Lögberg - 09.03.1899, Side 2
2
LÖGBERG, FiMMTUDAGINN 9. MARZ 1899.
<
Ar frá ári.
Meira heims mig nepjan nístir
6r fr6 6ri;
Sorg 6 bjartað pyngra prjfstir
6r frá 6ri.
Einskis manns nú alúð vinn eg,
aldrsi minnast harma linni’ eg,
trega meiii og tómleik finn eg
ár frá ári.
öll mín prá af sorgum sýrð er
ár frá ári;
góðvina mjer gleði rýrð er
ár frá ári;
vonir mínar sje jeg sökkva:
sigla í kaf á dauðans nökkva
eilífðar í æginn dökkva—
6r frá ári.
Sinnuleysi sárt mjer mætir
ár frá ári,
sem mig eins og sundur tætir
ár frá ári.
Blikna sje jeg blóma grúa,
blóm, sem hefði að mátt hlúa’ og
eilífðar krans úr peim búa—
ár frá ári.
Allt af f>eir, sem ann jeg, hverfa
ár frá ári;
að mjer skörðin sárar sverfa
ár frá ári,
^andans sjón peir að eins mæta,
endurminnÍDgar mig græta,
pyngri má jeg sektuin sæta
ár frá ári.
Ort ’95.—J. R.
I samtíðinni.
Einn lltur yfir löngu gengin spor,
og Jjúfar myndir hugans sjer par vaka,
og skilst pá fyrst að lífs er liðið vor,
og langar sárt að hverfa nú til baka-
En annar væntir eptir pví að sjá
sitt auðnudaga skaut í framtíðinni;
hve inndælt llfið veit hanu verður pá,
og vill pvl komast fram úr samtíðinni.
En jeg—jeg elska dsginn pann I dag,
hann dyrnar opnar mjer á framtíðinni;
I örmum hans jeg yrki nú minn brag,
og uni himÍDglaður samtlðinni.
Ort ’98.—J. Runói.fsson.
Islands frjettir,
ísafirði, 3. des. 1898.
Tíðaefae. — Slðan síðasta nr.
blaðsins kom út hefur viðrað all-bæri-
lega, veðrátta verið frostlin, og engir
ofsar, pó að smá-vindpotur hafi verið
öðruhvoru.—30. f.m. gerði pó all-arða
norðan hrynu, er helzt enn.
He. Hói.mgeik Jensson, amts-
dýralæknir, hefur fyrir nokkru bólu-
sett fé á ýmsum bæjum I Inndjúpinu.
í Ögurvíkinni bólusetti hann liðugt
hundrað, og drápust sex kindur; I
Vatnsfirði og Skálavík kvað hann og
hafa bólusett töluvert á annað hundr-
að, og kvað par einnig hafa drepist
sex.— Kindurpessar drápust strax, en
síðan hefur ekkert farist, og telur
heimildarmaður vor pað óvanalegt,
par sem á pessum bæjum hafi vana
lega verið dautt fleira og færra um
petta leyti. Annars er sagt, að litið
beri á bráðafári I inndjúpinu enn sem
komið er.
ísafirði 12. des. 98.
Tíðakfae. Norðangarðurinn, sem
hófst 30. f. m.', stóð I samfleytta viku
og stilti fyrst aðfaranóttina 7. p. m.,
en reif sig upp aftur aðfaranótt 8. p.
m., svo að blindbylur varpann dag.—
9. var gott veður að morgni, en baró-
meterstaðan afar lág. enda skall pá á
útsynningsstormur um hádegisbilið
og er tíð rosasöm.
