Alþýðublaðið - 03.07.1960, Síða 4
4? 3. júlí 1380 — Alj)ýðublaðið
WiWWWWWMWWWWWWMWWVWMWiMVVWUMWW fMVWWWWVWWWWMW
FÁIR atburðir kalda stríðs-
ins hafa vakið meira umtal
og vangaveltur en afdrif U-
2 flugvélarinnar, er skotin
var niður nálægt Sverdlovsk
í Sovétríkjunum hinn 1. maí
síðastliðinn. Kxústjov notaði
þánn atburð sem átyllu til
þess að ónýta fund æðstu
manna og Sovétleiðtogarnir
hafa síðan notað hvert tæki-
færi sem gefist hefur til að
ráðast á Bandaríkjastjórn og
einkum Eisenhower forseta
og Nixon varaforseta.
Krústjov, forsætisráðherra
Sovétríkjanna skýrði frá því
að flugvélin hefði verið skot
in niður með flugskeyti í
80.000 feta hæð. Þetta var
dregið í efa þá þegar og talið
ómögulegt. Var þess getið
til, að flugvélin hafi verið
búin að tapa allmikilli hæð
er hún var skotin niður.
Bandaríski blaöamaðurinn
Joseph Alsop ritaði nýlega
grein í New York Herald
Tribune, sem hann kallar
The Real U2 Story, Hin
sanna U2 saga. Eru niður-
stöður hans fróðlegar og fer
hér á eftir brot úr greininni.
SVO skömmu eftir þá póli
tísku stórviðburði, sem
fylgdu í kjölfar U-2 atburð-
arins og mörgum vikum eft-
ir að vélin var skotin niður
nálægt Sverdlövsk, er kann-
ski ótímabært að reyna að
segja söguna um U-2 eins og
hún gekk fyrir sig. En það
er þó gagnlegt einkum vegna
þess að svo margar rangar á-
lyktanir hafa verið dregnar
í sambandi við þetta mál.
Hvað gerðist þá f háloft-
unum þegar hin rennilega
könnunarflugvél Powers
flugmanns sveif inn í ver-
aldarsöguna?
Það er almennt viðurkennt
að U-2 hafi haft mjög tak-
markað flughæfni. Væri
henni flogið lítið eitt of hratt
eða of hægt, var líklegt að
hún færi að snúast og titra.
Eldsneytið var einnig við-
kvæmt og ef eitthvað bar út
af í háloftunum slöbknaði á
hreyflunum.
Þegar slokknar á þotu-
hreyfli í háloftunum svipar
því til þess, er slokknar í gas
ofni. I 70—80.000 feta hæð
er ógerlegt að kveikja aftur
á vélinni. Flugmaðurinn
verður að lækka flugið nið-
ur þangað, sem meira súr-
efni er í loftinu ef hann á að
geta sett hreyflana á stað
aftur.
Það er lítill vafi á, að ein-
mitt þetta hefur gerzt í marg
umrætt skipti. Það er vitað
með vissu, að Powers hafði
laekkað flugið að miklum
mun nokkru áður en hann
var skotinn niður.
Fyrir alllöngu skýrði
bandaríska utanríkisráðu-
neytið frá því, að heyrzt
hefðu viðtöl rússneskra flug-
manna við loftvarnastöðvar
á jörðu niðri, Var þetta op-
inberað til þess að sýna fram
á, að Rússar hefðu viljandi
skotið niður bahdaiíska.
flutningaflugvél, sem villzt
hafði inn fyrir . landamæri
Sovétríkjanna. Það er því
sannað, að Bandaríkjamenn
hlusta reglulega á loftskeyta
viðtöl í Sovétríkjunum.
Bandaríkjamenn hafa því
hlustað á viðtöl þau, er fram
fóru milli flugmanna og
stöðva á jörðu niðri er U-2
var skotin niður. Nú er vit-
að, að það kom fram í þess-
um samtölum, að U-2 hafði
farið að tapa hæð klukku-
stund áður en sagt er að hún
hafi orðið fyrir flugskeyti.
Þetta eru staðreyndimar
um U-2. Þær gera að engu
fullyrðingar Rússa um að
þeir hafi náð til hennar í
venjulegri flughæð, og þær
afsanna einnig ýmsar full-
yrðingar Bandaríkjamanna í
sambandi við málið.
Flugvélin var skotin niður
1. maí. Allar upplýsingar,
sem hleraðar höfðu verið,
voru komnar til Washington
daginn eftir. 2. maí var al-
talað hér, að bandarísk flug-
vél hefði verið skotin niður
langt inn yfir Sovétríkjun-
um. En það var einróma á-
lit ráðamanna í Washington,
að með tilliti til fundar
æðstu manna mundu Rússar
ekki vilj'a hætta á, að,„tapa
andlitinu“ rneð því að viður-
kenna, að könnunarvélar
kæmust svo langt inn yfir
Sovétríkin. Þar af leiðandi
voru engar nýjar fyrirskip-
anir gefnar um hvaða skýr-
ingu ætti að gefa ef Krústjov
færi að ræða málið. Þannig
var hin fræga skýring um
veðurathuganaflugvélina gef
in er Krústjov gaf fyrstu
upplýsingarnar um U-2,
Með þessari skýringu var
teflt á tæpasta vað en hún
var engan veginn heimsku-'
leg. En hún varð að engu
þegar Krústjov viðurkenndi
ÞETTA eru ljósmyndatæki U-2 vélanna, sem notaðar eru
í könnunarflug. Mikilvægasta tæki þeirra eru ljósaútbún-
affurinn. Ljósmyndavélin tekur myndir úr 80.000 feta
hæð, sem eru svo skýrar, aff hægt er að greina mann á
jörðu niffri. Hlutverk Powers flugmanns á U-2, sem skotin
var niffur yfir Sverdlovsk, var að taka myndir af radar-
stöðvum og eldflaugaskotstöffvum.
Neðri myndin sýnir U-2 á flugi. Hún er með mjög ianga
vængi og hægt aff nota hana sem svifflugu ef með þarf.
þá staðreynd, að vélin hefði
komist alla leið til S'verd-
lovsk.
Það er greinilegt af mynd-
um af flaki U-2 að hún hef-
ur ekki verið hitt beint með
flugskeyti. Ef svo hefði ver-
ið, hlyti flakið að vera mikl-
um mun verr farið. Og Pow-
ers hefði áreiðanlega ekki
sloppið lifandi, ef flugskeyti
hefði hitt vél hans. En ekki
er þó útilokað, að U-2 hafi
orðið fyrir flugskeyti eða
réttara sagt, að flugskeyii
hafi sprungið nálægt henni
og valdið íkviknun. En lík-
legt er að hún hafi verið
skotin niður af orustuflug-
vél. U-2 varð ekki fyrir árás
í þeirri hæð, sem hún flýgur
venjulega. Hún var skotin
niður í 60.000 feta hæð eða
þar fyrir neðan.