Lögberg - 18.01.1906, Blaðsíða 1

Lögberg - 18.01.1906, Blaðsíða 1
Byssur og skotfæri. Takið yður frídag til þess að skjóta andir og andarunga. Við höfum vopnin sem með þarf. Við höfum fáeinar byssur til leigu og skotfæri til sölu. j Anderson & Thomas, Hardware & Sporting Goods. 538 Main Str. Telept|one 339 Steinolíuofnar, í kveldkulinu er þægilegt að geta haft hlýtt * herberginu sínu. Til þess að geta notið þeirra þæginda ættuð þér að kaupa hjá okkur steinol- íuofn. Verð $5 00 og þar yfir, Anderson & Thomas, Hardware & Sporting Goods. 538 Main Str, Telephone 339. 19 AR. II Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 1S. Janúar 1906. nr. a Kosningarnar á Englandi. Liberalar vinna frœgan sigur. Kosningunum er enn ekki lokiö en eftir síðustu fréttum í gærdag stóöu flokkarnir þannig aö vígi: Liberalar .... .. .... 131 sæti Conservatívar.............49 sæt' Vorkamannaflokkurinn .. 28 sæti Cons. Free Traders .. .. 3 sæti Nationalistar.............37 sæti. Liberalflokkurinn hefir nú bor- ið sigur úr býtum í ýmsum kjör- dæmum, er conservatívar hafa haldið í síðastliöin tuttugu ár. Fréttir. Hinn ajkunni líkneskjamcist- ari Paul Trubetykoi, sem getið hefir sér frægan orðstír fyrir list sína á heimssýningunni t Paris 1900, hefir verið falið á hendur af ýmsum hinum mörgu vinum og unnendum Tolstoýs greifa, aö gera af honum standniynd, og er ákveðið, að þetta minningarmark skáldsins mikla eigi að standa í Parísarborg. Komið hefir til «rðs að gera mælingar og annan nauðsvnlegan undirbúning til að byggja brú með járnbrautarsporum á yfir um sundið milli ey'jarinnar Vancouv- er og meginlandsins á British Columbia vestanverðri. Fái brú- arsmíðin framgang.er áformið að byggja skipalægi mikið og örugt á vesturströnd eyjarinnar. . F.r talið að höfn sú muni mikiö greiða og flýta fyrir verzlunar- viðskiftum öllum við Austurlönd- in, í Asiu, þar eð innsiglingin í sundið bæði hefir tekið nokkurn tíma og þar að auki verið oft torveld og hættuleg sakir tíörar þoku þar um slóðir. Hungursneyð mikil kvaö vera í nyrðri hluta Indlands, sakir skaölegra þurka, einkum í héruð- unum Raiputana og Gwalior. Hcfir þar eigi rignt í marga mán- uði. Landsfólkið flýr þaðan hópum saman til að leita sér að lífsforða og vatni, fyrir menn og skepnur. Stjórn landsins hefir þegar tekið að sér um 70 þúsund manna, er til hennar hafa leitað, og séð fvrir lífsþörfum þeirra, og kvað gjarnan vilja gjöra meira í að aðstoða liina bágstöddu, en Hindúar eru stórlát þjóð, sem ekki vilja beiðast hjálpar fyr en í fulla hnefana. Edward Englandskonungur er unnandi iþróttum og fimleika æfingum eins og kunnugt er. í vor kvað hann ætla að gera sér ferð til Aþenu á Grikklandi og vera þar viðstaddur ólympisku leikina, sem alt frá fornum tíma eru haldnir þar á vori hverju. Nýfundnar eru málmnámur í Quebecfylki milli St. Johns vatns vatns og Quebecborgar. Sagðar eru þær auðugar af silfri og kop- ar> °g ýmsar fleiri ódýrari málm- tegundir svo sem blý, hafa síð- ustu rannsóknir þar leitt í ljós. Þó að vetur þessi hafi veriö hinn affarasælasti til lands hér í Ameríku, þá hefir stormasöm og óhagstæð veðrátta verið til sjáv- arins og hríðarbyljir. Mikil stór- viðri hafa gengið yfir Atlanzhaf- ið og hvirfilvindar á