Lögberg - 08.02.1906, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. FEBRUAR 1906
5
Kosningarnar á Englandi.
Eins og stuttlega var minst á
í siðasta blaöi eru kosn'.ingar á
Englandi nú um garögengnar.
Liberali flokkurinn hefir sjaldan
og jafnvel aldrei unnið stórfeldari
sigur í kosningabaráttu á Eng-
landi en einmitt nú,þar sem flokk-
urinn skipar 376 sæti í neöri mál-
stofunni, og hefir liöug áttatíu at-
kvæði fram yfir hina flokkana alla
samtalda, ef svo til bæri aö Jteir
snerust allir gegn honum i ein-
hverju máli, sem þó er naumast
líklegt að muni fyrir koma. Hinn
nýi forsætisráðgjafi Campbell-
Bannermann mun nær því ætíð
geta átt vissa stoð og fylgi þar
sem verkamannaflokkurinn er, þar
eð hann hefir veitt aðalforkólfi
þess flokks, John Burns, sæti í
ráðaneyti sínu, en það skipa frum-
herjar liberala eins og kunnugt
er. Enginn vafi getur á því leik-
iö, að andstæðingaflokkurinn mun
fara hægt í sakirnar, og hafa sig
lítið uppi, þar sem við svo mikinn
liðsmun er að eiga. Afleiðingin
af þvi hlýtur að verða sú, aö um-
ræðurnar verða eigi sóttar með
jafnmiklum ákafa og flokksfylgi
og áður fyrri, því að andstæð-
ingaflokkurinn mun vera svo
hygginn, að halda eigi þeim inál-
um sínum fram til streytu, sem
hann er frá upphafi viss um að
hinn flokkurinn getur felt, þegar
til úrslita kemur. Þannig hefir
það ætíð veriö þegar stjórnarflokk
urinn hefir liaft meirihluta,og cng-
ar ástæður eru því til að halda að
hér verði brugðið hönd á venju.
Þegar Salisbury t. d. hafði mesta
flokksfylgið, þá mætti hinn mikli
stjórnmálagarpur Gladstone ekki
á þinginu um liríð, því að hann sá
að hann gat engan bilbug á unnið,
þar sem við svo ranunan rbip var
að draga/ Þó er eigi hægt að
halda því fram, að þessi atkvæða-
mikli sigur hafi , komið mönnum
að óvörum, jafnvel þó engum
hefði dottð i hug, að hann yrði svo
viðtækuri sem hann reyndist. —•
Margar hafa orsakirnar verið, sem
til þess stefndu að breyting yrði á
flokksvaldinu á Englandi. Fyrst
og fremst sú, að frjálslyndisstefn-
án hefir á siðari árum, þar eins og
hvervetna annars staðar í heimin-
um, stöðugt verið að ryðja sér til
rúms og fá fleiri og fleiri áhang-
endur og styrktarmenn, og þó
aldrei meir að því kveðið en ein-
mitt á næstliðnu ári.
Sú frjálslynda stefna, sem hér
er um að ræða á ekkert skilt við
byltingargirni þá, er brotist hefir
út á Rússlandi fyrir skemstu; slík
tegund framsóknar er ósamboðin
og útilokuð í hverju vel siðuðu
þjóðfélagi, sem öðlast hefir réttan
skilning á því, hvað sannarlegt
stjórnfrelsi og þjóöræði cr. Hin
rétta framsóknarstefna hvers þjóð-
félags sem er vel ment beinir braut
meðlimanna með fyrirhyggju og
framsýni alt af í áttina til sjálf-
ræðis sem samboðið er þroska
þjóðarinnar, en hopar aldrei til
baka eða stendur i stað, og það
er sú stefna og fullvissan um þarf-
semi hennar, sem mestan þátt hefir
átt í úrslitum brezku kosninganna
í vetur.
