Lögberg - 21.09.1905, Blaðsíða 1
Lawn rólur,
fyrir tvo. Vanaverð $10,00. Við seljum þær á
$7.00, sterkar og vel málaðar. Þær geta ver-
ið yður $20.00 virði það sem enn er eftir af
sumrinu.
Anderson Sc Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
B38 Main Str. Telept)one 338.
Gasstór.
Við erum nú að selja þessarstór, sem svo mikill
vwmusparnaður er við, og setjum þær upp
kostnaðarlaust. Þér borgið aðeins pípurnar
verkið kostar ekkert. Finnið okkur.
Anderson & Thomasr
Hardware & Sporting Goods.
B38 Maln Str. Telephone 839.
18 AR.
II
Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 21 September 1905.
NR. 38.
Fréttir.
Vi8 árekstur járnbrautarvagna,
skamt frá borginni York í Penn-
sylvaniu, fórust fimm menn og
sjötiu og fimm meiddust fyrra
laugardag.
I púðurverksmiðjum, skamt frá
borginni Connellsville í Penn-
sylvaníu, kom upp eldur fyrra
laugardag, og sprungu þær í
loft upp á svipstundu. Nítján
manns af þrjátiu og tveimur er
þar voru við vinnu, biðu hana.
Tilraun var gerð til þess að
ráða landstjórann á Finnlandi af
dögum nýlega. Var landstjórinn
keyrandi i vagni og var tilræðið
framið á þann hátt að sprengi-
kúlu var fleygt í veg fyrir hann.
En óskemdur komst landstjórinn
þó undan í þetta sinn.
Maður nokkur, vinnumaður hjá
bónda skamt frá St. Paul, Minn.,
hvarf nýlega og er ætlun manna
að hann hafi fyrirfarið sér. Skyldi
hann eftir, á heimili bóndaþs er
hann síðast vann hjá, bréf þess
efnis að hann hefði fyrir þrjátíu
árum siðan myrt stúlku nokkura
og annar maður verið af sinum
völdum dæmdur sekur um þann
glæp og hengdur fyrir. Segir
maðurinn enn fremur i bréfinu
að í öll þessi þrjátiu ár, sem liðin
eru siðan hann iframdi' glæpinn,
hafi hann hvergi haft ró né frið
fvrir ásökunum samvizku sinnar,
og andlitsdrættir stúlkunnar, sem
hann drap með hengingu, af-
skræmdir af ógn og dauðateygj-
um hafi jafnan síðan staðið sér
fyrir hugskotssjónum. Segist
hann því fullráði»i i þvi að stytta
nú loksins eymdarstundir sínar.og
biður að skila kveðju til móður
sinnar, sem enn er á lífi, *fjörgöm-
ul orðin.
Nýlega hefir verið lokið við að
leggja ritsíma milli Newfound-
lands og meginlands. Var síminn
lagður á land í bænum Canso í
Nova Scotia, og var fyrsta skeytið
sent með honum þann n. þ. m.
Við sjálft liggur nú, ef til vill,
að Grikkir og Rúmenar segi hvor-
ir öðrum strið á hendur. Hefir
hvor þjóðin um sig kallað heim
sendiherra sina. Deilurnar rísa
nú í þetta sinn út af því að Rúm-
enar neita að borga skaðabætur
fyrir að hafa raant og farið illa
með griska þegna, sem gríska
stjórnin segir að ekki megi vera
óhultir uin sig í Rúmeníu.
Lausafrétt hefir nú alveg nýlega
borist um það, að fjölskylda Kom-
wra baróns hafi öll verið af lífi
tekin í Tokio. Áreiðanleg gögn
fyrir því að fréttin sé sönn eru þó
ekki enn fyrir hendi þegar þetta
er ritað.
I japanska her.4;ipinu Mikasa,
sem var foringjaskip í bardagan-
um við Rússa á Japansbafinu,
kviknaði fyrra þriðjudag inni
á höfn í Sasebo í Japan. Sökk
skipið mjög fljótt eftir að eldsfns
varð vart og druknuðu þar ná-
lægt sex hundruðum manna.
