Lögberg - 21.09.1905, Blaðsíða 5
iinn fremur má geta þess, að sú
skoðun er hér býsna mikið ríkj-
andi, að bæði Lögberg og Heims-
kringla hafi sáralítið unnið okkur
til gagns í járnbrautarmálinu. Þau
hefðu óefað getað gert meira, en
þau gerðu, ef þau hefðu viljað vel
gera. En sleppum því; málið er
komið í þa,ð horf sem það hefir nú,
án þ^eirra hjfUpar. En að Lögberg
fari nú að þakka sér að járnbraut
komi a,ð Gimli, það þolum við
Gimli-menn ekki, af því það á
ekki þann heiður skilið. Sá mað-
ur, sem mest og bezt hefir unniS
að þessu áhugamáli, er Capt. Sig-
tryggur Jónasson. En hann nefn-
ir Lögberg ekki á nafn.
Virðingarfvlst.
G. M. Thompson.
Gimli, 12. Sept. 1905.
* * *
Ath. ritstf.:—
En sá gorgeir! Lögberg er ekki
að bera sig eftir neinu þakklæti
né viðurkenning fyrir það þó járn-
brautin fáist til Gimli. Lögberg
hefir áður lýst yfir því áliti sinu,
að minst geri til, hverjum þakkaö
verður fyrir brautina, bara hún fá-
ist. Og sá sem Mr. Thompson
álitur, að einn eigi heiðurinn má
vera viss um það, að Lögberg
ætlar sér ekki — hefir enga til-
hneigingu til að hlaupa í kapp við
við hann. En það sem Mr.
Thompson tekur upp úr Lögbergi
í þessari kátlegu athugasemd
sinni, við það stendur blaðið
hvort heldur hann þolir það eða
ekki. Vér segjum ekki, að bend-
ingar þær, sem Lögberg gaf i
járnbrautarmálinu, hafi endilega
verið teknar til greina, en það
segjum vér hiklaust, og bjóðum
Mr. Thompson upp á að hrekja
það ef hann getur, aé bendingar
Lögbergs og aðferð nefndarinnar
fer býsna króka lítið í söniu átt-
ina. Hinn 20. Apríl í vor fórust
Lögbergi þannig orð:
„En hann“ — þingmaður
Gimlimanna — „dregur það
undan, og naumast af vangá,
að skilyrðið fyrir þeirri fjár-
veitingu“ — til Gimli-braut-
arinnar — „var það, að járn-
brautin yrði lögð til Gimli.
Hvernig stendur á því, að ekki
er lögð meiri áherzla á það at-
riöi en gert er? Verði það at-
riði, það skilyrði ekki til þ|ess,
að Gimli-nienn fái jámbraut,þá
fá þeir hana seint. Þingmaður-
inn og Roblin-stjórnin leiða
það atriði hjá sér og það er eðli-
legt af ástæðum þeim, sem til-
færðar eru hér að ofan. En
Gimli-menn ættu ekki að leiða
það hjá sér. SÞeir ættu að ná
tali af Mr. Jackson Dominion-
þingmanni sínum og fá hann í
liS með sér.“
Fjarri fer þvi, að vér höldum
því fram, að Gimli-mönnum hafi
ekki hugsast að snúa sér til Mr.
Jacksons fyr en eftir að þetta var
ritað. En hafi svo verið, þá var
það án vitundar Lögbergs. Bréfin,
sem honum voru skrifuð, bera það
með sér, hvort þau eru dagsett
fyrir 20. Apríl, og væri skaðlatist
að Hta eftir því rétt til gamans.
