Lögberg - 29.01.1890, Blaðsíða 1
Lögberg ei yenö ut at l'i'cntfjelaj'i Lögbergs,
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Skrifstofa og prentsmiðja nr. 35 Lombard
Str., Winnipeg Man.
Kostar $2.00 um árið. Borgist fyrirfram
Einstök númer 5 c.
Lögberg is publishe every Wednesday
the Lögberg I’rinting Company at Xo.
Lombard Str., Winnipeg Man.
Subscription l’rice: $2.00 a year Tayable
in advancc.
Single copies 5 c.
3. Ar.
WINNIPEG, MAN. 29. JANlJAli 1890.
Nr. 3.
Politiskar friettir.
j
Æsingarnar í Portugal út af
deilunni viS England liafa haldiö
áfrrnn í síöustu viku. Kaup-
ínanna-fjelagiö ( Lissabon sam-
þykkti aö öllum viðskiptum við
Breta skyldi verða hnekkt af
fremsta megni. Enskar vörur eru
að mestu útilokaðar af markaði
Portúgals, og hefur það oi'ðið vatn
á myllu Amcríkumanna, Frakka
og þjóðverjn. Fyrir miðja síðustu
viku rjeðist portúgískur múgur
og margmenni í hafnarbænum
Setubek d enska skipshöfn og
erfiðismenn, sem voru að hlaða
skipið, og neyddi þá til að hætta
því verki. Síðan hefur nú stjórn-
in lofað að sjá svo um að Eng-
lendingar verði látnir í friði.
Yíir höfuð er svo að sjá sem
bugir manna sjeu heldur að sefast
eptir því sem síðustu frjettir
segja, og að minnsta kosti stjórn
Portúgals sje að verða það ljóst,
að shkar aðfarir, sem beitt hef-
ur verið við Englendinga á síð-
ustu tímum, sjeu ef til vill ekki
með öllu hættulausar. þó er bú-
izt við að enskar vörur verði fyrst
um sinn lokaðar úti frá markaði
Portúgals, og jafnvel að Englend-
ingum verði bægt frá atvinnu í
landinu. Nefnd manna hefur
niyíidazt til þess að safna frjáls-
um samskotum til landvarnar.
Bismarck hefur beðið ósigur á
pýzka ríkispinginu. Eins og kunn-
ugt er, hafa sósíalisiar ú pýskalandi
lifað undir sjerstökuai undantekn-
ingarlögum, ekki notið nálægt því
sömu rjettinda sem aðrir borgarar
rikisins. pannig hafa peir verið
sviptir samkomufrelsi, og auk pess
hafa yfirvöldin getað rekið sósíalista
úr landi, án dóms og laga, ef peim
að eins hefur boðið svo við að horfa.
Lög pessi eru upphaflega svo undir
komin, að tilraunir voru gerðar til
að myrða keisarann, Vilhjálm I., og
eins Bismarck. pessar tilraunir voru
sósíalistum kenndar, og pá pótti
sjerstaka nauðsyn til bera að geta
haldið í hemilinn á þessum flokki.
Lögin áttu ekki að gilda nema fá
ár, ©n síðan hefur gildi þeirra verið
framlengt, og hefur öllum hinum
frjálslyndari mönnum í landinu pótt
pað vera mjög að ástæðulausu. Só-
síalistar hafa ekkert illt að hafzt, og
að hinu leytinu hafa pað þótt stök
neyðar-úrræði, að láta pannig mjög
fjölmennan flokk ríkispegnanna lifa
undir allt öðrum lögum en aðra
menn. Bismarck vildi fá gildi lag-
anna enn framlengt á pví ríkispingi,
sen> staðið hefur yfir fyrirfarandi.
En I petta skipti brást honum boga-
listin, og frumvarp stjórnarinnar var
fellt, með 109 atkvæðum gegn 98,
eptir langar og harðar deilur. Að
atkvæðagreiðsluuni lokinni voru þing-
menn sendir heim til sín, enda er
'kjörtíminn úti.
