Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.06.1910, Síða 8
104
T>jóðviuinn.
XXIV., 25.-26.
Um 70 af konum bæjarins héldu ungfrú Astu
heiðurssamsæti 5. þ. m. í Iðnaðarmannahúsinu:
Norskur háskólakennari í Kristjaníu, Olsen
að nafni, kom hingað með „Botníu11, auk far-
þegjanna, sem fyr eru nefndir.
Hann hefur numið norrœnu, og ætlar sér að
dvelja hér um tíma i sumar, til þess að full-
komnast i máli vcru.
■þ 24. f. m: andaðist á spítalanum i Landa-
koti hér í bænum Ásgeir Finnbogason, bróðir
Guðm. raeistara Finnbogaaonar, og þeirrasystkina.
Hann hafði dvalið 7—8 ár í Alaska, og ætl-
aði sér að auðgast þar af gullgrepti, en sýktist
af tœringu, og íýsti þá heim aptur til íslands:
A leiðinni hingað, fékk bann mislinga, og
magnaðist þá berklaveikin enn meira svo að
dró til dauða, sem fyr segir.
íslenzku botnvörpungarnir, sem héðan ganga
til fiskjar, hafa aflað mjög vel að undanförnu.
Hafa þeir stundum hagað svo til, að vera að
veiðura um nætur, en koma inn með aflann að
deginum;
Fiðluleikarinn hr. Osenr Johansen skemmti
mönnum með fiðlu sinni í Báruhið hér f bæn-
um 27. f: m.
Lék hann þá sjö lög, er hann sjálfur hefur
samið.
6. f. m. voru ungfrú Valgerður Lárusdóttir,
fríkirkjuprests Haildórssonar, og Þorsteinn Briem
aðstoðarprestur í Görðum á Álptanesi, gofin sam-
an í hjónahand.
íþróttafélag Reykjavíkur sýndi mönnum leik-
fimis-iþróttir í barnaskólagarðinum hér í bæn-
um 5: þ m:
Félag þetta er þriggja ára gamalt, og er
Bertheisen. umsjónarmaður klæðaverksmiðjunnar
„Iðunn“, formaður þess.
Leikfimin, sem félag þetta iðkar, er „sænsk
leikfimi“, sem svo er nefnd.
1. þ. m. var gullbrúðkaupsdagur hjónanna
Magnúsar Stephensen, fyr bónda í Viðey, og
Áslaugar Sigurðardóttur Sverrisson.
Danskur læknir, Norman-Hansen að nafni,
kom hingað með „Botníu11, og ætlar að kynna
sér augnsjúkdóma hér á landi um tíma.
Safnaðarfundur verður haldinn hér í bænum
laugardaginn 11. júní næstk., og hefst hann kl.
81/, e. h.
Á fundinum verður rætt um nýju sóknar-
giöldin o. fl.
Fundurinn verður haldinn í húsi „Kristilegs
félags ungra manna“, við Amtmannsstfg.
Unglingspiltur hér i bænum varð nýlega upp-
vís að því, að hafa selt Islandsbanká falsaða
vixla, og var upphæðin 2—3 hundruð krónur.
Piiturinn mun hafa iðrazt, því að hann fór
sjálfur til fangavarðar, og skýrði honum frá
glæpnum.
Einn lögregluþjónanna hér í bænum, Sigurður
Jónsson, hefur nýskeð sagt sýslaninni lausri.
Iþróttavelli ætla ýms félög hér í bænum að
koma sér upp suður á Skildinganesmelunum, og
hafa í þvi skyni sótt um leyfi bæjarstjórnarinnar.
Svæðið á að girða með svo hárri girðingu,
að hvergi sjái inn fyrir hana, og vatni er áform-
að, að veitt verði á íþróttavöllinn að vetrinum,
svo að svell verði, og íþróttavöllurinn verði eigi
að eina notaður að sumrinu, heldur og að vetr-
inum,
Svæðið á að lýsa með gassljósi, er þörf gerist.
Gert er ráð fyrir, að kosta muni alls 8000 kr.,
að gera fþróttavöllinn svo úr garði, sem fyrir-
hugað er.
Afmælis Friðriks konungs VIII. var minnzt
hér i bænum 3. þ. m. á þann hátt, að fánar
blöktu á stöngum, og haldið var sarasæti, er
nokkrir bæjarbúar tóku þátt f.
Friðrik VIII. er nú byrjaður 68. aldurs-árið.
Fiðluleikarinn O. Johansen, Sigfús söngfræð-
ingur Einarsson, og frú hans, hafa áformað, að
stofna í sameiningu söngmenntaskóla héríbæn-
um, og hefur bæjarstjórnin ályktað, að lána þeim
söngstofu barnaskólans í því skyni.
Rafmagnsstöð vill Kjögx verkfræðingur, og
K. Philipsen, koma á fót hér í bænum. og hag-
nýta í því skyni foss-aflið í Elliða-ánum.
Hafa þeir nýskeð æskt leyfis bæjarstjórnar-
inna'-, en málið enn eigi af hennar hálfu út-
kjáð.
