Lögberg - 20.09.1906, Blaðsíða 1

Lögberg - 20.09.1906, Blaðsíða 1
ísskápar niðursettir Skápar sem kostu?5a $11.00 nú á $9.00. $20 á $17. $16 á $14. $8.00 á 7.50. SkoOiB þá eg fáiö aB vita um borgunarskilmála. Engu sanngjörnu boði neitað. Anderson & Thomas, Hardware & Sporting Goods. •38 Main Str. Telephone 389 Burt meö ísskápanal ViO hðfum of marga. og höfum því sett verö- iöniöur. $2oskáparnú á$*7 ogaörir niöursett- ir aö samaskapi. Komið og skoöiB þá. Geriö sanngjarnt boö í þá og vér tökum því strax. Anderson & Thomas, Hardware & Sporting Goods. 538 Main St. Telephone $39. 19 AR. Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 20. September 1906. NR38 Fréttir. Stórkostlegt járnbrautarslys varö í vikunni sem leiö nálægt borginni Sudbury í Ontario. Leot, áleiöis frá Winnipeg, rendi þar á fólks- flutningavagna, sem biöu á járn- brautarstööinni. Ellefu manns varö slysið að bana. Dóu sjö Jieirra samstundis en fjórir nokk- ttru síðar. Fjö.ldi farþega varð þar að auki fyrir meiri og minni áverkum. Samkvæmt manntalsskýrslum fyrir Alberta, Saskatchewan og Manitoba-fvlkin, sem nú eru um það leyti fullgerðar, er fólksfjöld- inn i Alberta nú eitt hundrað átta- tíu og fimm þúsund og í Mani- toba þrjú hundruð og sextíu þús- und. um treysti keisarinn bezt al’ra manna til þess að vaka yfir lífi sínu og bæla niður allar frelsis- hreyfingar þegna sinna, enda var Trepoff óspar á byssukúlum og htengingarólum nær sem honUm: þótti við þurfa. Ákaflega var hann iila þokkaður af öllum stétt- um manna á Rússlandi og niargar tilraunir voru hvað eftir annað á undanförnum árum gerðar til þess að taka hann af lífi. Svo er sagt John D. Rockefell- er, auðmaðurinn mikli, sé nú mjög vanheill og iæknarnir tdji á þvi all-mikinn efa að hann muni rétta við aftur. við Zambesi muni vera sá hluti Afriku, sem ritningin nefnir Ophir, og kveðst muni geta sann- að það með fornmenjum þeim, er hann fann. Á Þýzkalandi hafa nýlega verið handteknir þrír anarkistar, einn Itali, einn Austurríkismaður og einn Pólverji. Allir höfðu menn þessír verið gerðir út til þess að sitja um tækifæri að ná lífi Vil- hjálms Þýzkalandskeisara, sem að undanförnu hefir verið. staddur við hersýningar suður í landi. T.ög- reglan komst á snoðir um menn þessa og að þeir allir héldu til í sama húsinu. Vroru þeir teknir þar fastir, eftir all-hart viðnám er þeir veittu þó ekki hefðu þeir önnur vopn handbær þar til að verja sig með en tygilhnífa. Ýms bréf og skjöl fundust í herbergjum manna þessara er leiddu það í ljós að þeir höfðu dagleg bréfaviðskifti við skoðanabræður sína, er höfðu sent þá til Þýzkalands. Mátti sjá það af bréfunum að morðvargarn- ir ætluðu sér að beita þeirri . að- ferð, til þess að bana keisaranum, að henda í veg fyrir vagn hans sprengikúlu einhverntíma er hann keyrði að eða frá hersýninga- sviðinu. Innflutningur manna úr Banda- ríkjum til Canada heldur stöðugt áfram og fer sívaxandi. Með járn- brautarlestunum frá St. Paul, Minn., síðastliðinn fimtudag var svo mikill fjöldi landnema að bæta varð við mörgum vögnum í þiær, fram yfir það sem vanalega gerist, svo hægt væri að koma fyr- ir öllum þeim er fara vildu. Stórt hótel í Ottawa brann til ösku í vikunni sem leið. Var það seint um kveld sem eldurinn kom upp og varð engu bjargað úr hús- inu. Hátt á þriðja hundrað gesta var í hótellinu þegar eldurinn kom upp. Eru menn hræddir um að einhverjir þeirra hafi brunnið inni. Ýmsir af