Á sunnudaginn var hjeldu só-
sialistar fundi hjer og þar út um
allt þýzkaland til þess að fagna
þessurn sigri, sem þeir hafa unnið
á rikisþinginu. þd hafði gleði
þeirra verið fremur lítil undir
niðri. þeir búast nefnilega við að
stjórnin muni koma sínu fram,
þegar þær kosningar, sem nú fara
í hönd, eru um garð gengnar.
Annars lmfa íoringjar sósíalist-
anna, að sögn, von um, að þeim
inuni sjálfum aukast styrkur við
næstu kosningar, svo að' þeir í
sambandi með öðrum flokkum á
þinginu, sem andstæðir eru stjórn-
inni, geti lcomið því til leiðar að
rýmkað verði um prentfrelsið í
landinu. Með ]nrí segja þeir að
gatan muni verða groidd fyrir
þjóðina til þess að rifa sig út úr
þeim ófrelsis-kvíum, sem Bismarck
hefur lukt hana inn í.
Fylgismenn Canada-stjórnar á
þinginu kvað leggja mjög fastlega
að henni um þessar mundir með
að breyta stefnu sinni í innflutn-
ingamálum. Einn af heldri þing-
mönnunum úr conservativa flokkn-
um ljet í ljósi við blaðamann einn
þessa dagana að flokkurinn mundi
helzt leggja það til að innflutning-
ar yrðu styrktir á þann hátt, að
innflytjendur fengju einhverja vissa
upphæð eptir að þeir hefðu setzt
að á löndum, svo að trygging feng-
ist jafnframt fyrir því, að þetta
fje gengi ckki til manna, sem
eptir allt saman ætluðu alls ekki
að setjast að í Canada. Fast verð-
ur því haldið fram, að ætlaðir
verði á þessu þingi meiri pening-
ar til innflutninga en að undan
förnu.
í frönsku blaði, sem gefið er
út í Montreal, stóð nýlega grein
eptir franskan Canada-mann, J. X.
Perreanlt' um framtíðarhorfur Cana-
da. Greinin hefur vakið nokkra
eptirtekt, pvl að höfundurinn er
ekki ópekktur; bæði hefur hann
setiB á sambandspingi, og eins verið
fulltrúi Canada á sýningnm I París
og Philadelphiu. Höf. lætur alls-
endis afdráttarlaust í ljósi pá ósk
sína að Canada renni saman við
BandarSkin, og hann vonar að pess
muni ekki ekki langt að bíða að
svo fari, ef til vill verði pað peg-
ar árið 1892. Hann segir, að Cana-
da geti alls ekki lengur verið ný-
lenda, og látið loka sig úti frá að
taka pátt í sýningum, fuudum, sem
haldnir sjeu af fulltrúum frá öllum
pjóðum Vestur-álfunnar, o. s. frv.
Með sameiningunni við Bandaríkin
mundi Quebeo-fylki verða sjálfstætt
ríki, og pá mundi verða öðruvísi
farið með Frakka en nú eigi sjer
stað, peir mundu pá verða með-
limir congressins og komast til
hinna æðstu valda og virðinga. par
á móti fari brezkir Canada-menn
með pá eins og pjóð, sem unnin
hafi verið með vopnum; og svo
telur hann upp ýmsar mótgerðir,
sem Bretar í Canada hafi sýnt
Frökkum, par á meðal að grýta
erkibiskup peirra í Toronto. Hvað
Frakkar geti unnið við pað að
halda áfram sambúðinni við sllkt
fólk, sem ávallt hafi verið fjand-
menn peirra? Deir eðlilegu banda-
menn Frakka sjeu sunnan við pá,
en hvorki fyrir vestan pá nje aust-
an. Ef Canada færi inn í imperi-
al federation, pá mundu franskir
Canada-menn verða pjakaðir, svo
peim yrði alls ekki við vært,
o. s. frv.
Merkasta málið, setn enn hefur
komið fyrir sambandspingið er frum-
varp til laga um afnám frönskunn-
ar sem löggiltrar tungu í Norðvest-
ur-territóríunum. Frumvarp petta er
skoðað sein byrjun á rjettarbótum
peim sem hið svo kallaða „Jafnrjett-
isfjelag“ hyggst að fá framgengt.