Kyrrahafi. Síðustu fréttir segja, aö þrjátiu og fimm skip hafi farist í ferðum milli Ameríku og annarra landa síðastliðinn Desembermánuð. Af þeim voru 19 gufuskip, og er það sörgleg viðbót við skipskaða þann, er varð hér á vötnunum i Nóv. í haust,þar sem nítján skipa fórust í einu ofviðrinu. Ekki eru álitlegar horfurnar í Kaukasuslöndunum enn þá. Stór- skotalið Rússa liefir látið fall- byssuskot dynja á liúsum upp- reistarmanna, en hinir tekið á móti með sprengikúlum og mikið mannfall orðið i beggja liði. í borginni Elizabethpol, sem stend- ur niutiu mílur sunnan og vestan við Tiflis, hafa Tartarar drepið Armeníumenn hrönnum saman, með svo afskaplegri grimd, að fram úr hófi keyrir. Nálægt Portage la Prairie hér í fylkinu kviknaði í híbýlum efna bónda nokkurs, Brazils að nafni. Eldsins varð vart kl. 4 að morgni síðastl. mánudags. Komust bæði hjónin ásamt þremur börnunum út úr íbúðarhúsinu, sem mikið var tekið að brenna þegar fólkið vaknaði. Inni brunnu þar þrjú börn þeirra og ellihrum tengda- móðir. Meiri hluti eigna bóndans brann, peningshús öll, sjö hestar, liðug 2,000 bush. af hweiti og kornvöru, öll áhöld, vagnar og aktýgi. Orsakir eldsins ókunnar, liklegast þvkir að falist hafi neist- ar í öskuíláti i geymsluskúr á- föstum við íbúðarhúsið. Óeirðunum á Santa Dominica lyktaði svo að Rodriquez lilerfor- ingi, er veitti liði hins brottrekna ríkistjóra Moralis forstöðu, féll í annari atlögunni gegn herliði Carceres, er nú situr þar að völd- um. Morales hefir flúið og leitaö á náöir sendiherra Bandaríkj- anna. Eyrra miðvikudag, hinn 10. þ. m., kom upp eldur mikill í stóru hóteli í Minneapolis og brunnu þar inni á milli tuttugu og þrjátíu manns. Hátt á annaö hundrað næturgestir voru í hótelinu þegar eldurinn kom upp og voru margir þeirra, er út komust, mjög hætt komnir og sumir svo stórkost- lega brendir, að flytja varð á spít- ala og litlar likur til, að þeir muni lifa af. Veggir og gólf í hótel- inu.sem hvorutveggja áti að vera eldtrygt, loguðu fyrirstöðulausí jafnskjótt og eldurinn náði þeim. Á bóndabýli nálægt Boissevain, Man., brunnu gripahúsin, bæði fjós og hesthús í vikunni sem leið og varð engu af gripunum bjarg- að. Auk þess misti bóndinn all- ar birgðir sinar af heyi og öðru gripafóðri. Viðsjárnar með Þjóðverjum og Frökkum, sem ýms blöð segja að alls ekki sé enn séð fyrir end- irinn á, hafa nú þegar haft þving andi áhrif á peningamarkaö Þjóðverja að ýmsu leyti. Þykir mörgum þetta benda til þess að friðurinn milli þeirra þjóða sé alt annað en tryggur. Næst þegar Dominion.-þingiðí kemur saman ætlar Sir Wilfrid Laurier að leggja fyrir það frum- varp til laga um friðun skóganna í Canada. Er svo til ætlast, að settar verði sérstakar negluf, við- vikjandi skógarhöggi, til þess að vernda skóginn í landinu frá al- gerðri eyðileggingu. Dr. George F. King„ steina- fræðingur í New York, hefir ný- lega látið það álit sitt í ljósi, aö gimsteinanámur muni vera til í Canada, að líkindum helzt í Ont- ario, þó ekki hafi enn hepnast að finna þær. Færir hann það til síns máls að margar líkur hendi til, að gimsteinar, sem fundist hafa í Californiu, Norður-Carol- ínu, Georgiu og Alabama, hafi borist þangað á ísöldinni norðan að. Nýtt félag liafa ínenn rtokkrir í