Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.08.1909, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.08.1909, Blaðsíða 6
146 í> J ÓB VII J iN N. XXIII., 36.-37. 5. Um stofnun vátryggingarfélags fyr- ir fiskiskip. 6. Námulög. 7. Um brt. á ákvæðum laga 19. febr. 1886 að því er kemur til lj'singa (birtingar) á undan borgaralegu hjóna- bandi. 8. Um aðflutningsbann á áfengi. 9. Um lífsábyrgð fyrir sjómeDn á ís- leDzkum þilskipum. 10. Um brt. á lögum um fræðslu barna 22. nóv. 1907. 11. Um tvo vígslubiskupa. 12. Um skipun læknishóraða o. fl. 13. Um kosningarrétt og kjörgengi í málefnum kaupstaða og hreppsfé- laga. 14. Um námsskeið verzlunarmanna. 15. Um girðingar. 16. . Um friðun silungs i vötnum. 17. Um undaDþágu frá lögum nr. 18,8. júlí 1902 um brt. á lögum 6. apríl 1898 um bann gegn botnvörpu- veiðum. 18. Um brt. á lögurn nr. 34, 16. nóv. 1907 um skipun læknishóraða o. fl. 19. Um brt. á lögum nr. 34, 15. nóv. 1907 um skipun læknishóraða o. fl. 20. Um brt. á lögum nr. 3, 4. febr. 1898 um aðgreining holdsveikra frá öðr- um mönnum og flutning þeirra á opinberan spítala. 21. Um viðauka við lög nr. 80, 22. nóv. 1907. 22. Um löggilding verzlunarstaða. 23. Um verzlunarbækur. 24. Um brt. á lögum um innheimtu og meðferð á kirknafé 22. maí 1890. 25. Um löggilding Dalvíkur. 26. Um sóknargjöld. Nýjar bækur. —o — ÍSLENZK VERZLUNAR- LÖGGJÖF. Sundarlmst á- grip belztu aðal-atriða. Konslubók í verzlunar- skóla Islands og handbók fyrir kaupmenn og verzl- unarmenn; eptir JÓN ÓL- AESSON. Reykjavík 1908. Bók þessari er eins og nafuið bendir til ætlað að vera hvortveggja í senn kennslubók við verzlunarskólann og hand- bók fyrir kaupmenn, og bætir hún úr til- finnanlegum skorti. Bókín er stutt, en glöggt yfirlit yfir þau ákvæði í löggjöf vorri, er lúta að verzlun og viðskiptum. Auk þeirra laga, er beiniínis hljóða um verzlun, er í bók þessari ýms annar fróð- leikur, sem verziunarmönnum er sérstak- lega nauðsynlegur, en þó geturogkom’ð öðrum að haldi, t. d. ítarlegur kafli utn fyrnmgu skulda og víxilrétt. — Allur frágangur bókarinnar er í bezta lagi. STAFROP VIÐSKIPTA- PRÆÐINNAR. (Að miklu leyti eptir H. E. Macleod: Economics for Beginners). Kennslubók í verzlunar- skóla íslands eptir JÓN ÓLAFSSON. Reykjavík 1909. — Kostnaðarmaður: SIGURÐUR KRISTJÁNS- SON. Bók þessi er eins og sú er getið var um hér að framan ætluð til kennslu á verzlunarskólanura. Höfundurinn segir um hana í formálaDum að, hún só hvorki þýdd né frumsamin, eða öllu heldur að hún só hvorttveggja. Hefir hann lagt bók Macleod til grundvallar, on þó hleypt úr á stundum og gert aðra kafia fyllri, og víða sniðið sitthvað eptir vorum háttum. Bók þessi er hið þarfasta rit, og getur miklu fleirum að gagnikomiðen nemend- verzlunarskólans og verzlunarmönnum yf- irleitt, því að um þetta efni hefir harla lítið verið ritað á íslenzku, en þó eru þau efni er viðskiptafræðin ræðir um mjög mikilsverð öllum mönnum, hvaða starf sem þeir stunda. Má vera að mönnum virðist hún óaðgengileg í fyrstu, en þó mun allur almenningur geta haft bókar- arinnar not, só hún lesin með athygli, og mun erfitt að gera viðfangsefni viðskipta- fræðinnar öllu auðveldari en gert er í þessari bók. L. Kol. Sagt er að kol séu fundin á Heinabergi á Skarðsströnd í Dalasýslu. Kolin kvað vera skatnmt frá bænum. Dáinn af eitri. 