Balfours-ráöaneytið, sem veik
úr sæti fyrir hinu nýja ráðaneyti
Campbell-Bannermanns, hefir á
umliðnum tíma eigi haft miklurn
vinsældum að fagna meðal al-
þýðu fólks á Englandi, og er þvi
næsta undarlegt hve lengi það
fékk haldið völdunum, og sýna
hinar nýju kosningar bezt fram á
hve þjóðviljinn var því andstæð-
ur orðinn. Eigi er heldur á hinn
bóginn hægt að benda á mörg af-
reksverk unnin á valdstíma ráða-
neytis þjessa.
Eitt miður frægilegt afreksverk
Balfour-stjórnarinnar var það, að
skömmu eftir að Búastríðinu lykt-
aði, gerði hún hinar óvinsælu ráð-
stafanir til þess að láta flytja burð-
arsveina frá Austurlöndum tilSuð-
ur-Afríku, fólkinu sem þar var
fyrir til tjóns og siðspillingar,
enda lét Bannermann í ljósi í
fyrstu þingmálaræðu sinni í vet-
ur, að slíkur innflutningur skyldi
verða stöðvaður, strax er nýja
stjórnin fengi við því snúist. Bal-
four-stjórnin neyddi líka upp á
landið lög, sem skylduðu trúar-
flokkana í því til að gjalda
skatta til skóla þeirra, er kendu
andstæðar trúarskoðanir við þær,
er skattgreiðendur höfðu. Það
var enn fremur af toga þeirrar
stjórnar spunnið, að á seinni árum
mengaðist tollmála pólitík Eng-
lands með hinni þröngsýnu toll-
verndunarstefnu, sem er þó ensku
þjóðinni í heild sinni svo einstak-
lega óeiginleg, en verzlunarfrelsið
aftur á móti hefir ætíð verið og er
þann dag í dag svo samvaxið við-
skiftalífi landslýðsins, að slíkt var
með öllu óviðurkvæmilegt og ó-
viðeigandi að gera að flokksmáli.
Balfour-ráðaneytið hélt völdun-
um svo lengi sem það sá sér fært.
Og hefði fyrir löngu verið fallið í
valinn ef þingræðið hefði ráðið.
Að það var ekki búið að segja af
sér fyrir löngu virðist að eins stafa
af því, að það beið og vonaði í
sífellu eftir að næstu kosningar
yrðu sér svo hagstæðar að til fram
búðar yrði. En þegar sú eftir-
langan uppfyltist t eigi, neyddist
það loksins til í vetur að snúa sér
til konungsins og leggja völdin
niður, og láta liberala mynda nýtt
ráðaneyti, og hafði það þá auö-
vitað á þalc við eyrað, að sú ráða-
neytismyndun mundi eigi takast
svo vel að kosningarnar reyndust
liberölum í vil. Átti þannig sjá-
anlega að veiða nýja ráðaneytið í
gildru, ef kosningarnar mishepn-
uðust þeim megin, en úrslitin urðu
gagnstætt þvi sem til var ætlast,
þau hafa fremum trygt Banner-
manns-ráðaneytinu stjórnarsess-
inn framvegis, en losað um það i
sætinu.
Þessar síðustu kosningar á Eng-
landi hafa rutt mörgum framsókn-
armönnum hinnar yngri kynslóð-
ar veg að þingbekkjunum, og
margir hinna gömlu málskrafs-
seggja, sem áður hafa haldið flokk
unum í pólitískri sjálfheldu, hafa
fallið við kosningarnar úr valda-
tigninni. Er það ný bending í
framfaraátt um vaxandi þjóðræði
og frjálslyndi. Því meir sem upp-
lýsing alþýðunnar vex og jafn-
framt pólitískur þroski hennar,því
minni þörf er á þeim pólitísku
reyðarfiskum, sem einir vilja ráða
lögum og lofum í hvivetna, jafnt
fyrir sjálfa sig og aðra.
