Lögberg - 08.02.1906, Page 1
Byssur
og skotfæri. TakiC yður frídag til þess aö skjóta
andir og andarunga. Við höfura vopnin sem
með þarf. Við höfum fáeinar byssur til leigu
og skotfæri til sölu. 1
Anderson <fc Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
638 Maln Str. Telephone 389
Steinolí uofnar,
í kveldkulinu er þægilegt að geta haft hlýtt í
herberginu sínu. Til þess að geta notið þeirra
þæginda ættuð þdr að kaupa hjá okkur steinol-
íuofn. Verð $5 00 og þar yfir,
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
638 Maln Str. Telephone 339.
19 AR.
II
—
Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 8. Febrúar 1906.
NR. 6
Heimboð
til allra þeirra íslenzkra karl-
manna, sem aöhyllast stjórn-
arstefnu liberalSokksins og
fylgja lionum að málum, án
tillits til þess, hvort þeir eru
meðlimir liberalklábbsins eða
ekki.
íslenzki liberal klúbburinn í
Winnipeg heldur heiniboð á sam-
komusal sínum, að 676 Sargent
ave., í kveld (8. Febr.), er bvrjar
klukkan 8.
Verðnr gestunum skemt með
ræðuni, söng og hljóðfæraslætti.
. Aðal ræðumaðurinn verður E.
Brown, Esq., borgarstjóri í Port-
age la Prairie. Próf. S. K. Hall
leikur þar á fortpíanó, og Mr. Tb.
Johnson á fiðlu, Mr. H. Thorolfs-
son skemtir með söng. Ókeypis
veitingar.
Fréttir.
Þegar efri málstofan í Ottawa
þinginu verður fullskipuð og nýju
ráðherrarnir, sem þangað eru
væntanlegir fyrir komandi þing, í
sess sestir, þá munu liberalar
balda 55 sætum af 87. — Þegar
litið er til þess, að árið 1896 áttu
að eins 9 liberalar sæti í efri mál-
stofunni, gegn 72 conservatívuni,
þá sýna hinir miklu yfirburðir
frjálslynda flokksins nú, betur en
nokkuð annað hve óhvggilegt er
að skipa efri málstofuna að eins
gömlttm mönnum, eins og aðallega
átti sér stað þegar conservatívar
sátu að völdum í Ottawa. Enda
befir nú liberalstjórnin þar eystra
ekki haldið þeirri reglu.
Jarðarför Kristjáns Danakon-
UBgs er sagt að muni verða frestað
til 15. þ. m., til þess að allir hinir
tignu gestir, er viðstaddir vilja
verða, hafi tíma til að koma til
Danmerkur. Meðal þeirra er Ját-
varður Bretakonungur. Alexandra
drotning kom til Kaupmannahafn-
ar næstliðinn laugardag.
Nú lítur út fyrir að fullkominn
friður sé að komast á í St. Domin-
ica. Uppreistarmenn allir eru
sagðir yfirbugaðir og sviftir vopn-
um og verjum, svo að erfitt verður
þeim þvi að hefja uppreist á ný,
minsta kosti fyrst um sinn.
Venezuelabúar hervæða sig í
gríð, hefir Castro forseti látið þá,
skipun út ganga, að liðið skuli
þegar skjóta á fyrsta franska her- J
skipið, sem í skotmál kemur.
gullstássi, sem bankinn hafði tekið
til geymslu. Ekki hefir neitt orð-
ið uppvíst um það enn hverjir eru
að ráninu valdir.
1 bænum Lasalle, Ills., drukn-
uðu nýlega þrir stúdentar og
munkur einn, Gilbert Simon, > frá
St. Bedes skolanum þar í bænum.
Svo stóð á, að stúdentamir og
nokkrir smásveinar höfðu verið á
skautum á Illinions-ánni og gengið
allir saman í hóp til þess að láta
taka af sér mynd á svellinu. ís-
inn þoldi ckki svo mikinn þunga
og brotnaði niður. Munkur sá,
sem áður var um getið, var nær-
staddur, er slysið skeði, varpaði
hann sér þegar í vatnið og fékk
bjargað fimrn þeirra er féllu í
ána, en þegar hann ætlaði að lyfta
þeim ^jötta upp á ísbrúnina ör-
magnaðist liann, eða fékk krampa,
og sökk ásamt þremur ungu svein-
unum, sem eftir voru í vökinni.
