Lögberg - 21.09.1905, Síða 4
4
LOGBERG EIMTUDAGINN 21. SEPTEMBER 1905
Jögberg
er f(efið út hvern fimtudag af The Lögberg
PRINTING & PUBLISHING Co.. (löggilt), að
'Cor. William Ave., og Nena St. Winnipeg,
Man.—Kostar $2.00 um árið (á Islandi 6
<(kr. Borgist fyrirfram, Einstök nr. 5 cts,
Published every Thursday by the Lög-
Oerg Printing and Publishing Co. (Incorpor-
ated), at Cor. William Avenue & Nena St.,
Winnipeg, Man —Subscription price $2.00
per year, payable in advance. Single
copies 5 cts.
M. PAULSON. Edttor,
J.A.BLOVOAL.Bu.Muta tier.
Auglýsingar. — Smá-aug_lýsingar í eitt-
skifti 25 cent fyrir 1 þml. A stærri auglýs-
ingum um lengri tíma, afsláttur eftir satnn
ingi.
Böstaðaskifti kaupenda verður að til-
kynna skrifiega og geta um fyrverandi bú-
stað jafnframt.
Utanáskrift til afgreiðslustofu blaðsins er:
The I.ÖGBERG PR1NTING 4 PUBL. Co.
P.O, Box 130.. Winnlpeg, Man.
Telephone 221.
Utanáskrift til ritstjórans er:
Edltor Lögberg,
P.O.Box 130, Winnipeg, Man.
Samkvæmt landslögum er uppsögn kaups
anda á blaði ógild nema hann sé skuldlaus
Jjegar hann segir upp,-Ef kaupandi, sem
er í skuld við blaðið, flytur vistferlum án
þes sað tilkynna heimilisskiftin, þá er það
fyri r dómstólunum álitin sýnileg sönn-
an f yrir prettvíslegum tilgangi.
Ástæöulaus óánægja.
SÖkum þess,aö innan skamms er
búist við fylkiskosningum í báSum
nýju fvlkjunum, Alberta og Sas-
Katchewan, þá er af sumitm ekk-
ert látiS ógert til þess aS koma inn
hjá kjósendum óánægju meS
frjálslynda flokkinn sem nú, sem
stendur, er þar stjómarflokkurinn.
MeSal annars hefir veriS reynt aS
vekja óánægju með því aS segja,
aS viS hátíSahaldiS i Regina hafi
Mr. Haultain veriS beittur því
ranglæti aS honum hafi ekki veriS
kyft aS halda ræSu eSa í óvirð-
ingarskyni viS hann veriS ' frarn
hjá honum gengiS. Og af ónær-
gætni viS fólksfjöldann hafi ekki
Sir Wilfrid Laurier verið látinn
halda ræðu eftir að menn voru
komnir langt að ef til vill fyrst og
fremst til þess að heyra hann tala.
Ct af þessu tvennu gerðu aftur-
haldsblöðin allmikinn hávaSa, þar
á meðal Roblin-stjórnar blöSin í
Winjiipeg: Telegram og Tribune.
f Því verður ekki neitað, að hefði
ákæra þessi veriS sönn, þá var því
ekki bót mælandi að snerSa hjá
þesum tveimur mönnum. MeS
því aS leyfa ekki Sir Wilírid
Laurier að ávarpa fólkið liefði öll-
um nærstöddum veriS gert rangt
til; og með þvi að leyía ekki Mr.
Haultain aS tala, hefði honum,
fyrverandi stöðu hans vegna, og
öllum nærstöddum konservatívum
verið gert rangt til.
Það er því nauðsynlegt að menn
fái að vita sannleikann í máli
þessu til þesg að fyrirbyggja á-
stæðulausa óánægju og gremju og
rangar ákærur og óvild. Ritstjóri
blaösins Regina Leadcr átti tal um
þetta vð H.W. Laird borgarstjór-
ann í Regina,sem fyrir hátíðahald-
inu stóS, og farast honum orð á
þessa leið:
\ ,,\ iSvikjandi staðhæfing þeirri,
aS Mr. Haultain hafi ekki verið
leyft aS tala heldur ýtt aftur fyrir,
þá hefi eg þaS aS segja, aS hann
var upphaflega á prógramminu.
Undir borðum var ætlast til að
fyrir minni gestanna mæltu: Da-
vio Laird, fyrsti landstjóri NorS-
vesturlandsins, A. E. Forget síð-
asti landstjóri Norðvesturlandsins
og 'dr. Haultain fyrsti og síSasti
stjóniarformaður þess. Þegar
Mr. Haultain var sýnt prógramm-
ið þá krafðist hann þess, að sér
yrði slept vegna þess hann óttað-
ist, að samsætið tæki alt of lengi.
