Lögberg - 14.02.1895, Qupperneq 8
L3GBERG, FIMMTUDAQINN 14. FEBRÚAR 1895.
’ 8
UR BÆNUM
-OG-
GRENDINNI.
BlíðviPri er nú kotnið lijer um
slóðir eptir langa kuldaskorpu.
Voung Mens Christian Associ-
ation hjer í bænum hefur kosið sje-ra
Jón Bjarnason fyrir heiðursfjelaga.
Jón Guttormsson, aldraður bóndi
við Íslendingaíljót, ættaður af Austur-
landi, er nylega dáinn.
Á. Friðriksson hefur mikið af
góðu smjöri, sem hann selur á 12^ til
15 cents pundið ef tekin eru heil ílát.
Guðmundur B. Ingimundarson á
rcgistrerað brjef geymt hjá Mr. A.
Friðrikssyni 611 Ross Ave.
Frjetzt hefur, að Mrs. Ragnhild-
ur Snædal, kona Mr. Nikuiásar Snæ-
dals f Álptavatnsnylendunui, góð
kona og vel metin, sje nýlega iátin.
Tjaldbúðarsöfnuðurinn heldur
skemmtisamkomu í Tjaldbúðinni á
Jjriðjudagskvöldið kemur. Sjá aug-
Jysingu á öðrum stað hjer í blaðinu.
Ilver sem kann að hafa að láni
leikritið „Hkkmannaglkttur11, geri
svo vel að skila pví tafarlaust til
J. A. Blöndil
207 Pacific Ave.
M7innipeg.
Hon. Mr. Greenway hefur legið
sjúkur um nokkurn tfma og verið all-
pungt haldiun. Hann er nú í aptur-
bata, en pó ekki orðinn svo frískur,
að hann geti verið viðstaddur J>ing-
setninguna í dag. ...
Suðausturbrautar-mennirnir ætla
cnn að reyna við Manitobastjórnina
með styrk til hinnar fyrirhuguðu
brautar sinnar, sem mest var um tal-
að sfðastliðið sumar, og í pví skyni
cru peir komnir hingað f bæinn.
Páfinn hefur gert Langevm prest
f St. Boniface að erkibiskupi í stað
Taches, er Ijezt síðastliðið sumar, og
kom páfabrjefið hingaðf sfðustu viku.
Hinn nýi crkibiskup á að vígjast í
næsta mánuði.
Manitobapingið rerður sett í dag
kl. 3. Fjölda íslendinga eru boðið
að vera viðstaddir. Bezt mun fyrir
menn að koma tlmanlega f pinghúsið,
ekki löcgu eptir kl. 2, ef menn langar
til að ná f sæti, pvf að vafalaust verð-
ur par pröng allmikil.
Frelsissöfnuður í Argylebyggð
hjelt ársfund sinn 30. f. m. Þessir
voru kosnir fulltrúar: Árni Sveins-
son, S. Christopherson, Friðbjörn
Friðriksson, Kristján Ólafsson, Árni
Storm. Djáknar kosnir: Jón Björns-
son, Þóra Jónsdóttir.
Á priðjudagskvöldið kemur, p-
19. p. m., verður „Grand Shakespear-
iau Carnival“ á Manitoba skauta-
hringnum. £>að verður mjög vel
vandað bæði hvað búning og hljóð-
færaslátt snertir. Inngangseyrir 25
cents.
Þegar lögreglustjórnin ætlaði í
sfðustu viku að fara að framfylgja
aukalögum bæjarins um að loka búð-
um á kveldin kl. 7 (að undanteknum
aðfarakveldum hvfldardaga) pá neit-
uðu nokkrir matvælakaujimenn (groc-
ers) að hlýða boðinu, og kom pað mál
svo fyrir lögreglurjett. Eins og áð-
ur hefur verið tekið fram hjer f blað-
inu, purfa tveir priðju Élutar allra
kaupmanna, er stunda hverja sjer-
staka verzlunargrein, að æskja eptir
aukalögum um að búðum peirra skuli
lokað á vissum tfmn, skrifa undir
beiðni um pað, til pess að bæjar-
stjórninni sje heimilt að gefa út
aukalög pess efnis. Nú sannaðist
fyrir rjettinum, að töluvort vantaði á,
að nógu margir matvælakaupmenn
hefðu skrifað undir pá beiðni, og voru
aukalögin par af leiðandi dæmd dauð
og ómerk, að pví erpá verzlunargrein
snertir. Þar á móti hefur enn ekki
fengizt neinn dómur viðvfkjandi pví,
hvort bærinn hafi vald lil að gefa út
slík lög, hve margir sem æsk ja pess.
