Lögberg - 02.03.1905, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2, MARZ 1905.
Holdsveikis pistlar
, frá
Sæm. Bjarnhéðinssyni.
I.
I > al eru nú 10 ár síðan baráttan
móti lx>ldsvejkinni hér á landi
liófst fyrir alvöru. Hún byrjaði á
rannsóknum próf. Ehlers árin 1894
‘’g i895-
Mörgum brá í brún, þegar það
varð heyrum kunnugt, að hann
liefði skoðað eða frétt til 158 holds-
veiklinga, og jaínframt lét hann
^ess getið, að til muundu vera alls
a> minsta kosti 200 holdsveikir.
Ýmsir efuðust um áreiðanleik
Jiessara skýrslna, en því miður
hefir það komið í ljós, ,að tölurnar
voru of lágar, en ekki of háar, sem
þá var helzt gert ráð fyrir.
Síðan fóru Oddfcllowar í Dan-
mörku að gangast fyrir samskot-
um til holdsveikisspítala hér á
landi. Landsliöfðingi fól hrepp-
stjórum á hendur að semja skýrsl-
ur um holdsveika í hreppum sínum
og þann veg fékst holdsveikis
skýrslan frá 1996, sem Guöm.
læknir Björnsson samdi eftir
Jireppstjóraskýrslunum.
Samkvæmt henni fundust 181
holdsveiklingur i landinu.
Hinn 4. Febr. 1898 voru svo
lögin um einangrun holdsveikra
staðfest og haustið eftir tók holds-
veikraspítalinn i Laugarnesi til
starfa.
Hver hefir nú árangurinn verið
aí baráttunni gegn þessum ill-
ræmda sjúkdómi hingað til?
Til þess að.leysa úr því, verður
að fara í holdsveikisskýrslurnar
frá héraðslæknum. Samkvæmt ein-
angrunarlögunum eiga þeir að
senda landlækni'slíka skvrslu ár-
lega hver úr sínu héraði og hefir
hann gefið mér góðfúslega íæri á
að athuga þær.
Um fyrstu tvö árin 1899 og 1900
vantar þessar skýrslúr úr svo!
mörgum héruðum, að ekki fæst [
neitt yfirlit yfir tölu holdsveikra í
Jaiidinu þau árin. Frá árslokum i
1896 til 1901 veit maður því ekk- |
ert um holdsveikina, eða hyernig j
tölurnar lrafa breyzt árlega.
í árslok 1901 voru 132 holds-
veiklingar skráðir i skýrslum lækn-
anna og voru 61 af þeim í Laugar- j
nesspitalanum, en 71 utan spítala. j
I árslok 1902 eru holdsveikling-
ar taldir 139, þar af 61 í holds-
veikraspitalanum, og 78 utan spít-
ala.
Fækkunin frá árslokum 1896 er 1
því ekkert smáræði.
Holdsveikílingum hefir á þessu 5
til 6 ára tímabili fækkað um fjórða
part.
Svo segja skýrslurnar að minsta j
kosti.
En auðvitað má ekki gera ráð
fyrir, að tölurnar séu nákvæmar
um sjúklingafjöldann. Sjúkling-
amir leita ekki nærri ætíð undir
eins til læknis, þegar þeir verða5
sjúkdómsins varir.
Að tölurnar í hreppstjóraskýrsl-
nnum hafi verið of lágar, hefi eg
rekið mig á. Til þessa (1. Des.
1904,1 hafa alls komið 127 sjúkl-f
ingar hingað í spítalann. 20 þeirra
vantaði í hreppstjóraskýrsluna, ,en
voru þó orðnir veikir 1896. Auk
þess hefi eg fundið 16 vantalda
holdsveiklinga í skýrslum lækna i
síðan 1899. Samtals verða það 36
sjúklingar, sem bæta má við hrepp-
stjóraskýrsluna. ' s
Tala holdsveikra hér á landi í
árslok 1896 hefir því verið yfir 216. i
Tveir sjúklingar voru ekki holds- j
veikir og þá dreg eg frá.
Það er óhætt að segja „yfir 216“, j
því einhverjir vantaldir sjúklingar
hafa eflaust dáið næstu árin á eft-
J ir, þegar engar holdsveikisskýrsl-
ur komu, og liklegast finnast enn
þá einhverjir, sem sýkst hafa eða
1 voru orðnir sýnilega holdsveikir
fyrir árslok 1896.
