.1890, Blaðsíða 1
Verð árft. (minnst 30
arka) 3 kr.; í Amer.
1 cloll. Borgist fyrir
miðjan maimánuð.
^\>VIU/4V
V 5. árg. •
Uppsögn skrifleg, o-
gild nema komin sé
til útgefanda fyrir 1.
dag júnímánaðar.
Nr. 4—5
ísafirði, föstudaginn 31. október.
1 8 9 0.
P Ó S T Á V í S A N A M Á L I Ð
no*
uo
m e i s t a r i E i r i k u r Magnússon.
—:o:—:o:o:—:o:—
Til þessa liöfum vér að heita má setið
hj<i, og hlýtt á mál manna i póst-ávísuná-
málinu; en mál petta er nú komið í pað
liorf, að oss hefir þótt rétt uð opna blað
vort fyrir umræðum um pað, og reka til
þess ýmsar ástæður.
Sú er hin fyrsta, að vér álítum, að mál-
efni þetta sé svo alvarlegt og mikils varð-
andi, að skylt sé blaðamönnum að ræða
það ítarlega, og benda á, hverir vegir séu
likastir til að firra landið peim voða, er
óneitanlega getur staðið af þeirri, að oss
virðist, ólöglegu uppáfundningu landstjórn-
arinnar, að leyfa að taka íslenzka banka-
seðla sem gilda borgun fvrir póst-ávísanir.
Vér köllum þessa uppfundningu ólöglega,
af því að það þarf ekki nema óbrjálaða
algenga skynsemi, til að sjá, að það er
lierfileg mótsögn, að segja seðla bankans
óinnleysanlega, eins og bankalögin gera,
en skylda þó landssjóðinn til að innleysa
þá með gull- eða silfur-mynt, ef menn að
eins eigi fara til bankans sjálfs, heldur
sinjúga inn um bakdyrnar, fara til póst-
meistarans og lieimta pöstávísun til út-
landa.
Að þetta fyrirkomulag, — að þessi
landsstjórnarinnar sanna „bankadella“ —
geti orðið sjálfstæði lands vors hættulegt,
er í augum opið, hvernig svo sem reptiliu-
blöðin leitast við að bera í bætifláka fyrir
þetta óhönduglega óhappaverk stjórnar-
innar.
Árleg pást-ávfsana-upphæð verður eigi
fast-ákveðin; hún fer eptír mismunandi
viðskiptaþörf manna; en í hvert skipti, er
póst-ávisanir eru keyptar á póststofunni í
Reykjavík fyrir íslenzka bankaseðla, borg-
ar ríkissjóðurinn danski út áþekka uppluwð
i rikismynt; og svo framarla sem tekjur
landssjóðs þær, sem greiddar eru í Dan-
jnörku, — og það. sem hér á landi kann \
að vera greitt fyrir ríkissjóðs hönd — eigi }
nemur þeirri upphæð, er ríkissjóður hefir ;
greitt fyi'ir seðla-ávisanir, þá kemst lands-
sjóður i skuld við ríkissjóðinn, er ríkissjóð- |
urinn auðvitað gftur heimtað, hvenær sem
vera skal, og tjáir þá lítið. þó að lands- i
sjóður hafi gnótt banka-bleðla frain að j
vísa, með því að þeir eru óinnleysanlegir
og einkis virði í útlöndum.
En sé skuldaklafinn drepandi fyrir frjáls-
ræði einstaklingsins, mun þá seðla-skuld
lands vors við ríkissjóð Dana, er ganga
má að í dag eða á morgun, hentari þjóð-
frelsi voru? —
|>að rekur oss annað til að taka mál-
efni þetta á dagskrá blaðs vors, að vér j
fyrirverðum oss þjóðar vorrar vegna fyrir
þá ódrengilegu og auðvirðilegu aðferð, er
hérlend blöð liafa beitt við meistara Eirík
Magnússon, einn af landsins mestu og
fremstu sonum fyrir margra hluta sakir;
slikur maður á það vissulega skilið, að til- j
j lögum hans og ummælum um landsmál sé
öðruvísi tekið, en með skönnnum og fjös-
reku-slettum, eins og Odda-, eða víkverska
oddborgara-blaðið, og ,,þjóðólfur“ liafa
látið sér sæma. —
|>að er hið þriðja, að blöð Islendinga í
Vesturheimi, „Heimskringla“ og „Lögberg“,
hafa hafnað meistara Eiríki Magnússyni,
að láta frekar til sín heyra, og verja sig
og sinn málstað, í þeim blöðurn, eptir að
þau hafa meðtekið þenna merkilega sendil
hér heiman að, endileysu-Jón og Gest
vorn Pálsson, sem annars er drengur
góður, en ætti að vera í pólitisku bind-
indi.
Af öllum þessum rökum, er nú voru
talin, mun „|>jóðviljinn“ flytja greinar um
póst-ávísana-inálið frá meistara Eiriki Magn-
lissyni við og við.
ÚTLENDAR FEÉTTIR
—:o:o:o:—
FRÁ ÚTLÖNDUM eru fáar nýjungar;
kveður mest að verkfölluin verkmannalýðs-
ins, sem uú mega heita daglegt brauð;
þannig geta síðustu útlend blöð um verk-
fall vagnstjóra í Sidney í Australíu; tið-
rætt er og um verkfall í Southampton á
Englandi, er valdið liafa þvi, að skip hafa
eigi orðið fermd þar eða affermd um lang-
an tíma, og enn liafa verið verkföll á
jpýzkalandi og víðar. En bæði í Bryssel
og í Liverpool hafa fnlltrúar frá verk-
mannalýðnum setið á ráðstefnu, til að ræða
ráðum sínum um það, hverra bragða skuli
leitað til að bæta hag verkmannalýðsins,
og hvort beitt skuli að eins löglegum með-
ulum eða biltingaráðum.
Ekki linnir enti óánægjunni og æsingun-
um á írlandi, og 18. sept. lét Balfour
ráðherra taka fasta þá Dillon, W. O. ’Brien
og 8 aðra þingmálagarpa írska fyrir æs-
ingaræður; mælast þær tiltektir ráðherrans
mjög illa fyrir hjá frjálslynda flokknum ;í,
írlandi, og hefir Balfour því séð það ráð-
legast að sleppa þeim aptur úr varðhaldi
gegn veði.
f>ýzkalandskeisari er enn á sama ferða-
flakkinu, og hefir nú síðast farið til fundar
við Rússakeisara og Austurríkiskeisarann.
KIRIvJULEO HREIFINO.
—:o:o:o:—
Héraðsfundur Eyfirðinga, er haldinn var
á Akureyri 9. sept. þ. á., hreifði því niáli,
að æskilegt væri, að breytingar væru gerð-
ar á ýmsum kirkjusiðum hér á landi, eink-
anlega að því er hjónavígslur snertir, svt>
sem að sleppa úr og breyta að ýmsu leyti
spurningum þeim, er lagðar eru fyrir brúð-
hjónaefnin, og bibliuþulum þeim, sem lesn-
ar eru við það tækifæri; kaus héraðsfund-
urinn 3 mannanefnd: séraMattlfias Joch-
umsson, Eggert faktor Laxdal og séra