Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.03.1903, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.03.1903, Side 1
Verð árgangsins (minnst j 52 arkir) 3 lcr. 50 awr.; erlendis 4 kr. 50 aur., og i Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnimán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. — ^-=[= Seytjándi ÁBGANGUB. =L -=— -i—«gr^|= RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. | »— I TJppsögn skrijteg, vgild \ nema komin sé til útgef- , anda fyrir 30. daq júní- mánaðar, og kaupandi \ samhliða uppsögninni borgi slculd sína fyrir blaðið. M U.—12. í BeSSASTÖÐUM. 19. MABZ. 1 9 0 3. tJtlönd. Kaupmannahöfn 2. marz 1903. Helztu tíðindi frá ritlöndum eru þau, er nú skal greina: Danmörk. Eitt af gufuskipum „sam- einaða gufuskipafélagsins“, er „Xenia“ nefnist, strandaði 1. febr. síðastl. við Skotlands strendur, i grennd við borgina Aberdeen. - - Skip þetta var eitt af stærstu ekipum félagsins, 3500 tons að stærð, og var á leið til Bodon i Bandaríkjunum, en hreppti kafaldsdimmviðri, rakst á grynningar, og sökk á 10 mínútum. Af skipverjum drukknuðu tveir, en 25 var bjargað. Geppel lyfjasveinn, er drepið hafði vinstúlku sina með klóroformi, svo sem áður hefir verið getið hór i blaðinu, hefir ný skeð hlotið dóm í héraði, og slapp með vatns og brauðs hegningu í 4-j-5 daga, þar sem glæpurinn var framinn eptir beiðni hinnar látnu, svo sem sjá mátti af bréfi, er hún hafði ritað einni vinkonu sinni. f 18. janúar síðastl. andaðist Borup, borgmeistari í Kaupmannahöfn i full 20 ár. Hann þótti ihaldsmaður, og var þvi litt samrýmdur bæjarstjórninni síðari ár- in, eptir það er vinstrimenn og „social- istara fengu öll ráðin i hendur i málefn- um bæjarins. í stað Borup’s var kosinn nýr borg- meistari 2. marz siðastl., og hlaut þá kosningu „socialistinn“ J. Jensen málari, þar sem „socialistar“ hafa afl atkvæða í bæjarstjórn Kaupmannahafnar, sem stendur. Jensen málari er tæplega hálf-fimmt- ugur, sonur fátæks húsmanns, en hefir verið i bæjarstjórn Kaupmannahafnar, siðan 1893, og þjóðþingismaður, siðan 1898. Þetta er i fyrsta skipti, er „social- istar“ koma manni úr sínum hóp i borg- meistaratignina, og þykir þeim sigurinn mikill, sem von er, og höfðu þvi blysför all-mikla um kvöldið, til virðingar við Jensen borgmeistara, er kosningunni var lokið. Af þingstörfum Dana er fátt að segja, þar sem Estrupsliðar hafa enn afl at- kvæða í landsþinginu, og hindra öll frjáls- leg nýmæli, er vinstrimannaráðaneytið ber fram. Menn höfðu í haust gert sér þær von- ir, að hægrimenn þeir, er sagt höfðu skilið við Estrup, og myndað nýjan flokk, er nefnir sig „frikonservatíva41, myndi styðja ráðaneytið að ýmsum málum, en raunin hefir orðið öll önnur, þar sem þeir hafa fylgt Estrupsliðum ept-ir, sem áður, nema hvað mælt er, að skattalög- in muni finna náð hjá þeim, og verða það þá helztu nýmælin, sem stjómin kemur fram. A hinn bóginn er það þó bót í máli, að margir hÍDna konungkjörnu þing- manna i landsþinginu eru mjög gamlir menn, og verða þá auðvitað skipaðir vinstrimenn i þeirra sæti er þeir falla frá, svo að það verður naumast til lengd- ar, að ihaldsmönnum tekst að stöðva framfarastrauminn, og ríða í bága við vilja alls þorra almennings i Danmörku. Noregur og Svíþjoð. Ráðhúsrétturinn i Stokkhólmi hefir ný skeð kveðið upp þann dóm, að ef Andrée loptfari eigi skili sér innan árs og dags (eins árs og sex vikna), skuli telja hann dauðan að lög- um, þar sem 5 ár eru liðin, síðan hann lagði af stað í norðurför sína. Kona. eða ekkja, Andrée’s varð fyrir nokkru uppvís að því, að hafa stolið ým s- um munum úr ýmsum sölubúðum, og 13. júli f. á. hafði hiin gert tilraun til þess, að brenna iveruhús þeirra hjónanna; en þar sem læknar hafa látið það álit i ljósi, að hún sé veik á geðsmununum, þá urðu málalokin þau, að hún var sýkn- uð, en verður háð opinberu eptirliti fyrst mn sinn. ý Aðfaranóttina 23. febr. síðastl. and- aðist i Kristjaniu prófessor Gustaf Storm, nafnfrægur sagnfræðingur, er ritað hefir mikið um sögu Norðmanna á fyrri öld- um, eins og mörgum Islendingum mun kunnugt. Mjög hefir brytt á atvinnuskorti i Noregi í vetur, og veitti stórþingið þvi 30. jan. siðastl. 