Sama er að segja um lækna-
i skýrslurnar eins og hinar: tölurnar
á sjúklingunum eru of lágar. En
eg geri ráð fyrir, að eigi vanti þar
fleiri tiltölulega en í hreppstjóra-
skýrslunni. Hlutfallstalan milli
þessara umræddu skýrslna getur
þvi vel verið rétt og fækkunin get-
j ur því verið sanni næst, og er það
líklegt.
Það væri fróðlegt að vita, á hve
mörgum holdsveiki hefði komið út,
og hve margir hefðu dáið árlega
síðan 1896. En vegna skýrslna-
leysis fyrstu árin er ómögulegt að
; segja neitt nákvæmlega um það.
: Einhverjir hafa sjálfsagt veikst af
| sjúkdómnum og dáið á þeim árum
! án þess að komast í nokkura
skýrslu, og svo má telja það nokk-
urn veginn vist, að lifandi séu ekki
I svo fáir holdsveiklingar frá sex-
: áratímabilinu 1896—1902,sem lækn-
ar hafa eigi fundið enn þá.
En af þeim sjúklingum, sem get-
i ið er um í læknaskýrslunum, éða
' komið hafa í holdsveikraspítalann,
eru 56, sem liafa fengið sýnilega
holdsveiki frá ársbyrjun 1897 til
ársloka 1902. Um áramótin 1896
—97 voru fyrir 216 holdsveikling-
j ar, sem vitað var um. Þar við má
bæta þessum 56.
Þá kemur það fram, að á þessu
j 6 ára timabili hafa 272 holdsveikl-
i ingar verið uppi hér á landi, auk
éskráðra sjúklinga. Líklega fylla
þeir vel upp í skarð það, sem er í
3. hundraðið.
En þeir liafa drjúgum týnt töl-
unni á þessu tímabili. Það sést
með því að draga sjúklingatöluna
í árslok 1902 frá 272. Eftir verða
þá 133. Allur þorri þeirra hafa
dáið, 4 teljast albata og nokkurir
hafa farið til Ameríku. Þessi tala
ei vafalaust of lág eins og hinar,
en liklega tiltölulega nákvæmari.
Samkvæmt skýrslu nefndar
þeirrar, sem stjórn Bandarikjanna
hafði skipað til þess að rannsaka
holdsveikina í ríkjunum, og prent-
uð var 1902, voru 282 holdsveikl-
ingar þar; af þeim voru 16 í N.-
Dak., og 11 þeirra voru íslending-
ar, og var ætlað, að þeir hefðu
komið með veikina í sér vestur.
Eitthvað kann það að þykja í-
skyggilegt, að í árslok 1901 er 7
sjúklingum færra en í árslok 1902.
Af því verður þó ekkert ráðið um
fjölgun sjúklinganna árið 1902.
Það ár dóu eigi nema 10 sjúkling-
í hrcppstjóraskýrslunni, 6 árum
áður, voru þar taldir 28 holdsveik-
ir. Síðan hafa fundist þar 6 holds-
veiklingaf, sem vantaði í hrepp-
stjóraskýrsluna, svo að 34 holds-
veikir hafa, að minsta kosti, átt þar
heima í árslok 1896, en það er ekki
nema sjöttungur allrar tölunnar
216.
Með öðrum orðum: Á þessu 6
ára timabili hefir tala holdsveikra
ír.anna í Eyjafjarðarsýslu hækkað
hlutfallslega úr einum sjötta upp í
þegar hún er borin saman við
holdsveiklingafjöldann á landinu.
Eg tek auðvitað að eins þá sem eru
utan spitala.
Næst Eyjafjarðarsýslu kemur
Árnessýsla með 9 sjúklinga, 1896
voru þar 28, þá Gullbringu- og
Kjósarsýsla, Reykjavík og skaga-
fjarðarsýsla með 8 hver, en 1896
voru þar 20, 11 og 9 holdsveikl-
ingar.
í Borgarfj,- og Mýrasýslu, Snæ-
fellsness., Borgarfjs. og Rangár-
vallasýslu hefir fækkunin verið
geypileg. Þar voru 1896: 17, 18,
12 og 21 holdsv^klingar. I árslok
1902 voru tölumar: 2, 4, 1 og 3.
í Skagafirði og Reykjavík hefir
sjúklingum eiginlega fækkað minst
af öllum þessum sýslum.—ísafold.
Fréttir frá íslandi.
Reykjavik, 3. Jan. 1905.