Minnesota myndað í því skyni að neka búskap í stórum stíl í Saskatchewan dalnum. Ætlar fé- lagið að rækta þar ýmsar korn- tegundir og kórna upp stórum hjörðum af nautgripum, sauðfé og hrossum auk þess sem það jafnfranit ætlar sér að hafa með höndum kaup og sölu á löndum í Canada. Komist hefir það upp, að fjöldi smásölukaupmanna í New York hafa haft samtök með það að falsa vogir sinar og er það næst- um undantekningarlaust fátæka fólkið, sem verður að kaupa nauösynjar sínar daglega í smá- kaupum, er svikin hafa lent á. Lögreglan hefir nú lagt hald á ekki færri cn fimtíu þúsund vog- ir og eitt hundrað þrjátíu og sex þúsund lóð, sem alt var falsað og notað til þess að hafa af kaup- endunum með. Alls konar kaup- menn hafa orðið uppvísir að þessu, en mest brögð að fölsun- unum hefir þö veriö af hendi kjötsalanna og kolakaupmann- anna. Hafa jafnvel margir af kjötsölunum ráðið verkamenn sína þannig að kaup þeirra skyldi innfalið í yfirvigtinni sem þeir gætu stolið af viðskiftamönnun- um. Hinn 19. Janúarmán. árlega er það siður á Rússlandi að keisar- inn, ásamt æðstu embættismönn- um kirkjunnar, leggi blessun sína yfir Neva-fljótið. En nú í ár er mælt að keisarinn ekki muni þora að eiga það á hættu að taka þátt í þessari athöfn af ótta fyrir morðráðum þegna sinna. Orsök- in fyrir þessum ótta keisarans stafar æinkum af því, að á þeim stöðvum, þar sem athöfnin er vön að fara fram, hafa nú þegar fundist allmargar tundurvélar, sem þannig var frá gengið að hægt vúr að kveikja í þeim úr töluverðri fjarlægð og sprpr.gja í loft upp alt í nánd viö þær. Meiri rokviðri en dæmi eru til á síðastliönum tíu árum gengu yfir Ontario á þriðjudaginn var og geröu þar víöa allmikið tjón. Á eitt af gufuskipum Can. Pac. járnbrautarfélagsins lagði tollmáladeildin í St. á Niewfound- landi löghald um siðastl. helgi. Orsökin til þessa var sú, að einn af skipverjunum sást flytja í land af skipinu tvö þúsund vindla, sem ekki hafði veriö greiddur tollur af. Þorrablót Eftir vanda um þenna tíma árs, er nú uppi fjöður og fit í Krist- nesi við undirbúning hins árlega miösvetrarsamkvæmis, sem Helgi magri býður íslendingum fjær og nær til. Eins og fyr hefir verið kunn- gert, verður samkvæmi þetta hið næsta haldið þann 15. Febrúar, því um það leyti standa yfir hin- ir alkunnu skozku þjóðleikir.sem „Bonspiei" nefnast. Verður þá margt manna hér í Winnipeg- borg °g hátíðabragur á öllu þar. En það sem mestu máli skiftir er það, aö um það leyti geta menn ícröast með jámbrautum þjessa lands fyrir hálfvirði.. Á C. P. R. frá Moose Jaw að vestan og frá vesturcnda Northwestern brautar innar. En C. N. R. frá Melfort og Wannon að vestan,og á braut- um þessara beggja félaga frá Port Arthur að austan.. Líka verða fargjöld niðursett við þetta tækifæri, á Bandaríkja járnbraut- um fyrir þá, er þetta samkvæmi sækja. — Og geta utanbæjar- menn trygt sér aðgöngumiða hjá H. S. Bardal, 172 Nena st., eða einhverjum félagsnianna. Þessi mikli afsláttur fargjalda bj’rjar 9. Febrúar og verða farseðlar góðir og gildir til heimferðar til 20. sama mánaðar. I næstu blöðum verður nokkuð nákvæmar skýrt frá allri tilhögun samkvæmisins og ættu allir að að lesa þaö meö athygli. Kristnesi hinu vcstra, 15 Janúar 1906. Helgi