--------o--------
Heyriiarleysi læknast okl^i
vi8 innspýtingar eða þess konar, því þær ná
ekki upptökin. Þa8 er a8 eins eitt, sem lækir
heyrnar eysi, og þaS er me8al er verkar á aila
lÍKamsbygginguna. ÞaS stafar af æsing í slíra-
himn jnum er olli bcSlgu í eyrnadípunum. Þegar
þær ' dlga kemur suða fyrir eyrun eSa heyrnln
förlast o ef þær lokast fer heyrnin. Sé ekki hægt
a8 iækna pao sem orsakar bólguna og pípunum
komiö í . aint lag. þA fæst ekki heyrnin aftur.
Níu af tíu s kum tilfclium orsakast af Catarrh,
sem ekki er annaS en æsing í siímhimnunum.
Vér skulum gefa S100 fyrir hvert einasta heyrn-
arleysis tilfeíli (er stafar af catarrh), sem HALLS’
CATARRH CURE tæknar ekki. SkrifiB eftir bækl-
H" sem vér gefum.
F. J. CHENEY & CO.,Toledo, O
Lokuðum tilboðum stíluðum til undir-
ritaðs og kölluð: „Tender for Veneering
with brick, Immigration Buildings Nos. x
and 2, W.nnipeg, Man.‘\ verður veitt
raóttaka hér á skrifstofunni þangað til á
miðvikudaginn 21 Febrúar 1906, um að
vinna ofannefnt verk.
Sundurliðuð sk/rsla um hvað mikið þarf
og eyðublöð undir tilboðin fást hér á skrif-
stofunni ef um er beðið og á skrifstoíu
Jos. Creenfield, Esq., Supt. Pub. Bldgs.
Þeir sem tilboð ætla að senda, eru hér
með látnir vita, að þau verða ekki tekin til
greina nema þau séu gerð á hin prentuðu
eyðublöð og undirrituð með bjóðandans
rétta nafni
Hverju tilboði verður að fylgja viður-
kend bankaávísun, á löglegan banka, stíluð
til: ,,The Honorable the Minister of Pub-
lic Works", er hljóði upp á tíu prócent
(10 prc.) af tilboðsupphæðinni. Bjóðandi
fyrirgerir tilkalli til þe?s ef hann neitar að
vinna verkið eftir að honum hefir verið
veitt það, eða fullgerir það ekki, sam-
kvæmt samningi. Sé tilboðinu hafnað, þá
verður ávísunin endursend.
Deildin skuldbindur sig ekki til að taka
lægsta boði eða neinu þeirra,
Samvæmt skipun
FRED GÉLINAS,
Secretary.
Department of Public Works,
Ottawa, 31. Janúar 1906,
Fréttablöð sem birta þessa auglýsingu án
heimildar frá stjórninni fá enga borgun
fjrrir slíkt.
Nú sem stendur á eg visa kaup-
endur að hópum af nautgripum.
Vilji einhver selja nautgripi, væri
æskilegt að han léti mig vita.
702 Simcoe st.
G. J. Goodmanson.
Lokuðum tilboðum stíluðum til undir-
ritaðs og kölluð: „Tender for electric wir-
ing and fixtures Immigration Building,
Winnipeg, Man “, verður veitt móttaka
hér á skrifstofunni þangað til á mánudag-
innhinni2. Febrúar 1906 að þeim degi
meðtöldum, um að setja ofannefnd áhöld í
innflytjenda húsið f Winnipeg. Man.
Sundurliðuð skýrsla um hvað mikið þarf
og eyðublöð undir tilboðin fást hér á skrif-
stofnnni ef um er beðið og á skrifstofu
Jos. Greenfield. Esq,, Supt. Puþ. Bldgs.
Þeirsem tilboð ætla að senda, eru hér
með látnir vita, að þau verða ekki tekin til
greina nema þau séu gerð á hin prentuðu
eyðublöð og undirrituð með bjóðandans
rétta nafni.
