Alþýðublaðið - 03.07.1960, Page 3
ÍSAFOLD GEFUR
ÚT MÁLABÆKUR
ÚT eru komnar þrjár nýjar
bækur, sem bera samheitiS
Málabækur ísafoiadr. Er hér
um að ræða bækur um frönsku,
ítölsku og spönsku og' sérstak-
lega ætlaðar ferðamönnum, er
ekki hafa lært þessi mál að
neinu ráði.
Bæ.kurnar eru aö mestu leyti
sniðnar eftir samsvarandi út-
gáfu bókaforlagsins Collins. Hef
ur Magnús G. Jónsson, mennta
skólakennari, búið bækurnar
undir prentmi. Meginkaflar
málabókanna fjalla um ferða-
lög og kennir þar margra grasa
— Þá eru kaflar um lönd, borg-
ir og þjúðerni, töluorð, mál og
vog, tíma, veður o. fl. Fremst
í 'hevrri bók eru framburðar-
skýringar, en framburður er
sýndur við öll orð og setningar
í bókunum. Aftast er svo orða-
skrá.
Málabækur ísafoldar eru í
litlu broti, band virðist sterkt og
smekklegt. Bækurnar, sem eru
á anna ðhundrað folaðsíður,
ættu að geta orðið mörgum ís-
lenzkum ferðamanni að nokkru
liði tU að gera sig skiljanlegan
í þeim fjölda ríkja, iþar sem
rómönsk tungumál eru töluð.
Meiri
afii
SAMANLAGÐUR afli togara
og báta var frá áramótum til 30.
apríl 202 þús. lestir en var á
sama tímabifo í fyrra 193 þús.
| lestir.
Frá sjóprófinu í gær. Skipstjóriun situr t. v. Hinn er förseti dómsins, Emil Ágústsson.
ÁSTÆÐAN til þess, að
Ms. Drangajökull sökk er
sú líklegust, að minni
hyggju, að komið hafi
leki að skipinu, lýsti Hauk
ur Guðmundsson skip-
stjóri yfir í sjórétti í gær-
morgun. Hann kvað sér
hafa virzt skipið síga
meira að aftan, áður en
sjór tók að flæða inn í
það — og taldi hann það
styðja þá skoðun sína, að
um leka hafi verið að
ræða. Ekki varð þess þó
vart, að skipið tæki niðri,
enda var það ávallt langt
frá landi, að sögn skip-
stjóra, svo slíkt hefði ekki
getað átt sér stað.
Emil Ágústsson, fulltrúi borg-
arfógeta, hóf sjópróf vegna
Drangajökuls-málsins kl. 11 í
gærmorgun. Með honum sátu í
sjóréttinum skipstjórarnir Jón-
as Jónasson og Jón Sigurðsson.
Mættir voru umboðsmenn eig-
enda skipsins, Jöklar h.f., og vá-
tryggjenda skips og farms.
Lögð voru fram í réttinum
þessi skjöl: skýrsla skipstjóra,
áhafnarskrá, farmskrá, teikn-
ing, skipaskoðunarvottorð, veð-
bókarvottorð og foleðslufarms-
eyðublöð.
Síðan var kallaður fyrir rétt-
inn Haukur Guðmundsson, skip
stjóri, Nökkvavogi 31, Reykja-
vík, 39 ára að aldri. Tók forseti
dómsins fram við skipstjóra, að
þar sem hér lægi fyrir grunur
um að um refsivert athæfi
hefði verið að ræða, væri hon-
um ekki skylt að svara öllum
spurningum, sem fyrir hann
kynnu að verða lagðar.
SKÝRSLA SKIP-
STJÓRA.
Yar skýrsla skipstjóra síðan
lesin. Þar kom m. a. fram, að
farmur skipsins 'hafi alls verið
445 tonn í lest, þar af 336 tonn
kartöflur. Auk þess voru um
45 tonn af varningi á þiifari,
þar á meðal 14 dráttarvélar.
Þá segir í skýrslunni, að
skömmu áður en skipið sökk,
hafi það mjög skyndiiega lagzt
á bakborðshlið. Stýrði skipstjóri
Framhald á 5. síðu. *
KOM LEKI A9
Biaogræna iram
leidd kemískt
DÚSSELDORF, 30. júní, (NTB
-AFP). — Tveir vestur-þýzkir
efnafræðingar, prófessor Mar-
tin Strell og dr. Anton Kolojar
neff, við lífefnafræðistofnun-
ina í Miinchen hafa fundið að-
ferð til að framleiða klorofyl
(blaðgrænu) með efnafræðileg-
um aðferðum. Þessi athyglis-
vcrði árangur hefur náðst eft-
ir rúml. 20 ára rannsóknir og
samkv. opinberri tilkynningu
frá efnaiðnaðarsambandinu í
dag hafa þessir tveir vísinda-
menn unnið þarna land í
efnarannsóknum, sem er ómet-
anlega þýðingarmikið fyrir
mannkynið.
MWWMWWWWWTOMMW
IBEVAN
VEIKIST
AFTUR
;í ANEURIN BEVAN, einn ;>
! > af fremstu leiðtogum !!
;! brezka Verkamannaflokks !;
j! ins, er nú mikið veikur. ;!
!; Hann er 62 ára að aldri. !;
;! Bevan lá lengi, mjög |;
^ þungt haldinn í veikind- |!
4 um sínum s. I. vetur. Hon- !;
j um var vart hugað líf þá. ;!
IMWMWWWWWWWWMMMM
Klorofyl er hið dularfulla
efni; sem gerir plöntur græn-
ar og geymir mörg af leyndar-
málum lífefnafræðinnar. Ára-
tugum saman hafa efnafræð-
ingar verið að reyna að fram-
leiða blaðgrænu. Nýlega hefur
bandarískum efnafræðingi tek-
izt að framleiða klorofyl A án
lifandi fruma, en það er til í
þrisvar sinnum meira magni
en klorofyl B. Þjóðverjunum
hefur tekizt að framleiða báð-!
ar tegundir á syntetískan hátt.!
Fyrir nokkrum árum tókst
svissneskum efnafræðingi að
einangra klorofyl-kristalla í
plöntum.
Fyrsti sendi-
herra Castros
hér á landi
í FYRRINÓTT kom hingað
fyrsti sendiherra Kúbu hér á
landi eftir að Castro náði völd-
um á Kúbu. Heitir hann Gust-
avo Arcos y Bergnes og hefur
aðsetur í Haag. Hann afhendir
forseta fslands embættisskilríki
sín á þriðjudag.
í dag var og væntanlegur
hingað til lands sendiherra Kan
ada á íslandi dr. Robert A. Mar
Kay. Hann mun afhenda forseta
íslands skilríki sín sem ambassa
dor Kanada á íslandi með aðset-
ur í Oslo en áður hefur hann
sem sagt verið sendiherra.
Alþýðublaðið — 3. júlí 1960 3