Alþýðublaðið - 21.06.1960, Síða 14
Framh. af bls. 13.
sama fordæmi og er svipað
sniðin. Margaretha von Bahr
er gjæsileg dansmær og túlk-
un hennar er fullgild, listræn
og minnisverð. Frank Schauf-
uss er einnig á réttum stað í
hlutverki Jeans, sem hann
dansar af karlmannlegum
þrótti og öryggi 0g glögglega
lýsir hann einkennum bessa
unga manns, sem vill koma
sér áfram og upp í þjóðfélag-
inu, þjóninum, sem hefur tam
ið sér að svara með frönskum
kurteisisorðum, en þó skín
alltaf í barbarann undir niðri.
Þriðja aðalhlutverkið er Krist
ín, unnusta hans. Okkur hlotn
aðist sá sjaldgæfi heiður og
ánægja að sjá Birgit Cullberg
sjálfa dansa það hlutverk, —
eins og hún gerði fyrir tíu ár-
um, þegar leikdansinn var
fvrst sýndur. Túlkun hennar
er heilsteypt og kímileg og
hún er meiri alþýðustúlka en
þær dansmeyjar aðrar, sem ég
hef séð fara með þetta hlut-
verk. Og það skiptir máli fyrir
andstæðurnar í dramanu —
Gunnar Randin frá Stokk-
hclmi lýsti aðalsmanninum
unnusta Júlíu af gamansamri
illkvittni.
Það væri gaman að hafa hér
langa útleggingu á þessu at-
hyglisverða verki, en þess er
ekki kostur. Þeim sem áhug-
ann hafa skal bent á formála
'Strindbergs að leikriti sínu
og eitthvert yfirlitsverk til
samanburðar, þar sem ballett
inum eru gerð skil, t. d. í Ball-
ets 0f today eftir Cyril Beau-
mont.
Fröken Júlía er aðalatriðið
í þessari listdanssýningu, sem
Þjóðleikhúsið gengst fyrir. —
Fyrir hlé voru sýnd sundur-
laus brot úr ýmsum ballett-
um og af efnisskránni fékk
maður þarm illa grun, að hér
hefði verið unnið að of skipu-
lagslaust og á síðustu stundu
(Ljósbeiting í síðasta þætti
Fröken Júlíu, smámistök hér
og hvar t. d. með tjaldið í lok
hlöðuatriðsins og píanóundir-
leikur Magnúsar Bl. Jóhanns-
sonar sagði manni, að æfingar
hefðu verið of fáar, íslenzku
dansmeyjarnar stóðu sig hins
vegar öllum vonum framar).
Á síðustu stundu var fellt nið-
ur atriði úr öðru kunnu verki
eftir Birgit Cullberg, Mána-
hreininum og verður að
harma það, því að jafnvel
stutt atriði úr þessu verki sem
er miklu yngra hefði gefið
fjölþættari mynd af hæfileik-
um frú Cullberg sem dansa-
skálds og hvaða leiðir hún kýs
sér nú. í staðinn fékk maður
að vísu að sjá brot úr Carmen
ballett Rolands Petits, en sá
leikdans mun hafa valdið inn-
blæstri í margra brjóstum,
þar á meðal frú Birgitar Cull
'berg, svo að hún samdi Frök-
en Júlíu. Fleming Flindt
dansaði habaneruna úr Carm-
en með glæsibrag. Var leitt
til þess að vita að • Flindt
skyldi eingöngu hafður í þeim
hluta efniskrárinnar, sem ber
sýnilega var hafður til upp-
fyllingar. Þessi ungi maður er
nefnilega talinn í hópi efni-
legustu ungra ballettdansara
í öllum heiminum nú. Á und-
an dansaði Hanne Marie Ravn
La Lithaunineen eftir Leéfv-
re og Brenaa, en naut sín bet-
ur í Pas de deux eftir Bour-
nonville (úr 'Vilhjálmi Tell),
full af glettni 0g þokka. Þar
dansaði hún á móti Flindt. —
Loks voru tvö brot úr Svana-
vatninu. Hið fyrra dönsuðu
von Bahr og Schaufuss af ör-
yggi og stílfegurð, en hið síð-
ara Niels Kehlet, ungur og
fimur dansari með skemmti-
lega élevation, þótt lágvax-
inn sé. Hann naut sín þó bet-
ur í hlutverki Anders í Frök-
en Júlíu.
Þessir erlendu gestir voru
íslenzkum listdansunnendum
aufúsugestir. En sýningin rót-
aði upp í huga manns og ýms-
ar spurningar vakna. Hvað
liður hinum íslenzka list-
dansi? Er þeim málum sýnd
sú alvara, sem verður að vera,
ef einhver árangur á að nást?
Sveinn Einarsson.