Síðan friðurinn komst á milli
Rússa og Japansmanna hefir ó-
slitin lest af Kinverjum verið á
ferðinni til Manchuria, og eru
þeir allir mjög glaðir í bragði
yfir því að mega nú aftur t friði
vitja stöðva sinna, er þeir urðu
að flýja frá meðan á stríðinu
stóð. Vitaskuld er það að mjög
hefir verið spilt eignum þeirra og
óðulum, en ekki virðist svo sem
ieir láti það mjög á sig fá.
Fögnuðurinn yfir því að geta
horfið heim aftur yfirgnæfir alt
annað.
Svartur veitingaþjónn, á hót-
elli einu í Baltimore í Bandaríkj-
unum, hefir nýlega verið dæmdur
í tveggja ára fangelsi fyrir að
ráðast á hvíta stúlku þar á hótell-
inu og kyssa hana. Hafði ann-
ar svertingi þar á hótellinu
veðjað um það við þjóninn að
hann ekki mundi hafa áræði i
sér til þess að stela þessum dýr-
keypta kossi.
í bæ einum í Ontario,, sem
Merlin heitir, hefir nýlega orðið
vart við bóluveiki, og hafa nú
verið gerðar strangar ráðstafanir
til þess að varna útbreiðslu
hennar.
Sannanir hafa verið færðar
fyrir því að ýmsum stórbvgging-
um í Chicago sé hætta búin af
undirgöngum þeim, sem verið er
að grafa víðsvegar um borgina,
til þess að greiða fyrir umferð-
inni. Hefir því, fyrst um smn að
minsta kosti, verið lagt bann
fyrir að halda greftinum áfram.
í höfuðborginni í Búlgaríu
komst nýlega upp samsæri, sem
að því stefndi að ráða af dögum
Pétur konung í Serviu, Ferdínand
prins í Búlgaríu og Tyrkjasol-
dán. Banatilræðið við Tyrkja-
soldán, sem nýlega átti sér <&tað,
er sagt að eiga muni rót sínk að
rekja til samsærisinanna þessara.
í vikunni sem leið komu saman
átta hundruð kjörnir fulltrúar,
viðsvegar að á Finnlandi, í höf-
uðborg landsins, Helsingfors, til
þess að ræða helstu áhugamál
landsmanna. Fundurinn fór mjög
friðsamlega fram, en samt sem
áður sendi landstjórinn vopnað
herlið til þess aö tvistra fundar-
mönnum og banna samkomuna.
Hefir þeta atvik vakið svo megna
óánægju á Finnlandi að óspart
rignir nú yfir landstjórann hótun-
um um að kasta að honum
sprengikúlu við fvrsta tækifæri.
í Pétursborg á Rússlandi hefir
nú verið lagt bann við þvi að
selja einstökum tnönnum marg-
hleypur og skotfæri. Sömuleiðis
er bannað að selja nokkurum
hermanni vopn eða skotfæri
nema sá hinn sami hafi í hönd-
um frá vfirmanni sínum skriflega
heimild til kaupanna.
Amerískt ritsimafélag hefir nú
komist að samningum við í&jórn-
irnar í Japan og Kína um að
leggja þangað sæsíma. Á önn-
ur grein sæsímans að liggja til
Yokohama í Japan, hin til
Shanghai í Kína.
í bæntfn Alarlboro í Massachu-
etts varð tíu ára gamall drengur
nýlega fyrir því óláni að festa
annnan fótinn milli járnbrautar-
teina, er hann var að stytta sér
leið með því að ganga yfir braut-
ina skamt frá járnbrautarstöðinni.
Lest var á ferð eftir brautinni
skamt frá honum, er nálgaðist
hann með fullri ferð. Sá drengur-
inn að lestin mundi hljóta aö renna
yfir sig áður en hann gæti losað
fótinn, og verða sér aö bana netna
hann tæki eitthvað til bragðs.