Bjargarskorturinn í norðurhluta
Japans kvað altaf vera að verða
atkvæðameiri. Margir hafa þegar
látist úr hungri og aðrir langt
leiddir. Bæði stjórnin og utan-
ríkissendiherrarnir gera allar ráð-
stafanir, sem mögulegar eru, til
að ráða bót á vandræðunum, en
fólksfjöldinn er svo mikill, að erf-
itt er að koma nægilegum forða
til hinna bágstöddu eins fljótt og
þörfin krefur. Nær því ein milj-
ón manna í þremur norðlægustu
héruðunum, er nú að fram komin
af skortinum, eftir því sem siðustu
fréttir segja.
Ilinn fyrsta þessa mán. gerðu
prentarar í Boston verkfall og er
það átta stunda vinnudagurinn.
sem nú er ágreitiingsefnið. S.agt
er að prentararnir liafi nægilegt fé
við að styöjast til þess að geta
baldið verkfallinu til streitu og því
talið sjálfsagt að vinnuveitendurn-
ir verði að ganga að kostum
þcirra.
Opinberlega hefir það nú verið
auglýst, að Togo sjóliðsforingi
Japansmanna ætli sér að koma í
kynnisferð til Bandaríkjanna í
næstkomandi Aprilmánuði á tveim
herskipum. Eru Bandaríkjamenn
nú þegar farnir að undirbúa sig
til þess að taka á móti hinum við-
fræga gesti eins og tign hans
sæmir.
Næstliðin vika er sagt að hafi
verið svo köld í Mexico-ríkinu, að
sliks hafi engin dæmi fyr \ærið,svo
menn muni eftir, Einkum voru
frostin tilfinnanleg íbúunum í
innri hluta landsins. Á opnunt
svæðum í bæjunum voru eldar
gerðir til þess að fátæklingar gætu
ornað sér við. í borginni Mexico
fraus vatnið í vatnsleiðslupipun-
um í fyrsta sinni frá því borgin
var bygð. Snauðir menn, sem eigi'
gátu klætt af sér kuldann né skýli!
höfðu nægilegt, bárust mjög illa I
af, og skárust ýms góðgerðafélög1
í að sjá þeim fyrir húsrttmi og
hressingu. í fjölluntim þar um-
hverfis dyngdi niður snjó óvenju
miklum svo að járnbrautir kom-
ust hvergi fram um tíma.
Sex ára gamalt stúlkubarn
gleypti ofurlítinn hjólhesfi sem
hún hafði fengið að leikfangi á
jólatréssamkomu í sjúkrahúsi einu
í London. Læknarnir voru við
hendina, ©g eftir að hafa viðhaft
x-geisla aðferðina, sátt þeir að áð-
ur nefnt leikfang stóð fast í vél-
indanu. Bamið var að deyja og
hálsskurður var því gerður til
reynzlu, en tókst svo vel aö hægt
var að ná burtu þessum banvæn-
lega bita, og bjarga lífi barnsins.
Það gat ekki rent neinu niður í
nærfelt mánuð en var nært gegn-
um pípu sem var rent ofan í mag-
ann.
Ensk blöð telja það hér um bil
víst að þeir Balfour og Chamber-
lain muni hætta að berjast undir
sömu merkjum i stjórnmálum á
Englandi, og kvað Chamberlain
ætla að mynda nýjan flokk áhuga-
málum sínum til styrktar.
Þann 3. þ. m. brann !i\> ifiblaða
mikil í St. Louis, með einu’ jón
busli. af hveiti og áfast við ana
hesthús með tvö hitndru' hestum
og tvö hundruð vögnum í, alt til
kaldra kola. Skaðinn er metinn á
annað httndrað þús. doll.
