Lögberg - 13.09.1906, Síða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. SEPTEMBER 1906
Umhylíia Dana fyrir gamal
mennum.
A>ýtt úr tímaritinu „The World
To-Day“.ý
Hið mesta kvíöaefni allra þeirra
manna, sem ant er um sóma sinn
er það, ef þeir þegar á æfina lið-
ur skyldu verða öðrum til þyngsla
—þurfa að fara á sveit. í Nýja
Englandi er það enn siður, að
leigja út þurfamennina, og er það
þá vitaskuld augnamið hæstbjóð-
anda, að þrælka svo mikið þetta
leigufé sitt, að hann ekki einasta
fái leiguna endurborgaða, heldur
og hafi hag af kaupunum. Má þvi
nærri geta, hvemig æfi þurfamenn
þessir muni eiga með slíku fyrir-
komulagi, þegar húsbændurnir eru
misjafnir, enda gefur þetta ekki
neitt eftir þrælahaldinu, eins og
það var á sínu hæsta og versta
stigi, hvað meðferðina á þurfa-
mönnunum og aðbúnað allan
snertir.
í Bandaríkjunum, sem eru tak
mark allra þeirra, sem i öðrum
löndum þykjast eiga við frelsis-
skort að búa, hefir enn ekki verið
á neinn hátt leitast við að bæta úr
jþessu ástandi. Þar hefir verið
gengið fram hjá öllu slíku eins og
hverri annari fjarstæðu og alveg
verið lokað augunum fyrir því,
sem læra hefði mátt af eftirdæmi
annara þjóða, sérstaklega í Norð-
urálfunni. Beztu fyrirmyndina í
þessu efni er að finna í smárikinu
Danmörku, semsé gamalmenna-
hælið í höfuðborg þess ríkis.Kaup
mannahöfn.
I einu af úthverfum Kaupmanna-
hafnar stendur gamalmenna-hælið,
stór og fögur bygging úr steini
Hjónum er leyft að búa þar sam-
an, en ógift fólk, karlar og konur,
hafa sérstök herbergi, hvert út af
fyrir sig. Sérhver maður og kona
í Danmörku á aðgangsrétt að
þessu hæli, með eftirfylgjandi
skilmálum:
Að allar þær tekjur, sem við
komandi með nokkru móti gæti átt
kost á árlega ekki nemi eitt hundr-
að doLlurum.
Að viðkomandi hafi goldið skyld
ur og skatta til opinberra þarfa
um tiltekinn árafjölda, hafi aldrei
verið hneptur í fangelsi né orðið
að þola hegningu fyrir nein meíri
háttar afbrot af neinni tegund, að
minsta kosti ekki næst liðin tíu ár
frá þeim degi sem hann óskar eftir
aðgöngu að hælinu, og að minsta
kosti sé fullra sextíu og fimm ára
að aldri.
Sé umsækjandi alveg öreigi fær
hann það sem eftir er æfinnar ná-
lægt Því þriggja dollara styrk á
viku. Hjón fá sameiginlega um
fimm dollara styrk vikulega. Hafi
viðkomandi einhverjar aðrar tekj-
ur, er styrkurinn minni, en séð um
það að enginn hafi minni upphæð
en þetta vikulega úr að spila. Sýnt
hefir verið fram á það með óræk-
um tölum, að þessi aðferð er að
engu leyti kostnaðarsamari fyrir
danska ríkið en viðhald hinna vana
legu vinnuhúsa-stofnana á Eng-
landi og víðar. Engum þykir virð-
ingu sinni misboðið með því að
þyggja ellistyrk. Hann er jafnvel
álitinn sem virðingar-viðurkenn-
ing fyrir veí unnið æfistarf.
1 þeirri deild hælisins, sem
gifta fó.lkið er, hafa hver hjón sér-
stakt herbergi.loftgott og rúmgott,
með tveimur rúmum i. Muni þá,
sem þati kunna að hafa átt, geta
þati haft þar hjá sér ef þeir ekki
eru alt of fyrirferðarmiklir. Má
þvi í mörgum þessunr herbergjum
sjá gamaldags skrifborð, kommóð-
ur, borð og stóla og myndir af
skyldfólki hjónanna hangandi á
veggjunum. Matborð stendur
vanalega undir glugganum. Vana-
legasti morgunmaturinn er kaffi
og smurt brauð, miðdagsmaturinn
góð súpa, kjöt og kálmeti og svo
kaffi eða te annað hvort með
matnum eða nokkru síðar. Kvöld-
maturinn er brauð og smjör og ost
ur og kaffi eða te. Ógifta fólkið
hefir sameiginlega borðstofu. Karl
menn sér og kvenfólk sér. Hníf
og gaffal, skeið og disk og pentu-
dúk hefir hver karl og kona og sitt
vissa sæti við borðið. Að tala um
pentudúka við borðhaldið á fá-
tækrahæli mundi þykja fjarstæða
og óþarfa viðhöfn, en í Danmörku
stendur menning og hreinlæti á
svo háu stigi og kurteisi í allri um
gengni er orðin svo rótgróin í hug-
um manna þar, að eins sjálfsagt
þykir að brúka pentudúka við borð
haldið ðins og að hafa línlök í rúm-
unum.