magri. Heiðurssamsœti héldu Akureyrarbúar séra Matth. Jochumssyni, fjölmennir, á 70. afmælisdegi hans í Nóv. sl. Mælti fyrir rninni skáldsins Guðmundur læknir Hannesson. Márgar fleiri ræður voru þar fluttar. I sam- sætinu flutti séra Matth. eftirfar- andi kvæði, er hann nefnir; KVEÐJA, 11. Nóvember 1905. Sú stund er góð er gamlir vinir ' finnast og glaðir örfa þreytta hversdags- -ifid; þá verður oss á margan hlut að minnast, sem minnið geymdi slikri heill- stund, þá vakna kraftar, tilfinningar tvinnast og tíminn yngist, býður gull i mund: þ.ví rís eg upp sem bjarg á móti bárum, með bros á vör—að liðnum sjötíu árum! Eg fæddur var á gömlu Marteins messu, á miðjum degi átján—þrjátiu og fimm; og lífiö var mér léð að mark þessu, en lengi fj’rst mér þótti brautin dimm. Og nú skal þreyta fang við forna skessu, sem flestum þótti bæði skæö og grimm. En fyrst um sinn, að fella mig að velli skal fremur verða leikseigt, kerling Elli. Hvað, hef eg lært á öllum þessum árum— því æfi manns er sannnefnd skójlatí ð ? Það fyrst, að gleðin glóir helzt á tárum. og gæfan kostar bæði sorg og stríð. Og þó aö sorgin sofi lifs á bárum og sólin veki jaröarblómstrin fríð: er löngum stopult Hf og yndi þjóða, — vcr lifuni fyrst við yl og kraft htns góða. Hvaö hef eg lært? Að líf og auðna breytist; að lán og ólán snýst Um manns- ins sök; að sí og æ vor sálarstyrkur þreytist er sitjum vér og nemum lifsins rök; að dýrið móti mannsins viti strevtist, að mitt á leið sé krókur, gildra, vök. Hvað hef eg lært? Að líf og heilsa manna sé leit og stöðug eftirspurn hins sanna. Ilvað hef eg lært? Að dást aö Drottins geimi, og drekka guðaveig af andans skál; því eg hef lifað tíma hér í heimi, sem heimsins þjóðir gæddi nýrri sál, og óminn heyrt af æðri hnatta hreimi, sem hjarta mínu vakti guðamál. HvaS hef eg lært? Að landið vort hið magra á lífsins hrunn hins góða, sanna og fagra. Hvað hef eg lært um Hfið hmumegin? Eg lærði fátt, sem barnið ekki veit. Eg lagðist djúpt, því vita vildi feginn um veraldir, sem enginn maður leit. En hvert það sinn, tr sannleiks gekk eg veginn eg sá í anda miklu stærri reit, þars hvert það sáð, er svalt í fctríði hörðu, mót sólu hlær á lifandi manna jörðu. Hvað hef eg unnið? Elsku vinir kæru! mig angrar sárt, hvað þaö er lít- ilsvert. En samt eg þigg með þökkum slíka æru, sem þér af kærleik til mín hafiö gert. Þótt hundrað mínir hörpustreng- ir væru er hjörtu yðar ljúfast gætu snert og svngju þeir með tignar-tóna bjarta, Þeir tæmdu þó ei vinaryl míns hjarta! „Nú slekk eg ljósið — og svo sloknar ljósiö,“ hann Shakeslpeare kvað við Des- demónu lát. En hvað um það? Eg kveð það karla ósið, að kveðja fvrst, þá brott er vit og gát. Eg kveð — eg kveð án sorgar hismið, hrósið, alt heimsins strið með blekking, synd og fát. Hið sattna, góða og fagra finnur veginn! Farvel. farvel! Og sjáumst hinumegin! Arsfund sinn hélt söfnuður Fyrstu lút- ersku kirkjunnar hér i bænum næstliðið þriðjudagskveld. Ritari las upp ársskýrslu nefndarinnar og var hún samþykt i einu liljóði. Jafnaðarreikningur kirkjunnar var framlagður og samþvktur; reyndust tekjurnar að vera $4,- 443-32, en útgjöldin $4,213.99. Eru þá i sjóöi $229.33. Safnað- arfulltrúar voru kosnir: J. J. Vopni, S. W. Melsted, Þ. Þór- arinsson, G. Thomas allir endur- kosnir, fimti fulltrúinn Jónas Jó- hannesson er nýkjörinn. Endur- skoðunarmenn, A. Frímann og Árni Eggertsson endurk. Á þessu safnaðarári hafa sam- kvæmt ský rslu prestsins séra Jóns Bjarnasonar verið skírð 59 börn, fermd 27 ungmenni og 4 full- orðnir meðlimir enn fremur stað- fest sk.