Snemma i f.. mán. náði Béskytt-
eren enskum botnvörpung land-
helgissekum milli Vestmannaeyja
og lands, varð að elta hann lengi
nokkuð og skjóta til hans, áður en
hann lét sér segjast. Fyrir Það
fékk hann 2,600 kr. sekt hjá sýslu-
manni í Vestmannaeyjum.
Veðrátta einkarblíð frá því fyrir
jól; þau alrauð og sjaldan föl sést
á jörðu síðan.
Reykjavik, 10. Jan. 1905.
Hér brann í nótt húskorn inni á
Laugaveg, nr. 38, steinhús dálítiA,
er var íbúð áður. en nú smíðahús
Guðm. *Egilssonar trésmiðs. Eld-
urinn kom upp um kl. 12. Af því
lnisið var svo litið, með steinveggj-
uni og járnþaki, var eldurinn mjög
viðráðanlegur; öll frekari hætta
úti þegar slökkviðæla kom, kl. að
ganga 2; en þeirn seinindum olli
mest öröugleiki að ná í vatn, í
hörkufrosti og kafaldsbyl. — Það
sýndi sig nú sem fyr, að járnþökin
eru mesta þing í eldsvoða. Þakið
entist hér þar til brunnir voru allir
innviðir hér um bil.
t
Reykjavík, 17. Jan. 1905.
Þess var getið hér í bl. í haust
einhvern tírna, að Flöfðavatn á
Höfðaströnd væri ' orðið að lóni.
Sú breyting var með manna hönd-
hreppstjóra Guðmundssonar í Hlíð
i Eystrahrepp, andaðist 14. f. m.
Flún hafði verið heilsugóð alla æfi,
þar til hún fyrir 2 árum . fékk
heilablóðfall og mun það hafa leitt
hana til bana. — Suður í Khöfn.
andaðist 5. f. mán. ungfrú Gyða
Thorsteinsson, kaupmanns frá
Bíldudal, , úr brjóstveiki ftær-
ingu), tæpra 17 ára, f. 9. Jan.
1888. Mannvænlegasta stúlka.
—Isafold. a
Reykjavík, 3. Jan. 1905.
í tillögum sínum til landsstjórn-
arinnar telur sýslunefnd Húnvetn-
inga þetta helztu framfaramál sýsl-
unnar: — Að lengja bryggjuna á
Blönduósi, sem bygð hefir verið að
nokkuru leyti fyrir landssjóðs fé,
og að leggja akveg frá Bíönduósi
vestur eftir sýslunni. Að vegur
vrði lagður frá flutningabrautinni
fram Miðfjörðinn. Að svifferja
verði sett á Blöndu hjá Tungu-
nesi. Að gert verði við höfnina á
Skagaströnd svo að þar yrði örugg
lega fyrir þilskip, og segir sýslu-
nefndin að gera mætti það með
litlum kostnaði. Að ræsa fram
Flóðið, og segir sýslunefndin, að
með þvi mætti fá þar sfórt engja-
flæmi, sem fimm jarðir ættu land
að, og kostnaður við það ekki gíf-
urlegur. Að strandgæzlan verði
látin ná til Húnflóa.
Ofsaveðuri af suðvestri fór yfir
ytri hluta Scyðisfjarðar aðfaranótt
14. Nóv. Bátar brotnuðu og þök
fuku af húsum. Á Hánefstöðum
20 hestar af töðu. — Afli var tölu-
verður á Austfjörðum um miðjan
Nóvember. — Dánir eru nýlega á
Austfjörðum: Helgi Indriðason
bóndi í Skógargerði; Þorvaldur
Jónsson bóndi á Uppsölum og
Katrin Einarsdóttir, ekkja á Surts-
stöðum.—Reykjavík.
------o-------
St. Vitns Dans.
Taugaveiklun sem auðveldlega
læknast með Dr. Williatns’
Pink Pills.
St. Vitus dans er nokkuð algeng
veiki á börnum og oft fær hana
fullorðið fólk, sem er taugaveikl-
að. Sjúkdómseinkennin eru : —
skjálfti á handleggjum, höndum,
fótleggjum og flestöllum vöðvum
líkamans. Stundum verður tung-
an máttlaus. Eina lækningin er
nægjanlegt blóð, því blóðið er lif
og viðhald taugakerfisins. Dr.
Williams’ Pink Pills geta æfinlega
læknað St. Vitus dans, af því þær
búa til mikið og rautt blóð, sem
nærir taugarnar réttilega og held-
ur þeim í góðu ásigkomulagi. —
Mrs. Wm. Levellie í Welland,
Ont., þjáðist mjog af St. Vitus
dans, og engin meðul dugðu henni
þangað til hún fór að nota Dr.