gestunum sem út komust fengu all-mikil brttnasár Og varð að leggja marga þeirra á spítala til græðslu. Nýlega var Francis Ferdinand erkihertogi í Austurriki, sem lík- legastur þykir til að verða muni þar ríkiserfingi, á ferð með sér- stakri já.rnbrautarlest áleiðis frá sumarhö,ll sinni til Vinarborgar. Var þá kastað stórgrýti að vagni erkihertogans og inn um glugg- ana augljóslega í þvt skýni að ráða honum bana. En þó ólíklega áhorfðist komst erkihertoginn ó- meiddur undan. Ekki náðust menn þeir er árásina veittu. Hefir þetta morðtilræði fengið mjög á hinn aldraða Austurríkiskeisara, sem áður hefir orðið fvrir þungunt bú- sifjum af hendi anrakista, t.d. er þeir myrtu drotningu hans fyrir nokkrum árum síðan. Öll Evrópu ríkin.nema England og Sviss, lrafa gengið í samband til að bola út æstum byltingamönn- um ("anarkistumj. Hefir Rússa- stjórn lofast til að ganga svo fast fram í því máli, að leyfa með ,’ög- um að taka þá fasta hvar sem er, án viðeigandi skipunarbréfs til þess frá yfirvöldunum, og er ó- hætt um að sú stjórn mun þar ekki ganga á bak orða sinna. Samkvæmt skýrslu prófessor Fortier við háskólann í Californíu, er þrjátíu og fimm þúsundum dollara varið árlega til va.tnsveit- inga í vesturhluta Bandaríkjanna. í Oklahoma ríkinu i Bandaríkj- unum varð járnbrautarslys átta mönnum eða fleiri að bana á þriðjudaginn var. Orsökin til þess að slys þetta vildi ti.l var sú, að brú yfir' á, sem var á leið lestar- innar hafði bilað án þess vart yrði við, og steyptust flestallir vagn-1 arnir í ána. Margir af farþegun- um, sem af komust, höfðu orðið fvrir töluverðum meiðslum. kl. 12, var söng og öðrum skemt- unum haldið viðstöðulaust áfram þangað til tími var til kominn aö stíga upp í lestina. Veðrið var hið ákjósanlegasva, og var eins og mennnirnir og nátt- úran tæki höndum saman til þess kveldið yrði gestunum svo þægi- legt og skemtilegt að þar gæti ekki verið út á neitt að setja. Þeir sem fyrir förinni stóðu höfðu búið svo um við strætisvagnafélagið, að þegar til Winnipeg kom voru strætisvagnar við hendina til þess að flytja fólkið. Á heimleiðinni létu menn það ó- spart á sér heyra, að ferðin hefði verið þeim til hinnar mestu skemtunar og, að þeir ættu Selkirk bandalaginu að þakka skemtilegt kveld. -------o------ Ur bænum. Sagt er að víðtækt samsæri hafi verið gert á Frakklandi gegn nú- verandi stjórn þar. Hert hefir verið á hernaðarlög- um Rússlands, svo að ef sá, sem kominn er til .lögaldurs neitar að ganga í herþjónustu, varðar það sex ára betrunarhússvinnu, og missi borgararéttar. Mörg spellvirki hafa byltinga- menn á Cuba gert þessa dagana, skemt sykurreyrsakra, járnbrautir og brýr og tept járnbrauta um- ferð á eynni. í einni árásinni,sem þeir gerðu á hermenn stjórnar- innar fyrir skemstu, feldu þeir nær tuttugu manna. Hve margir féllu af byltingamönnum í þeirri atrennu, er ókunnugt. I Hamborg er sagt að sykur hafi stigið mjög í verði, vegna sykurskemdanna á Cuba. Á Þýzkalandi lætur nú ágæt- lega i ári hvað landbúnað snertir og er svo sagt að aldrei fyr haf$ þýzkir bændur fengið jafnmikla uppskeru af hveiti, rúgi, höfrum og byiggi eins og í ár. Svo mikill fjöldi fólks hefir þyrpst út um sveitirnar, til þess að vinna að uppskerunni, að til vandræða hef- ir horft á verksmiðjum í borgun- um hvað verkafólk snertir. Hátt verð er nú einnig á gripum á Þýzkalandi og á öllum bús-afurð- um. Eldfjöl! þau í Chili, sem talið er að valdið hafi