Lögberg - 16.08.1906, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. AGÚST 1906
Landst jóra-fvrirkoniulasiö,
Öll íslenzku blööin hafa fjallaö
um þetta mál meira og minna í alt
vor og sumar. Til j-jess nú aö gefa
löndum vorum hér vestra kjarnann
úr þeim umræðum, hefir oss virst
viðurkvæmijegt, að birta ritgeröir
beggja aðal - flokksforingjanna ís->
lenzku, um þetta mál, þeirra
Björns Jónssonar ritstjóra „Isa-
foldar“, og Jóns Ólafssonar ritstj.
„Reykjavikur“. Það hefir dregist
að þessu aö koma nefndum rit-
gerðum að í hlaðinu vegna rúm->
leysis, og er því fyrri greinin orð-
in fyrnt nokkuð, rituð eins og hún
ber með sér, æði löngu áður en
þingmennirnir í&lenzku lögðu á
stað til Khafnar. Gildi henn-
ar eða skýrleiki liaggast engan veg-
inn fyrir það. Hin ritgerðim er ný->
komin út nú.
Landstjóra - fyrirkomulagið
eftir ísafold.
/.
Það er nú að komast á dagskrá.
Verði nokkuð úr för einhverra
minni hlutamanna til Danmerkur í
sumar, í sambandi við konungs
heimboðið svo nefnt, eftir tillögu
Þjóðræðisflokksstjórnarinnar, —
skipa gerir hún hvorki né getur—,
verður því vafalaust hreyft þar.
Og fái það sæmilegar undirtekt-
ir, tekur þjóðin það óefað upp aft-
ur.
Hún hefir aldrei frá þvi horfið
öðru vísi en að sinni.
Og trúir og einlægir talsmertn
hennar á þingi og utan þings,
fölskvalausir stjórnfrelsismenn,
hafa aldrei hafnað því öðru vísi
en í bili, til þess að komast eitt-»
hvað dáJítið áleiðis, út úr verstu
ógöngunum.
Síðasta skifti, sem þeir höfðu
meiri hluta á Þingi, 1901, og sam-
þyktu öðruvísi lagaða stjórnarbót,
vegna fullrár vissu, er þeir hugðu
vera, um að ekki fengist meira þá,
kváðu þeir svo að orði (í ávarpi
efri deildar til konungs):, að
stjórnarskipun íslands sé þá fyrst
komin í það horf, er fuLlkomlega
samsvari þörfum vorum, þegar
æðsta stjónr landsins í hinum sér-
staklegu málefnum þess er búsett
hér á landi."
Þar með áttu höfundar ávarpsins
ekki við kák-búsetu þá,sem vér vor-
um síöan látnir fá, ráðgjafabúsetu í
orði, heldur fullkomna stjórnarbú-
setu: landstjóra með ráðgjöfum.
En samið var ávarpið í samráði við
Framsóknarflokksmenn alla i báð-
um deildum.
Vegna fullrar vissu, — segjum
vér.
Alt til þess tíma hafði sem sé
helztu mönnum beggja sjómmála-
flokka í Danmörku borið alveg
saman um það, að færslu stjórnar-<
innar inn í landið mundu engir
danskir valdhafar aðhyJlast nokk-
urn tíma. Það þvldi ekki „eining
ríkisins".
Það stóð lika heima: vinstri-
mannastjórnin, sem við völdum
tók sumarið 1901, var sama sinnis
og sömu skoðunar og fyrirrennar-
ar hennar, rammir hægrimenn, þ.
e. meiri hluti hinnar nýju stjórnn
ar. Hún aftók það, er slegið var
upp á því við hana um haustið, eft-
ir þing, að hún ætti nú að bjóða
íslendingum landstjórafyrirkomu-<
Iagið, til þess að gera þá ánægða.
Henni var gerð grein fyrir því, að
það eitt kölluðu þeir innlenda
stjórn, eða eitthvað því um líkt.
En meiri hluti ráðaneytisins
nýja varð á bandi með Alberti, ís-
lands ráðgjafanum svonefndum,
um að .leiða Islendinga af með því
að skrifa sérráðgjafann nýja í
Reykjavík, en láta hann eftir sem
áður í raun réttri eiga heima í
Khöfn, hafa hann þar í rikisráði og
í samvinnu við hina ráðgjafana,
gefa þeim kost á að hafa hönd í
bagga með honum um alt, sem þeir
hirtu minstu vitund um að skifta
sér af. Með því kænskuráði græddu
þeir og það, að demba má.tti lands-<
stjórnalrkostnaðinum á íslendinga.