Hinn 8. Júní farast Lögbergi
þannig orð:
„Það kostar ekki svo litið að
senda tvo eða þrjá menn austur
til Ottawa, en það einmitt ættu
Gimli-menn að gera. Þeir ættu
að senda þangað segjum tvo
menn, þá líklegustu sem kostur
er á, og láta þá leggja málið
fram fyrir stjómina og járn-
brautarnefndina (the railvvay
commission). Geti þeir sýnt
fram á, að með þvi að leggja
járnbrautina norður á bak við
þorpið, vei;ði það eyðilagt heil-
um skara manna til óbætanlegs
eignatjóns, og takist þeim að
sannfæra stjórnina um það, að
skilningur McCreary og kjós-
enda hans um árið hafi eindreg-
ið verið sá, að C. P. R. félagið
fengi því að eins fjárveitingu
til brautarinnar, að hún legðist
inn í Gimli-þorpið. Takist
sendimönnunum þetta, þá er
langt frá því, að vér séum von-
lausir um góðan árangur af ferð
þeirra. Vér vitum ekki með
vissttjhvað langt vald járnbraut-
arnefndarinnar nær í því efni,
en oss grunar að hún geti hlut-
ast til um það, að járnbrautin
ekki verði lögð þannig, að Gimli
standi leyðileggin af því og inn-
búunum stórkostlegur eigna-
missir.“
Mr. Thompson þykir ekki mik-
»11 veigur í þessari bending Lög-
bergs; en einkennilegt er það, að
réttri viku síðar kjósa Gimli-menn
tvo menn einmitt til þess að fara
austur til Ottavva. Vitaskuld varð
ekkert af ferðinni, en það kemur
ekki málinu við. Lögberg heldur
því ekki fram, að Gimli-menn hafi
ekki áður verið búnir að ætla sér
að senda menn austur, en hafi svo
verið, þá var það algerlega án
vitundar blaðsins.
Járnbrautarnefndin á Gimli
fylgdi þannig nákvæmlega aðferð
þeirri í málinu, sem Lögberg benti
á sem líklegasta. Ekki nauösyn-
lega af því, að nefndin hafi á neinn
hátt tekið til greina bendingar
Lögbergs, heldur af þvi blaðið og
nefndin hafa litið eins á málið.
Og svo getur Mr. Thompson
verið rólegur upp á það, að Lög-
berg er ekki að bera sig eítir
neinu þakklæti og hleypur ekki í
kapp við neinn um heiðurinn.
---------------o------
Mcölimir fylkisstiórnarinnar
í Alberta.
A. C. Rutherford, stjórnarformað-
ur og mentamála og fjármála-
ráðgjafi;
C. W. Cross, dómsmálaráðgjafi;
W. H. Cushiner, starfsmálaráð-
gjafi;
W. T. Finlay, akuryrkjumálaráð-
gjafi og fylkisritari;
L. G. DeVeber, án embættis.
Meölimir fylkisstjórnarinnar í
Saskatchevvan.
Walter Scott, stjórnarformaður og
starfmálaráðgjafi;
J. H. Lamotit, dómsmálaráðgjafi;
J. A. Calder, mentamála og fjár-
málaráðgjafi;
W. R. Mothervvell, akuryrkjumála
raðgjafi og fylkisritari.
Frederick A. Burnham,
forseti.
Geo. D. Eldridge,
varaforseti og matsmaöur.
!TTTT??TT?TTTTT?TT!TTTTtT!TTT?TTmTTmT?!TT!TTTTT?TTTTTTTTTTTTTTTTmTTTTT
\
#
1
Lifsábyrftöartélagið í New York
ÁLITLEG ÚTKOMA LFTIR ÁRÍÐ 1904.
SWírteina gróði (samkvæmt skýrslu New v0rk Insurans-deildarinn.vr
3. Jan. 1905).................................................t 4,397,9Íid
Nýjar ábyrgðir borgaðar 1903...................................... 12,527,288
i9'M..................................... 17.862,353
Aukning nýrra borgaðra ábyrgða.................................... 5.3- 5
Lögleg starfsaukning í gildi (borguð) árið 1904................... 6,797,001
I^igleg aukning viðlagasjóðs meðlima ið 1904..................... 5,883
Aukning iðgjalda hinnar nýju starfsenn árið 1904..................... 128 >
Lækkun á útistandandi dánarkröfum árið 1904........................ 119, :i)tj
Allar borganir til meðlima og erfingja þeirra..................... 61,000 ">oo
Færir menn, með eða ar fingar, geta fer . ið góðt. itvinnu. Skrifið
Agency Department— Mutu 1) Koscíví Buildi j 5 307, 309 Broadway K V.