Aflaheögð. Eftir viku landlegutíma
gaf loks á sjóinn 7. p. ro., og var pá
all-góð fiskireita bjá almenningi bæði
I Hoífsdal og I Bolungarvík: Hlutir I
Vjkinni pann dag hæztir 8 kr., og
lœgstir 2 kr. — 9. p. m. reru og nokk-
rir bátar hér úr kaupstaðnum, og var
pá príðisgóður afli. í öðrum verstöð-
um einnig dágott 9. p. m., en kippti
fljótt úr við vestanáttinr. Fisknrinn
er yfirleitt vænn og feitur, svo að
vafalaust myndi nú aflast vel, ef
gæftaleysið væri ekki eins frámuna-
lega bagalegt, eins og verið hefur I
vetur.
ísafirði. 31. des. 98
Engin Bkáðapest hefir í vetur
gert vart við sig á Vesturlandi, að
teljandi sé, og stafar pað að líkindum
af pví, að snjópyngsli lögðust fljótt á
I haust, svo að menn urðu nauðugir
viljugir að taka fé sitt á gjöf, og féð
losaðistpannig við hina afar-háskalegu
haust-útbeit, sem drepur pað hrönn-
um saman, og kallast svo bráði.
Tíðaefae hefir I p. m. verið afar-
óstöðugt og stormasamt, svo að vart
i hafa menn getað hætt sér á sjó, nema
i stund I bili.— Himininn alloptast
í dimviðris-skýjum hulinn, og hríðar-
byljir einatt annað slagið.
Seint I f. m. andaðist að Kvíum
I Grunnavíkurhreppi merkisbóndinn
Samiiel Þorkelsson, um sextugt. —
Hann var um mörg ár fyrirvinna hjá
ekkjumi Sigurborgu Jónsdóttur.
ekkju Jakobs heitir.s Jóhannessonar,
er drukknaði fyrir 30—40 árum. —
Samúel heitin lætur eftir sig eitt
barn Jakoblnu að nafni. Hann var
orðlagður dugnaða-og atorku- raaður,
og er sveitungum hans o. fl. að hon-
um eftirsjá.
Þak Rauf af fiskhusi I Hnífsdal
aðfaranóttina 22. p. m- I ofsaveðrinu,
er pá var.—Skemdir urðu og nokkrar
á bátum o. fl.
Aflabkögð voru mikið góð hjá
öllum almenningi I gær og fyrradag,
bæði bjá peim fáu skipum, er reru úr
kaupstaðnum, og eins I Hnífsdal og
Bolungarvík; alment um 8 kr. hlutir I
Hnífsdal I fyrradag, eftir blautfisks-
verði.
Chk. Gkam, sonur N. C. Grams
sáluga konsúls, er nú skipaður til
pess að hafa umsjá alla hér á landi
með veizlunum peim, er faðir hans
seldi hlutafélaginu „N. Chr. Gram’s
Aktieselskab“ I Khöfn I fyrra.
ísafirði, 16. jan. 1899.
Tísaefae. Síðan Dýja árið hófst
hafa gengið slfelldir stormar, og af-
taka-veður, útsynningsrosar fyrstu
dagana, en síðan grenjandi norðan
garður nú I fulla viku óslitið, enda
pykjast elztu menn eigi muna jafn
langvinna storma^Ið, eins og verið
hefur, slðan I síðastl. október-mánuði.
Af) morgni 5. p. m. andaðist hér
á bæjar-spítalanum Carl Ernst Alex-
ander Fensmark, er sýslumaður var
ísfirðinga árin 1879—’84. Hafði hann
vérið lagður inn á spltalann slðastl.
haust, farinn að heilsu. .
Aflabbögð. Dað mun hafa ver-
ið alls tvisvar síðan á Dýjári, að stöku
bátar hafa getað skroppið á sjóinn,
og var afla tregt fyrri daginn, svo
sem títt er I suðvestanátt, en all-vel
að fiska slðari daginn, svo að menn
telja nú víst, að Djúpið hafi fyllzt af
flski I norðangrðinum.