jarðskjálftunum í Valpariso, eru nú að gjósa. Féll ógrynni ösku í borginni Santiago, fáar milur austan við Valpariso, um miðjan þennan mánuð. Fylgdu jarðskjálftar og myrkur með ösku fallinu, og var fólk svo óttaslegið í þeirri borg og víðar þar nær- lendis, að menn þorðu ekki að haldast við í húsum sínum ,en fjöldi fólks, er bjó upp við eld- fjöllin, flýði til næstu borga og þorpa. Ógurlegur hvirfilbylur gekk yf- ir borgina Hong Kong í Kína á þriðjudaginn var og er svo sagt, að rnesti fjöldi manna hafi farist þar. Sjór gekk á land í borginni og þyrlaði með sér hafskipum, W lágu þar á höíninni, og braut fjölda þeirra i spón. Eignatjón er mjög stórkostlegt, sem af þessu hefir hlotist. Stórkostlegir skipskaóar hafa að undanförnu átt sér stað með- ínun Eabrador ströndum. Auk ellefu skipa sem fyrir nokkru síð- an fórust, við Belle Isle. þar norð- ur frá. er nú nýkomin frétt um að sjö skip, með nálægt því eitt hundrað manns innan borðs, liafi rekið nýlega á land og brotnað í spón við Labrador. Nokkrir menn fórust þar og hátt á þriðja hundr- að skipbrotsmanna bíða þar nú eftir því að þeir verði sóttir og fluttir heimleiðis. Ritstjóri Lögbergs brá sér úr bænum í gærdag og bjóst við að verða í burtu vikutíma. Inndælasta veður er nú á hverj um degi, sólskin og hiti, og geng- ur þvi drjúgum á þreskingu hjá bændum alls staðar. Fáskrúðsfirði og svipað ástand í næstu sveitum. Þvínær einróma voru aukalög um vatnsleiðslu i Selkirk samþykt þar í bænum á mánudaginn var. Munið eftir samkomu kvenfél. Fvrsta lút. safnaðar í kirkjunni í kveld. Sérlega vandað prógramm og að því búnu veitingar í sunnu- dagsskólasalnum. Aðgangur að hvorutveggja að eins 25C. í þessu blaði er auglýsing frá Tildén-Gurney & Co., sem hr. G. Goodman tinsmiður er umboðs- maður fyrir. Þ.eir sem ætla að kaupa sér eldavélar eða hitunar- vélar ættu að finna hann að máli. Fyrirspurn.—Eg hefi keypt eina ekru af landi og bygt þar hús, sem eg bý í. Get eg þá ekki tekið heimilisréttarland þar i nánd, án þess að mega til að búa á því, ef eg að öðruleyti uppfylli þær skyld- ur, sem á landnema hvíla til að fá eignarréttinn ?—Svar. Nei. Spyrj- andi verður að búa á jörð.sem eigi sé minni en fjörutíu ekrur, og verður að stunda búskap þar. Þrjú þúsund og fimm hundruð „uniön“-menn hafa nú gert verk- fall hér i bænum. Hófst það næst- liðinn mánudag. Skárust þá fimt- án félög byggingamana í leikinn og gengu í ,lið með blýsmiðum, er Á öðrum stað hér í blaðinu er gerðu verkfall í sumar og hafa auglýsing frá „Gleym-mér-ei" fé- enn eigi komist að þeim kjörum laginu um samkomu, er það stend- ur fyrir. Eins og sjá má á aug- við vinnuveitendur sína, sem þeim likar. Hve lengi verkfall þetta lýsingunni er þar um margt að! stendur er enn óséð, en fyrir utan velja fyrir lágt verö. | „union“-mennina verður fjöldi -----------i verkamanna ('kborersj atvinnu- Mr. Jón Sveinbjörnsson og Mr. lausir, og hins vegar óþægilegt Sigurður Kristofersson, sem um fyrir byggingar-verkstjóra, sem tima hafa dvalið að búum, er þeir standa nú uppi með byggingar hafa sett á stofn vestur á Kyrra- sínar hálfgerðar, þegar frostin hafsströnd, komu hingað til bæjar' fara i hönd, komist samkonmlag fyrir skömmu síðan. Héðan fóru ekki á- vonum bráðar, þeir 15. þ.m. vestur til Argyle og ojuggust við að fara þaðan vestur eftir tvær til þrjár vikur. Nýkomnar eru nú fréttir af fjórum hvalaveiðaskipum, sem menn voru hræddir um að farist hefðu