Hverju tilboði verður að fylgja viður-
kend bankaávísun, á löglegan banka, stíl-
uð til: ,,The Honorable the Minister of
Public Works", er hljóði upp á tíu pró-
cent (10 prc.) af tilboðsupphæðinni. Bjóð-
andi fyrirgerir tilkalli til þess ef hann neit-
ar að vinna verkið eftir að honum hefir
verið veitt það, eða fullgerir það ekki.sam-
kvæmt samningi. Sé tilboðinu hafnað þá
verður ávísunin endursend.
Deildin skuldbindur sig ekki til að taka
lægstaboði eða neinu þeirra.
Samkæmt skipun
FRED GÉLINAS
Secretary.
Department of Public Works.
Ottawa, 30.. Janúar 1906.
Frétablöð sem birta þessa auglýsingu án
heimildar frá stjórninni fá enga borgun
fyrfr slíkt.
LOKUÐUM TILBOÐUM stíluðum til
undirskrifaðs. og kölluð "Tender for Post
Office, & c , Regina, Sask.", 2erður veitt
móttaka hér á skrifstofunni þangað til á
föstudaginn 23. Febrúar 1906, um að
byggja pósthús í Regina, Saskatchewan.
Skýrslur og uppdrættir fást hér á skrif-
stofunni og hjá W. T. Mollavd, Esq.,Clerk
of Works, Regina, Sask. Eyðublöð' undir
tilboðin fást og þarr
Þeir sem tilboð ætla að senda eru hér-
með látnir vita að þau verða ekki tekin til
greina, nema þau séu gerð á þar til ætluð
eyðublöð og undirrituð með bjóðandans
rétta nafni.
Hverju tilboði verður að fylgja viðurkend
banka ávísun, á löglegan banka, stýluð til
,,The Honorable the Minister of Public
Works", er hljóði upp á tíu prócent (10
prc.) af tilboðsupphæðinni. Bjóðandi fyrir-
gerir tilkalli til þess ef haun neitar að
vinna verKÍð eftir að honum hefir verið
veitt það, eða fullgerir þaðekki, samkvæmt
samningi. Sé tilboðinu hafnað, þá verður
ávísunin endursend,
Deildin skuldbindur sig ekki til að sæta
lægsta tilboði, né neinu þeirra.
Samkvæmt skiþun
FRED GÉLINAS. Secretary.
Dlpartment of Public Works’
Ottawa, 23. Janúarigoó,
Fréttablöð sem birta þessa aaglýsingu án
heimildar frá stjórninni fá enga borgan
fyrir slíkt.
Wesley Rink
á horninu á Ellice & Balmoral.
SkautaferB á hverjum degi eftir
hádegi og á kveldin. ,,Bandi8“
spilar a6 kveldinu.
Ingólfur.
blað landvarnarmanna á Islandi
Kemur út í Reykjavík í hverri
viku árið um kring. Berst fyrir
réttindum og sjálfstæöi þjóðar-
innar. Flytur ritgerðir um öll
landsmál, fréttir innlendar og út-
lendar, kvæði hinna yngri skálda,
ritdóma o. fl.
Ritstjóri: Benedikt Sveinsson
frá Húsavík.
Vestur-Islendingar, þeir er vita
vilja gerla hverju fram vindur
heima á Fróni, ættu að kaupa
Ingólf; J>á fá þeir meðal annars
fréttir í hverjum hálfum mánuði
heim til sín. Sendið einn dollar (
póstávisun ásamt glöggri utaná-
skr., Jiá fáið þið blaðið sent þetta
ár (1906) skilvíslega ekki sjaldn-
ar en tvisvar í mánúði.
Adr.: Benedikt Sveinsson,
Reykjavík, Iceland.
Vesturbæjar-búðin
Geo. R. Mann.
548 Ellice Ave.
nálægt Langside.
íslenzka töluö í búöinni.
Við erum að selja út ýmsar
vöruleifar.