Homirn var bent á, aS samkoman
liefði sögulegt gildi og, aS vinum
hans væri það áhugamál, aS hann
talaði. En Mr. Haultain sat við
sinn keip, og þaS var strikaS út
nafn hans samkvæmt ósk hans og
kröfu. ÞaS er því enginn flugu-
fótur fyrir því, að fram hjá Mr.
Haultain hafi verið gengið, og eg,
sem vitanlega er einlægur flokks-
maSur hans, mundi naumast hafa
átt þátt í því að útbola honum.
I aðalefninu er hiS sama tim Sir
Wilfrid Laurier að segja. Hon-
um var alls ekki meinaS að tala.
Á upphaflega prógramminu, sem
lagt var fram fyrir landstjórann,
var gert ráð fyrir að Sir Wilfrid
I.ttu’rier ávarpaði fólkið eftir aS
ávörpin til landstjórans og fylkis-
stjórans hefðu verið flutt og þeir
svarað. Sir Wilfrid Laurier var
fjarverandi þegar prógrammið
var samþykt, en á mánudaginn
baðst hann undan því að halda
ræSu undir beru lofti, vegna þess
liann yrði aS fara varlega með
hálsinn á sér. Þess vegna var
prógramminu breytt, og nafn hans
fært yfir á samsætis prógrammið.
Og þegar mannfjöldinn kallaSi
hann fram, þá spurði eg hann,
hvort hann treysti sér ekki að tala
fáein orS, og það gerði hann.
Þetta er allur sannleikurinn í
málinu.“
Skýringar þessar sýna, að allur
gauragangurinn í afturhaldsblöð-
unum út af meðferSinni á Mr.
Haultain hefir við engan sannleik
að styðjast og ér einungis gerS til
þess að kveikja pólitiskar æsingar.
Hvað sagt er um triðinn.
Þótt alment sé yfir því fagnaS,
að stríSinu á milli Rússa og Jap-
ansmanna er lokið, þá ber ekki
helztu blöðum landanna saman um
það, hvort sættin i Portsmouth
muni verða hlutaðeigendum til ills
eða góðs í því formi og á þeim
tima sem hún komst á. Gremja
og vonbrigði japönsku alþýðunnar
sem leiddi til svo megnra upp-
hlaupa og ofsókna gegn útlending-
um, að ýmsa bæi varð aS setja
undir hervakl. Tækifæri skrif-
stofuvaldsins á Rússlandi til þess
að bæla niSur innbyrðis baráttu
þjóðarinnar fyrir auknu frelsi.sem
svo stórkostlega eykst við það, aS
losast við ófriðinn við Japans-
menn. Hinn bitri óvildarhngur
þeirra flokkanna í báSum löndtin-
um, sem stríSmu vildu liakla á-
fram, gagnvart Bandaríkjunum
fyrir hluttöku Roosevelts forseta í
samkomi(iaginu. Alt þetta og
margt fleira hefir leitt til þess, aS
blÖSin eru nú i vafa um þaS hver
áhrif sættin ínuni hafa á Rússland
og Japan og framtíðarsamkomu-
lag heimsþjóSanna.' Blöð þau,
sem Jiannig líta á, telja það vafa-
samt, hvort viturlegt sé af Japans-
mönnum að gera sér að góðu til-
slökun míkadóans frá upphaflegu
kröfunum sem hafi verið svo stór-
feld, að eigintega hafi sú hliSin
orðið ofan á viS samningana, sem
undir varö í vopnavðskiftunum.
Að vísu fái Japansmenn á þennan
hátt hvíld og tækifæri til aS safna
nýjum kröftum til þess að mæta á-
rásum og ójöfnuði Rússa, sem bú-
ast megi við að lialdi áfram eSa.
að minsta kosti, ekki sé neitt í
samnÍMgunum til að fyrirbyggja.'
Hins vegar er af öðrum því
lialdið fram, að Japansmenn hafi.
farið viturlega að. Þeir séu bún-
ir aö koma því til leiðar sem um
liafi verið barist og það borgt sig
betur fyrir þá að hætta nú heldur
en halda stríðinu áfram hvað mikl-
ar skaSabætur sem um væri að
tefla. ÞaS er líka haft eftir H.