En pað er vitaskuld aðalatriðið, og
mörgum lögfróðum mönnum pykir
pað mjög vafasamt.
Tjaldbúðarsöfnuður hjelt fund í
kirkju sinni fimmtudagskveldið í síð-
ustu viku, eins og auglýst var hjer í
blaðinu. Málfrelsi fengu á fundin-
um, auk safnaðarmanna, sjera Jón
Bjarnason, fulltrúar 1. ísl. lút. safnað-
arins og Mr W. H. Paulson. Sjera
Hafsteinn lagfi fyrir söfnuðinn pá
spurningu, hvort hann vildi ganga
inn í kirkjufjelagið íslenzka. Mr.
Jóh. Polson gerði tillögu um inn-
göngu, og Mrs. S. Hermannson studdi
hana. Umræður urðu nokkrar um
málið. Móti inngöngunni töluðu
Guðjóu Jónsson, Mrs. J. Sigfússon,
Jóhannes Gottskálksson og Sigurður
Hermannsson. Aðalástæðurnar, sem
fram komu gegn inngöngunni, vcru
pær, að söfnuðurinn væri svo illa
efnum búinn og hefði bundið sjer
svo pungan bagga fjárhagslega, að
hann væri ekki fær um að bæta á
sig peim útgjöldum, sem pví væru
samfara að standa f kirkjufjelaginu,
að söfnuðurinn mundi lítinn hag hafa
af að vera í kirkjufjelaginu, og að
allmikill hluti safnaðarmanna mundi
hafa inn í söfnuðinn gengið einmitt
af pví, að peím hefði skilizt svo, sem
sá söfnuður mundi aldrei inn í airkju-
fjelagið ganga. Jafnframt var pað
gefið í skyn af sjera Hafsteini Pjet-
urssyni, að fleira mundi fyrir mönnum
vaka gegn inngöngunni en uppi hefði
verið látið. Með inngöngunni töluðu
uppástungumaður og styðjandi og af
utansafnaðarmönnum W. H. Paulson
og sjera Jón Bjarnason. Ræða sjera
Jóns var ein hinna fegurstu, sem vjer
höfum heyrt hann eða nokkurn annan
mann halda undirbúningslaust. Yið
atkvæðagreiðsluna varð niðurstaðan
sú, að tillagan um inngöngu safnað-
arins í kirkjufjelagið var felld með
öllum atkvæðum gegn 7. Sjera Haf-
steinn Pjetursson greiddi atkvæði
með tillögunni.
Islands frjettir.
Seyðisfirði, 18. des. 1894.
Ísfirzka OKILAN. Ó3S er skrif-
að af áreiðanlegum manni á ísafirði,
að peir alpm. Skúli Thoroddsen og
cand. theolj Grímur Jónsson sjeu nú
sáttir, og hafi Grímur orðið að láta
60 kr. úti til sveitar, taka öll meið-
yrðin um Skúla aptur og borga máls-
kostnað.
Slysfök. Snemma í vetur
drukknaði beitarhúsamaður frá Holta-
stöðum í Langadal í Blöndu á leið á
beitarhús paðan, sem standa á land-
spildu nokkurri vestan Blöndu, er
liggur undir Holtastaði.
Íshósby&uingin er nú langt á
leið komin í Reykjavík fyrir ötula
forgöngu bankastjóra Tr. Gunnars-
sonar. Hefur landsbankinn lagt 5,000
kr. í fyrirtækið, en álíka náðst saman
með hlutabrjefum.—Vjer Austfirðing-
ar verðum eigi pvflíks opinbers styrks
aðnjótandi til pess að koma hjer upp
íshúsum, — en byggjum pau samt.