Samvizkusemin ekki meiri í því at-
riði en það, að ekki var hirt hót
um, þótt þar væru stöðulögin brot-
in. Því þau segja (6. gr.), „að
gjöldin til hinnar æðstu stjórnar
hinna íslenzku mála i Kaupmanna-
höfn — skuli greidd úr rikissjóði“.
Með áminstum málamyndarflutn-
ingi ráðgjafabústaðarins í Revkja-
vík smeygðu Danir sér undan þeiin
gjöldum.
Svona var á oss skákað þá —
ekki í fyrsta skifti, og fráleitt síð-
asta heldur.
Nú kann einhver að spyrja:
hvers vegna gengu einlægir sjórn-
frelsismenn á þingi hér að þessum
kostum? Sáu þeir ekki, hvað hér
bjó undir?
Svarið er það fyrst, að þeir
fengu þar engu um ráðið. Þeir
voru orðnir i minni hluta á næsta
þingi. Þjóðin Jét þlekkjast af fals-
heitinu „heimastjórn“ og „heima-
stjórnarflokkur“, meðal annars, og
kaus svo óviturlega, að stjórnarlið-
ið gamla, Estrupsþjónarnir, sem
verið höföu um langan aldur, kom-
ust í meiri hluta með því að gera
bandalag við auðvaldið útlenda,
sem ræður gjörðum kaupfélaga-
stjóranna í landinu, þeirra manna,
er höfðu fyrrum verið eða Játist
vera manna heimtufrekastir um
sjálfstjórn til handa þjóð vorri, en
sneru nú við blaðinu þann veg,
sem hér segir, að hafa haldið það
bandalag síðan, eins og öllum er
kunnugt.
— En þeir gátu þó, þjóðfrelsis-
menn, greitt afkvæði í móti stjórn-
bótarfrumvarpi Alberti á þingun-
um 1902 og 1903, og sýnt þar með
trygð og fastheldni við réttan mál-
stað, þótt engu fengi umþokað,
engu ráðið um úrslit máLsins. Því
gerðu þeir ekki það?
Þetta er önnur spurningin.
Þar til liggur sama svarið og
hjá Jón Sigurðssyni, er honum og
þinginu var láð það, er stjórnbót-
arbaráttunni eldri Jauk þann veg,
að konungi, konungsvaldinu, var
selt sjálfdæmi (á þinginu 1873)
um stjórnarskrá handa oss.
Stjórnarbótarbaráttan var búin að
standa fjórðung aldar, mælti hann;
og þjóðin var orðin þreytt. Það var
engin leið orðin að halda henni í
herbúðum lengur. Hún vildi fá
heimfararleyfi, fá hvíld. Hún hlýddi
orðið miklu betur rödd þeirra
manna, er gyltu fyrir henni friðinn
og hvíldina, heldur en því sem eg
sagði og mínir líkar. Eða þá að
hún gerði sig líklega til að hlaupa
í gönur, eins og sýndi sig á Þing-
vallafundinum 1873. Hún er enn
svo lítilsilgd.
Þessum orðum talaði hann hér
um bil.
Og þegar stjórnarskráin kom,
1874, svona undir komin, svo sem
náðargjöf konungs, — svo gölluð
sem hún var í hans augum og ann-
ara, er haldið höfðu öðru fram
langa tíð, þá kvað hann svo að
orði:
— Það má vel notast við hana,
ef henni er samvizkusamlega beitt
og með fullum drengskjip, —
þangað til þjóðin verður ríflegri
sjálfstjórn vaxin og fer fram á
hana með fullri alvöru og öruggu
fylgi.
— Ef henni verður samvizku-
samlega beitt.
En hvernig var henni svo beitt,
stjórnarskránni frá 1874?
Bvrjað á þvi, að hafa af oss,
pretta oss um sérráðgjafa fyrir ís-
landsmál.
Þeir tímdu því ekki, Danir, þeg-
ar tiJ kom. Þeir létu sig muna um
þær tólf til fjórtán þús. kr., er það
hefði kostað. Þeir slengdu hinu
nýja embætti saman við eitt danska
ráðgjafaembættið, létu dómsmála-
ráðgjafann danska hafa íslenzk mál
í hjáverkum, alveg eins og verið
hafði áður!