Varð honum það þá fyrir, til þess
«ð bjarga lífinu, að hann fleygði
sér á hliðina, beint út frá brautar-
teinunum, og lét lestina renna yfir
fótinn. Hjólin mörðu fótinn
sundur rétt fyrir ofan öklann og
varð að taka íótinn af fyrir ncðan
hnéð. Drengurinn er nú á göðum
batavegi.
Land-agenta eftirlitsmaður Do-
minion-stjórnarinnar, R. E. Leach,
hefir nú gefið út aðvörun til allra
þeirra sem taka, eða tekiö hafa
heimilisréttarlönd, um það að
selja ekki né farga á annan hátt
réttindum sínum til landanna né
selja umbætur sem gerðar hafa
verið á þeim áður en þeir hafa
fengið fullkomin eignarréttindi.
Slik sala er ekki lögmæt og varð-
ar hegningu.
Hingað til Canada kom í vik-
unni sem leið sendimaður frá
stjórninni í Japan í þeim erinda-
gerðum að kaupa nautgripi. Sem
stendur er mikill skortur á naut-
gripum í Japan, og auk þess er
nautgjjipakynið þar mjög smátt
vexti, og hugsa Japansmenn sér nú
að koma á hjá sér kynbótum með
því að flytja inn nautgripi frá
Canada. Uxar eru mjög mikið
notaðir i Japan til ýmsrar vinnu,
en sökum stríðsins 'hefir orðið að
slátra óvenjulega miklu af naut-
pöriingi sem nú þarf að fylla i
skörðin fyrir. Landbúnaður og
griparækt hefir verið i fremur
smáum stil ijapan til þessa, en nú
ætlar stjómin sér að leggja stund
á að hvorutveggja komist í betra
horf.
Ekki hefir enn tekist að stemma
stigu fyrir útbreiðslu kóleruveik-
innar á Prússlandi. í hverri viku
gerir hún vart við sig á fleiri og
fleiri stööum þn -, sem hún ekki
hefir verið áður komin. Mjög
mannskæð er veikin þó ekki, enn
sem komið er.
Eftir seinustu fréttum frá New
Orleans heldur „gula pestin" á-
fram að drepa fólkið þar í borg-
inni. Reynt hafa menn að flýja
burtu þaðan, en af ótta fyrir út-
breiðslu sýkinnar á þann hátt hafa
flóttamennirnir wrið fluttir til
baka jafnóðum eða settir í mjög
stranga gæzlu.
Hættunni, sem á því hefir verið
að Svíum og Norömönnum lenti
saman í ófriði út af aðskilnaðar-
málinu.er nú afstýrt. Á fundi þeim
er fulltrúar beggja þjóðanna liafa
setið á í borginni Karlstadt, hefir
samkomulag komist á um aðskiln-
aö ríkjanna, en hvað þar hefir
frekara orðið að samningum vita
nienn ekki enn. Eftir ferðamönn-
um, sem verið hafa á ferð í Noregi
i sumar.er J>að samt haft að Norð-
menn séu í óða önn að bæta her
sinn og styrkja landvarnirnar.
Sérstaklega segjast þeir hafa orð-
ið þess varir, siðari hluta sumars-
ins, að varnarvirki hafi verið bæði
trevst og reist af nvju hingað og
þangað um landið og helzt við
sjávarsiðuna.
Hirm 8. Október næstkomandi
leggja eitrt hundrað konur og börn,
ásamt fleiri útflytjendum, á stað
frá Englandi áíeiðis til Canada,
undir umsjá Sáluhjálparhersins.
< reneral ‘Bootli, forstöðumaður
hersíns, hefir lýst yfir því að hann
hafi i hyggju, i nálægri framtíð,
að senda á stað frá Englandi tutt-
ugu þtisund atvinnulausa fátækl-
mga, karla, konur og börn, til Can-
ada.Ástralíu, New Zealand og Ar-
gentina.
Hinn tuttugasta og fyrsía ár-
lega Labor Congrcss er nú verið
að halda í Toronto. Eitt hundrað
og fimtíu fulltrúar sitja fundinn og
eru þar meðtaldir allmargir leið-
andi menn frá ýmsum borgum i
Bandarikjunum, sem sendir liafa
verið til þess að taka þátt í um-
ræðum og ályktunum.
