Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.06.1910, Síða 2
98
ÞJÓÐVILJINN.
XXIV., 25.—‘26.
Svar* ráðherra.
Eptir það, er greinin „Aukaþings-á-
skorunin“, sem prentuð er hér næst á
undan, var full sett í blaði voru, barst
oss „ísafol(lu, 8. júní þ. á., þar sem birt
er svo látandi bréf frá ráðherranum:
„Báðherra íslands
Reykjavík 8. júní 1910.
Þið hafið, hr. alþingismenn, sent mér með
heiðruðu bréfi 4. þi m. áskoranir frá ýmsum
þingmönnum, auk ykkar sjálfra, um að eg
geri ráðstafanir til þess, að aukaþing verði
haldið i sumar svo fljótt sem unt er, til þess
að taka til meðferðar svokallað Landsbanka-
mál o. fl.
LandsbankamáJ þetta mun vera stjórn-
arúrskurður 22. nóv. f. á. er víkur þeim frá,
stjórnendum Landsbankans, sem þá voru,
samkvæmt 20. gr. Jaga 18. sept. 1886 um heim-
ild til að vikja forstjórum bankans frá um
stundarsakir, þegar ástæða þ.ykir til.
Þetta „o: fl.", sem stendur i bréfinu, er mér
ókunnugt um, hvað er eða getur verið.
Þeir binir „ýmsu þingmenn11, er sent hafa
áminnstar áskoranir, eru hinir konungkjörnu
þingmenn allir 6 og 12 þjóðkjörnir, auk þess
er simskeyti fylgir í sömu átt frá hinum 18.,
þingmanni Mýramanna,
Þar nœst getur bréfið um og sendir sim-
skeyti frá 1 þingmanni, 1. þingm. Skag-
firðinga, sem skýrir að eins frá fundarhaldi
er hann og samþingismaður hans hafi
gengist fyrir í vetur, (8. jam) um þetta- máJ,
og að samþykkt hafi verið þar aukaþingsá-
skorun til stjórnarinnar; en nefnir ekkort um
það, hvort hann sjáifur eða samþingismaður
hans, annarhvor eða báðir, fylgi enn fram slikri
áskorun, eptir þá miklu og margvíslegu frek-
ari vitneskju, er þeir hai'i fengið síðan.
Loks iætur bréfið þess getið, að áskoranir
saroa efnis, um aukaþingshald í sumar, hafi
verið samþykktar á almennum kjósendafund-
nm i nokkrum kjördæmum. og virðist vera
þar með gef’ð í skyn; að tilmælin um auka-
þing muni styðjsst við almennan þjóðarvilja.
í tilefni af þessari málaleitnn skal það
tekið fram,
1. að eg Jít svo á, sem það væri lítt verjandi,
að fara að baka þióðinni þann mikla kostn-
að, sem af aukaþingi leiðir, til þess eins, að
eiga við bankamálið nokkrum mánuðum fyr
en reglulegt alþing kemur saman og að
sjálfsögðu fjallar um málið:
2. að eptir minni skoðun er enn síður ástæða
til að verða við þessari áskorun, er þess or
gætt, að mikið vantar á, að belmingur þjóð-
kjörinna þingmanna hafi sent áskorun um
þetta efni. En atkvæði binna konungkjörnu
þingmanna munu flestir kannast við, að ekki
Bé hœgt að taka til nokkurra greina svo
sem vott um þjóðarvilja;
8. að því fer harla fjarri, að mér hafi borizt í
hendur nokkur skilríki þess, að meiri hluti
þjóðarinnar sé sammála beiðruðum bréfrit-
urum, þótt kunnugt sé, að tilraunir bafa
verið gerðar um land allt til að fá yfirlýs-
ingar í þá átt. Virðulegir bréfritarar hafa
jafn vel ekki fyrir sér yfirlýstan vilja meiri
hluta kjósanda í kjördæmum sjálfra þeirra.
Úr ýmsum kjördæmum hafa meira að segja
komið fram mótmæli gegn aukaþingi, og
sögð von á þeim enn víðar að, auk þess
sem vitnast hefur ýmislegt það um tildrög
og undirbúning sumra áskoranaskjalanna,
er virðist geia þau harla marklítil. Meðal
annars hafa komið úr einu kjördæmi, Mýra-
sýslu, mótmæli gegn aukaþingi frá floiri
kjósendum en þingmaðurinn þar hefir fyrir
sig að bera til stuðnings málaleitun sinni.
Af framnngroindum ástæðum tilkynnist
_ykkur hér með og félögum ykkar, að eg sé
mér alls ekki fært að 'verða við margnefndri
áskorun um aukaþingshald í sumar.
Björn Jónsson.
Hr. alþingismenn Kristján Jónsson og Hannes
Þorsteinsson, forsetar efri og neðri deildar
alþingis 1909“.
Hér er þá sýnt, að vér höfum orðið
eigi mjög ógetspakir um úrslit mólsins
hjá róðherranum.
Útlönd.
—O—
Til viðbótar síðustu útlendu fréttun-
um í blaði voru. skal enn getið þessara
tiðinda:
Útíör Játvarðar konungs.
Útför Játvardar konurigs YII, keisara
Indverjalands, fór fram í Lundúnum 20.
maí þ. á.
Nokkra hríð, áður en útförin fór fram
var lik konungs látíð standa uppi í há-
sætissalnum í Buckingham-höllinni, og
var koDungs-kórónan látin liggja á lík-
kistulokinu, og hermenn úr lífverðinum
látnir standa á verði hjá kistunni.