Fulltrúadcild Bandarikjaþings-
ins hefir samþykt myndun beggja
nýju rikjanna, sem samþykki
þingsins var óskað um að tekin
yrðu í sambandið, en það eru hér-
öðin New Mexico og Arizona, sem
steypa á saman og ntynda annað
ríkið, en hitt Qklahoma og Indian
Territory. Býsna harðar umræð-
ur urðu út af málinu í þessari
málstofu þingsins. Voru demo-
kratar andvígir upptöku ríkjanna
í sambandið, cn republicanar með-
mæltir, og höfðu þvi meiri hlut í
þessu máli, og vár upptakan sam-
þykt og lögð fyrir senatið sem
bráðlega mun taka málið til athug-
unar.
Stærsta og bezt útbúna herskip
heimsins hljóp af stokkunum í
Portsmouth á Englandi íyrir litlu
síðan. Allra upplýsingar, til hag-
vænlegrar byggingar þessa skips,
frá japanska Stríðinu, hafa verið
teknar til greina, og kostað kapps’
um að sneiða hjá öllum göllum ij
b.Vgging« og frágangi, er þar'
komti í ljós framar en mönnum
var áður kunnugt. Skipið heitir
„Dreadnought.“ J
í gufuskipi frá Bandarikjunum,
er átti að flytja eitt þúsund her-
menn til Philippine-eyjanna, kvikn
aði inn á höfn í San Francisco í
vikunni sem leið. Biðu þrír menn
bana í eldinum en margir urðu
fyrir svo miklum áverkum að ekki
er þeim líf ætlað.
TVeir vopnaðir ræningjar réð-
ust inn í banka í Chicago siðla
dags hinn 1. þ. m., og neyddu tvo
af bankaþjónunum, sem þar voru
viðstaddir, til að láta af hendi við
sig þrjú hundruð dollara í pening-
um og sjö hundruð dollara virði í
Voðalegt járnbrautarslys varð á
þriðjudagsnóttina var skamt frá
bænum Helena, Mont. Flutnings
lest þeyttist með feikilegum hraða
á fólksflutningsvagna, og spyrnti
þeim af sporinu, braut þá og
skemdi. Þegar lestirnar rákust á
kviknaði í þeim og brunnu þær'til
kaldra kola, en sex menn létust og
margir meiddist, sumir allhættu-
Iega. Af þeim sem dóu festust
nokkrir milli vagnanna, svo eigi
var auðið að losa þá, þó sumir
þeirra væru lifandi og með fullri
rænu eftir að áreksturinn skeði.
Hið átakanlegast hafði verið fyrir
þá, sem af komust, að horfa upp á
dauðastríð hinna í eldinum og geta
enga hjálp veitt.
Án gagnsóknar og í einu hljóði
voru tvö þingmannaefni liberal
flokksins kosin hinn 6. þ. m. Var
annar þessara manna W.E.Know-
les, sem kosinn var í Assiniboia,
og hinn G. E. McCraney, kosinn í
Saskatchewan.
Rafaflssýningin í Chicago.
íslendingur skarar fram úr.
Rafmagn iðnaðarsýning allmik-
ilfengleg er hér svo að segja ný-
afstaðin. Fór sýning sú fram í
stórhýsi einu er Colesíum nefnist.
Var þar sýnt alt hið nýjasta og
merkilegasta, sem íþróttamenn
rafmagnsfræðinnar þekkja nú á
dögum.
Allir helztu rafmagnsfræðingar
hér í Chicago tóku þátt í þessari
sýning. Þeir gerðu sitt ítrasta að
hafa alt sem fullkomnast. Það
borgaði sig í öllu tilliti. Bæði
þurftu þeir að halda uppi heiðri
borgarinnar, sem talin er hafa ým-
islegt stórskornara og merkilegra
en nokkur önnur borg í heimi, og
svo þurftu þeir að fá dálitið af
skildingum upp í sýningarkostnað-
inn, sem vitanlega var ekki all-
lítill. Aðsóknin varð líka feikileg.