Canadíska verksiniðjumanna-
félagið er nú að halda tuttugasta
og fjórða ársþing sitt í Qnebec.
Þrjú hundruð fulltrúar, víðsvegar
að úr landinu, eru mættir á þing-
inu.
Siðastliðið fjárhagsár, sem cnd-
aði hinn 30. Júni þ. á., námu verzl-
unarviðskifti Canada við útlönd
fjögur hundruð og fjörutiu milj-
ónum og rúmu eitt hundrað fimtíu
og einu þúsundi dollara.
Frá því var sagt hér í blaðinu i
vikunni sem leið,að Tartarar hefði
veitt áhlaup og rænt og drepið
fjölda manna í ýmsum stöðum á
Suður-Rússlandi. Árásum þess-
um heldur enn áfram og er líf og
eignir manna í þ/essum héruðum i
sífeldri hættu.
Á mánudaginn var fann vagn-
stjórinn á strætisvagni í Ottawa
handtösku, spm einhvcr hafði skil-
ið þar eftir í ógáti. í töskunni
voru fjörutíu þúsund dollarar i á-
visunum og seðlum. Yagnstjór-
inn var svo ráðvandur og hrekkja-
laus að halda töskunni til skila,
enda leið ekki á löngu þangað til
eigandinn kom með öndina í háls-
inum, til þess að spvrja eftir hvort
ta.skan hefði fundist. Til þess að
vj-tta vagnstjóranum þakklæti sitt
í^ir fundinn og ráðvendnina gaf
Æíssi vellríki heiðursmaður vagn-
ítjóranum — tvcggja dollara seðil.
i fundarlaun.
Presbvteraprestur nokkur í Ed-
Tiionton, Alta., gerði bindindismál-
ið að umræðuefni í prédikun sinni
á sunnudaginn var. Hann lét í
ljósi i ræðunni, að hver maður
hefði að vísu persónulegt frelsi til
þess að drekka ölföng, ef honum
svo sýndist, en persóntilegt frelsi,
notað á þann hátt, væri hættulegt
fyrir mannfélagið. Hann sagði,
enn frernur, að söfnuði sínum
rnundi ekki geðjast vel að því að
sjá og vita prestinn sinn koma
daglega á veitingahúsin til þess að
fá sér þar í staupinu,og samt hefði
pnesturinn sama persónulega frels-
ið til þess og hver annar meðlimur
safnaðarins. „Þér hafið,“ sagði
presturinn, „engan rétt til aö
heimta að mismunandi siðgæði
skuli eiga sér stað hjá prestinum
og hinum öðrum, sem kristna trú
játa og í kristnum söfnuði standa.
Sé það rangt af mér að ganga inn
að veitingaborðinu og drekka þar,
þá er það eins rangt af yður og
gerir yður eins brotlega gagnvart
kristilegu framferði og siðgæöi."
1 resturinn varaði húsmæðurnar
alvarlega við því að liafa vin um
hönd í heimabúsum til þess aö
veita gestum sínum og kvað það
eitt oft og mörgum sinnum liafa
orðið fyrstu orsökina til þess að
gera margan unglinginn að
drykkjumanni.
í Kansas City í Bandaríkjunum
og héraðinu þar umhverfis, hefir
frá því í byrjun Sept«nbermánað-
ar rignt meira og minna á hverj-
um iginasta degi. t vesturhluta
Missouri-ríkisins hefir veðráttan
verið mjog svipuð þessu, það sem
af er mánuðinum.
, Óvatalega ákafur stormur með
stevpiregni gekk yfir Minneapolis
síðastliðinn mánudag að kveldinu.
Kvað svo mikið að úrkomunni að
saurrerinur og kjallarar fyltust og
lilauzt af því eignatjón svo þús-
undum dollara skifti.
National bankinn i Minot, N.D.,
hætti störfum um síöastliðna helgi,
og nemur sjóðþurð hans sextán
þúsundum dollara. Ótrygg útlán
er sagt að ltafi valdið faíli hans.