Tíbakfai! hefur allt fram að pvf
fyrir fáum dögum verið hið blíðasta
og stormar venjufremur litlir, snjór
varla verið teljandi nema á fjöllum
uppi. En nú síðustu dagana hefur
veður kólnað og dilftið snjóað, en pó
liafa engar hríðar verið og snjókoma
enn lítil, eptir pví sein hjer er venju-
legt um petta leyti.
Sílharafli má alltaf heita góður
á Reyðarfirði, og pó einkum á Eski-
firði 1 seinni tíð. Þar láu nú fyrir
skemmstu 5 gufuskip í einu, og gátu
öll fengið fulla hleðslu, en útgerðar-
menn mun nú f seinDÍ tfð hafa vant-
að tunnur undir síldina, og jafnvel
orðið pessvegna að sleppa nokkru af
henni úr lásunum.
Seyðisfirði, 31. des. 1891.
Austur-Skaptafellssýslu, 5. des.
1895. — Sumarið næstliðna var hjer
um sveitir eitthvert hið bezta er menn
pykjast muna, sffelldar stillingar og
blíðviðri, grasvöxtur góður og nýt-
ing sömuleiðis, pótt nokkuð purk-
lint væri framan af túnaslættinum;
haustveðrátta mátti heita hin bezta,
allt fram til vetrainótta. En síðan
hefir verið mjög umhleypingasöm og
Ó3tillt tíð, opt stórrigningar og ofsa-
veður (22. nóvember prumur og eld-
ingar miklar) og stundum hlaupið
snögglega í norðurátt með nokkru
frosti og töluverðri snjókomu til
fjalla. Nú með jólaföstunni hefur
dálítið stillst til, hvað lengi sem pað
verður. Bráðafárið hefur geisað í
Nesjum og drepið fjölda fjár, en hjer
í Lóni hefur lítið borið á pví (nokkuð
í Mýrum og Suðursveit).
Verzlun hefur verið miklu betri
f haust en undanfarin ár, pví að bæði
kom nú fjárkaupmaður (Coghill), sem
pótti gefa vel fyrir sauði (mest 17 kr.
fyrir fullorðna,en viðlíka sauðir lögðu
sig pó eins vel eða betur við verzlan-
ina hjer á Papós), og svo kona nú
haustskipið í tæka tíð og verður varla
mikill skortur af nauðsynjavörum hjer
að pessu sinui.
Á jólanóttina var hjer stórviðri,
einkum úti í firðinum, ogfauk pá pak
af fjárhúsi á Dvergasteini.
Nóttina tnilli pess 28. og 29.
geisaði hjer eitthvert pað mesta of-
veður og fauk í pví Vestdalseyrar-
kirkja að mestu af grunuinum, og
stórskemmdist, en skrúðhúsið slitnaði
frá kirkjunni í heilu lagi, en brotnaði
pó eigi. Ymsar aðrar skemmdir urðu
á húsum, bátum og bryggjum.
Eptir „Austra“.
Spurningiir «g svör.
Sp. 1. Getur sá maður verið
hluthafi í fjelagi, sem skuldar fjelag-
inu allt af margfalt meira en hlutir
hans nema? Getur hann notið allra
rjettinda, sem hver annar hluthafi,
tekið vöxtu til jafns við pá er í skilum
standa við fjelagið, verið embættis-
maður pess o. s. frv.?
2. Hvernig verður pað skilið,
par sem svo er sagt fyrir í lögum:
„Tilgangur fjelagsins er að kaupi og
selja fyrir peninga út I hönd?—Hjer
er pað eiginlega orðið „tilgangur“ sem
skiptar skoðanir eru um og valdið
hefur deilum meðal hluthafa, með pvl
að sumir skildu petta upprunalega
svo, sem ekkert lán ætti að eiga sjer
stað, en önnur reynd hefur á orðið.
Sv. ad 1 og 2. Spurningunum
verður naumast svarað til fulls, nema
maður sjái áður fjelagslögin. En
eptir pví sem almennt viðgengst, er
pað sem um er spurt á valdi stjórnar-
nefndar fjelagsins; hún getur kveðið
á um slíkt með aukalögum, se m eru f
gildi pangað til hluthafafundur kann
að gera á peim einhverja breytingu.
Sp. 1. Er leyfilegt að brúka
blett af landi sínu fyrir grafreit án
pess að fá til pess leyfi?
