Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.02.1904, Page 7

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.02.1904, Page 7
XVIII, 8.-9. ÞjÓÐVIIíJINN 35 allra mestu vandræðunum. — Talið er víst, að ýms af eldsvoðaábyrðgarfélögun- um, er hér eiga hlut að máli, hljóti að fara á höfuðið, enda er þetta lang-voða- legasti bruninn, sem nokkuru sinni hefir orðið í Ameríku, og hafa þar þó opt orð- ið þar stórkostlegir eldsvoðar. Meðan eldurinn geysaði, var )á sum- um stöðum tekið það ráð, að sprengja hús í lopt upp með „dynamitiu, tii þess að gera auð svæði; en sakir hvassviðris- ins, varð eldurinn þó eigi tepptur. — Af ófricíi Rússa og Japana hafa borizt þær fregnir, að Japanar hafi háð sjó- orustu við Bússa í grennd við Port-Arth- ur, og^segja blöð þau, er hlynnt eru Jap- ansmönnum, að Japanar“hafi þá eyðilagt 11 herskip fyrir^Rússum, ýmist sprengt skipin í lopt upp, sökkt jþeim, eða náð •HMMHKIRUMSMriC'' í ' W!l.' • þeim á sittgvaid. —hinn bóginn vilja Rússar gera, aíít minnajúr sjóorustu þess- ari, og yfir höfuð jer enn' |eigi gott að henda reiður á fréttunum, ‘þó að járeið- anlegt megi telja, að Japanar" hafi enn borið hærri hlut á sjónum. Um orustur .á landi heyrist enn eigi getið, en miklu liði hafa Japanar þegar hleypt á land í Koreu, til að bægja Rúss- um þaðan. ' Bessastöðum J9. febr. 1904. Tíðarfar. Síðan góan byrjaði (21. þ. m.) hefir tíð verið rysjótt og umhleypingasöm. — 22. þ. m. var hellirigning, og tók þá upp mikið af snjónum, sem legið hefir á jörðu, síðan með þorrabyrjun. Gufuskipið „Firda“, leiguskipjverzlunarinnar „Edinborg“, kom til Reykjavíkur frá ísafirði 18. þ. m. ý 19. þ. m., M. 7 e. h., andaðist í Reykja- vik skólakennari Björn Jensson, og var bana- mein bans lungnabólga, er hann hafði þjáðst af nokkrá daga. Björn sálugi Jensson var fæddur í Reykja- vik 19. júní 1852, og voru foreldrar hans Jens reotor Sigurðsson 1872) og kona hans Ólöf Bjömsdóttir, yfirkennara Gunnlaugssonar.—Hann tók stúdentspróf við lærða skólann í Reykjavik 1873, og sigldi samsumars til háskólans, og tók fyrri hluta burtfararprófsjvið fjöllistaskólann 1878, en varð kennari við lærða skólann 1883, og hafði það embætti á hendi til dauðadags. Kennslugrein Bj'órns Jenssonar i lærða skól- anum var „mathematík11, sem var ein þeirra námsgreina, er hann hafði lagt stund á við fjöl- listaskólann, og þótti hann snilldar-kennari; en því miður var hann eigi heilsu-hraustur maður, þar sem hann þjáðist öðru hvoru af veikindum i höfði, og gat því t. d. eigi sinnt kennslustörf- um sínum yfirstandandi vetur. Auk kennslustarfanna hafði hann einnig £á hendi aðal-umsjónina í skólanum 1891—1902, og bjó þá i skólahúsinu. Bæði sem kennari og umsjónarmaður var Björn Jensson virtur og elskaður af lærisveinum skólans, enda var hann drengur góður, og að maklogleikum mjög mikils metinn af öllum, er honum kynntust; og enda þótt hann gæfi sig lítt fram, að þvi er almennings málefni snerti, var hann þó mjög áhugamikill framfara- og ættjarð- arvinur, eins og tillaga hans um breytta rækt- unaraðferð, meðal annars, bar vott um. Hann var stilltur maður, alvörugefinn og stefnufastur, en bauð þó af sér góðan þokka, svo að menn löðuðust ósjálfrátt að honum, og lærðu að meta mannkosti hans og hæfileika. Hann var kvæntur Henríettu TjOVÍsu Svendsen, dóttur Svendsen’s verzl.manns og Agústu Snorra- dóttur, systur L. A. Snorrasonar kaupmanns á ísafirði, og lifir hún mann sinn, ásamt 7 börn- um þeirra, er heita: Olöf, Sigríður, Viggo, Þór- dís, Agúsia, Arndís og Soffía. — Yar hjónaband þeirra einkar ástríkt, enda var Björn sálugi Jens- son hinn ástúðlegasti eiginmaður og faðir, og er fráfall hans á bezta aldri þvi einkar tilfinn- anlegur sorgaratburður fyrir eptirlifandi ástvini hans. Fyrir lærða skólann, og landið í heild sinni, er og mikil eptirsjá að jafn nýtum 'og góðum manni. Jarðarför Björns sáluga fór fram í Reykja- vík 27. þ. m., og var mjög fjölmenn. — Leotor ÞórhaMur