Það er fullyrt, að fyrsti ráðgjaf-
inn, sem fór með íslandsmál eftir
1874, Klein, hafi viljað halda á-
fram með þau sem sérráðgjafi fyr-
ir ísland, er ráðuneytisumskiftin
urði í Danmörku ári síðar. En það
fékst ekki. Ástandið hitt hélzt nær
heilan mannsaldur.
Líkt þessu, sem hér hefir hermt
verið eftir Jóni Sigurðssyni og sá
heyrði hann sjálfan segja, er þetta
ritar, hugsuðu og töluðu forsprakk-
ar þ jóðfrelsisflokksins 1902, er hér
birtist konungslxiðskapur frá 10.
Jan. það ár.
— Við svoua stjórnarbót má veJ
notast, ef henni er samvizkusam-
lega beitt og undirhyggjulaust.
Með henni er hægra að sigla sig
hærra upp en ám, hennar.
Og hver von er um, að þjóðin
liafi þrek og staðfestu til aö halda
uppi bardaganum áfram, stjórnar-
baráttunni, ef þessu er haínað?
Fáir munu treysta sér til að fulJ-
yrða nú jaínvel, hvað þá heldur þá,
að þjóðin hefði fylgt þjóðfrelsis-
mönnum að máli, ef þeir hefðu tek-
ið þann kostinn veturinn 1902, að
hafna tilboði Alberti og blása til
nýrrar atlögu, — til atlögu fyrir
frekara sjálfsforræði en þar var í
boði. —
Ekki leið á löngu áður en bóla
tók enn á undirhyggjunni af Dana
hálfu, alveg eins og er eldri stjórn-
arskráin hljóp af stokkunum.
Setu sérráögjafans í ríkisráðinu
hafði ekki verið minst á í konungs-
boðskapnum veturinn 1902. AlLir
bjuggust við að það mál ætti enn
sem fyri að liggja milli hluta, bíða
betri tíma. Og það ætluðu þjóð-
frelsismenn að sætta sig viö.
En svo kemur stjórnarskráfrum-
varpið sjálft um sumarið eftir, og
þar með ber og skýlaus fyrirmæli
um, að í ríkisráðinu skuli sérmála-
ráðgjafinn íslenzki bera upp fyrir
konungi lög og mikilvægar stjórn-
arráðstafanir.
Hvað hugsaði framsóknarflokk-
urinn þá, að kippa ekki óðara að
sér hendinni, munu menn spyrja?
Hann var kominn þá í minni
hluta eins og fyr segir, og fekk
engu um það ráðið, hvert stjórnar-
skráin væri samþykt eða ekki.
Bandamennirnir voru ráðnir í að
samþykkja hana, með þessu undir-
ferlis-innskoti, stjórnarliðar og
Zöllners-liðar, allir eins og einn
maður; cg gerðu það líka..
— En framsóknarflokkurinn
hefði þó getað greitt atkvæði á
móti, til þess að þvo hendur sínar.
— Jú, það hefði hann getað, og
það hefði hann. vitaskuJd átt að
gera. Því skal engin bót mælt nú,
að hann gerði það ekki. Það er
hægra að sjá það nú en þá. Þá var
og annars vegar vonleysið um, að
þjóðin fengist til að fylgja honum
út i nýja stjórnarskrábaráttu. Því
sú hótun fylgdi frumvarpinu, að ef
það væri ekki samþykt óbreytt, þá
fengjum vér enga stjórnarliót.
Það er hægur vandi að kasta nú
þungum steini á framsóknarmenn á
þingi og utan þings fyrir að þeir
tóku það ráð, að snúast ekki í móti
frumvarpinu og taka á sig þá á-
byrgð, að ónýta.meira en 20 ára
stjórnarbótarbaráttu, hefðu þeir
verið þess megnugir, — sem ekki
var.
Eða hvaða horfur voru á því, að
kjósendur landsins, sem höfðu látið
blekkjast svo hraparlega á „heima-
stjórnar“-falsheitinu, mundu kunna
flokknum þakkir fyrir og leggja út
í nýja stjórnbótarbaráttu með með
honum ?