I herbergjum hinna ellihrumu
eða veiku er þjónustutolk haft, en
allir þeir, sem til þess eru færir,
hafa eitthvert starf fyrir hendi.
Hvert herbergi er í raun og
veru sérski.lið heimili, þar sem í-
búarnir geta lokað dyrum sínum
þegar þeim sýnist og haldið sér
frá umgengni við aðra ef þeim
gott Þykir. En sjaldgæft er, að
neitt af fólki því, sem heima á
innan veggja hælisins, taki sig svo
út úr. Næstum því undantekning-
arlaust er fólkið þar mannblendið
og hefir ánægju af að skrafa sam-
an og skeggræða við nábúana. All-
ir, sem hafa burði tij, eiga frjálsan
aðgang að því að reika um eða
sitja á bekkjunum í hinum yndis-
legu blómgörðum umhverfis hæl-
ið og hverjum einum er það í
sjálfsvald sett hvernig hann klæð-
ist. Engan sérstakan búning er
meðlimum hælisins gert að skyldu
að bera, og alt finnur þetta a!dr-
aða starfsfólk til þess, og öllu er
því það full-ljóst, að ekki
ingöngu hefir það hér tækifæri til
þess að lifa rósömu .lífi, heldur
jafnframt að borin sé umhyggja
fyrir, að öllu í kring um það sé
haldið hreinu og í röð og reglu, að
það eigi fullkomlega með sig sjálft
og engum líðist annað en að sýna
því gott og þægilegt viðmót í allri
umgengni.
Fyrst það er nú ekki að eins
mögulegt, heldur og mjög vel
framkvæmanlegt í Danmörku að
koma þessu þannig fyrir, því
skyldi það þá ekki einnig geta lát-
ið sig gera á Englandi og i Ame-
ríku? Þ'að er ekkcrt auðveldara
fyrir verkamannaflokkinn að kom-
ast af í Danmörku en annars
staðar í heiminum. Loftsla
Samkoman var sett af forseta
byggingarnefndarinnar, kl. 1.30 e.
m., og byrjaði með því, að sunginn
var sálmurinn .nr. 229 í íslenzku
sálmabókinni fSannleikans andi lát
sannleikans ljós þitt oss skína o. s.
frvý. Að því búnu flutti br. Guð-
mundur Árnason snjalla ræðu. Fór
hann lauslega yfir sögu og starf
G. T. reglunnar og áhrif þau, er
hún hefði haft á heimsmenning-
una. Sérstaklega benti hann á um
skiftin til batnaðar, sem hún hefði
komið til leiðar á Islandi.
Og hann vonaðist eftir, að at-
höfnin í dag yrði byrjun að enn
kröftugri áhrifum í þessu mikla
siðmenningarmáli hér meðal Vest-
ur-íslendinga. Óskaði hann síðan
fyrirtækinu al.lra heilla, og guðs
blessunar.
Því næst flutti W.W.Buchanan,
hinn alþekti bindindisfrömuður og
ræðuskörungur, ræðu á ensku, þar
sem hann sérstaklega lýsti ánægju
sinni yfir bindindis starfsemi ís-
lendinga, sem meðal annars sýndi
sig í því, að reisa þetta hús, og
hvatti þá, sem enn stæðu fyrir ut-
an þenna félagsskap, að liggja
ekki lengur á ,liði sínu með að
hjálpa honum við.
Var svo sungið enska versið
„Praise God from Whom all bless-
ings flow“, o. s. frv.