SÉRSTÖK KJÖRKAUP:—
Kvenm. yfirtreyjur, sem viö vilj
um selja sem fyrst. Verð $1.50.
Alar okkar kvenm. yfirhafnir,
vanal. á $6 —$10, nú á $1.50.
SILKITREYJUR —
Hvítar og mislitar silkitreyjur.
Vanal. $3.50 og $6.50. Nú seldar
á $2.95.
KARLM. NÆRFÖT
meö hálfvirði. Vanal. $2 nær-
föt á $1.
Lítill tilkostnaður, lítill ágóði.
Kjörkaup fyrir alla. Komið og
sjáið okkur.
Búið yðurnú und-
ir vorið.
CRUMS PRINTS—
Mörg hundruð tegundir, með
Allar okkar kvenm. yfirhafnir,
alls konar verði. Alt nýtt, ekkert
gamalt. Um gæðin þurfum vér
ekki að tala því allir eru á sama
máli um þau. En heildsöluverðið
á þeim hefir stigið, og búumst við
því ekki við að geta selt framvegis
sömti tegundir eins og nú á að
eins
Það er því bezt að kaupa nú á
meðan úr nógu er að velja, og þér
hafið einmitt nú nægan tíma áður
en vorannir byrja.
CANAWAN PRINTS,
sem ekki litast upp, á 8c., ioc.
og I2j4 c.,haldgóð og mjög falleg.
DUCKS
Allir nýtízkulitir, ljós og
dökkblá, dropótt og röndótt, hent-
ug í drengja treyjur og sumarföt.
Verð: 15 cent. yardið.
MUSLINS í KJÓLA.—
Mikið af ágætu Muslin í kjóla,
alt nýjustu tegundir. Verð 8 —
50 cent. yardið.
GINGHAMS
í skólaföt; í þau er ekkert
betra efni til. Alt nýjar tegundir.
Öllum geðjast þessi Ginghams
mæta vel. Verð ioc., I2j4c., 150.,
i8c., 20C.
SERSTÖK SALA
Á KVENTREYJUM.
Á laugardaginn kemur ætlum
við að selja eitt hundrað og fimm
hvítar og mislitar kventreyjur úr
lawn, sirzi og sateen. Við seljum
þær með verði, sem öllum hlýtur
að litast vel á:
$4.00 treyjur á $1.75.
2.50 treyjur á $1.25.
1.75 treyjur á 90 cent.
$1.50 treyjur á 75C.
1.00 treyjur á 50C.
75C. treyjur á 40C.
Þér munið geta fundið þar treyj-
ur, sem eru mátulegar. Salan
byrjar kl. 8 , og, eins og vant er,
selst það bezta fyrst, svo eftir því
sem þér komið fyr, fáið þér betri
kaup.
AFGANGAR.—
Eftir því sem verzlunin er
meiri, eftir því verða fleiri afgang-
ar. Við viljum losna við þá. Af
kjólaefnum eru nokkrir afgangar
til enn. Allar tegundir, frá 1 —
6 yards. Allir afgangar með hálfu
verði.
J. F. FUMEBTONA CO.
Glenboro, Man,
Allar vetrarvörum meö mikl-
um afslætti.
Et þú nokkurntíma matreiðir
þarttu að halda á Blue Ribbon
matreiðslubókinni. 1 henni er þér
mikill styrkur.
Bók þessi er ekki eingöngu tómt samansafn af notkunarfyrir
sögnum né löngum og óhandhægum lýsingnm, sem fáar konur hafa
tíma til að lesa.
Þetta er vel prentuö og mátulega stór bók, þar sem aöferðin
aöeins er tekin fram og hvaö helst sé aö varast, hvernig hægast sé
aö ná næringarefnunum úr matartegundunum, hvernig eigi aö
setja þær saman og framreiöa smekklega. Öllu er svo haganlega
raöaö niöur aö hægt er fljótlega aö finna hverja þá fyrirsögn sem
maöur vill. Kaflinn um matartilbúning handa sjúklingum og glóð-
arkers-matreiöslu er einn í sínu lagi nægjanlegur til þess aö gera
bókina ómissandi á hverju heimili, og allir hinir aörir kaflar bók-
arinnar eru álíka nauösynlegir.