Lá ekki eins nærri að gera sér
von um, að nýr sérmálaráðgjafi,
landinu trúr og hollur, mundi hafa
tök á að láta áminsta meinJoku eigi
verða landinu að tjóni, meðan hún
yrði ekki löguð, en sæta jafnframt
fvrsta færi til að fá hana lagaða?
\’ar ekki vorkunn, þó flokkurinn
varaðist ekki það, að fyrsti sér-
málaráögjafinn mundi verða enn
danskari í stjórnarfarstefnu sinni
en hjáverkaráðgjafarnir aldönsku
höfðu verið?
II.
Tveim mótbárum mun enn sem
fyr verða veifað gegn landstjóra-
fyrirkomulaginu.
önnur er kostnaðurinn; en hin
tryggingarkröfur þær, er Danir
muni gera um sérmálastjórnina ís-
lenzku, afskifti þeirra af þvi.að hún
renni eigi afskeiðis, sem ' allað er.
Kostnaðargrýlan er eigi ægileg,
ef vér erum ekki þeim rangindum
beittir, að láta oss kosta sjálfan
landstjórann. Hann yrði beint full-
fulltrúi Dana,eða Danakonungs sér-
staklega, eini sambandsliðurinn hér
í sérmálunum ; — hin látum vér oss
ekki koma við.
Yrði landstjórin-n einhver maður
af sjálfri konungsættinni t.d., kæmi
Jaunakostnaðurinn alls. eigi tíl
greina. Hann hefði sinn lögákveöna
lífeyri úr ríkissjóði jafnt hvort sem
hann eyddi honum öllum heima í
Danmörku ofur iðjulítill, eða hér á
landi meirihluta árs við nytsemdar-
starf.
Allra undirgefnustn Danadilkar
islenzkir eða hálfís.lenzkir mundu að
vísu líklegast fá aðsvif ef þeir
heyrðu talað um aðra eins býsn og
að konungborið fólk settist að hér i
fiskiverinu í Revkjavík, þótt höfuð-
staður sé kallað, — höfuðstaður
skrælingjalands í þeirra augum.
En aJdanskir stjórnmálamenn
meiriháttar hafa talað um það scm
alls enga íjarstæðu, — slegið því
beinlíms fram í fullri aJvöru.
Með almennilegum gufuskipa-
fer.ðum milli landa og tryggilegu
hraðskevtasámbandi þyrfti dvölin
hér ekki að vera nein útlegð. Enda
myndi enginn fást um það, þótt
konungborinn landstjóri cg hans
fólk létti sér upp og sæti jafnve'
hinu megini við pollinn að jaínaði
um háveturinn, ef því svo sýndist
og það þreifaði ekki á því von bráð-
ar, að hér er þrásinnis ekki stórum
óvistlegra aö lofftslagi til á vetrum
en t. d. í Khöfn. Það er annað, sem
gerir vistina hér miður fýsilega
mörgum þeim, er skárra hafa vau-
ist.
Miklu hirðlífis-hégómatildri þarf
ekki að kviða af hálfu danskra
konungsættingja. Látleysi og ljúf-
mensku munu þeir hafa af sínum
nýlega liðna yfirlætislausa ættar-
jöfur. — Það er kunnugra manna
mál, að mjög hafi það dregið
Norðmenn til að kjósa heldur yfir
sig Karl Danaprinz með konungs-
nafni en að leggja út í þjóðveldis-
stofnunarbaráttu, að þar þóttust
þeir eiga víst að fá yfir sig mann,
sem varla greindi annað frá ótign-
um rikisforseta en embættisheitið.
En gerum ráð fyrir, sem sjálf-
sagt er öllu liklegra fyrst um sinn
að minsta kosti, að landstjórinn yrðj
ótíginn danskur maður. Er þá víst
að hann þyrfti að verða svo ákaf-
lega launadýr, hvorir sem kostuðu
hann, hvort heldur vér eða Danir?
Eftirlaun mundu að minsta kosti
alls ekki koma til greina, yrði hafð-
ur hinn sjálfsagði siður, að halda
eigi slíkum manni í embætti nema
fáein ár í senn. Þeirri tilhögun
fylgja svo miklir kostir og auðsæir,
að annað væri ekki takandi í mál,
þótt ekki hefðum vér fyrir oss
reynslu hinmar lang stjórnhygnustu
þjóðar í heimi, Englendinga. —
Hún er jafnmikilsverð fyrir það,
þótt upprunnin sé samfylgd land-
stjóranna við ráðaneytið í heima-
ríkinu.