Williams’ Pink Pills. Mrs. Level-
lie segir: „Eg var oft svo þungt
haldin að eg gat ekki fengið mér
að drekka hjálparlaust og gat eng-
an hlut tekið upp í hendurnar. Út-
limirnir voru á sífeldri ósjálfráðri
ar, svo kunnugt sé, og 2 voru tald-
ir albata. I stað þessara 12 bætt-
ust 19 við í skýrslurnar, en 9 af
þessum „nýju“ sjúklingum voru
orðnir sýnilega veikir 1896 og áttu
því að vera i hrepstjóraskýrslunni,
5 veiktust frá 1897—1900, 4 árið
1901 og að eins einn 190Í. En
ekki er þetta sú sanna viðkoma ár-
ið 1902. í skýrslum frá 1903 er auk
þessa eina tilnefndir 3, sem sýkst
hafi 1902, eða réttara sagt, veikin
kom út á.
Þetta sýnir, að ekki er hægt að
fá áreiðanlega vissu um árlega við-
komu holdsveiklinga fyr en nokk-
urum árum seinna.
Af þeim 139 holdsveiklingum,
sem taldir voru í árslok 1902, voru
83 karlar og 56 konur, 76 voru lik-
þráir, 63 limafallssjúkir.
Eins og getið var um, vissum
vér um-78 holdsveika sjúklinga ut-
an spítala í árslok 1902.
Hvar voru þeir nú einkum?
18 þeirra eða tæplega Wuti
þeirra áttu heima i Eyjafjarðar-
sýslu.
um gerð i upphafi, og voru tildrög-
in þau, að í vor sem leið kom ó-
venjumikill vöxtur í vatnið, svo
það flóði til baga yfir engjar á
næstu bæjum. Þar tóku ábúendur
sig til og mokuðu ræsi úr vatninu
til sjávar gegn um Bæjarmöl svo-
nefnda innanvert við Þórðarhöfða,
í því skyni að eins, að grynna á
vatninu. Renslið var á vií stóran
læk, eins og frá því var gengið.
En þá kom náttúran til sögunnar
og bætti svo um, að úr læknum
varð 45 faðma breiður ós og all-
djúpur. Vatnið reif sig það fram
eftir fáa daga, með ógurlegum
krafti, og lækkaði við það um fulla
mannhæð. Fenblautar engjar ná-
lægt vatninu urðu veltiþurrar og
kom upp allmikið land á Höfða.—
Síðan er flóð og fjara i vatninu,
með því sjór fellur i það með að-
falli hverju. Innan við ósinn er 10
—18 feta dýpi, og á stórum partí
þar í vatninu er skjól fyrir öllum
norðanstormum, og sunnanveður
eru þar litil, með þvi að þetta er
stutt frá mölinm. — Frá þessu er
sagt í Nl. 24. f. m., og því bætt við,
að hugsanlegt sé, að þarna hafi
náttúran búið vetrarlegu fyrir þil-
skip.
I
Aldís , Pálsdóttir, kona Lýðs
hreyfingu og timunum saman gat
eg hvorki gengið né talað eitt ein-
asta orð. Eg varð skinhoruð og
hugði mér ekki líf. Læknahjálpin*
sem eg var stöðugt aðnjótandi,
varð mér að engu liði og eg var
rétt komin á þá skoðun að eg væri
ólæknandi. Eg var svo að segja
aðfram komin þegar mér var ráð-
lagt að reyna Dr. Williams’ Pink
Pills. Eftir fáeinar vikur fann eg
til bata, og þegar eg var búin úr
níu öskjum var eg orðin alheil-
brigð og Öll sjúkdómseinkennin
horfin. Eg hefi síðan verið mjög
heilsugóð."
Af því Dr. Williams’ Pink Pills
verka á upptök sjúkdómsins, blóð-
ið,geta J>ær læknað aðra eins kvilla
og St. Vitus dans, taugaveiklun,
blóðleysi, höfuðverk, bakverk og
lendaverk, gigt, nýrnaveiki,
lungnaveiki og aðra blóð- og
taugasjúkdóma. En þér verðið að
gá að því að kaupa að eins rétta
meðalið, með fullu nafni „Dr.Wil-
liams’ Pink Pills for Pale People"
prentuðu á umbúðirnar utan um
hverja öskju. Seldar hjá öllum
lyfsólum eða sendar með pósti fyr-
ir 50C. askjan eða sex öskjur fyrir
$2.50 ef skriíað er beint til „The
Dr. Williams’ Medicine Co.,
Brockville, Ont."