Eins og kunnugt er, eru pær fyrir-
huguðu rjettarbætur stílaðar móti
viðhaldi fransks pjóðernis í Canada
og pó einkum' og sjerstaklega áhrif-
um og valdi kapólskra klerka. For-
ingi pessa flokks er Mr. McCarthy,
einn af pingmönnum íhaldsflokksins
í Ontario. McCarthy lagði frumvarp
petta fyrir pingið í síðustu viku,
og í meðmælingarræðu sinni gekk
hann gegn um sögu frönskunnar
sem löggiltrar tungu í territórínnum,
neitaði pví fastlega að nokkuð væri
tekið fram um að franskan skyldi
vera löggilt inál í samningum við
Frakkland, eins og opt hefði verið
staðhæft, sagði að petta atriði hefði
komizt inn í lögin fyrir klaufaskap
einn, íbúar territóríanna hefðu aldr-
ei um pað beðið, og pað væri ústæðu-
laust, að vera að haldá pessari laga-
grein lengur. Hún væri einmitt
Frökkum sjálfum til tjóns, pví að
peirra styrkur og framfaravon væri
í pvi innifalin fyrst og freinst, að
landslýðurinn í Canada sampýddist
sem bezt innbyrðis, og yrði sem
samgrónust heild.— Mr. Ea Riviere
frá Manitoba svaraði uppástungu-
manninum á frönsku, og pótti ein-
kennilegt, að pingmaður frá Ontario
skyldi koma með slíka uppástungu,
par sem fulltrúar territóríanna sætu
pó á pinginu; hvers vegna hann
kæmi pá ekki heldur fram með til-
lögu um að afnema löggildi frönsk-
unnar í allri Canada? Hjelt pví
annars fastlega fram, að ekki
færi neitt eptir pjóðerni og
þeirri tungu, sem menn töluðu, hve
góðir Canada-menn peir væru. — For-
ingjar pólitisku flokkanna, Sir John
og Mr. Laurier, hafa enn ekkert
viljað láta uppskátt um það, hvern-
itr þeir mniv take. málið, svo
að enn eru að eins getgátur en
engin vissa um það, hverja útreið
pað inuni fá. pó er fastlega búizt
við að fruinvarp McCarthys muni
verða fellt. Kapólskir ihaldsmenn
hafa neitað að sitja með honum á
flokksfundum, ogToronto-blaðið Mail,
helzta blaðið, sem heldur fram skoð-
unum „jafnrjettis„-manna, telur sjálf-
sagt að bráðlega muni að pví draga
að sjerstakur flokkur myndist á
pinginu undir fornstu McCarthys.
Frumvarp hefur verið lagt fyr-
ir pingið um að banna alla samn-
inga við menn um atvinnu hjer i
landinu úður en peir koma hingað
til landsins. Frumvarpið er orðrjett
afskript af peim lögum, sem gilda
um petta efni í Bandaríkjunum.
ÓveDjulega hörð blaðadeila —
og með því cr mikið sagt í þessu
landi — hefur um fyrirfarandi
vikur stað yfir milli stórblaðanna
í Toronto, og stendur enn. Blöðin
eru þrjú: Empire, Mail og Globe.
Globe er blað frjálslynda flokks-
ins, Empire* stendur sjerstaklega
nærri Ottawa-stjórninni, og Mail
fylgir McCarthy að máluin móti
Frökkum, og er unnars conserva-
tívt, eins og McCarthy sjálfur.