Nan Patterson, konan sem í
morðmálinu átti í vetur sem leið
og mikið var þá talað um i blöð-
untun, giftist á mánudaginn var
fyrverandi eiginmanni sínum, er
Leon Martin heitir, og hún hafði
skilið við fyrir þremur árum síð-
an. Hjónavigslan fór fram í
Washington og voru að eins nán-
ustu ættingjar hjónanna við þá
athöfn staddir.
I Colombia ríkinu í Mið-Ame-
ríku eru nú óieirðir miklar. Hefir
forseti ríkisins með tilstyrk her-
liðsins tekið sér alræðisvald í hend
ur og látið taka fasta æðstu dóm-
ara landsins. Af óánægju yfir
þessum tiltektum gerði lýðurinn í
höfuðborg ríkisins aðsúg að for-
setahöllinni. Lét forsetinn þá
skjóta á mannfjöldann og særðust
>ar margir. Þegar þessar aðfar-
ir spurðust út um landið var þegar
hafin uppreist í flestum borgum og
er landið nú alt í uppnámi.
Nýlega hafa borist fréttir um
mikinn eldsvoða í Nome í Alaska.
En svo óljósar eru fréttirnar enn,
að ekkert verður með vissu um
>að sagt, bvað miklu tjóni eldur-
inn hafi valdið.
Við strendur Finnlands varð
nýlega vart við gufuskip, fermt
með kúlubyssum og skotfærum,
er stefndi til hafnar á Finnlandi
sunnanverðu. Á teyðiey fyrir vest-
urströnd Finnlands, og skamt frá
landi, fundu tollþjónar nýlega ná-
Iægt sjö hundruð kúlubyssur og
bvssustingi, og eitt hundrað og
tuttugu þúsund skothvlki. Hvern-
ig á þessunr útbúnaði stendur,
hvaðan hann er kominn og hver
hefir pantað hann eða kevpt, er
ekki lýðum ljóst, en getið hafa
menn sér þess til að Finnlending-
ar muni hafa ætlað sér að vera
við búnir ef Norðmönnum og Sví-
um lenti saman, og veita öðrum
hvorum, í því skyni að fá aftur
liðveizlu til þess að losast undan
yfirráðum Rússa.
Fregnir Jiær berast frá Eng-
landi, að Fcdcration of Meat Tra-
ders Association-s hafi skorað á
Ieiðandi bændur í Canada að sker-
ast í leikinn og fá brezku stjórnina
til þess að nema nautgripa inn-
flutningsbannið úr lögum. Hefir
Dominion-þingmaður í Montreal
lýst yfir því, að ef Bretar ekki
nemi þetta móðgandi bann úr lög-
nm. skuli verða alvarlega á Do-
minion-stjómina skorað að nema
úr tolllöggjöfinni ákvæðið um toll-
afslátt á brezkum vörum.
Ur bænum.
Eftir síðustu fréttum frá Ott-
awa að dæma er helzt útlit fyrir,
að C anadian NortJíern og Grand
Trunk Pacific járnbrautarfélögin
hafi sameiginlegar járnbrautar-
stöðvar hér i Winnipeg.
-------------V
Joseph Martin hélt pólitískan
fyrirlestur í Selkirk Hall í vikunni
sem leið, og gekk hann aðallega út
á það, að báðir pólitísku flokkarnir
í Canada væra gjörspiltir og ó-
hafandi, svo brýna nauðsyn bæri
til, að mynda nvjan flokk sem
hreinsaði pólitiska andrúmsloftið.
Eldur kom upp í nýju Ash-
downs búðinni á sunnudags morg-
uninn var. Af rigningunni um
nóttina hafði kalkhrúga, sem þar
lá úti fyrir, kveikt í borðvið og
eldurinn komst inn um bráða-
birgðahurö. Ska^inn varð ekki til-
finnanlegur.