Red Boys
Framhald af 11. síðu.
knattspyrnufélag, sem hefur
unnð meistaratitil Luxemburg-
ar 5 sinnum, iþ. e. árin 1923,
1926. 1931, 1932 og 1933. Bik-
arkeppnina hafa þei'r unnið 12
sinnum, árin 1925, 1926, 1927,
1929, 1930, 1931, 1934, 1936,
1941, 1952, 1953 og 1958. Auk
þess hafa þeir orðið nr. 2 í þik-
arkeppninni 7 sinnum.
—a.
Leiðrétfing
í SÉÐASTA tölubl. Vinnunn-
ar er birtur kaup- og kjara-
samnignur Verkakvennafélags
Keflavíkur og Njarðvíkur við
atvinnurekendur, viðvíkjandi
ræstingu.
í blaðinu er samningurinn
birtur með undirskrift bæði
Kaupmannafélags Keflaíkur og
Kaupfélags Suðurnesja, sem
ékki er rétt.
Stjórn Kaupfélags Suður-
nesja hefur ekki samþykkt
þenna gamning og því ekki fal-
ið neinum að undirrita hann.
En í téðu blaði er samni'ngurinn
undirritaður fyrir hönd kaupfé-
lagsnis, af: Ingmundi Jónssyni,
stjórnarmeðlimi í Kaupmanna-
félagi Keflavíkur.
Teljum vér oss skylt, að fá
ofanri'taðar missagnir leiðréttar.
Með fyrirfram þökk fyrir birt
inguna.
Kaupfélag SuSurnesja.
Norrænt sveit-
arstjónamám-
skeid í sumar
EFTIR síðari heimsstyrjöld-
ina hafa árlega verig haldin
norræn námskeið í sveitar-
stjórnarmólum, og hafa þau
verið til skiptis í Danmörku,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð
og undirbúin af sveitarstjórnar
sambandi viðkomandi lands.
Að þessu sinni verður nám-
slteiðið haldið í Sveitarstjórnar
skólanum (,,Kommuneskolen“)
í Sugtúnum dagana 28. júní til
3. júl, n. k. og fyrir því stend-
ur Samband sænskra hrepps-
félaga. (Svenska Landkommun-
ernas Förbund).
Á námskeiðinu verða fyrir-
lestrar um sveitarstjórnarmál
á Norðurlöndum og umræður
um verkaskiptingu á milli rík-
is og sveitarfélaga Farið verð
ur í skemmti- og kynnisferðir
um nágrennið og að því stuðl-
að, að þátttakendur kynnist
sem bezt hver öðrum og við-
horfum í sveitarstjórnarmálum
hinna landanna.
Sambandi íslenzkra sveitar-
félaga hefur verið boðin þátt-
taka í námskeiði þessu og eru
beir sveitarstjórnarmenn, sem
kunna að hafa hug á að sækja
það, beðnir að gefa sig fram
við skrifstofu Sambandsins,
Laugavegi 105, sími 10350, sem
gefur nánari upplýsingar.
Leikför
Framhald af 16. síðu.
ekki undirritað, en í því seg-
ir m. a.:
„Á síðustu árum hafa risið
upp ný og vegleg samkomu-
hús víða um landið og fer
þeim stöðugt fjölgandi'. Þessi
myndarlega framtakssemi
margra bæja og sveita á að
geta orðið til þess að leiklist-
in, sem er öllum viðfangsefn-
um frjórra og hentugra til fé-
lagslegs samstarfs, verði' nú
iðkuð af kappi af heimamönn-
um sjálfum á hverjum stað.
En þeirri framför sem orðið
heíur í húsakosti fylgja ei'nn-
ig batnandi samgöngur víða
um land. Þetta hvorttveggja
á að geta orðið til þess að hér
'eftir verði farnar leikferðir .frá
Reykjavík til annarra bæja og
byggða landsins einnig á öðr-
um árstímum, með vaxandi
fjölbreytni í vali verkefna. —
Þegar svo er komið er þróun
leiklistar í landinu komin á
rétta braut: að tengja leikstarf
landsmanna leikhúsi' höfuð-
staðarins, báðum aðilurri til
heilla, gera landið allt að einu
leikhúsi“.
— Góða ferð.
I. G. Þ.
21. júní 1960 — Alþýðublaðið
Slysavarðstofan
er opin allan sólarhringinn.
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 18—8. Sími
15030.
o----------------------o
Gengin. Kaupgengi.
1 sterlingspund .... 106,65
1 Bandaríkjadollar .. 38,00
1 Kanadadollar .... 39,93
100 danskar kr......551,40
lOOnorskarkr........ 532,80
100 sænskar kr...... 734,70
100 vestur-þýzk mörk 911,25
o----------------------o
S Flugfélag
Sííííííí- íslands.
Kiii*:;.:::
mmmM^Teow °gf:
r ^.w.3:'hafnar kl. 8 i
$k-.. S dag. Væntanleg
aftur til Rvíkur
smsiiiíiiiiivæ ki 22 30 í
kvöld. Innan-
landsflug: í dag
er áætlað að
fljúga til A'kureyrár (3 ferð-
ir), Egilsstaða, Flateyrar, ísa
fjarðar, Sauðárkróks, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Þing
eyrar. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferð-
ir), Egilsstaða, Hellu, Horna-
fjarðar, Húsavíkur, ísáfjarð-
ar, Siglufjarðar og Vestm,-
eyja (2 ferðir).