Þá var tekin mynd af samkom-
unni, af myndasmið, sem blaðið
Free Press hér í Winnipeg sendi á
staðinn þangað, til þess að taka
myndina, er síðar var birt í því
blaði, ásamt mynd af byggingunni,
eins og hún verður þegar henni er
lokið. Birti það blað og skýr&lu
um athöfnina, sem fréttaritari
blaðsins tók jafnóðum og hún fór
fram. Á myndinni sést mannfjöld-
inn, sem þarna var saman kom-
inn og skifti hundruðum, því veð- e^Ju Eggertsson.
ur var hið fegursta. Sést þar ogl Að því búnu
pallurinn, sem sérstaklega var
reistur til afnota fyrir þessa at-
höfn, og allur var skreyttur um-
hverfis með blómsveigum, en yfir
öllu blakti Canada fáninn og jafn-
hátt honum íslenzka fálkaflaggið
bláa, sem óefað hefir verið öllum
Islendingum til ánægju, og sömu-
leiðis var þar dregið upp Banda
rikjaflaggið.
Á pallinum sýnir myndin, auk
byggingarnefndarinnar, sem í eru
þessir menn: Ásbjörn Eggertsson
fforsetiý, Gunnlaugur Jóhannsson
(skrifarij, Kr. Stefánsson (gjald-
keriý, Jón T. Bergmann, Jóhann
Sveinsson, B. Magnússon, Guðm.
Bjarnason, M. Johnson og Sigfús
Jóelsson, eftirnefnda gesti^ sem á
einn eður annan hátt voru til að-
stoðar við þessa athöfn eða bygg-
inguna sjálfa: br. séra Jón Bjarna-
hún var stofnuð og til þessa tima
samið af br. Ólafi S. Thorgeirs-
syni, einnig eftir áskorun bygging-
arnefndarinnar. Var það eitt af
innihaldi þeirrar sögu,að st. Skuld
hafi verið stofnuð þann 27. Sept,
1888, og er hún því nær 18 ára
gömul. Meðlimafjöldi þeirrar
stúku var í byrjun 44.— Jafnframt
las br. Jóhannsson upp skýrslu
um byggingarnefndina þetta kjör-
tímabil, ásamt fundarsamþykt
þeirrar nefndar, 27. Ág., um það,
nær honsteinninn skyldi lagður,og
að það verk væri af nefndinni fal-
ið syst. Eggertson, konu forset-
Þar næst las hann og bréf
ans.
frá stórstúkunni, dags. sama dag,
þess efnis, að óska þessu starfi
góðs géngis. Bréfinu fy.lgdu $75
sem gjöf til byggingarinnar.
Að síðustu las hann upp skrá
yfir það, sem í steininn yrði lagt,
sem hér segir:
Eitt eintak nýja testamenti;
Saga Good Templara reglunnar
f'rá byrjun, útgefin af framkvæmd
arnefnd Alþjóða stórstúkunnar;
„International Templar“, eitt
eintak.
„Þingtíðindi Stórstúku Mani-
toba fyrir árið 1906;
Eftirrit af löggildingarskjali
stúknanna Heklu og Skuldar .
Stjórnarskrá og aukalög stór-
stúku og undirstúkna;
Söguágripin, sem áður er getið
um;
Myndin af byggingunni, eins og
hún verður fullgerð;
' Og að síðustu nafnaskrá yfir
alla, sem nú eru í byggingarnefnd
og embættum í stúkunum Heklu
og Skuld.
Þá var þetta lagt í blikkstokk,
sem er geymdur í hornsteininum,
og hann svo lagður af systur Sess-
, er son og frú Láru konu hans, systur
ekki betra þar en viða annarsstað- „ o i- t- x ,
Mrs. Sesselju Eggertsson, konu
sinrn forsetans> 0g systur Carolínu Dal-
ar. Þjóðin er ekki í heild
neitt sérstaklega auðug þjóð, en
samt sem áður hefir hún bæði get-
að, og telur sér jafnframt hag í
þvi, að veita öldruðu og lasburða
alþýðufólki, sem engri siðspillingu
er háð, hús og heimili, og leyfa því
að lifa þar frjálslegra og betra lifi
en þekkist á gamalmennahælum í
nokkru öðru landi.
Hyrningarsteins lagning.
Samkvæmt tilmælum, er birtust
í Lögbergi 6. þ. m., leyfi eg mér
hér með að skýra frá nefndri at-
höfn.
Hornsteinn hinnar nýju hús-
bygl^ngar Good Templara stúkn-
anna Heklu og Skuld, sem verið
er að byggja hér í Winnipeg-borg,
á norðvestur horni Sargent og
McGee stræta, var lagður 3. Sept.
síðastliðinn.
man, skrifara st. Skuld, br. Guðm.