Mælt er, að kvöldið áður, er um 200
þús. manna höfðu komið inn í höllina,
til að skoða líkkistu konungs, hafi þó
mannþyrpingin, er enn ætlaði sér að kom-
ast þar inn, eða safnast hafði saman, fyr-
ir forvitnissakir, náð alls yfir 8 enskar
mílur á leDgd.
Daginu, er útförin fór fram, var bönn-
uð öll vagnferð um göturnar, sem lík-
fylgdinní var ætlað um að fara, og safn-
aðist þar svo mikill mannfjöldi, að mælt
er, að um fiinm enskar mílur vegar hafi
líkfylgdin orðið að fara gegnum þétta
mannþröng, enda henni auðvii»ð ætluð
braut, múgnum haldið til beggja hliða,
enda sizt skortur lögreglnmanna, til að
sjá um, að svo væri.
Næatir á eptir líkkistunni riðu keisarar,
konungar, og konungaættmenni. — Mátti
þar líta: Vilhjálm, Þýzkalands keisara,
Friðrik VIII., Dana konung, Hakon, Nor-
egs konuDg, Georg, Grikkja konung, Al-
fonso XIII., Spánar konung, Albert kon- \
ung í Belgíu, Manuel, Portugals konung,
Ferdínand, Bolgara keisara, Faslnmí, prinz
frá JapaD, og tyrkneska krónprinzinu. — |
Fyrir hönd Bandaríkjastjórnar, var og j
Hoosevelt, fyrverandi forseti Bandamanna
við staddur.
í líkfylgdinni er gizkað ó, að alls hafi
verið um tvær milljónir manna, og var
troðningur svo mikill, að sumir tróðust
undir, og hlutu meiðsli. — Hiti var og
mikill um daginn, og sýktust því sumir
í mannþyrpingunni, svo að mælt er. að
j um 8 þús. manna hafi orðið að flytja í
I sjúkrahús borgarinnar.
Eins og fyr segir riðu keisarar, kon-
ungar o. fl. næstir á eptir likkistunni, en
þá fóru tólf vagnar, og í þeim konnng-
borið kvennfólk o. fl., svo sem Alexandra,
ekkja Játvarðar konungs, rússneska keis-
ara-ekkjan, systir Alexöndru, María Feo-
dorowna, Mary, kona Greorgsj’Breta kon-
ungs, o. fl. o. fl.
Geta má nærri, að margt af stórruenn-
um Breta, ráðherrar, lávarðar, þingmenn,
biskupar, klerkar o. fl. hafi og verið í
líkfylgdinni, auk fjölda hátt settrajmanna
úr land- og sjóher Breta, úr lífvarðar-
sveit konungs o. fl. o. fl.
Frá Kriteyingum.
Þjóðfundur, er þar hófst í maírnán.
þ. á., byrjaði störf sín á þann liátt, afr
þingmenu allir, nema Muhamedstrúarmenn
sóru Georg, jGrikkja konungi, hollustu-
og trúnaðar-eiða, enda ’þótt' eyjan lúti
valdi Tyrkja.
Stjórn Tyrkja kærði athæfi þetta þeg-
ar fyrir fulltrúum stórveidanna, og fengu
það svar, að tiltæki þjóðfundarmannanna
á Krít bæri að eins að skoða, sem mark-
leysu, og reiddust kristnir þingmenn á
Krít þá svo svari þessu, að þeir rákujjþá
þingmenD, sem Muhamedstrúar oru, af
þingi.
Borgin Cartago i Costa
Ríca eydd af jax*ðsU:iá,lítiim.
4. maí þ. á. eyddist borgin Cartago í
Costa Rioa í Mið-Ameríku að mestu leyti
í jarðskjálftum.
Borgin stendur nálægt eldfjallinu Irazu,
sex þúsuDd fet yfir sjávarmál, og hefir
hún áður eyðzt af jarðskjálfcum. — Það
var árið 1841.
Yið jarðskjálftana 4. maí þ. á féllu
nær öll hús i borginni, stóðu að eins ept
ir Dokkur smærri húsanna.
Meðal húsanna, sem hrundu, voru tiu
kirkjur, og svo nefnd „friðarhölD, sem
Carnegie, auðmaðurinn mikli, hafði látið
reisa, og gefið ríkjadómi Mið-Ameríku,
og sem nú er mælt, að hann muni á sinn
kostnað láta reisa að nýju.
íbúarnir í Csrtago voru alls 12* þÚ9.
að tölu, og kvað,;18C0 þeirra hafa týnt
lifi, en allur þorri hinna, er lífs fkomust
af, stóðu uppi húsnæðislausir.
I síðastl. aprilmánuði ollu jarðskjálft-
ar einnig all-miklu tjóni í Costa Ríca
lýðveldinu, svo að skammt hefir orðið
högganna milli.
XjJtför
I 5joi*os( jer-riíí Björnson’s.
Eins og áður hefir verið getið um i
blaði voru, var norska skáldið Björnstjerne
Björnson staddur í Parísarborg, er hann,
aDdaðist, og var lík hanslþví flutt þaðan
til Noregs, jog á leiðinni komið við í
Kaupmannahöfn.
Til Kaupmannahafnar sendu Norðmenn,
herskipið „Norgeu. til að sækja líkið þang-
að, og fór fram viðhafnarmikil sorgar-
athöfn í Kaupmannahöfn, er líkið var
flutt frá járnbrautarstöð borgarinnar út í
norska herskipið. — Zahle, forsætisráð-
herra Dana, hélt ræðu, og Hagerup, sendi-
bena Norðmanna i Kaupmannahöfn, tjáði
þakkir, fyrir hönd noisku þjóðarinnar.
Þá var og eigi síður mikið um við-
hafnarmiklar viðtökur, er líkið kom til