Búin til sérstakleaa til notkunar á heimilum hér vestra.
Flestar notkunarfyrirsagnimar eru einfaldarog
í sparnaðaráttina, jafnvel þó innanum séu fyrirsagnir
er hafa allmikinn kosnaS f för mkð sér og ætlaðar era
til notkuuar við einstök tækifæri. Öll þau efni er með
þarf er auðvelt að fá keypt hvar sem vera skal. Alt það
bezta af hinum eldri aðferðum og fyrirsögnum et valið
úr og bætt við mörgum nýjum,* fullkomlega eins
góðum.
Séð hefir verið um að gera sem hægast fyrir með
tilbúninginn. Engin eru tiltekin eftir máli, en ekki vigt,
vegna þess að margar húsmæður hafa ekki ætíðvigt við
hendina. I'ímalengdin sem þarf til að sjóða eða baka
hverja tegund er ákveðin. Mikið af ýmsum þarflegum
bendingum og reglum eru á fyrstu tíu blaðsíðunum.
Fyrirsögnum um tilbúning á kökum, búðingum o.
s. frv., er þannig fyrirkomið í bókinni að ekki þarf að
fletta við blaði heldur getur maður látið bókinaliggja opna ag höggunarlausa hjá sér
á borðinu meðan hver tegund er búin til.
Bókin er vel prentuð á þykkan pappír og vel bundin inn í sterkt band, sem auð-
velt er að halda hreinu.
Bókiu fæst fyrir 40 Biue Ribbon miða, cða 20
miða og 20 cent í frínierkjum og burðarg'jald 5 cent,
eöa fyrir 40 cent í peningum og 5 cent aö auki í buröargjald.
BLUE RIBBON
85 King St., Winnipeg.
The Wiimipeg
GRANITE & MARBLE CO.
Limited.
HÖFUÐSTOLL <$60,000.00.
Vér höfum hinar mestu birgöir, sem til era
í Vestur-Canada, af[öllum tegundum af minn-
isvöröum. Skrifiö eftir veröskrá eöa komiö viö
hjá okkur aö
248 Princess st., Winnipeg.
Tlie Kat Portage Lumber l’o.l
XjIIVLITÆIID. ][
AÐALSTAÐURINN til aö kaupa trjáviö, boröviö, múrlang- <1
^ bönd, glugga, huröir, dyrumbúninga, ([
rent og útsagaö byggingaskraut, kassa ] 1
og láupa til flutninga. (1
Bezta „Maple Flooring“ ætíð til. ] [
Pöntunum á rjávið úr pine, spruce og tamarac nákvæmur gaumur gefinn. 11
^ Skrifstofor og mylnnr i fllorwood. ;l
Harðvöru og Húsgagnabúð.
Vér erum nýbúnir aö fá þrjú
vagnhlöss af húsbónaöi, járn-
rúmstæðum, fjaörasængum og
mattressum og stoppuöum hús-
búnaöi, sem viö erum aö selja
meö óvanalega lágu veröi.
Ágæt járn-rúmstæöi, hvít-
gleruö meö fjöörum og matt-
ressum................$6,50
Stólar á 40C. og þar yfir
Komið og sjáiö vörur okkar
áöur en þér kaupiö annars
staöar, Viö erum vissir um aö
geta fullnægt yöur meö okkar margbreyttu og ágætu vörum. Þér
munuö sannfærast um hvaö þær eru ódýrar.
LEON’S
605 til 609 Main St., Winnipeg
Aðrar dyr norður frá Imperial Hotel,
---Telephone 1082--
ásamt síöustu sögunni, sem var
blaöinu, sérprentaöri ef borgaö
er fjrrirfram fyrir.. .. $2.00