ALEX. JAMIESON, ráðsmaSur t Manitoba, 41 1 Mclntyre Bulld ng.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. SEPTEMBER 1905
Chamberlain’s Salze
er ágætt meðal við sár, fleiður og
bruna. Það tekur úr sviðann og
græðir um leið. Sviða úr bruna-
sárum dregur það úr á augnabliki.
Þessi áburður læknar fljótt
sprungur á höndum og alla húð-
sjúkdóma. Verð 25C. Til sölu
hjá öllum kaupmönnum.
Fumerton &Go.
UM UPSKERUTÍMANN.
Við erum nýbúnir að fá mjög
mikið af þeim vörum sem rnenn
þarfnast helzt um uppskerutímann
og þreskinguna. Þessar vörur
eru betri en nokkurn tíma áður
hafa fengist hér.
Vetlingar og hanzkar úr ágætu
efni og með ýmsu verði; frá 15C.
til $1.65 parið. Spyrjið eftir hin-
um nýju Pinto hönzkum, þeir
eru endingarbeztir
Gráar ábreiður, handa þreskj-
urum, þykkar og stórar. Verð
$1.75, $2.00 og $2.75. Við höf-
tVn einnig mikið af góðum,
þykkum verkamanna skyrtum.
Þeir sem einu sinni hafa revnt
þær vilja ekki aðrar tegundir.
Verð frá 75C. til $1.50.
Vind- og vatnsheldar treyjur
er það sem hver verkamaður þarf
að hafa um þenna tíma. Þær eru
léttar og ekki þreytandi að vinna
í þeim.
Við erum nýbúnir að fá farm
af Baking Powder, sem við selj-
um á 50C. pd. á laugardaginn.
Mikið af granitvöru.
Þægilega búðin
vesturbluta bæjarins.
Geo. R. Mann.
Flytur inn og selur álnavöru.
548 Ellice Ave.
nálægt Langside.
NÝJAR HAUSTVÖRUR AÐ
KOMA LÍTILL ÁGÓÐI,
FLJÓT SKIL. Rétta aöferöin
til þess aö geta sejt sérstaklega
ódýrt.
Eg er nýkominn heim af hin-
um ódýrustu og áreiöanlegustu
mörkuöum eystra. Komiö og
skoöiö. Oss er ánægja aö sýna
yöur vörurnar. Kurteisin kostar
ekkert. Beriö saman verölagiö
hér og annarsstaöar og þér mun-
iö sjá aö hér er selt ódýrara en í
stóru búöunum.
Fylgiö straumnuin ogverzliö viö
J. F. FUMEBTON lt CO.
Qlenboro, Man.
í alþýölegu búöinni
Fyrir peninga út í
hönd seljum við:
18 pd. rasp.sykur....$1,00
15 “ molasykur....... “
9 “ af góöu kaffi .... “
2 könnur Pears...... 0,25
2 “ Raspberries.. .. “
1 gl. af eplum....... 0,20
3 pk. hreins. rúsfnum .. 0,25
7 pd. fata Uptons Jam 0,55
Leiöandi verzlunin f þessum
hluta bæjarins.
Þetta verö helzt eins lengi og
markaösverö breytist ekki úr því
sem nú er.
Gleymiö ekki! Frá 15. þ. m.
til enda September veröur allur
skófatnaöur seldur meö sem
næst heildsölu veröi.
THOMSON BROS.
54o ELLICE AVE.
! The John Arbuthnot Go. Ltd. 'i
I HÚSAVIÐUR,
UUJUJUJUUUUJUUOUJU
unarskilmálar. Orötak okkar
gluggar, huröir, harövara og
og allar tegundir af bygginga- •
efni. Lágt verö góöir borg- t
FLJÓT AFGREIÐSLA. J
I
Skrifstofa og yard: Cor. PRINGESS á LOGAN.