Mail hefur nú verið borið á brýn
um síðustu vikur, að stjórn þess
hafi hnft heldur mikil mök við
nefnd þá er sett var í fyrra af
Bandaríkja-congressinum til þess
að rannsaka verzlunar-viðskiptin
við Canada, svo að næst gangi
landráðum. Út úr þessu hafa hin
Toionto-blöðin ráðizt á Mail með
feykilegum skömmum, kallað út-
gefendurna landráðamenn og svik-
ara og ölluin illutn nöfnum; en
einkum hefur þó Empire verið
harðort. Nú er komið í mál milli
Mail og Empire, en Globe stcnd-
ur bjá fagnandi yfir því að eng-
inn vafi leiki á því að fylgis-
manna-flokkur Sir Johns sjc að
að rofna, og ná eigi stjórn hans
ekki langt eptir.
Henry George, hinn nafn-
kenndi hagfræðingur í New York,
er nýfarinn til Ástralíu. Hann
er, eins og lesendum vorum cr
kunnugt, ákafur formælandi frjálsr-
ar verzlunar, og aðalatriði kenn-
ingar hans er það, að skattar
eigi ekki að lcggjast á neitt nema
landeignir; það er hin svo kallaða
single tax theory, sem svo mikið
hefur verið rætt um á siðari
tínium. í Wellington á Nýja Sjá-
fandi verður Heniy George gest-
ur landstjórans, Sir Gcorge Grays,
sem er eindreginn fylgismaður
þessarar skoðunar um skatta-álög-
urnar. Yið síðustu kosningarnar
á Nýja Sjálandi náði frjálslyndi
flokkurinn, sem hcldur fram frjálsri
verzlun, að eins eins atkvæðis
meiri hluta í neðri málstofunni.
Skyldi nú þessi eini maður miss-
ast við næstu kosningar, þá kemst
tollflokkurinn að völdum. þess
vegna hefur Mr. George verið
fenginn til að tala ytír hausa-
mótunum á landsmönnum, og
kvað hann eigi að fá ferðina vel
borgaða, enda er ræðumaðurinn
óneitanlega nokkuð langt að feng-
inn.
Ymsar frjettir.
Versta veður hefur verið á
Atlantshafinu fyi'irfarandi, eptir
þyí sem aillr segja, sem fiýkomn-
ir eru af því. Fjöldi af skipum
hefur skemmzt meir og minna,
og nokkuð af mönnuin týnzt.
Mjög mikið er gert um þess-
ar mundir úr neyð bænda í Suður
Dakota. Hraðskcyti til Chicago-
blaðsins Herald, segir að hundruðum
saman líði menn þar neyð. Mat-
ai’skorturinn er þó ekki verstur,
heldur fóðurskortur handa gripun-
um, og er sagt að gripir muni
hrynja niður í þúsunda-tali, svo
framarlega sem ekki komi hjálp, því
bændur geta ekki selt þá. North-
veetei%n-járnbrautarfje 1. hefur hjálp-
að mönnum urn kol fyrir $2 tonn-
ið til þess að halda lífinu í fólk-
inu.
Tvær stúlkur lögðu af stað
frá NeW York þ. 14. nóv. síðastl.
í ferð kring um hnöttinn. Önnur
þeirra var send af blaðinu World
og er venjulega kölluð Nellie Biy,
því hún ritar undir því nafni.
en heitir annars öðru nafni. Hún
hjelt í austur. Hin var send af blað-
inu Cosmopolitan Magazine og
heitir Miss Bislnnd. Hún hjelt í
vestur. Miss Bly kom heim úr
ferðinni á laugardaginn var, og
hafði verið 72 daga 6 klt, og 11
mínútur í leiðangrinum. Ferðin
kostaði á 5. þúsund dollara, en þar
af voru $2190 fyrir járnbrautarfar
frá Mojave í Californíu til Chica-
go; svo mikið var sett upp fyrir
að fara eins hratt eins og stúlk-
an vildi o: dollar á mílunn, enda
voru ekki aðrir farþegjar en hún
fluttir í þeirri ferð. Miss Bisland
var ókomin þegar síðast frjettist,
enda hefur hún fengið illt veður
á Atlantshafinu. Eins og nærri
má geta, hcfur stórfje verið veðj-
að um hvor stúlkan mundi verða
fljótari. Aldrei liefur áður verið
farið kring um hnöttinn á jafn-
stuttum tíma eins og Miss Bljr
nú hefur gert það.