írnarsáttmáia sinn. Á ár- inu hafa í söfnuðinum framfarið 17 hjónavígslur, 33 greftranir, 444 altarisgöngur og inngengið 78 nýir meðlimir. Úr söfnuöinum gengtt fyrir burtflutning í fjar- lægð ein kona og eitt barn. Að því er oss virðist er safnað- arlífið hér hið fjörugasta og stendur það nú með meiri blóma en nokkurn tíma áður. Má það bæði þakka prestinum, full- trúunum og djáknunum, sem sýna það í orði og verki að þeim er velferð safnað- arins sannarlegt* hjartans mál- efni, og sú heilnæma trúarskoð- un, að allir meðlimir safnaðarins eigi að vera lifandi og starfandi limir á safnaðarlíkamanum, er og óðum að ryðja sér til rúms, og enda ljóslega sjáanleg í safnaðar- lífinu.. Finnum vér mikinn og tilfinnanlegan mun á safnaöarlífs- fjörinu Hér, og dauöa þeim og deyf, sem víðast ríkti í söfnuðun- um heima á Fróni, síðast er vér vissum til. Ur bænum. Sama góða tiðin helzt enn, með mjög vægu frosti og jafnvel með sólbráði suma daga. Elztu menn muna varla aðra eins tíð. Samkvænlt ósk Bjarnar Lín- dals hér í bænum, skal þess getið, að hann leggur í dag á stað suður í Dakota, ásamt syni sínum, til fundar við kunningja og vini sina, og býst við að dvielja þar tvær eða þrjár vikur. A safnaðarfundi Tjaldbúðarinn- ar. sem haldinn var á þriðjudag- inn var, reyndist fjárhagurinn standa svo: Tekjur og í sjóði frá fyrra ári samtals $3,187.89, út- gjöldin $3,149.15. í sjóöi því við lok fjárhagsársins $38.74. Safn- aðarfulltrúar voru kosnir á fund- inum: L. Jörundsson, M. Mark- ússon, H. Halldórsson. J. Gott- skálksson, Chr. Hillmann. Illa hefir ökumönnunum komið saman þessa dagana, þeim er möl og sand draga til bæjarins frá Bird’s Hill. Hafa þeir barist með rekuni, svipum og öllu, sem hönd á festi. Sagt er að Kynblending- ar hafi byrjaö á ófriðnum, með því að ryðjast fram, og keyra hesta sína á önnur „team“ til þess að verða sem fyrstir að ná í vagnhleðslu, í vi'ðskiftunum er sagt aö þeir hafi boriö hærri hlut, því að þeir voru fjölmennari, þangað til í seinustu orrahríð- inni á föstudaginn var, þá fóru þeir algerlega halloka og flýðu af hólminum, en einn féll í ómegin, særðttr svöðusári á höfði. Þann 15. Þ. m. gaf séra Friörik Hallgríntsson saman í hjónaband í íslenzktt kirkjunni að Grund í ^rgyte, hr. Tnga Gunnar Brynj- ólfsson og ungfrú SúsÖnntt Crist- oplnerson, dóttur Sigurðpr Christ- ophersonar aö Grund. Brúðgum- inn er sonur Sveins Brynjólfs- sonar hér í bænum, ungur maötir og efnilegur. Daginn fyrir hjóna- vígsluna hélt unga fólkið í ná- grenninu brúðurinni fjölment samsæti, og færðu henni gjafir til minja um foma vináttu. Ný- giftu hjónin komu hingað til bæj- arins á mánud.kveldið og lögðu af stað ásamt bróöur brúðurinn- ar Halldóri í fyrra kveld vestur til Elgin í Brit. Col. þar sem foreldrar systkinanna dvelja nú. Væntanlega koma ungu hjónin hingað til bæjarins meö vorinu og setjpst hér að.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.