THE CANADIAN BANK
OE COMMERCE.
á liornlma n K«hh ov Iwnbol
Höfuðstóll $f,70C,ooo.oo Varasjóður $3.500,000.00
SPARIS.JÓDS0EIL1UX
Innlög $1.00 og þar yfir. Rentur lagðar
við höfnðstól á sex mánaða fresti.
Vfxlar fóst á Knglands hanka
scm eru borganlcgir á íslandi.
Aðalskrifstofa í Toronto.
Bankastjóri í Winnipeg er
°---JOHN AIRD-------o
Tilboð
ÞangaS til hinn 4Marzmána8ar
næstkomandi verður af undirrituS-
um veitt móttaka tilboöum í vest-
ur helminginn úr norövestur-fjórð-
ungi tuttugustu og áttundu (28)
sectionar í township fimm (5; í
þrettándu (13) ,,range“ vestur af
aðal-hádegisbaug innan Manitoba
fylkis.
Landshluti þessi er afgangur af
erfðalandi, sem eigandi vill selja
fyrir peninga út í hönd, eða meö
þeim skilmálum, sem um kann að
semja. Landið er í góðu héraði en
óbygt og óbætt að öllu leyti.
Rot/iwcll & Johnsoii,
B0X1364. Winnipeg, Man.
Solicitors for the executors.
P I. E. ALLEN,
< Ljósmyndarl.
> Tekur alls konar myndir, úti og inni.
c Tekið eftir eldri myndum
\ og myndir stækkaðar
/ Tel. 2812. 503 Logan Ave., cor, Park ít.
( W I N N I P E fi .
Dr.M. HALLDOBSSON,
Pavlc K.1 ver, 3KT D
Er að liitta á hverjura viðvikudegi
rattoa, N. D., frá kl, 5—6 e. ra.
ORKAR
Tónninn og.tilfinninginer f.-amieitt
á hærra stig og með meiri list en á nokk-
uru öðru. Þau eru se'.d með góðum
kjörwm og ábyrgst um óákveðinn tima.
Það ætti að vera á hverju heimili.
S L BARROCLOUGH & Co.
228 Portage'ave. Winnipeg.
l&EjLl.'fcoaa., nd
I LYFSALI
H. E. CLOSE
prófgenginn lyfsali.
| Allskonar lyf og Patent meðul. Rit-
j föng &c.—Læknisforskriftum nákvæm-
j n gaurnur gefinn.
BELL
PIANO
ORCEL
O g
Einka-agentar
Vlinnipeg Piano & Organ Co,
Manitoba Hall, 295 Portage ave,
Dr. W. Clarence Morden,
tannlœkmr
Cor. Logan ave. og Main st.
620'/z Main st. - - ’Phone 135.
Plate work og tennur dregnar úr
og fyltar fyrir sanngjarnt verö.
Alt verk vel gert.
Thos. H. Johnson,
islenzkur lðgfræðingur og mála-
færslumaður.
Skripstopa: Room 33 Canada Life
Block. suðaustur horni Portage
Ave. & Main st
TTtanáskrift: P. O. box 1861,
'I’elefón 428. Winnineg, Manitoba
Jftimib cftir
því að —
Eddu’s BuggingaDauDir
heldur húsunum heitum’ op varnar kulda. Skrifið eftir sýnishorn-
um og verðskrá til
TEES & PERSSE, Ltd.
&.GENTS,
WINNIPEG.
FARID ekki niður áMain
Str, eftir kóm og stígvélum
FARIÐ TIL
Tom Stedman’s
sem selur hálfu ódýrata.
Við höfum leöurskó, flókaskó,
moccasins og rubbers, koffort og
töskur. Allskonar verð.
KARLMANNA-SKÓR frá Sr.oo
KVEN-SKÓR....frá 0.75
BARNA-SKÓR...frá 0.15
KARLM. MOCCASINS.. 1.35
Sama verð fyrir alla.
4-97-99 Alexander Ave.
Beint á móti Isabel st.
Winnipeg Picture Frame Factory, rAiexa5der
Komið og skoöið hjá okkur
myndirnar og myndaramm-
ana. Ymislegt nýtt.
Munið eftir staðnum:
495 ALEXANDER AYENUE.
Phone 2789.