1. þ. m. lézt Eiríkur Einarsson, húsmálari hó r i bænum. Hafði hann sopið á eiturglasi í mis- gripum, og dó á þriðja degi eptir. 36 um, þóttist Yerrill strax skilja, að hann \æri af góðum ættum. Enda þótt Verrill gæti ekkert staðhæft um það, hversu gamall ókunnugi maðurinn var, leit hann þó svo á, sem haun væri fremur ungur, en gamall. HaDn veitti því og eptirtekt, að hanD var mjög föl- ur, og jafnvel varirnar — litarlausar. Þegar hann gætti betur að, sá hann þó, að fölvinn myndi alls eigi stafa af gsðsbræringu, heldur vera ókunna manninum áskapaður. Þeir þögðu báðir stundarkorn, og horfðu hvor á annan. Komumaður brosti síðan ánægjulega, en þó hálf-kyn- lega, og gekk til hans, dró af sér glófana, og rétti hon- um höndina. Það var svo að sjá, sem aðkomumaður kynni ágæt- lega við sig, og liði vel, og væri „almennilegasta skinnu, eins og Verrill var vanur að komast að orði; og gat hann því ómögulega fengið það af sór, að reiðast honum, en gizkaði á það með sjálfum sér, að um einhvern misskiln- ing af hálfu aðkomumanns þessa hlyti að vera að ræða. Taldi hann víst, að misskilningur þessi myndi leið- réttast, er þeir ávörpuðu hvor annan. Honum brá því eigi all-Iítið í brÚD, erókunnimað- urinn rétti honum höndina, og mælti: „Þér eruð auðvitað hr. Manning Verrill; og er mór sönn ánægja að sjá yður aptur, því að þeger tveir menn hafa verið jafn góðir kunningjar, sem við vorum, eiga þeir aldrei að gleyma bvor öðrum“. Það var rétt komið fram á varirnar á Verrill, að segja, að hanD eigi myndi eptir því, að hann hefði nokk- 41 „Úr þessum bikar“, rnælti ókunni maðurinn, „og vínið, sem geymt hefir verið til þessarar stundar14. „Drekkið!“ mælti hann ena fremur. „Berið traust til mÍD!“ Að svo mæltu tók hann glaflð, sem Verrill hafði drukkið úr, er hann mælti fyrir minnunum, og sem enn var agnar slatti í, en rétti honurn bikarinn að nýju. „Drekkið!-4 mælti hann í þriðja skipti. Verrill tók bikarinn, og ókunni maðurinn hóf upp glas sittu. „Náuari kunnings9kapur!u mælti hann. Verrill, sem hafði nú áttað sig betur, en fyr, tók nú til máls á þessa leið: „Mór þykir mjög vænt urn, að þér drekkið mér til, og vil af alhuga kynnast yður nánar. — En jeg verð að biðja yður afsökunar á fásinnu minni, er eg nú spyr yð- ur, hvar vér höfum sózt áður? — Hver eruð þór, og hvað heitið þór?u Ókunni maðurinn svaraði eigi þegar í stað, en horfði alvarlega á Verrill, og einblíndi á hann stundarkorn. Einhver óljós grunur vaknaði nú hjá Verrill, og gerði ýmist að vaxa eða hverfa. Leks mælti ókunni maðurinn: „MuDÍð þér eigi, þótt langt sé nú um liðið, eryður sýndust siglutré bera við gráan himininn? Munið þér eigi eptir skipi, er brakaði í, og liðaðist sundur í sam- skeytuDum? Munið þór eigi eptir ólgandi, og freyðandi bárum, er steyptust yfir þilfarið, og eptir vind-hvininum í reiðanum? — Jú, nú só jeg, að þár munið það“. Síðustu orðin mælti hann, er hann sá, hversu Verr-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.