Ráðgjaíakostnaðurinn, sem einn
ætti á oss að lenda, mundi verða
heldur minni en meirí en nú kosta
embætti ráðgjafa og landritara.
Þeir yrðu 3 í mesta lagi, ráðgjaf-
arnir, er landstjórinn hefði sér við
hönd, með ábyrgð fyrir alþingi.
Með 5—6 þús. kr. launum mundu
þeir ekki kosta eins mikið og nú fer
til fymefndra embætta tveggja, er
að sjálfsögðu hyrfu úr sögunni, að
meðtöldum hinum ósmáa ferða-
kostnaði ráðgjafans nú milli Reykja
víkur 0g Kaupmannahafnar.
Hvað á fátæk bændaþjóð að gera
með gulli glæsta og dýrindiskrásum
úttroðna þjónustumenn, hvort held-
tir er í æðri embættum eða lægri ?
Sómasamlegt viðurlifi og aðbún-
aður — það á að vera mæhkvarð-
inn. Þá fyrst rífara, er efnin
vaxa svo, að önnur arðmeiri störf
bjóðast hæfustu unönnum þjóðar-
innar, og draga þá frá vandasöm-
ustu alþjóðlegum störfum.
En ef Danir fást ekki til að kosta
landstjórann. Ef þeir segjast hafa
nóga byrði af oss undir, og nefna
þar til ríkissjóðstillagið, strand-
varnirnar og háskólastyrkmn. —
Hverju á þá að svara?
Þvi, sem satt er, að „tillagið“
sem þeir svo kalla, er ekki annað en
mjög lágir vextir af landsins fé,
sem dregið var á sínum tíma í ríkis-
sjóð ólöglega eða þá fyrir rangláta
timans rás; að strandvarnirnar séu
aðallega nauðsynleg hertmaning,
sem ekkert mundi við átt, ef rikið
þyrfti ekki að halda við herskipa-
flota hvort sem er, enda ekki borið
við af Englendingum t. d. að telja
eftír, þótt þeir hafi jafvel stórar
flotadeildir á sinni kostnað á vakki
við strendur á fjarlægum lýðlendum
þeirra; og loks, að háskólastyrkur- .
inn sé ekki annað en mörg hundruð ■
ára gömul dánargjöf, &em kemur !
ríkissjóði ekkert við, en. Dönum sé
þó velkomið að kippa af oss ef þá
fýsir — vér mundum hafa meira
g'ott af þvi en ilt, er öllu væri á ;
botninn hvolft: kynnast betur fleiri <
þjóöa siðum og auðgast þar að
fjölbreytilegri menning.
Þetta var nú um eftirtölurnar.
En svo keir.ur sjálft launa-atriðið.
Þegar því skal svara, verður að
leggja á vogarskálar hlunnindin að
sambandinu við Dani yfirleitt ann-
ars vegar, en hins vegar þá miklu
kosti, sem þ jóðinni mun skiljast æ j
betur og betur að mœla með fullum
aðskilnaði við þá.
III.
Kunnugra er það en frá þurfi að
segja, að það sem fundið var að
Kanadafyrirkomulaginu svo nefndu'
þegar það var hér á dagskrá fyrir
hálfum mannsaldri, „miölunin" svo '
nefnda, var afturköllunarréttur sá á
lögum frá lýlenduþinginu með land
stjóra staðfestingu, sem heimaríkis-
stjórnin brezka hefir á 1 árs fresti. I
Mundu nú Danir vilja halda fast
í þann afturköllunarrétt? 1
Því er ekki vel hægt að svara að
svo stöddu.
Vér vitum það, að danskir stjórn- '
fræðingar hafa svarað oss þessari
spurningu fyrir fám mánuðum, að
þeir þyrftu að hugsa sig um það ,
mál. Sér fyndist í svip enga brýna I
nauðsyn til þess bera, en vildu ekki i
á því byggja fullnaðarsvar.