Fólk þusti að úr öllum áttum að
sjá býsn þau og undur, sem töfra-
mennirnir höfðu þarna til sýnjs al-
menningi.
Það var líka sannast að segja,
iið það borgaði sig að sjá þessa
sýning. Ameríkumenn eru allra
manna frægastir sem vélasmiðir
og uppfundningamenn, enda bar
sýningin þess ljós og fullkomin
merki.
En það var þó ekki það, sem
niér þótti merkilegast við þessa
sýning. Mér var kunnugt um
snilli Aineríkumanna og sömuleið-
is um ýmislegt af þeirra merkustu
uppfundningum.
Það, sem mér þótti ínerkilegast
var það, að einn af helztu sýnend-
unum var íslendingur. Það ertt
svo fáir af oss, sent lagt hafa
út í það, að etja kappi við þann
hluta Amerikumanna, sem örðug-
astur er viðfangs, og þaðan af
færri, sem borið hafa sigur úr být-
um i þeirri viðureign.
En hér er þó einn, sem ekki hef-
ir orðið undir. Maður þessi er
Hjörtur Þórðarson, bróðir Grims
bónda Þórðarsonar að Gardar, N.
D., Þórðar læknis í Minneota og
þeirra systkina. Hann er maður
tæplega miðaldra, prýðisvel skýr,
yfirlætislaus og íslenzkur í anda.
Hann hefir víst búið hér í Chi-
cago í allmörg ár. Mest af þeim
tíma hefir hann fengist eitthvað
við rafmagn, fyrst framan af hjá
öðrum, en svo upp á eigin býti.
Nú hefir hann verkstæði, þar sem
fleiri tugir manna vinna. Eru þar
búnar til ýmiskonar rafmagnsvél-
ar, sniáar og stórar. — íslending-
ar, sem fara í gegn um Chicago á
ferðalögum, eins og þeir gera oft
og einatt, ættu að koma við að 153
S. Jefferson st., og sjá vélaverk-
stæði rafmagnsfræðingsins ís-
lenzka.
Á sýning þessari gerði Hjörtur
ýmiskonar tilraunir með rafmagn-
inu, sýndi hið þrefalda eðli þess:
hita, ljós og afl, á ýmsan hátt.
Þótti mönnurn það hin mesta
skemtun. Sérstaklega mun mönn-
um hafa þótt til koma að sjá hið
margbreytta eðli aflsins. Flestir
, hafa auðvitað einhverja hugmynd
! um aðsóknarafl, frásóknar og mið-
I flóttaafl rafmagnsins, en lestur um
þá hluti er léttur á metunum á
borð við það að sjá þessháttar
með eigin augum.
Ein af tilraunum Hjartar var
sú, að veita 300,000 volta raf-
magnsstraum á málmþynnuborð
allstórt, sem reist var á rönd og
haldið uppi af viðarsúlum tveim.
Frá borðinu var enginn leiðari svo
rafmagnið komst ekki þaðan í
burt. Við það myndaðist afar-
sterkur og ægilegur geisli, sem
spriklaði um borðið með geisi-
hraða og feikilegum brestuin og
hraki. Að sjá þann geisla, gefur
manni betri hugmynd en lestur
margra bóka um hvílíkt voðaafl
rafmagnið er.
Eins og margir vita.þá er Hjört-
ur uppfundningamaöur að þeim
aflmesta magnleiðara sem til er í
heimi. Var uppfundning sú til
sýnis á St. Louis sýningunni í
fvrra sumar og vakti niikla athygli
meðal helztu rafmagnsfræðinga
heimsins. Hygg eg hann hafi
notað magnleiðara þann við fram-
leiðslu geislans á sýningunni hér.
En um það gáði eg ekki að spyrja
hann. Að minsta kosti sagði liann
okkur, að hann gæti magnað geisl-
ann upp i t,000,000 volta; af því
dreg eg það, að hann hafi þá
notað hinn aflmikla leiðara.