Bjarnarson flutti húskveðjuna, og stúd- entar sungu kvæði, er Cruðm. skáld Ouðmunds- son hafði ort; en dómHrkju presturinn síra Jó- hann Þorkelsson flutti ræðu í kirkjunni, og var síðan sungið kvæði optir .Tóhann G. Sigurðsson skólapilt, og hafði annar skólapiltur, Gunnar Sæmundsson, samið lagið. — Siifurskjöld höfðu skólapiltar gefið á kistu hins iátna, er Erl. gull- smiður Magnússon hafði smíðað, og þótti hann mjög snotur. Skip „Thore“-félagsins, „Scotland", sem koma átti til Reykjavíkur 19. þ. m., er ókomið enn, þegar blað þetta fer í prentvélina, og gizka menn helzt á, að skipið hafi eigi getað farið fráKaup- mannahöfn á réttum tíma, sem ef til viil stafar af því, að eigi hefir verið lokið ýmsum breyt- ingum á skipinu, er gjöra átti, áður en það leggði af stað. Annars er það engin ný bóla, að skip „Thore“- félagsins koma eigi á áætlunartíma, og er það mörgum bagalegt, og þó líklega verst félaginu sjálfu, þar sem óregla þessi fælir marga frá þvi, að senda vörur með skipum þessum, eða ætla upp á þau til ferðalaga. ý 25. þ. m. andaðist í Reykjavík ljósmóðir Vígdís Guðnadóttir frá Keldum i Mosfellssveit. 27. s. m. andaðist í Reykjavík, eptir stutta legu í lungnabólgu, hreppstjóri Björn Þorlálcsson á Varmá í Mosfellssveit, bróðir síra Jóns Þor- 3tí hærði maðurinn, og glotti kuldalega. „Ungfrú Lametry getur orðið ástfangin í öðrum, og Píers lávarður getur orðið langlífuru. „Já, svo er nú það“, svaraði erfiðismaðurinn. „Og evo er hr. LíoneU. „Hver er það?u spurði ókunni maðurinn. „Bróðir og erfingi Píers lávarðar, sem líka verður að deyja, ef William á að fá eignirnar11, svaraði erfiðis- maðurinn. „Það segið þér hverju orði sannara“, mælti ókunni maðurinn. „Beztu þakkir fyrir upplýsingarnar, vinur minn, og verið þér nú sæliru. Að svo mæltu sneri ókunni maðurinn við, og gekk aptur til þorpsins. Hann lötraði í hægðum sínum, í djúpum hugsun- um, og taldi þannig á fingrum sér: „Píers lávarður, einn, Líonel Lametry, tveir, ungfrú Lametry, og vafasamt hjónaband, þrír. Hm! Það eru ekki miklar líkur til þess, að Kynsam nái í þær eignir. Jeg er maðurinn, sem set þar fót fyriru. 2. kapítuli. Ókunni maðurinn. Ungfrú Eleonoru fannst frændi sinn vera venju frem- ur fálátur, og leiðinlegur, meðan skemmtireiðin stóð yfir. Hvort þetta var að kenna bréfinu, sem hann þóttist enn eigi hafa lesið, eða það stóð í sambandi við ókunna manninn, er brugðið hafði svo óvænt fyrir, gat hún eigi dærat um. 33 tala með tveim tungum, sem hún vill. Hvað gæti hún gert, nema þá að stela hringnum helga?a „Mér dettur ekki í hug, að saka hana um þjófnað, eða aðra glæpiu, svaraði ungfrú Lametry, og styggðist við. En þú skilur mig ekki. Jeg á að eins við ósjálf- ráða óbeit, því að það er, sem renni kalt vatn um mig alla í hvert skipti, er eg geng fram hjá henniu. „Það er einhver óregla í taugunum þínum, góða min!u mælti Kynsam, og greip um leið um úlnliðinn á henni. „Lífæðin slær of ótt, og ráðlegg eg því ofur-lít- inn, fjörugan reiðsprettu. „Ekki mun eg hafast undan honumu, mælti Eleon- ora glaðlega. „Bíddu min því, meðan eg fer í reiðfötin, og líttu eptir hestunum á meðan“. William var í reiðstígvélum, með reiðspora, og labbaði því þegar til hesthúsanna, er frændkona hans gekk út. Hann var í mesta vinfengi við hestana, og hesta- sveinana, og hér var hann því, sem heima. Hann var yfir höfuð betur laginn fyrir ýmis konar líkamsæfingar, en bóklestur, og féll Líonel, frænda hans, það afar-illa. „Heilinn í honum Villa er engu stærri, en í hverj- um óbrotnum smalanum“, mælti hann armæðulega við bróður sinn. „Hann lítur aldrei í bók, en unir sér beztí hesthúsunum, meðal hestasveinannau. „Hvað er að tarna?u svaraði Píers lávarður blátt á- fram. „Drengurinn er ekki verri fyrir það. Þú hefir höfuð og heila fyrir alla ættina, Líonel; en Villi ér heið- arlegur og guðhræddur drengur, sem mun gera Eleonoru mína farsæla, og það nægir méru.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.