Alþýðublaðið - 21.06.1960, Blaðsíða 3
SÍÐAN lögin um hús-
næðismálastjórn og hið
almenna veðlánakerfi
voru sett vorið 1955, hef-
ur stofnunin ráðstafað
um 250 milljónum króna
til húsbygginga,. að því
er Eggert Þorsteinsson
upplýsti í útvarpsávarpi
í gærkvöldi. Af þessari
upphæð hefur verið lán-
að til 3512 íbúða samtals
235.762.000 krónur, en
ráðstafað til bæjar- og
sVeitarfélaga vegna út-
rýmingar heilsuspillandi
íbúða 14,6 millj. króna.
Eggert lýsti starfsemi hús-
næðismálastjórnar og benti á
ýmsar deildir aðrar en lána-
starfsemina, t. d. teiknistofu.
Eru nú 279 hús í landinu byggð
eftir teikningum frá húsnæðis-
málastjórn, en þar eru fvrir-
liggjandi 50-60 mismunandi
teikningar af íbúðum. Þá rakti
Eggert ýmis atriði varðandi lán
veitingar og gaf þeim, sem
þurfa að sækja til stofnunar-
innar, ýmsar ábendingar.
Eggert skýrði meðal ann-
ars frá því. að samkvæmt
skýrslu gerðri af starfsmanni
tæknihjálpar Sameinuðu þjóð
anna, er hér hefur dvalizt um
Innan við 150
fóru alla leið
KEFLAVÍKURGANGAN svo-
nefnda hófst um klukkan 7.50
f. h. sl. sunnudag við hliðið á
Keflavíkurflugvelli og var
gengið eftir þjóðveginum til
Reykjavíkur. Einar Bragi flutti
stutt ávarp áður en gangan
hófst. ,
Hinn opi'nberi tilgangur göng
unnar var að mótmæla varnar-
liðinu á íslandi. Leiðina frá
Keflavík til Hafnarfjarðar
gengu innan við 150 manns, en
margir bættust við í Hafnar-
firði og lögðu þaðan á fjórða
hundrað þátttakendur til
IReykjavíkur.
Áætlunarbifreiðir voru í ferð
um á milli göngunnar og Reykja
víkur og bættu fólki vi'ð í göng-
una og tóku þá sem þreyttir
voru til baka. Ymsir gengu þó
alla leiðina, t. d. Sigurður
Guðnason, sem var elztur göngu
manna (73 ára), Magnús Kjart-
ansson ritstjóri og Geir Gunn-
arsson, sem var ei'ni þingmaður
inn, sem þátt tók í göngunni.
Lögregluiþjónar á mótorhjól-
um og Iþifreiðum fylgdust með
göngufólkinu og reyndu að
liðka fyrir umferðinni. Göngu-
fólkið fékk hressingu á leiðinni.
í Kúagerði hafði verið tjaldað
stóru hermannatjaldi, þar sem
veitingar fengust fyrir þátttak-
endur.
Á veginum milli Hafnarfjarð
ar og Reykjavíkur bættust marg
ir í gönguna, einkum í Kópa-
vogi. Umferðarþröng mikil
skapaðist, því fólk þyrptist að í
ibifreiðum til að virða þátttak-
endur fyrir sér. Ferðir strætis-
vagna fóru úr skorðum og olli
það fólki töfum og leiðindum.
Þegar Keflavíkurgangan kom
til Reykjavíkur, var settur úti'-
íundur við Miðbæjarskólann og
þar flutt ávörp og peningum
safnað til að standa straum af
kostnaði. Margt manna kom
þar saman.
Það vakti mikla athygli við
Keflavíkurgönguna, að fæstir
þeir sem höfðu hvatt tU hennar
tóku þátt í henni, nema þá stutt
an spöl.
nokkurra mánaða skeið, væru
íslendingar meðal þeirra
þjóða, sem mest óhóf eða ó-
hagsýni hafa um nýtingu í-
húðahúsnæð's. Hins vegar er
það hlutfall þjóðarteknanna,
sem lagt er til íbúðabygginga,
mjög hátt hér á landi.
Heiðursfé/agi
Verkfræð-
ingafélagsins
STEIN GRÍMUR JÓNSSON,
rafmagnsstjóri, var kjörinn
he'ðursfólagi Verkfræðingafé-
lags íslands á sjötugsafmæli
sínu 18. þ. m.
Stjórn VFÍ heimsótti hann á
afmælisdaginn. Formaður fé-
lagsins, Jakob Gíslason, raf-
orkumálastjóri, flutti Stein-
grími Jónssyni ávarp og af-
henti honum síðan heiðursfé-
lagsskjal svohljóðandi:
„Verkfræðingafélag íslands
hefur kjörið yður, herra Stein-
grímur Jónsson, rafmagns-
stjóri, heiðursfélaga sinn í við-
i urkenningarskyni fyrir langt
og heillaríkt brautryðjanda-
starf vi ðrafvæðingu landsins,
forgöngu og stuðning við
fjölda verklegra og vísinda-
legra frámfaramála og framlag
yðar til íslenzks tækni- og vís-
indamáls“.
Jafnframt var Steingrímur
Jónsson sæmdur merki félags-
ins í gulli.
j Rigolefto
i
síðasta sinn
ÍC NÚ ERU aðeins eftir
tvær sýningar á óperunni
Rigoletto og verða þær í
kvöld og annað kvöld. —
Rétt er að geta þess að
verð aðgöngumiða á Rigo-
Ietto er venjulegt óperu-
verð eða kr. 55-125, eft-
ir því hvar miðarnir eru.
Myndin er af hinum
þekkta hljómsveitarstjóra
Dr. V. Smetácek frá Prag,
en hann stjórnar eins og
kunnugt er sinfóníuhljóm
sveitinni, sem leikur und-
ir.
Nýr Víðir II.
væntanlegur
SANDGERÐI, 20. júní. —
Allir bátar héðan eru farnir
norður á síldveiðarnar, nema
hinn nýi Víðir II, sem er vænt-
anlegur hingað um næstu helgi.
Er hann 140 tonn'a stálbátur,
sem Guðmundur Jónsson, út-
gerðarmaður á Rafnkelsstöðum,
á í smíðum í Noregi.
Víðir II. kemur hér við til að
taka nótina, en fer síðan beint
norður á síldina. Hluti áhafnar
gamla Víði's II. er að sækja bát-
inn, en fer öll yfir á nýja bát-
inn. Skipstjóri er Eggert Gísla-
son.
Gamli Víðir II. hefur verið
skírður Freyja. Skipstjóri' á
honum er Sigurður Bjarnason
frá Sandgerði. Freyja er 50—60
tonna bátur, sem kunnugt er.
Hefur báturinn tvisvar komið
inn með síld og var búinn að fá
800 mál í gærkvöldi.
Þegar Víðir n. er komi'nn, á
Guðmundur á Rafnkelsstöðum
þrjá báta, en hann missti einn
í fyrra, Rafnkel, eins og mönn-
um er í fersku minni. Fjórða
bátinn á Guðmundur nú í smíð
um í Þýzkalandi.
Ó. V.
Alþýðublaðið — 21. júní 1960 ^