Sumir stjórnfróðir menn fullyrða
að ekki mundu Bretar heimta slíkan
rétt nú í lög tekin, ef þeir ættu að
sníða lý&lendum síoum stjómarskrá
um þeásar mundir. Þeir fullyrða,
að langt sé siðan alríkisstjórnin hafi
notað þann rétt og mundi henni á
saina standa nú orðið, þótt hann
væri alls ekki í Jögum, — logum um
sérmálastjórn lýðlendanna. Þeirra
lag er, Breta, að lofa Jýðlendunum
að lifa og láta eins og þær væru
þjóðveldi, undir verndarskjóli alrík-
isms. Þess vegna unna þær heima-
rikinu svo sem þær hafa meðal ann-
ars sýnt í Búastríðinu, er þær sendu
sumar Englendingum ótilkvaddar
liðsauka heiman frá sér og á sinn
kostnað.
Það mundi líklega hafa minna
brytt á limafallssýki í danska ríkinu
fyr og síðar.ef Danir hefðu átt slika
stjórnvitnnga sem Bretar, og þjóð-
in danska haft til að bera annan
eins sjálfstjórnarþroska eins ,og
andbýliingarnir hinu megin Vestur-
hafs, er Danir svo kalla. |
Sannleikurinn er sá, að þótt Bret- ‘
ar hafi áminstan afturköllunarrétt á
pappírnum, hafi hann í orði, þá láta'.
þeir sér á borði lynda eftirlit þpð,
er þeirra maður, .landstjórinn yfir
lýðlendunum (Kairbadaj, hefir með
löggjöf og landstjórn þar.
IIví gætu þá ekki Danir gert sér
sama að góðu ? Mundi það vera svo
óskapleg áhætta, með almennilegum
mi.llilanda-samgöngum, þar á meðal
eiinkum nýtilegu hraðskeyta sam-
sambandi ?
Thos. H. Johnson,
Islenzkur lögfræClngur og mála-
færslumaCur.
Skrifstofa:— Room 33 Canada Life
Block, suöaustur hornl Portage
avenue og Main st.
Utanáskrift:—p. O. Box 1364.
Telefön: 423. Wlnnlpeg, Man.
H. M. Hannesson,
íslenzkur lögfræðingur og mála-
færslumaður. Skrifstofa:
ROOM 412 McINTYRE Block
Telcphone 4414
Dr. O. Bjornson,
[ Office: 650 WILLIAM AVE. TEL. 89 ?
Offick-tímar: 1.30 til 3 og 7 til 8 e, h. }
Housh : 810 McDermot Ave. Tel. 4300
Office: 650 William ave. Tkl, 89
HOURS^J tO 4 & 7 to 8 P.M,
Residenck: 620 McDermot ave. Tel.4300
WINNIPEG. MAN.
Dr. G. J. Gislason,
Meöaia- og l.'ppskurOa-læknir,
Wellington Block,
GRAND FORKS, - N, Dak.
Sérstakt athygli veitt augna, eyrna
nef og kverka sjúkdómum.
Dr. M. Halldorson,
PARK RIVER. N. D.
Er aö hltta & hverjum mlðvikudegl
I Grafton, N.D., frfi, kl. 5—6 e.m.
I. M. Cleghora, M D
læknir og yflrsetumaður.
Heflr keypt lyfjabúðina 6. Baldur, og-
heflr þvi sjálfur umsjón 6. öllum með-
ulum, sem hann lwtur fr& sér.
Ellzabeth St.,
BALDDR, - MAN.
P.S.—Islenzkur túlkur við hendina
hvenær sem þörf gerist.
A. S. Bardal
selur líkkistur og annast
um útfarir. Allur útbún-
aður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
Teleplxone 3oG.
Páll M. Clemens,
bygrgingameistari.
Baker Block. 468 Main St.
WINNIPEG Phone 4887
IVI, F’aialson,
selur
Giftingaleyflsbréf
rítlimtíi dtix
— því að —]
Eflíy’s Byggíngapapplr
neldur húsunum heitumj og varnar kulda. Skrífið eftir sýnishorn-
um og verðskrA til
TEES & PERSSE, LTt>.
áQENTS,
WINNIPEG.
Stærsta Skandinavaverzlunin í Canada.
Vér óskum eftir viðskiftum yðar. Heildsala og smásala á innfluttum, lostætunc
raatartegundum. t, d.: norsk KKKogKKK Kspiksíld, ansjósur, sardínur, fiskboll-
ur, prímostur, Gautaborgar-bjúgu, gamalostur, rauð-sagó, kartöflumjöl og margskon-
ar grocerie-vörur
The GUSTAFSON-JONES Cc. Limited,
325 Logan Ave. 325