45 þús. kr. úr rikissjóði, til að bæta ögn úr vandræðunum. 23. jan. síðastl. andaðist i Gautaborg stóreignamaðurinn Robert Dichson, og kvað hafa látið eptir sig um 15 milj. króna, sem þykir mikið fó á Norðurlönd- um, þótt lítið sé i samanburði við auð- menn á Bretlandi, i Bandaríkjunum, og víðar. — — — — Bretland. 27. janúar síðastl. brann geðveikraspítali í Lundúnum, og brunnu þar inni 52 jsjúklingar, en hinum varð öllum bjargað. 10. febr. flæddi áin Clyde á Skotlandi yfir bakka sina, sópaði burt húsum o. fl., og nam skaðinn mörgum þúsundum ster- lingspunda, að mælt er. 27. febr. gekk yfir Bretland slíkt af- takaveður, að elztu menn muna eigi ann- að eins, og olli það veður mjög víða miklu tjóni, feykti um skorsteinum og kirkjuturnum, reif þak af húsum o. s. frv., og olli víða nokkru manntjóni. I veðri þessu fauk, meðal annars, járn- brautarlest um koll í grennd við Ulverston, o'g hlutu 32 menn, er i vögnunum voru, meiri eða minni meiðsli. Enska parlamentið kom saman í Lund- únum 17. febr., og las Játvarður konung- ur sjálfur upp þingsetningarræðuna, og er þar. meðal annars, látið mikið af á- rangrinum af ferð Chamberlain’s nýlendu- ráðherra til Suður-Afriku. Það er og sannast, að Chamberlain virðist hafa komið þar mjög liðlega fram, og hafa allan vilja á því, að reyna að græða sárin. — Hann lagði af stað heim- leiðis, frá Kap- eða Höfðabora: 25. febr., og fórust honum svo orð í ræðu einni, er hann hélt þar að skilnaði, að þar sem allt væri nú komið i svo friðvænlegt horf, þætti honum líklegt, að nýlendustjórnin myndi brátt telja sér fært, að gefa þeim mönnum upp sakir, er dæmdir hefðu ver- ið fyrir politiskar yfirtroðslur, meðan ó- friðurinn stóð yfir. Brezka stjórnin hefir nýlega skipað nefnd manna í Transvaal, er hafa skuli á höndum löggjafarvald í ýmsum málum þar í landi, meðan landinu er eigi veitt sjálfstjórn, og var Búa-foringjunum Botha, De Wet og Delarey boðið að eiga sæti i löggjafarráði þessu, en þeir afþökkuðu boðið, þar sem þeir kváðust telja þetta fyrirkomulag landinu óhagkvæmt, og ó- liklegt, að það kæmi að tilætluðum notum. I blaði þessu hefir áður verið minnzt á mál það, er höfðað var í fyrra vor gegn Lynch þingmanni, er borið hafði vopn gegn Bretum í Búa-ófriðinum. Lynch er fæddur i Australiu 1861, og voru foreldrar hans irskir, og hann þvi brezkur þegn, þótt dvalið hafi hann meginpart æfi sinnar i Paris, og fengizt þar við blaðamennsku. Haustið 1899, er Búa-ófriðurinn hófst, brá hann sór frá París til Prætoriu, og fékk þegnrétt í Transvaal, og gekk i ó- friðinn gegn Bretum, gerðist ofursti, og stýrði „irsku hersveitinni11, er svo var nefnd, og gjörðist Bretum all-skeinuhætt- ur; sumarið 1900 hvarf hann þó aptur heim til Parisar, og með þvi að írum þótti mikið til mannsins koma, er hann hafði borið vopn gegn Breturn, kusu þeir hann þingmann sinn 22. nóv. 1901. En þótt Lynch væri kosinn þingmað- ur, þótti konum þó ekki eigandi undir að vitja þingsætis sins, meðan Búa-ófrið- urinn stóð yfir, en að honum loknum, brá hann sór til Euglands 11. júní f. á., en var þá jafnharðan tekinn fastur, og mál höfðað gegn honum, fyrir landráð. Dómur i máli hans var loks kveðinn upp 23. janúar síðastl., og var hann þá dæmdur til dauða, en dauðadóminum sið- an breytt i æfilanga þrælkunarvinnu, og liklegt talið, að honum verði siðar gefn- ar upp allar sakir, þegar upreisnarmenn í Kapnýlendunni verða náðaðir, sem naumast verður mjög langt að biða.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.