Mr. Steingrimur Jónsson héðan
úr bænum kom á mánudagskveld-
i5 vestan frá Quill Plains, Sask.,
þar sem hann var að byggja og
á annan hátt búa sig undir að
! flytja búferlum þangað vestur í
haust. Hann segir, að sérlega góð
uppskera hafi orðið þar vestra af
öllu sem sáð var og það þó jörðin
væri illa undirbúin, og ekki hafði
næturfrosta orðið vart þar fyr en
eftir 10. Sept., á sama tíma og
þeirra varð vart hér. Eftirspurn
eftir landi segir hann að fremur
fari vaxandi; bæði káúpa menn
oddalönd fyrir $8.00 el^runa og
jafnvel meira, og svo er káppsani-
lega fram í því giengið að ná hcivh-
ilisréttarlöndum sem áður hafft.
tekin verið, en landtakendur ekkt'
hafa uppfylt skyldur sínar á. Mr_
Jónsson biður Lögberg að taki
það fram, að íslendingar, sem
þar vestra hafa skrifað sig fyrii;
landi, en eru hvergi nærstaddir og
ekki hafa uppfylt ábúðarskyldur
sínar, missi landið og l'keimilisrétt
sinn nema þeir bregði tafarlaust
við, svo vandlega séu landtakend-
ur vaktaðir af öðrum sem vilja ná
í landið. Enn þá er hægt að kaupa
land þar á $8.00 ekruna, en eftir
þetta góða sumar er búist við að
það hækki til muna í verði.
Hinn 9. þ. m. voru þau Friðrik
Júlíus Ólafsson og ungfrú Ágústa
Jónsdóttir gefin saman í hjóna-
band að Vestfold, Man., af séra
Jóni Jónssyni.
-------0------
Bandalag Breta og Japans-
nianna.
Samningar um endurnýjun
brezk-japanska bandalagsins eru
sagðir fullgerðir, og þó þeir ekki
hafi verið gerðir opinberir form-
lega þá vita menn í liverju helztu
brevtingarnar liggja, sem gerðar
hafa verið.
Gömlu samningarnir voru þann-
ig, að bandalag Breta og Japans-
manna náði ekki lengra en með-
fram Kínaströndum. Því hcfir
verið þannig brevtt, að það nær
nú til Asíu allrar að linu sem ligg-
ur frá suðri til norðurs eftir Persa
landi og táknar 51. Jwigdargráðu.
Er slikt mikilsverð breyting, þvi
þá nær bandalagið til Indlands og
enn fremur til Indó-Kína þar sem
Frakkar nú eiga itök og hafa
gefið i skyn, að Japansmenrt
mundu vilja koma in»i fætinum.
Ætti þetta að tryggja Bretum frið
fyrir yfirgangi Rússa á Indlandi.
Samkvæmt gömlu samningun-
rim voru Bretar og Japansmenn
ekki skyldugir aö veita hverjir
öðrum lið nema tvö ríki sæktu að
öðrumhvorum. í nýju samning-
unum er svo ráð fyrir gert, að þó
ekki sæki nema eitt ríki að öðrum
hvorum, þá veita hinir lið ef á
þarf að halda. Ákvæði það er bú-
ist við að verði tilþess, að Rússar
rjúfi ekki friðarsamningana við
Japansmenn þó þeir aö öðru leyti
sæju sér það fært.
Týndur flntningur.
Eg undirskrifaður kom frá Is-
landi til Winnipeg 13. Júní í sum-
ar. Um kveldið fór eg mei fjöl-
skyldu mina til manns, sem bauð
okkrir að vera hjá sér um nóttina.
Morguninn feftir fór eg að vitja
flutnings míns. Þá vantaði mig
koffort með fatnaði okkar og bók-
tnn; einnig poka nieð tveimur yfir-
sængum og fatnaði. Þetta hafðt
eg hvortveggja i vagninum hjá
okkur. Það var merkt: Sigurður
Kristjánsson, Winnipeg, Man.
Þetta bið eg Lögberg að auglýsa,
og ef einhver kynni að ha)fa oröið
flutningsins var, þá bið eg þann,
vinsamljegast, að láta mig vita um
það sem fyrst.
Baldur, Man., 12. Sépt. 1905.
Sigurðnr Kristjánsson,
frá Akur«9'ri.