W. Dennison lögmanni japönsku
stjórnarinnar við friöarþingiö, aS
þaS hefði ekki borg’aS sig að halda
stríöinu áfram þangað til hægt
væri að neyða Rússa til aS greiða
skaöabætur. Honum farast þ\tnn-
ig orð:
„Viö héldum ekki til streitn
skaðabótakröfunni af þeirri ein-
földu ástæðu, að viS stóSum ekki
nógu vel aö vígi til I>ess. Heföum
við haft herskipaflota í Eystrasalti,
eða landher okkar fyrir hliðum
Pétursborgar eða Moskva,þá hefS-
um við aö líkindum getað fengiö
líku framgengt eins og ÞjóSverjar
þegar lið þeirra settist um París.
Þeir fengu miklar skaöabætur hjá
Frökkum, en þeir fengu þær fyr-
ir að hverfa frá borgarhliSunum.
En floti okkar og landher er í
iiiörg þúsund mílna fjarska frá
Norðurálfunni og Rússlandi. Satt
er það aS vísu, að viS hefðum
getaö haldiö striöinu áfram og
unniö Vladivostock, og ef til vill
meS því komist í þau spor að
geta neytt Rússa til skaðabóta. En
aö vinna Vladivostock hefði kost-
að okkur meira Cn skaðabótum
þeim nemur, sem fram á er farið,
þó ekkert tillit sé tekið til mann^
fallsins. Stjórninni stendur eng-
inn ótti af þvd hvernig friðarsamn-
ingunum er tekið heima fyrir.
Mikið af óánægjunni er vafalaust
pólkískum æsingamönntim aS
kenna.“
Og sé gætilega á málið litiö, þá
cr mikið vafamál, hvort Japans-
menn ekki hafa fengiS alt þaS,sem
þeir bjuggust við aö fá. Það er(
vanlegt þegar likt stendur á og
hér, að fram á meira er í fyrstu
fariö en búist er við aö fá.til þess
að geta slegið af og mætt mótpart-
inum á miöri leiö. AS minsta kosti
sést það þó,að þeir fá miklu meira
og Rússar verða miklu meira ^f
hendi að láta, heldur en Japáns-
menn fóru fram á fyrir rúmuj
hálfu öðru ári síöan.
Jarögöng
uiidir sundið milli Englands og
Frakklmds,
I mörg ár hafia menn VeriS að
ráðgera aS grafa göng undir
sundið, sem aðskilur England og
Frakkland, og tengir saman At-
lanzhafið og NorSursjóinn,til þess
aS koma á landföstu sambandi á
uiillj ríkjamia. Fyrir löngu siðan
eru menn búnir aö gera sér áreiS-
anlega gren fvrir því, aS slik ráða-
gerö er í alla staði framkvæinan-
leg frá verkfræðislegu sjónarmiðj.
AS ekki er búiö að vinna þetta
verk enn kemur til af öörum á-
stæðum, og hafa Knglendingar,
sér í lagi, komiö fram með þá
mótbáru, aS landvörnin yrði aö
miklu levti ómöguleg Fyrir þá,
ef undirgöngin væru grafin og
Frakkar færöust þaS í fang að
ráðast á Englendinga. Nú sem
stendur fer mjög vel á meS þessum
þjóöum ,miklu betur en verið hefir
um mörg undanfarin ár, og af
þeirri ástæðu er það, að enn á ný
hefir málinu verið hreyft aö grafa
göng undir sundið. Beggja
ntegin sundsins hefir nú verið ritað
og rætt um að bæta samgöngujrn-
ar milli landanna sem að eins eru
aSskilin með þessu mjóa sundi..
Af umræömium um málið eru
þessar helztar:
Tveir vegir eru til þess að koma
sambandinu á: annað hvort meS
því að byggja brú yfir sundið eða
grafa göng undir þaö. Brúar-
hugmyndin er eins og hugmyndin
um jarðgöngin, töluvert gömul
orðin. Báðar hugmyndirnar eru
framkvæmanlegar og ekki er ólík-
legt að sá tími komi, að þær báðan
komist í framkvæmd. En svo
er að sjá sem verkfræðingarnir að-
byllist frentur hugmyndina um
jarögöngin, þyki auöveldara að
láta búa þau til en brúna og hæg-
ara að viðhalda þeim. Segja
þeir, að þegar búiö er að grafa
þau og fullgera, sé ekki svipaS því
eins mikil hætta á að þau eyði-
leggist eins og brúin, sem ávalt
sé hættu og skemdum undirorp-
in af völdum hafsins. Þar aö
auki er straumurinn í sundinu svo
afar-stríður, að örðugt mundi vera
aö leggja viðunanlegar og full-
tryggar undirstööur undir brúar-
stöplana.