Dáin. 4. p. m. fanst húskona
ein hér I bænum, Guðrún Jónsdóttir
að nafni, örend I flæðarmálinu hér I
kaupstaðnum. Hún var ekkja Gests
heitins Sigurðssonai, er lengi var hús-
maður hér I bænum. Guðrún beitin
hafði verið lasin um hríð, og lá nppi í
rúmi, er stúlka sú, er hjá henni var,
fór upp I lyfjabúð, til að sækja henni
meðul.—En er stúlkan kom aftur, var
Guð'-ún horfin úr bænum, er hún bjó
I, og fanst pá rétt á eftir örend niðut
í flæðarmáli.—Fer pví um pað tveDn-
um sögunum, hvort hún hafi reÍKað út-
I einhverju ráðleysi, og orðið bráð-
kvödd, eða hún hafi fyrir farið sér
sjálf. t
Hún lætur eftir sig tvö uppkom-
in börn: Kristínu, konu Kristjáns
Bjarnasonar, húsmanns hér I bænum,
og Guðmund Gestsson.
Hoenstköndum 17. nóv. 1898:
„Mjög hefur verið rosasamt petta út-
llðandi haust; 22. okt. var hér hrlðar-
bylur norðaustan, með stórkostlegri
sjávarólgu, og 3. p. m. aftaka-norðan-
veður, með fjarska miklum sjógangi,
og gekk pá sjór um 150 faðma á land
upp á Hafnarsandi, par sem hann er
lægstur.—*Næstliðna nótt kom og I
priðja skifti llkur brimagangur, og
er pað hrikaleg sjón, að horfa á hinar
stóru haföldur, pegar pær rlsa og
brotna við landið, og róta um öllu,
sem hræranlegt er.—Skemmdir hafa
pó engar orðið hér nyrðra, að heyrzt
hafi.
Fiskafli hefur svo að segja eng-
inn verið I haust, og stafar pað af
hinni sífelldu óstillingu, sem verið
hefur, slðan um miðjan f. m.: aftur
má heita heldur góð veðrátta á landi.
„Aldrei er ein báran stök“ meg-
um vér Hornstrendingar segja, að pvl
er erfiðleikana .og samgönguleysið á
pessum nyrsta útkjálka landsins snert-
ir, og sárt pótti oss pað síðastl. sum-
ar, að horfa á „Skálholt11 fara hér pétt
með björgunum, en skreppa hér ald-
rei inn, og hefur pó nefnt skip, að áliti
mínu og margra greindra sjómanna,
farið á marga höfnina, sem ekki er
betri, en Höfn á Hornströndum, prátt
I fyrir skipströnd pau, er hér hafa orðið
I tvö næstliðin vor og sumar, enda get
ur slíkt hent á fleiri liöfnum, pótt
góðar séu.
Annars lítur helzt út fyrir, að
vér Hornstrendingar séum fyrir utan
mannlegt félag, nema hvað opinber
gjöld snertir. Póstferðirnar hingað
norður eru nú reyndar orðnar 4 á ári^
en—allar að sumrinu, pegar hægast
er að koma blöðum og bréfum á ann-
an hátt“.
Úk 'Mýkaheeppi í Dýeafikði er
oss ritað 25. des. slðastl.: „Hér er
yfirleitt orðið mjög hart um björg
manna á milii; lítill aíii I haust, kaup-
staðarlán. mjög takmörkuð, sem að
líkindum lætur, og heyskortur fyrir-
sjáanlegur, ef menn ekki fækka
skepnum, og veturinn verður mjög
harður, eins og p.að, sem af er; sjálf-
sagt nú búið að eyða eins miklum
heyjum, eins og I meðalvetri með
porra.
Purfamönnum fjölgar ár frá ári,
sveitarsjóðirnir purkast upp, og bænd-
nr ganga svínbeygðir undir sköttum
slnum, pótt eigi séu háir, af pvl að
gjaldpolið er ekki neitt,—allir Jónar
bráðum jafnir!
Nú eru horfellislögin Dýju komin
1 gildi, og búið að gera eina skoðun
hér I hreppi.—Fanst skoðunarmönn-
um I fleiri stöðum of mikið sett á, og
muD pó ekki hafa verið verra, en vant
hefur verið.