norður í höfum í fyrrasum- ar. Höfðu skipin öll frosið inni við Herchell-eyna og skipverjar haft þar vetursetu. Þegar ísa ■leysti lögðu þeir á stað enn aðnýju á hvalaveiðar og eru nú væntanleg- ir heim bráðlega. Frétt frá Vladivostock segir að byltingamenn i dularbúningi her- manna hafi 15. þ. m. ráðist inn í einn stórbanka þeirrar borgar, og rænt þar á armað hundrað þús- undum dollara . Trepoff hershöfðingi, foringi lifvarðarsveitar keisarans á Rúss- landi, andaðist á laugardaginn var. Hann var grimdarseggur hinn mesti og þótti harðdrægnari öllum öðrum yfirmönnum rúss- neska herskis nú á tímurn. Hon- Leikfélag hafa Isleiídingar ný- lega stofnað hér í bænum, sem nefnir sig „Hið íslenzka .leikfélag Á heimili Pólverja nokkurs,! í Winnipeg“. Eru flestir þeirra fimm milur vestur frá Gimfi, vildilGood Templarar, og munu aðal- það slys til á mánudaginn var, að | lega hafa i hyggju að leika í tólf ára gömul stúlka var að óvör- j Templara byggingunni, þegar hún um skotin til bana. Hjónin á bæn-l verður fullgjör, sem búist er við um voru viö kirkju og fjórtán ára|a® verði um jólaleytið. Samt hef- gamall drengur tók byssu föður »r félagið við orð að byrja að leika sins, hlóð hana og misti svo skotið | smá leikrit, sem litinn útbúnað úr henni í höfuðið á systur sinni. | Þarf V'S, með byrjun næsta Októ- ----------- ] bermánaðar á Únítarasalnum, og Lík annarar stúlkunnar, Floru j halda þar áfram þangað til hin McDonald, er fórst með gufuskip- byggingin er fullgjör. -—Vér von- inu „Princess“ i Wininipeg-vatni, um, a® félag þetta fari vel á stað, hinn 26. f. m., fanst rekið á ,land eða sæki sig að minsta kosti svo nýlega skamt frá mynni Berens- me® tímanum, ef þvi verður langs er skipaður aðalkonsúll Norð- manna hér á landi. Ennfremur þrír undirkonsúlar: Pétur A. Ólafsson verzlunar- stjóri á Patreksfirði; Friðrik Kristjánsson bankastjóri á Akur- eyri; Stefán Th. Jónsson kaup- maður á Seyðisfirði. —ísafold. Akureyri 28. Júlí 1906 * 111 sumarveðrátta. Skrifað er úr Húnavatnss. 17. þ. m.: „Bleytu- hríð hefir verið hér i þrjá sólar- hringa, hálsarnir og fjöllin alhvít, grátt ofan í á og engum mannf fært úti að vera fyrir illviðri og kulda. —, Úr Skagafirði eru sagð- ar sömu fréttir af tíðarfarinu. — Sannfrétt er líka að eitthvað af fé hafði króknað og jafnvel fent á Reykjaheiði í Þingeyjarsýslu i þessu sama hreti og mjög hætt við að það hafi víða orðið á heiðum hér norðanlands. — Fyrri hluta þessarar viku hefir hér verið kalsatíð með úrkomu, en brá til landáttar á fimtudaginn og í gær þornaði upp. Töðurnar liggja blautar á túnunum, en hafa víst enn ekki skemst til mikilli muna vegna kuldanna. Akureyri 9. Ágúst 1906 Blönduóslæknishérað er veitt héraðslækni Jóni Jónssyni á Vopnafirði. 23 f. m. andaðist Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Skíðastöðum i Laxárdal í Skaga- firði, 31 árs að aldri, úr berkla- veiki. Hún var dóttir ■Guðmundar Sölvasonar bónda á Fagranesi á. Reykjaströnd,er dó þar ungur íyr- ir hérum bil 30 árum, og konu hans Ingibjargar Gunnarsdóttur frá Skíðastöðum. —Norðúrland. árinnar, nálægt fimtíu mílur það- lífs auðið, að það geti veitt fólki Morokkóstjórn hefir nú ,'átiö Paul O. Stensland af hendi við Bandaríkjastjórn. Er nú verið að flytja hann aftur vestur um hafið, og er búist við, að allmikill hluti af fé Madison bankans náist aftur. _________ t Dr. Carl Peters, Afríkufarinn alkunni, er nú afcur kominn heim til Englands