2. í hverju eldsábyrgðaifjelagi
er bezt að tryggja eignir sfnar?
Pipestonebyggðar-búi.
So. ad 1. Engin lög eru til, som
banna yður að nota blett af landi yðar
fyrir grafreit.
Ad 2. Spurningin er ekki pess
eðlis, að henni verði svarað í Lög-
bergi.
____•
Sp. Ber safnaðarnefnd (forseti,
skrifari ásamt 3 fjárhaldsmönnum) á-
byrgð á fjármálum safnaðar allir fyrir
einn og einn fyrir alla, eða að eins
fjárhaldsnefndin? Hvað segja kirkju-
pingslögin hjer um?
Sv. Sje söfnuðurinn löggiltur,
bera fjárhaldsmenn hans (trustees)
ábyrgðina. En sje hann ekki löggilt-
ur, ber hverábyrgð á pví að eins, sem
hann hefur undir gcngizt á löglegan
hátt. Kirkjupingslögin segja eðli-
lega ekkert um petta, með p"í að
pað verður sð fara eptir lögum pess
lands, sem söfnuðurinn er f.
IiSLANDS FERDIR.
Dönsku póslskipanna 1895.
[Skammstafanir: Gr: Grantcn;
Bf: Berufjörður; Fás: Fáskrúðsfjörð-
ur; Ef: Eskifjörður; Norf: Norðfjörð-
ur; Sðf: Seyðisfjörður; Vf: Vopna-
fjörður; Hv: Húsavík; Ak: Akureyri;
Sgl: Siglufjörður; Sðk: Sauðarkrók-
ur; Skst: Skagaströnd; Bl: Blönduós;
Bo: Borðeyri: Rf: Reykjarfjörður; ís:
ísafjörður; Ön: Önundarfjörður; Dýr:
Dýrafjörður; Arn: Arnarfjörður; Pat:
Patreksfjörður; Sth: Stykkishólmur;
Fl: Flatey; Rv: ReykjavíkJ.
I. Til Íslands.
1. Gr. jan. 19; til Ilv. 28.
2. Gr. marz 5; til Rv. 13.
3. Gr. marz 26; Fás. 30; Ef. 31;
Norf. apríl 1; Sðf. 1; Vf. 2; Ak.
4; Sgl. 5; Sðk. 6; ís. 8; ön. 9;
Dýr. 10; Pat. 10; Sth. 11; til
Rv. 14.
4. Gr. apríl 23; til lív. 30.
5. Gr. maf 20; Ef. 25; Sðf. 25; Vf.
26; Hv. 27; Ak. 29; Sgl. 30;
Sðk. 30; Skst. 31; Rf. 31; ís.
júní 2; Ön. 3; Dýr. 3; Arn. 4;
Pat. 4; Sth. 5; Flatey 5; til Iív. 8.
6. Gr. júní 5; Bf. 15; Ef. 15; Sðf.
17; Ak. 20; Skst. 21; Bl. 21; ís.
22; ön. 22; Dýr. 23; Arn. 24;
Pat. 24; Sth. 24; Fl. 24; til
Rv. 26.
7. Gr. júlí 6; til Rv. 16.
8. Gr. ág. 1; Ef. 6; Sðf. 7; Vf. 7;
Hv. 8; Ak. 10; Sgl.ll; Sðk. 11;
Skst. 12; Bl, 13; Rf. 14; ís. 15;
ön. 15; Dýr. 16; Arn. l6;’Pat.
17; Sth. 17; til Rv. 19.
9. Gr. ág. 10; til Rv. 16.
10. Gr. sept. 17; Sðf. 24; til Rv. 26.
11. Gr. okt. 1; Fás. 6; Ef. 6; Norf.
7; Sðf.8; Vf. 9; Hv. 10; Ak. 12;
Sgl. 12; Sðk.' 13; Skst. 13; ís.
15; Dýr. 15; Pat 16; til Rv. 18.
12. Gr. nóv. 12; til Rv. 20.
II. Vksturlandsfkkðik.
1 a) Frá Rv. maí 2; um vesturhafnir;
til ís. 5.
b) Frá ís. maf 7; til Rv. 10.