Horfellislögin erumjögilla pokk-
uð hér hjá all-flestum, pykja óparfur
gjaldaliður fyrir sveitarsjóðina, enda
get ég eigi annað kallað, en að pau
séu neyðarúrræði, og að eins bjóð
andi lágt hugsandi og ómannúðlynd-
um mönnum, enda verður pað og of-
an á, pegar fanð verðiír að beita hor-
fellislögunum, að peir, sem geta rétt
höfuðið upp úr, borga brúsann fyrir
hina, par sem lögbrotsmennirnir munu
optast reynast ósjálfstæðir fátækling-
ar, sem enga sekt geta borgað; en
séu peir dregnir frá konu og börnum,
til pess að sæta refsingu, kemur til
hrepps-nefndarinnar kasta, að ráðstafa
búinu, auðvitað upp á sveitarsjóðsins
reiknÍDg, og eykst pannig ósjálfstæði
manna, og hvar vlð lendir?“
-—Þjóðv. ungi.
dr- Dalgleish,
TANNLŒKNIR
kunngerir hjer meö, að haDn hefur sett
niður verð á tilbúnum ténnum (set of
teeth), en þó með því skilyrði að borgað
sé út í hönd.
Hann er sá eini hér I bænum, sem dregur
út tennur kvalaianst, fyilir tennur uppá
nýjasta og vandaðasta máta og ábyrgist
allt snt verk.
416 IV|ain St., - Mclntyre Blocl^.
I. M. Cleghorn, M, D.,
LÆKNIR, og ’YFIRSETUMAÐUR, Et>
Hefur keypt lyfjabúSina á Baldur og hefur
þvl sjálfur umsjón á öllum meSölum, sem hann
ætur írá sjer.
EEIZABETH 8T.
BALDUR, - - MAN
P. 8. Islenzkur túlkur við hendin
nær þörf gerist.
Stranahan & Hamre,
PARK RIVER, - N. DAK
SELJA ALLSKONAR MEDÖL, BŒKUR
SKRIFFÆRI, SKRAUTMUNI, o. s. frv.
lEg” Menn geta nú eins og áðnr skrifað
okkur á íslenzku, þegar þeir vilja fá meðöl
Munið eptir að gefa númerið af meðalinu
Premiu = Listi
LÖGBERGS.
Nyir kaupendur að Lögbergi, er senda oss tvo (2)
dollars, sem fyrirfram borgun fyrir næsta árgang blaðsins
geta fengið einhverjar tvœr (2) bækur af lista þeim, sem hjer
fer á eptir í kaupbætir.
Gamlir kaupendur er senda oss $2.00 sem fyrirfram
borgun fyrir blaðið, geta fengið einhverja eina (1) af bókum
þeim, er nefndar eru hjer næst á eptir:
1. Björn og Guðrún, Bj. Jónsson
2. Barnalærdómskver H. H. í b.
3. Barnfóstran
4: Brúðkaupslagið, Björnstjerne
5. Chicago för Mín. M. J. .
6. Eðlisfræði
7. Eðlis lýsing jarðarinnar
8. Einir, Guðm. Priðj
9. Efnafræði
10.
11. Eggert Ólafsson (fyri., B/J.)
12. Uljótsdæla Vjdt-
13. Frelsi og menntun kVenmi, P.Br.
14. Hamlet, Shakespeare
15. Höfrungshlaup
16. Heljarslóðar orusta
17. Högni og Ingibjörg
18. Kyrmáks saga
19. Ljósvetninga saga
20. Lýsing Islands
21. Landafræði Þöru Eriðsiksson
22. Ljóðmæli E. Hjörleifssonar
23. Ljóðm. Þ. V. Gíslasonar
24. Ljóðm. Gr. Th., eldri útg.
25. Njóla, B. Gunnl.
26. Nal og Damajanti
27. Othello, Shakespeare (M. J.)
28. Romeo og Juliet “
29. Reykdæla saga
30. Reikningsbók E. Briems
31. Sagan af Magnúsi prúða
32. Sagan af Finnboga ramma
33. Sagan af Ásbirni ágjarna
84. Svarfdæla.
35. Sjálfsfræðarinn (stjörnufræði)
36. “ (jarðfræði)
37. Tíbrá, I. og II.
38. Úti 4 víðavangi (Steph.G.Steph.)