Loftleiðir.
Hekla er væntanleg kl. 19
frá Hamborg, Khöfn og Gauta
borg. Fer til New York kl.
20.30.
Fjallfoss kom til Rostock í
gær, fer þaðan til Hamborg-
ar. Goðafoss fór frá Eskifirði
18/6 til Hamborgar. Gullfoss
fór frá Rvík 18/6 til Leith og
Khafnar. Lagarfoss kom til
Rvíkur 16/6 frá New York,
Reykjafoss kom til Rvíkur
16/6 frá Rotterdam. Selfoss
fór frá Keflavík 16/6 til New,
York. Tröllafoss fór frá Rott-
erdam 20/6 til Hamborgar og
Rvíkur. Tungufoss fór frá
Khöfn 19/6 til Álborg, Fur,
Khafnar, Gautaborgar og
Reykjavtíkur.
ÝMISLEGT
ATHUGIÐ:
Þeir, sem ætla að koma til-
kynningum í dagbók, þurfa
að hafa haft samband við
blaðið fyrir kl. 5 daginn áður
en tilkynningin á að birtast.
Kvenfélag Laugarnessóknar
fer inn á Þórsmörk 29. júní.
Konur, gefið ykkur vinsam-
legast fram sem fyrst í síma
32716, eða að Kirkjuteig 23.
Út er komið
17. hefti Félagsbréfa AI-
menna bókafélagsins. Efni
þess er sem hér segir: Þoka,
ljóð eftir Snorra Hjartarson;
Um skáldskap Snorra Hjart-
arsonar, eftir Hannes Péturs
son; Fimm ljóð eftir Baldur
Ragnarsson; Herbergi nr. 107,
smásaga eftir Jökul Jakobs-
son; Archibald MacLeish eft-
ir Þórð Einarsson; Skáldið og
blaðamaðurinn, grein eftir
Archibald MacLeish; Félag
til eflingar norrænum fræð-
um, grein eftir Finnboga Guð
mundsson. Þá eru í heftinu
ritstjórnargreinar o. fl.
Ríkisskip.
Hekla er væntan-
leg til Rvíkur ár-
degis á morgun
frá Norðurlönd-
um. Esja er á Vest
fjörðum á norð-
urleið. Herðubreið er á Aust-
fjörðum á norðurleið. Skjald
breið er á Skagafirði á leið
til Akureyrar. Herjólfur fer
frá Vestmannaeyjum kl. 22 í
kvöld fil Reykjavíkur.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er í Rvík. Arn-
arfell losar á Eyjafjarðar-
höfnum. Jökulfell lestar á
Vestfjarðahöfnum. Dísarfell
fer væntanlega í dag frá Mán
tyluoto til Hornafjarðar.
Litlafell er á leið til Rvíkur.
Helgafell er í Rvík. Hamra-
fel fór 16. þ. m. frá Rviík til
Aruba.
Hafskip.
Laxá fór sl. mánudag frá
Concarneau.
Jöklar.
Drangajökull kom til Am-
sterdam í fyrradag. Langjök-
ull er í Rvík. Vatnajökull var
við Northunst 18. þ. m. á leið
til Ventspils.
Eimskip.
Dettifoss fór frá Hamina í,
gær til Leningrad og Gdynia.
Rafnkelssöfnunin.
Lions-klúbbur Njarðvíkur
1000 kr. Bóas Valdimarsson
100. Ingvi Þorgeirsson 50. Ó.
H. G. 50. í. S. 100. M. N. 100.
K. G. 100. A K. B. 100. B. Þ.
50. S. E. 50. Ungmennafélag
Njarðvíkur, Ytri Njarðvík
1000. G M. 100. J. Á. 500.
Njarðvíkurhreppur 5000. —•
Hjartans þakkir til ykkar
allra. F. h. söfnunarnefndar-
innar. — Björn Dúason.
Frá skrifstofu borgarlæknis:
Farsóttir í Reykjavík vii
una 22.—28 maí 1960 sam-
kvæmt skýrslum 46 (50)
starfandi lækna. Hálsbólga 91
(134). Kvefsótt 97 (123).
Iðrakvef 22 (23). Inflúenza 5
(7). Heildbólga 1 (0). Hvot-
'sótt 2 (5). Kveflungnabólga
15 (14). Taksótt 1 (0). Hlaupa
bóla 14 (15). Ristill 4 (1).
12.55 „Áferð og
flugi“: Tónleik-
ar kynntir af
Jónasi Jónas-
syni. 20.30 Yoga
hamingjunnar, -
erindi (Gretar
Fells rithöfund-
ur) 20.55 ís—
lenzk tónlist. —•
21.30 Útvarps-
sagan: „Vaðla-
klerkur111. 22.10
íþróttir 22.20
Lög unga fólks-
ins.