Árnason, Mr. Sveinn Brynjólfsson
('contractor bygggingarinnarj, Mr.
Hooper, aðal eftirlitsmann við
bygginguna, fréttaritara frá Free
Press o. fl.
Þessi mynd fæst keypt hjá Æ.
T. stúkunnar Heklu, br. Sigurði
Björnssyni, 683 Beverley stræti.
Ágóðanum af sölu myndanna
verður varið til byggingarinnar.
Eftir að myndin var tekin las br.
B. M. Long upp söguágrip stúk-
unnar Heklu, frá stofnun hennar
til þessa dags, samda af honum
sjálfum, eftir ósk byggingamefnd-
arinnar. — Og ber sú saga með
sér, að stúkan hafi verið stofnuð
þann 23. Des. 1887, og er hún nú
nær því 19 ára gömul.
Þar næst las br. Gunnl. Jóhanns-
son söguágrip St. Skuld frá því
hélt séra Jón
Bjarnason áhrifamikla og hjart-
næma bæn, fyrir þessu fyrirtæki
og starfi reglunnar yfir höfuð,
og sagðist honum sem oftar svo
vel, að það veitti þessari athöfn ó-
útsegjanlega mikinn hátíðar og
helgiblæ, og hafði sjáanlega mjög
mikil og góð áhrif á alla, sem við
voru staddir.
Þá var sunginn söngurinn úr
siðbók Good Templara nr. 9
fHugljúf ástbönd hér nú reyra,
o. s. frv.J.
Síðan hélt stórtemplar br. Wm.
Anderson ræðu, og þakkaði þar
meðal annars fyrir hönd stórstúk-
unnar það verk, sem hér hefði
verið og væri verið að vinna.
Þá talaði byggingam. Hooper
nokkur orð ,sem aðallega lutu að
því, að lýsa því hvað byggingar-
nefndin ynni vel, cg að „plan“
hússins væri að miklum mun
meira hennar verk en sitt.
Þá þakkaði forseti öllum, sem
mætt hefðu og aðstoðað við þetta
tækifæri, og var að síðustu sung-
ið „Eldgamla ísafold“ fþrítekið),
og samkomunni siðan slitió.
Það skal tekið fram til skýring-
ar, að nokkrir meðlimir stúkannna
höfðu, þrátt fyrir mikið annríki,
æft alla söngvana og kann nefnd-
in þeim, og einkum formanni
söngflökksins, br. Jóni A. Jójns-
syni, þakkir fyrir, sem og öllum,
er að því studdu, að gera þessa
samkomu, sem forseti bygging-
arnefndarinnar stýrði, jafn á-
nægjulega og hátíðlega og raun
varð á, og lengi munum vér
Templarar minnast, og sömuleiðis
óska að bæn sú, er séra Jón cflutti
við þetta tækifaéri verði að á-
hrýnsorðum i framtíðinni.
Þegar þessari byggingu verður
Iokið, sem væntanlega mun verða
fyrir næstu jól, erum vér þess
fullvissir, að hús þétta verður
það fullkomnasta, hentugasta og yi y ■ ■
yfir höfuð bezta samkomuhús,sem ( I ÍIOS. 11. UOfl DS0ri|
Islendingar hafa til þessa reist
hér vestan hafs, og væntir bygg-
Islenzkur lögfræClngur og mála-
færslumaBur.
ingarnefndin þess, að hvorki með- skrlfstofa:— Room 33 Canada Life
limir eða aðrir vinir bindindis-i Block, suSaustur horni Fortage
starfseminnar láti sitt eftir liggja, avenue og Main st.
að hjálpa til að taka þátt í þeim t^nástu-ift:—p. o. Box 1364.
mikla kostnaði, sem bygging þessi1 e efðn- *23-__________Winnipeg. Man.
hefir í för með sér, og sem nemur 1
alt að $17,000.00 þvi heill og! }-j M HíHinPQQnn
heiður og jafnvel tilveran sjálf í' ' ’ IwllllvJooUll,
framtíðinni, fyrir þennan fé'ags- íslenzkur lögfræðingur og mála-
skap, er þar undir komin, að miklu færslumaður. Skrifstofa:
leyti. I fullu trausti, bæði tilj
drengskapar meðlimanna og sig-1
urs hins sanna, rétta og góða, sem1
þessi starfsemi stefnir að,
ROOM 412 McINTYRE Block
Telephonc 4414
erumr
vér þess fullöruggir, að hamingj- > n rí
an gefi, að alt gangi vel hér eftir,1; ***** "JOrilSOn,
og að .þarna myndist það heimili,'> °FFICK 660WILLIAM AVE. tel. 89
sem dragi menn til sín frá þeim
mörgu stöðum, sem hættuleg á-’
hrif hafa fyrir alla þá, sem freist-
ing hefir vald á; dragi menn til
þeirrar lífsstefnu sem ein út af
fyrir sig er eitt af beztu hjálpar-!