39. Vasakv, handa kvennfólki (drJJ
40. Víkingarnir á Hálogal. (Ibsen)
41. Vígaglúms saga
42. Vatnsdæla
43. Villifer frækni
44. Vonir, E. H.
45. Þórðar saga Geirmundarsonar
46. Þokulýðurinn (sögus. Lögb.)
47’ í Leiðslu “
48. Æíintýri kapt. Horns “
49. Rauðir demantar “
50. Sáðmennirnír “
Eða, ef menn viija heidur einhverja af bókum þeim, er
hjer fara á eptir, þá geta nyir kaupendur valið einhverja
eina af þessum í stað tveggja, sem að ofan eru boðnar.
Gamlir kaupendur geta einnig fengið eina af þess-
um bókum t stað hinna, ef þeir senda oss tvo (2) dollara, sem
fyrirfram borgun fyrir blaðið,
fyrir bókina.
51. Árni (saga, Bjðrnst. Bj.)
52. Hjálpaðu þjer sjálfur (Smiles) í b.
53. Hjálp í viðlögum
64. ísl. enskt orðasafn (J. Hjaltaín)
55. íslands saga (Þ. B,) í bandi
56. Laxdæla
57. Ljóðm. Sig. J. Jöh. (I kápu)
58. Randíður í Hvassafelli í b
59. Sögur og kvæði, E. Ben.
og tuttugu (20) cents umfram
60.
61. Söngbók stúdentafjelagsins
63. Uppdráttur íslands, M. H.
64. Saga Jóns Espólíns
66. Sönglög H. Helgasonar
67. Sönglög B. Thorsteinssonar
62. Útsvarið, íb.
65. Þjóðsögur Ól. Davíðssonar
Allar þessar premiur eru að eins fyrir fölk hjcr í luudi, sem borga oss 82.00
fyrirfram fyrir blaðið.
Bækurnar á fyrri listanum eru allar seldar á 20 til 35 centg hver. en á hinum
síðari frá 40 til 60 cents hver.
Ekki er nema lítið til af sumum Iþessum bókum, og ganga þær því fljótt upp.
Þeir sem fyrst panta þær sitja fyrir.
JAFNVEL DflUDIR IVIENN...
MUNU UNDRAST SLIKANVERDLISTA
Þjer ættuð ekki að sleppa þessari mestu Kjörkaupa-
veizlu í Norður-Dakota framhjá yður.
Lesið bara pennan verðlista.
Góð „Outing Flannels“............................. 4 cts yardið
Góð „Couton Flannels.............................. 4 cts yardið
L L Sheetings (til línlaka)....................... 4 cts yardið
Mörg þúsund yards af ljósutn og dökkum prints á.... 5 cts yardið
Háir hlaðar af flnasta kjólataui, á og yfir.......10 cts yardið
10 pnnd af góðu brenndu kaffi............................qq
10 stykki af af Kirks Comfort sápu fyrir................. 25
25 pund af mais-mjöli fyrir ............................. go
og allar okkar vörur eru satt að segja með niðurskurðs-verði.
L. R KELLY,
MILT»N,
N. DAKOTA.
OLE SIMONSON,
mælirmeð sínu nýja
ScandÍDavian Botel
718 Main Stbket.
Fæði 41.00 á dag.
Arinbjorn S. Bardai
Selur líkkistur og annast um út'
arir. Allur útbúnaðui A bezti.
Opið dag og nótt*.
497 WILUAM AVE. *