effcr langa rannsókn- arferð frasn með Zambesi fljótinu. Hefir hann sérstaklega athugnð fornmenjar á Því svæði. Heldur hann því fram, að héraðið í grend Skemtilegt kveld. Síðastliðið þriajtidagskveld hélt bandalag Selkirk-safnaðat með- limum bandalags Fyrsta lút. safn. og unglingafélagi Tjaldbúðarsafn. rausnarlegt og skemtilegt heimboð i samkomuhúsi islenzkra Good- templara í Selkirk. Heimboðið sótti um sjötíu manns frá Winni- peg, og var til ferðarinnar leigð aukalest hjá C. P. R. félaginu, er lagði á stað með gestwia frá Win- nipeg kl. 6.45 síðdegis og Heim- leiðis frá Selkirk aftur kl. 2 um nóttina. Selkirk bandalagið hafði búið sig mæta vel undir ge«takomuna bæði með góðar og rausnarlegar veitingar og með margbreyttar og fjörugar skemtanir. í prógramm- inu tóku öll ungmennafélögin ei*- an sem slysið vildi til. Ekkert notadrýgri ánægju, en áður hefir hefir enn rekið eða fundist afí veriö að fá á íslenzku skemtistöð- gufubátnum sjálfum. Hinn 9. þ. m. fæddist hjónunum Mr. og Mrs. G. A. Jóhannsson að 617 Simcoe strafci, stúlkubarn. Fæðingar þessarar er séfstaklega getið eftir beiðni foreldranna, vegna þess að þau afbrigði voru á að barnið fæddist með tveim tönn- um í neðri gómi. Tennurnar eru að sögn föðursins eigi lægri en mjólkurtennur barna vanalega1 gerast. unum hér í bænum, undanfarna vetur, og afli sjálfu sér þannig gagns og sóma. " Herra Friðrik Þorst«insson frá Höfðahúsum í Fáskrúðsfirði kom hingað tíl bæjarins 12. þ. m. með konu sína og sex börn, eftir nitján daga ferð frá íslandi. — Létu þau hjónin hið bezta yfir aðbúð og líð- an sinni á leiðinni, og komu þau þó ein síns ,fiðs. — Dæmafáa ó- þurka sögðu þau á Austurlandi, það sem af var slætti þegar þau lögðu á stað, 23. Ágúst, og var þá hvern þátt, og að því loknu, um1 enginn töðubaggi kominn í garð í Fréttirfrá lslandi. Rvík 8. Ágúst 1906. Mislingar hafa gert vart við sig nýlega við Eyjafjörð, bæði á Ak- ureyri og víðar. Stungið sér niður í stöku húsi. Hafa fluzt frá Fær- eyjum. Er svo að heyra að hömlur hafi verið lagðar fyrir að sýkin færðist út. A.lt er undír því komið, að dyggilega sé rækt sú laga- skvlda, að segja jafnan til þegar í stað sérhverra grunsamlegra veik- inda. Samgöngur eru svo tíðar orðnar nú milli landa, að aldrei er hægt að ábirgjast, að sóttnæm veikindi berist ekki til landsins,þá er minst vonum varir. Norskir konsúlar. Björn Guð- muntisson kaupmaður í Reykjav. Eskifirði 12. Júlí 190Ó. Skrifað er frá Seyðisfirði 1 þ. m.: Roskinn maður, Einar Péturs- son að nafni, frá Ásbrandarstöð- um í Vopnafirði, hvarf fyrir tæp- um mánu§i, án þess að menn viti. hvað af honum hefir orðið. Eskifirði 18. Júli 1906 Tíðin er alt af hörð og stirð.- Sunnudagskveldið þann 16 þ. m.. gerði hér snjó ofan í miðjar hlið- ar. Skepnuhöld eru víða ill hér eystra. Frést hefir að bóndi einn í Skriðdal hafi mist 30 ær í óveðr- inu mikla seint í síðasta mánuði. Kuldar komu miklir eftir veðrið, svo að gagnið varð lítið að væt- unni. Alveg aflalaust um alla Aust- fjörðu þessa dagana, meðfram vegna beitu og gæftaleysis. Þó hefk fiskjar orðið vart, er menn hafa fengið á handfæri. Ullarverð er afarhátt hér eystra, kr. 1,10 og 1,15 goldið fyrir pd. Eskifirði 23. Júlí 1906. Forberg, norski símafræðingur- inn kom hingað um miðja síðustu viku að lita eftir lagning síma- stauranna hér um fjörðuna, Eski- fjörð og Reyðarfjörð. —Dagfari

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.