2 a) Frá Rv. sept. 29; um vesturhafn-
ir; til ís. okt. 2.
b) Frá ís. okt. 5; til Rv. 11.
III. Fra' Ísla NDI TII. GltANTON.
1. Rv . febi :.3; til G r. 10.
2. JJ marz 20; JJ JJ marz 28.
3. JJ apr. 21; JJ JJ maf 5.
4. ma! 13; JJ JJ maf 19.
5. júní 12; JJ JJ júní 29.
6. JJ júlí 2; JJ JJ júlí 18.
7. JJ júlí 24; JJ JJ júlí 30.
8. JJ ág- 28; JJ JJ sept 15.
9. JJ ág. 23; JJ JJ ágúst 29.
10. JJ okt. 14; JJ JJ okt. 21.
11. JJ okt. 24; JJ JJ nóv. 7.
12. JJ nóv. 28; JJ JJ des. 6.
Skór sein passa,
Skór sem endast,
Skór sem eru eins og menn vilja hafa.
Johnson’s $1,25 skór, Kvenn-
manna Kid, Oxford Alfred Dolges
og Moscow flókaskór.
C. H. Meade’s 35c og 50c barna
Moccasins.
Til sölu hjá
A. G. MORGAN
412 Main St.
ÍSLENZKUR LÆKNIR
Dr. 3ME. HalldóvsBOii.
Park liioer,-jV. Dak.
Fyrirlestur
— í —
Islendingabygdunum.
EINAK HJÖRLEIFSSON
IIELDUR
FYRIRLESTUR
- Oli-
les nokkra skemmti-
legra kafia
á peim stöðum og tíma, er nú skal
greina:
PEMBINA, N. D.:
mánud. 4. marz kl. 8 e. h.
GARDAR, N. D.:
miðvikud. 6. marz kl. 5 e. h.
EYFORD, N. D.:
fimmtud. 7. marz kl. 2. e. h.
MOUNTAIN, N. I).:
fimmtud. 7. marz kl. 7. e. h.
HALLSÖN, N. D.:
föstud. 8. marz kl. 4. e. h.
í SAMKOMUHÓSINU Á SaNDIUKÐUNUM
FYRIR NOKDAN TuNGÁ, N. D.:
föstud. 8. marz kl. 7 e. h.
í SA.MKOM UHÖSINU HJÁ KIKKJU VÍDA-
LÍNSSAFNAÐAR Á SaND-
HÆÐUNUM, N. D.:
laugard. 9. marz kl. 4 e. h.
MARSHALL, MINN.:
miðvikud. 13. marz kl. 7,30. e. h.
MINNEOTA, MINN.:
fimmtudaginn 14. marz kl. 7.30 e. h.
í Íslkndingabyggðinni f Lincoln
Co., Minn.:
föstud. 15. marz kl. 1 e. h.
í AUSTURBYGGÐ, MINN.:
laugard. 16. marz kl. 1 e. h.
Inngangur að hverri samkomu
um sig kostar 25 cent.
SKEMMTI- *
* SAMKOMA
Verður haldin í „Tjaldbóðinni“
(cor. Sargent og Furby St’s) priðju-
dagskvöldið 19. p. m.
PROGRAM
KR SKM fylgir:
1. Söngflokkurinn: Syngur.
2. E. Hjörleifsson: Ræða.
3. S. Þórðarson: Upplestur.
4. Quaitett.
5. H. Pjetursson: Ræða.
6. Söngflokkurinn syngur.
7. E. Ólafsson: Upplestur.
8. Mr. & Mrs. H. Hjálmarsson:
Duet.
9. B. L. Baldvvinsson: Ræða.
10. Söngflokkurinn syngur.
11. Mrs. Polson: Upplestur.
12. H. Hjálmarsson: Solo.
13. H. Lindal: Upplestur.
14. Söngflokkurinn syngur.
Inngangseyrir 25 c. fyrir fullorðna,
15 c. fyrir börn innan 15 ára.
Samkoman byrjar kl. 8. e h.
Seymour House,
Hlarket Square % Wlnnlpeg.
(Andspænis Markaðnum).
Allar nýjustu endurlxetur. Keyrsla ókeypis ti
og frá vagnstoðvum. Aðbúnaður hinn be*ti.
John Baird,
Eigandi.