Enska blaðið London Croniclc,
flutti nýlega vel samda grein um
jarSgöngin og er þar að* mestu
leyti litið á málið frá því sjónar-
miöi hver áhrif göngin muni hafa
á landvörnina. Þar er þaö tekið
fram, að liöin séu næstum tuttugu
og firnm ár frá því máliS hafi al-
varlega verið tekið til íhugunar og
margt hafi tekið breytingum á því
timabili. Með því að bora niSur í
sjávarbotninn fullvissuðu ntenn sig
þá um, aS kalklag var þar í jarö-
veginum stranda á milli, og er það
ntjög heppilegur jarSvegur, þar
sem grafa á slik göng og tiltölu-
lega létt að grafa sig í gegn um
hann. En siSan þessar rannsókn-
ir fóru fram hefir verkfræöínni
mjög mikið fleygt fram og nú á
dögum væri miklu léttara aö leysa
verkið -af hendi en þá var. AS þá
var hætt við aö grafa göngin kont
aS niiklu leyti til af því aö her-
málastjórnin hnekti málinu. Bar
hún þaö fram meöal annars, að öll
hin kostnaðarsömu vígi, sem búiS
væri aö byggja meðfram sundinu
á strönd Englands, kæniu þá aö
engum notum, sökum þess að frá
Frakklandi væri hfegt, hventer sent
vera skyldi, að koma her yfir til
Englands gegn um göngin, sem
bæði gæti á skömmum tíma tekið
og eyðilagt vigin og lagt undir sig
allan suðurhluta Englands mót-
stööulaust. \
Gegn þessum mótmælum her-
stjórnarinnar var því þá hreyft,
að ef til þess kæmi, að Frakkar
færu aS nota sér jarðgöngin til
þess að senda lierliS gegn um þau
til Englands, þá væri mjög auð-
velt að stemma stigu fyrir þvi ann-
aö hvort á þann hátt að spre-ngja
þau í sundur eöa .fylla þau með
sjó. Varla væri heldur hægt að
hugsa sér, að á ófriðartímum yrðu
gÖngin svo slælega vöktuð, aö
gegn um þau væri hægt aö ráðast
inn á England meS herafla. Slfkt
væri mögulegt aS eins á friðartím-
um þegar engin varðhöld væru
liöfð og Englendingar ættu sér
einskis ills von af Frakka hálfu.
-En slíkt væri tæplega hugsanlcgt,
enda eru nú á tímum nóg r,. til
þess að verja sig fyrir árásum
hers, sem ætlaði sér þesas leið vil
England. Á ófriöartímum væru
jarögöngin, meira aS segja, hættu-
leg gildra fyrir herliö að hleypa
sér í. Eins auðvelt og nú er orð-
ið aS setja sig í fréttasamband vi '
fjarlæga staði væri ómögrucgt
annað en á Englandsströndinni
yrðu menn þess jafnskjóit vtsari
ef lagt væri á staS með herliö inn
í göngin frá meginlaiidinu. Og
með þeim áhöldum, sem nú cru
fyrir hendi, sprengietnum og raf-
magnsáhöldutn, væri auðC' að
loka göngunum á svipstundu.
Mætti þá annaS hvort sprengja
þau sundur eða fylla þau með sjó,
með rafmagnsáhöldum, sem einn
maSur gæti stýrt og látið fram-
kvæma verkiö l>ó hann sæti inni á
skrifstofu sinni í London, eða væri
í enn meiri fjarlægð frá sundinu
og göngunum.
Fyrir tuttugu og fimm árum síö-
an lét verkfræðingur nokkur í
ljósi við nefnd manna, sem þá var
sett til þess aö íhuga málið, það
álit, og færöi rök fyrir, aö hægt
væri aö loka göngunum án þess aS
spilla þeim. Þó ófriður kæmi upp
á milli landanna, sem gerði það ó-
umflýjanlega nauSsynlegt að loka
göngunum í bráð, mætti þó ganga
aö þjví vísu, aS ekki yrði sá ófriöur
óendanlegur og að honum enduð-
utn mundu rnenn óska, að sam-
bandið gegn um jargöngin gæti
liafist á ný. SíSan hefir verkfræð-
inni og vísindunum fariS stórkost-
lega fram. Menn hafa fundiö upp
aðferðir, sent hægt væri að loka
göngunum meS um stundarsakir,
án þess að þurfa með því að
skemma þau hið allra minsta. Og
búast má viö, að í framtíöinni, eöa
á þeim tiu árum eða meira, sem
ganga mundu til þess að grafa og
fullgera göngin, mundi veröa
jafnframt búið að finna enn auð-
veldari og betri aSferð til að loka
þeim en menn nú þekkja. Svo
mjög fleygir verkfræðinni nú á-
frant á hverju ári, að óhætt virð-
ist vera að gera ráð fyrir þessu.