1
•«i
’PHONES: 588
1591
8700
J
Harðvöru og Húsgagnabúö.
Vér erum nýbúnir aö fá þrjú
vagnhlöss af húsbúnaöi, járn-
rúmstæöum, fjaörasængum og
mattressum og stoppuöum hús-
búnaði, sem viö erum aö selja
meö óvanalega lágu veröi.
Ágæt járn-rúmstæöi, hvít-
gleruö meö fjöörum og matt-
ressum...............$6,50
Stólar á 40C. og þar yfir
Komiö og sjáiö vörur okkar
áöur en þér kaupiö annars
staöar, Viö erum vissir um aö
geta fullnægt yöur meö okkar margbreyttu og ágætu vörum.
munaö sannfærast um hvaö þær eru ódýrar. % M
. 5
Þér
LEON’S
605 til 603 Main St., Winnipeg
Aðrar dyr norður frá Imperial Hotel,
—Telephoae 1082-- <
Engap
ágizkanir um árangurinn
þegar brúkaö er
BAKING POWDER
Vegna þess hversu óblandað þaö er og vel búiö til
er góöur árangur handviss.
Rojiil Lnmber «g Fuel Co. Ltd.
HÚSAVIÐUR, KOL, ELDIVIÐUR
og FÓÐURTEGUNDIR.
OFFICE: 646 Notre Dame, Tel. 3390
YARD: Notre Damé West. Tel. 2735.
WINNIPEG, CAN.
The Winnipeg
CRANITE & MARBLE CO.
Limlted.
HÖFUÐSTOLL $60,000.00.
Vér höfum hinar mestu birgöir, sem til eru
í Vestur-Canada, af öllum tegundum af minn-
isvöröum. Skrifiö eftir veröskrá eöa komiö viö
hjá okkur að
248 Princess st., WinDÍpeg.
£-%.%%✓%%/%%.%%.'%%.%%. %%%/%'%%. %%%%.%/%%.%%.%/%% %^
The Uiil. Portagc Lmiilter C«. \
LIMITED. ]]
AÐALSTAÐURINN til aö kaupa trjáviö, boröviö, múrlang-
i bönd, glugga, huröir, dyrumbúninga,
rent og útsagaö byggingaskraut, kassa ]»
og laupa til flutninga.
Bezta „Maple Flooring“ ætíð til.
Pöntunum & trjávið úr pine, spruce og tamarac nákvæmur gaumur gefinn.
* Skrifstofur og mylnnr i Korwood. T5'
i/% %%/%%/%% •%'%/%'%%'%%/%'%%/%'%%/%%/%/%%%%/%%%•%,
SKÓLASKÓ-SALA.
. c • • \
Einmitt nú þegar börnin fara aö þarfuast
fyrir skólaskóna höfum viö
ákveöiö
TÍU DAGA SERSTAKA ÚTSOLU
á skóm handa skóla börnum. Viö erum nýbúnir aö
fá mikiö af stúlkna og drengja skólaskóm, sem eru aö
öllu leyti ágætir. Viö ábyrgjumst hvert einasta par.
Rúmiö er ®f lítiö hér til þess aö geta lýst þeim ná-
kvæmlega. Skólaskór, á $i.oo, $1.15, $1.25, $1.35,
$1.50 og $1.75, sem eru miklu meira viröi. Allar
stæröir .Komiö og sjáiö hvaö viö höfum aðbjóöameö-
an þessisérstaka útsala varir. Viö höfum engan úr-
gang á boöstólnum. Munið eftir því, aö þessi útsala
stendur aöeins yfir f tíu daga og þér megiö nkki viö
því aö missa af henni ef þér þurfiö aö kaupa skólaskó.
Jtbams & (dflomson
570 MAIN ST.
á milli Pacific og Alexander Ave.
mmmmuœœimmmœ&tpnmr