Af öllum þeim, sem höfðu með
þessa sýningu að gera, sýndi eng-
inn eins margvíslegar tilraunir
með rafmagninu eins og Hjörtur
Hygg eg hann hafi verið einn af
I þeim allra snjöllustu í sinni ment
af þeim sem þar voru.
Ösin af fólkinu var líka hvergi
eins mikil eins og í krng um
liann og ,hans pláss. Mér fanst
það mikið ánægjuefni, hve mynd-
arlegan þátt hann tók í þessari
einkennilegu og merkilegu sýn-
ingu, og af þeirri ástæðu skrifa eg
þessar línur um það efni. Það er
vsssulega gleðiefni fyrir oss ís-
lendinga þegar einhverjir af vor-
um fámenna þjóðflokki koniast dá-
litið lengra áleiðis á braut þekk-
ingarinnar en alment gerist. Þeim
mönnum þarf að fjölga meir og
meir. Um það eru víst allir sam-
dóma.
Chicago, 3. Febr. 1906.
Jóhann Bjarnason.
I Préttabréf.
Ur bænum.
Mrs. Guðrún Sigurðardóttir,
frá Hólmum í Vopnafirði, nú tal-
in í Winnipeg á bréf geymt á
skrifstofu Lögbergs.
Tilboðum um hirðingu á Fyrstu
hit. kirkjunni verður veitt móttaka
til 15. þ. m.. Kaup við það starf
liefir að undanförnu verið $20 um
sumarmánuðina ag $25 um vetr-
armánuðina. Tilboðin verða að
vera í lokuðum umslögum og
sendast til skrifara safnaðarins,
S. W.Melsted, 673 Bannatyne ave.
JCristnes, Sask. 15. Jan. 1906.
Heiðraöa Lögberg.
Eg finn hvöt hjá mér til að
senda þér fáeinar frétta línur, því
oft hefi eg haft minna að skrifa
um en nú. Það er þá fyrst að
byrja á að geta um tíðarfarið.
Það sem af vetrinum er, hefir ver-
ið öndvegis tíð svo góð, að menn,
sem búnir eru að vera liér úti um
12 ár, hafa ekki lifað eins góða
vetrartíð; heilbrigði hér er góð.
Séra Einar Vigfússon fcá Winni-
peg heimsótti okkur, 3 vikum fyr-
ir jól, og dvaldi hér út þar til á
milli jóla og nýárs, og messaði
fjórum sinnum, skírði 8 börn og
gifti tvenn hjón. Hann fór fram
á, aö menn mynduðu söfnuð, og
var því vel svarað, og er það nú
komið svo langt, að söfnuður er
þegar myndaður og í honum eru
yfir 39 manns, það er að segja
heimilisfeður. Safnaðar fundur
var haldinn fyrsta sunnudag í
Janúar i nýja skólahúsinu, og voru
á þeim fundi kosnir fulltrúar fyrir
þennan nýja söfnuð, og lög safn-
aðarins rædd og samþykt með litl-
um breytingum. — Tvö mál, sem
áttu að ræðast á þessum fundi,
urðu að gevmast til næsta fundar,
annað var að fá prest fyrir þenna
nýja söfnuð og hitt var að koma
á sunnudagsskóla; var því ákveð-
ið að halda skyldi saínaðarfund
aftur innan skamms til að ræða
þessi mál. Söfnuðinum var gefið
nafn, og heitir hann; Kristnes-
söfnuður. Við vonum fastlega að
menn í vesturbýgöinni finni hvöt
hjá sér til að mynda þar annan
söfnuð; þessi bygð er orðin svo
stór, að það yrði að skifta henni
niðtir í þrjá til fjóra sÖfnuði, en
samt gæti einn prestur þjónað
þeim öllum. Messur vrðu að vera
í skólahúsunum, sem eru að koma
upp hingað og þangað um bvgð-
ina, þangað til menn findi sig færa
urn að koma upp kirkjum, sem
menn munu gera svo fljótt sem
efni leyfa.
Á gamlárskveld var hér haldin
fjölmenn skemtisamkoma í nýja
skólahúsinu fAkra). Og menn
skemtu sér viö söng og ræðuhöid.