Barnaskóla Ásgr. Magnússonar hefur bæjar-
stjórnin hér í bænum nýskeð veitt 400.kr. styrk
fyrir síðastl: vetur.
Frakkneski konsúllinn hr. Brillouinjhefur ný-
skeð fengið leyfi bæjarstjórnarinnar, tiljþessjað
byggja bryggju út undan íbúðarhúsi sfnu.
Danski læknirinn’Norman-Hansen , flytur já
morgun (9. júníj fyrirlestur um Rússa ogFinna
og rennur ágóðinn til heilsuhælisins á Vífils-
Stöðum.
Hr. Norman Hansen hefur sjálfur dvalið um
hríð í Rússlandi, og er því mörgum fremur
kunnugur ástandinu þar.
Eitt af skipuni „milljónafélagsins11 svo nefnda,
„Ágúst“ að nafni, kom inn 2. þ. m., með á ann-
að hundrað tunnur af síld.
Ungmennafélagið hér i bænum gekkst fyrir
því, að kapphlaup var þreytt hér í bænum /5.
þ. m., frá kirkjugarðínum suður Skildinganes-
melana, og tóku nokkrir yngri manna þátt í'því.
Að kapphlaupinu loknu var sundsýning hjá
sundskálanum við Skerjafjörð.
Prentsmiðja Þjóðviljans.
99
heimleiðis, með því að jeg hygg, að dreDgurinn hafi ver-
ið myrtur af misgáningi, í stað systur bans, myrtur
af — — —"
„Hverjuui?"1 gripu báðir fram í í senn.
.Það kemur nú ekki fyr en i enda sögunnar“, mælti
ungfrú Carr. „Fay fæddist tveim árum síðar, en móðir
hennar giptist hr. Harley, og áður hafði hún haft ást á
hr. Dexter.
Hún hafði verið gefin Harley til fjár, og virðist Harl-
ey eigi hafa baft neinn grun um það, sem áður hafði ver-
ið á milli hennar og Dexter’s, þar sem hann aptraði því
eigi, að þau væru stöðugt samau.
SvoDa atvikaðist það. að Dexter eignaðist Fay, og
vissi Harley ekki fyr en mörgum árum seinna, að bún
var ekki hans eigin dóttir.
Það var Jasper, sem gaf Harley vísbendingu um það,
að blýtt væri tnilli Dexter’s og frú Harley, og flutti haDn
þá búferlum, ásamt konu sinni til Triest í Austurriki, Og
bjuggu þau þar í eigi all-fáa mánuði.
Þegar hr. Harley dvaldi í Triest hafði hann enn
eDga vitneskju um það, að Fay var eigi dóttir hans, rneð
þvi að um það var Jasper ókunnugt,
Ei> er að því leið, er Felix fæddist, kom Dexter
ofursti til Triest, og leuti 'pá í íllu milli hans og Harley’s,
og þegar Feiix var fæddur, hvarf Harley því aptur til
Englands, til þess að gæta sóma konu sinnar, og var húu
er til Englands kom — dáin.
Mælt var — og því mótmælti hr. Harley ekki —...
að hún betði látizt á skipinu, og líki hennar verið sökkt
í Miðjarðarhafið.
En Dexter ofursti hvarf aptur til Nizza, og grét
100
þar lát einu konuDnar, seui hanu hafði nokkuru sinni
elskað.
„Þetta eru mikil sorgartíðindi“, rnælti öilbertalvar-
lega, „og frú Harley hefir átt rnikla sök á þessu. — En
segið mér ungfrú Carr, hvað kemur þetta því við,'J sem
nú ræðir um?“
„Meira, en þér ímyndið yður“, svaraði ungfrú Carr.
„Dexter ofursti, og jeg, erum bæði þeirrar skoðunar, að
írú Harley hafi ekki dáið á leiðinni, eins og Harley og
Jasper eegja; heldur hafi maðurinn hennar látið koma
henni til klaustursins í kyrrþey, og lokað hana inni í vest-
ur-álmuDni, og sé hún þar enn, og hafi verið árum saman.
„Æ!“ mæltu báðir jafn harðaD.
„Enn fremur“, hólt ungfrú Carr áfrarn máli sínu,
„hyggur Dexter ofursti, og jeg, að frú Harley hafi misst
vitíð, sakir voðalega íllrar meðferðar. — Og jeg bygg“,.
mælti hún enn fremnr dræmt, „að vesliugnum sé stund-
um híeypt, út, ef ske kynni, að hún rækist þá á Fay, og
sálgaði henni.
Þér trúið mór ekki, en eg fullyrði það þó, að aun-
ar eins maður, eius og Harley, getur brugðið því fyrir
aig, að fremja hvaða glæp, sem er.
I strð þess að rekast á dóttur sína, hefir nú ve9l-
ings frú Harley rekist á Felix, og — drepið hann“.
„Frú Harley er þá enn á lífi, og lokuð inui í kór-
livelfingunni“, mælti Grilbert.
„Já“, sagði ungfrú Carr í mjög ákveðnum róm. „Og
frú Harley er draugurinn, sem almennt er nefndur hvít-
muokurinn.