öllum þeim, sem gefa sig við
ltinni hærri stjórnfræöi og láta sér
antt um aö reyna að finna
ráð til þess aS koma á varan-
legum friði í heintinum, liggur
þaö í augum uppi, að ekkert væri
tryggara og líklegra til að vernda
ltann en óslítandi vináttusambönd
milli Englendinga og Frakka. Fyr-
ir milligöngu Frakka gæti sam-
lyndið orðið varanlegt milli Eng-
lendinga og Rússa. Bandalag á
milli Englendinga ogjapansmanna
gefur þeim fult vald í hendur í
Austur-Asíu og nægan mátt til
í>ess að koma í veg fyrjr að þar
brjótist út ófriður. Samband
á milli Englendinga, Frakka og
Rússa yrði einnig nægjanleg trvgg
ing fyrir friðnum í Norðurálf-
ttnni.
Og þegar málin eru komin í
þetta horf, er stórt spor stígiö í
þá áttina að útrýma stríðunum úr
heiminum. Þröskujdarnir, sem þá
Hví skyldu menn
borga háa leigu inn í bænum.tneö-
an hægt er aö fá land örskamt frá
bænum fyrir gjafviröi?
Eg hefi til sölu land í St. James
mílur frá pcsthúsinu, fram með
Portage avenue sporvagnabraut-.
sem menn geta eignast tneö $10
niöurborgun og $5 á mánuði.
Ekran aö eins $150. Land þetta
er ágætt til garöræktar. Spor-
vagnar flytja menn alla leið.
Bakers Block, 470 Main st.
WlNNIPEG.
N.B.—Skrifstofa mín er í sam-
bandi viö skrifstofu landa yð-
ar, Páls M. Clemens, bygg-
ingarmeistara.
eru eftir í veginum fyrir heims-
friðinum, munu ekki veröa óyfir-
stíganjegir. Slíkir voða-viSburö-
ir og átt hafa sér stað í stríðinu á
milli Rússa og Japansmanna koma
þá ekki framar fyrir. Á sátta-
íundum og dómþingum verða þá
ágreiningsmál ríkjanna rædd og á
enda kljáð, friösamlega og án
blóðsúthellinga.
Leiðrétting.
Herra ritstjóri; —
Fyrirgefið þó eg ónáöi yður með
lítilli athugasemd viö grein yðar
um járnbrautarmál Gimli-manna,
er birtist í blaði yöar af 24. f. m.
I nefndri ritstjórnargrein farast
yður þannig orð: „Þeir sem lesið
hafa þaö sem Lögberg hefir til
málanna lagt, geta séð það á sögu
málsins eins og Mr. Thompson
segir hana, að Gimli-menn hafa
fengið kröfum sínum framgengt
einmitt með aðferð þeirri, sent
Lögberg benti á sem líklegasta.“
Mér finst aS þér fariö hér lengra
með slíkri staðhæfing, en góðu hófi
gegnir, því mig getur ekki rekið
mitini til, aS Lögberg hafi nokkuru
sinni — á síðastliðnum Ivetri eöa
þessu liðanda sumri — lagt það
til þessa járnbrautarmáls, £em
nokkur veigur væri t, eða sem
nokkufs virði væri, til að byggya
sókn málsins á. \ritanlega benti
blaðiS olckur einu sinn á tvo mehn,
sem líklega og sjálfsagða að senda
austur til Ottawa, til að vinna aö
framkvæmdum í málinu, en þó til
þess hefði komið, að þurft hefði
að senda menn til Ottawa, þá
hefðu þeir aldrei verið seryiir af
Gimli-mönnum.
VERZLUN
OG
VERZLUNAR-STADUR
A. FRIDRIKSSONAR,
6IIR0SSAYE, - WINNIPEC,
elzta og fyrsta íslenzk verzlun í bænum, er nú
TIL 8ÖLU
MEÐ ALLMIKLUM VÖRUM.
Eg hefi rekiö verzlun á sama staönum í nál. tuttugu og
fiaim ár; staöurinn því betur þektur en flestir aörir og sér-
Ie 1 álitlegf tæk*r ".ri fyrir efnilegan íslending aö sæta boöi
þessu. íbúöarhús mitt, og tvær lóöir áfastar búöinni, er
einiiig til sölu. Eg get gefiö rýmilega söluskilmála, einkum
ef cg sel bráölega
Á. FRIÐRIKSSON,
Winn;pr i2. Sept. 1905.