Fimm ræðumenn stikuðu þar upp
á ræðupallinn, alveg ófeimnir að
láta heyra til sín, enda sögöit ]■
margt gott, svo þeir höfðu ekL
að fyrirverða sig fyrir. Skem .\ >
var góð, alt fór vel fram, dans .
eftir þar til kl. 2, þá hélt liver
heim til sín, glaður vfir að hafa
kvatt garnla árið í góðmn, bróöur-
legum félagsskap.
Það sem eg hefi skrifaö hér að
ofan, lýsir því, að við liggjmn
ekki í dvala yfir veturinn eins tg
hýðbirnir, heldur erunt vel vak-
andi, og störfum að andlegti og
líkamlegu viðhaldi; þess þarf
hvortveggja við ef vel á að fara;
í.aminn gerir sínar kröfur vægð-
tist, og sálin eins, þó hún fari
.ra í það.
Jónas Samsonson.
Þorrablótið á fram að fara eins
og áður hefir verið auglýst 15. þ.
m.; eftir því sent oss er framast
vitanlegt, hefir ekkert verið til
þess sparað, að gera þetta samsæti
svo úr garði, að það geti orðið
sem skemtilegast fyrir gestina. —
Ei.is og mönnum er kunnugt, þá
er Þorrablótið íslenzkasta sant-
lcoman, sem Vestur-íslendingar
eiga kost á, og vonandi að þeir
muni eftir því og fjölmenni, is-
lenzku þjóðerni til viðhalds og
sóma, en sjálfum sér til ánægju
og unaðsbóta.
Bæjarstjórnarnefndin, sem um
elds, ljósa og vatnsmál bæj. fjallar,
hefir nýlega komist að samning-
um við Jackes & Co. um að ann-
ast gasframleiðslu hér í bænuin
fyrir hundrað og fjórtán þúsund
doll. árlega. Annað félag, Woods
Co., frá Philadelphia, lagði einnig
fram tilboð sitt í þessu máli, en
þótt það heimtaði nokkru lægra
gjald, níutíu og tvær þúsundir
doll., þá var fyrra tilboðið heldur
kosið, þar eð útbúnaður þess fél.
er álitinn miklu betri og fullkomn-
ari.
Barnaverndunarfélagið tók ný-
lega tvö stjúpbörn Galla nokkurs,
Pamko Spurzaks hér í bænum. —
Hafði hann leikið börnin herfilega
illa á vmsan liátt, t. d. látið dreng-
inn einu sinni draga út nagla með
tönnunum, sem hanu að gamni
sínu hafði rekið niður í bekk innan
húss; öðru sinni þegar stjúpföð-
umum sinnaðist við drenginn, tók
hann litla smælingjann og hélt
honum yfir stingflugnabúri þang-
að til andlit hans var alt afmyndað
af bitinu. Mörg dæmi í lika átt
komu félaginu til eyrna frá ná-
grönnum þessara hjóna, skarst
i það því í leikinn og tók barnið til
sín, og tjáist muni gera alt til að
foreldrunum verði hegnt fyrir að-
farimar við börnin.
Fyrir skemstu var kona ein ís-
lcnzk á leið heim til sín frá kunn-
ingjafólki sínu, síðla kvelds, og
i.r stödd á Sargent ave. skamt
r vestan Sherbrooke st., þegar
nnur maður réðist að henni,
ójáanlega töluvert við skál, og
hripsaði í handtösku er hún hafði
í hendi og sviftu þau henni sund-
ur á milli sin.þannig að konan hélt
eftir á haldinu en maðurinn tösk-
unni. Konan, sem er skörungur
mikill, lét sér ekki bylt við verða,
snerist að gripdeildarmanninum
og rak honum svo eftimiinnilega
utan undir, að hann féll niður á
strætið, en hún náði töskunni, og
skildi þar með þeim. Sagan er ná-
kvæmlega sönn, því vitni voru á-
lengdar, en eftir ósk konunnar, er
nafn hennar eigi lilgreint.