meðulum mannfélagsins, til að‘
gera menn og konur að nýtum'
borgurum Þjóðfélags síns, bæði
frá siðferðislegu og praktisku
sjónarmiði skoðað.
Forscti byggingarnefndarinnar.
Píanó og Orgel
enn ÖTÍðjafnanleg. Bezta tegund-
in sem faest í Canada. Seld með
afborgunum.
Einkaútsala;
THE WINNIPEG PIANO &. ORGAN CO.
295 Portage ave.
Miss Louisa G. Thorlakson,
TEAfHER OF THE PIASO.
602 Ungside St., •
S. K. Hall, B. m.
Xður yfirkennari við. piano-deildina í Gust.
Adolphus College.
Organisti og
söngflokkstjóri
í Fyrstu löt. kirkja
í
Winnipeg.
IC enslustof u r-
Sandison Block,
304 Main St.,
og 701 Victor st.
P. Th. Johnson,
KENNIR PÍANÓ-SPIL og TÓNFRÆÐI
Útskrifaður frá 1 Kenslustofur : Sandison
músík-deildinni við t Block, 304 Main St., og
Gust, Adolphus Coll. T 701 Victor St.
Officb-tímar: 1.30 til 3 og 7 til 8 e, h.
Housk : 8»o McDermot Ave. Tel. .300
^wO
Office: 650 WlJltam ave. Tel, 89 *
Hours : 3 to 4 & 7 to 8 F.M,
Residence : 620 McDermot «ve. Tel.4300 1
WINNIPEG, MAN.
Dr. G. J. Gislason,
Meöala- og Cppgkuröa-Iæknlr,
Wellington Block,
GRAND FORKS, - N, Dak.
Sérstakt athygli veitt augna, eyrna
nef og kverka sjúkdómum.
Dr. M. flalldorson,
PARK KIVEH. N. D.
Er aC hltta & hverjum mlCvikudegl
I Grafton, N.D., fr& kl. 5—6 e.m.
1. M. Gleghoro, M D
læknlr og yflrsetumaður.
Heflr keypt lyfJabúClna ð. Baldur, og
heflr þvl sJAIfur umsjón & öllum meC-
ulum, sem hann lwtur frá sér.
Ellzabeth St.,
BAI.DUH, - MAN.
P.S.—Islenzkur túlkur vlO hendina
hvenær sem þörf gerlst.
Jónas Pálsson~^
Piano og Söngkennarl.
Eg bý nemendur undir próf i nefnd-
um greinum, viö Toronto University,
ef óskaO er eftir.
Áritun: Tribunk Block.
WinniPeg, Man,
Star Electric Co.
Rafmagnsáhöld sett í hús. ACgerOir af
hendi leystar. Telephone 579
Wni. McDonald, 191 Portageav
A. S. Bardal
selur líkkistur og annast
um útfarir. Allur útbún-
aOur sá bezti. Ennfrem-
ur selur hanu allskonar
minnisvarða og legsteina
Telephone 3oG
Páll M. Clemens,
byggingameistari.
Bakeh Block. 468 Main St.
WINNIPEG Phone 4887
M, Paulson,
selur
Giftin galey fls bréf
cftir
' — þvi að —
Eddy’sBuogingapappir
heldur húsunum heituml og varnar kulda. Skrífið eftir sýnishorn-
um og verðskrá til
TEES & PERSSE, LIR.
ÚGENTS, WINNIPEö.
'Stærsta Skandinavaverzlunin í Canada.
Vér óskum eftir viöskiftum yöar. Heildsala og smásala á innfluttum, lostætun?
matartegundum. t. d.: norsk KKKogKKKK spiksíld, ansjósur, sardínur, fiskboll-
ur, prímostur, Gautaborgar-bjúgu, gamalostur, rauö-sagó, kartöflumjöl og margskon-
ar grocerie-vömr
The GUSTAFSON—JONES Co. Limited,
325 Logan Ave. 325
i