Yerkflmenn voru niðri í göng-
um á námum í Colorado á laugar-
dagiun var. l>eir heyrðu pá ullt í einu
hávaða mikinn, líkt og nið af miklu
fljóti, og s&u bráðlega vatn fara að
ryðjast inn í göngin. £>eir fengu
með naumindum tíma til að forða
lífinu út úr göngunuin áður en
allt fylltist. Göngin, sem full eru
af vatni, eru 4000 feta löng. Menn
halda að sprungið muni hafa vegg-
irnir að stöðuvatni einhverju niðri •
í jörðunni.
Bandaríkja-menn þykjast hafa
komizt að því að canadiskir timbur-
salar og aðrir Canadamenn hafi
stolið við fyrir sunnan landamær-
in, svo- billíónum feta nemi. Indí-
ánar í Minnesota kvað fullyrða,
að þessi þjófnaður hafi átt sjer
stað um meir en 12 ár, og af-
dráttarlaust er sagt að nokkrar
þúsundir Canada-manna fáist við
að höggva viðinn og flytja hann á
burt. „Ekki færri en 20 gufuskip
og flutningabátar“, segja frjettirnar
„ganga frá því snemma á vorin
og þangað til seint á haustin ept-
ir Rainy river og smáám þeim sem
í þá á falla og Skógavatni, og
flytja þetta stolna timbur til Rat
Portage, Keewatin, og jafnvel til
Winnipeg fer það“.
Dæmalaus snjókoma, eða pví
sem næst, hefur um fyrirfarandi
tíma verið í suður- og vesturhluta
Bandarikjanna. Á Tlnion Pacifie
járnbrautinni koinust engar lestir
vestur að hafi í 10 daga, frú 12.
til 22. p. m.; nálægt Baker City í
Oregon sátu 8 farpegja-lestir fastar
í snjónum í einu. Fjöldi af konum
og börnum, sem í vögnunum voru
veiktist til muna, meðan á pessari
bið stóð, og þrir farpegjar dóu.
Um enga hjúkrun var að ræða,
nem pað sem farpegjarnir voru að
reyna að hjálpa hver öðrum. A
Central Pacific brautinni varð og
viku-hlje á vagna-göngunúm Á
peirri braut var snjórinn 15 fet
sumstaðar i Californíu án þess að
par væri um skafla að ræða. Skafl-
arnir voru 50—60 feta djúpir. t>ús-
undir manna stóðu í snjómokstri á
brautinni. Á Southern Pacific braut-
íhuí höfðu lestirnar ekki haft sig
áfram, þegar siðast frjettist.
— Eptir að þetta var sett, hafa
frekari frjettir komið um snjópyngsl-
in á Kyrrahafsströndinni. Dannig
er telegraferað frá Seattle, Wash. p.
27. p. m.: „Engir gamlir járn-
brautar-menn hjer uhi slóðir vita
til pess að snjópyngsli hafi nokk-
urn tíma haft önnur eins áhrif og
nú á járnbrauta-flutningana. Vand-
ræði ferðainanna og fólks yfir höf-
uð eru mjög mikil. Póstbrjef koma
með Union Pacific 7—10 dögum
of seint. Eptir Southern Pacific
hafa nú engar lestir komið í 2
vikur, og Norihern Pacific er líka
mjög illa útleikin“. Ekki er glæsi-
legra að heyra lengra suður undau.
Dannig er telegraferað frá Colorado
p. 27., að þar hafi verið blindbylur
síðan á föstudaginn var, og að
engin umferð sje eptir Utah og
Northern járnbrautinni, Central
Pacific brautin sje og í frámnna-
lega illu ástandi. Ein lest á þeirri
braut hefur setið 10 daga föst í
snjónum, og menn vita ekkert,
hvernig farþegjunum líður. Kyrra-
hafsbrautin canadiska er eina braut-
in, sem reglulegar lestaferðir hafa
verið eptir um síðustu viku, af
peim brautum, sem liggja pvert
yfir Norður Ameríku.
1