Lögberg - 20.09.1906, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. SEPTEMBER 1906
5
svo sé. En þó er ýmislegt að fær-
ast hér í lag. Efnahagurinn fer
batnandi, þó hægt faji. Húsa-
kynnin eru orSin ólík því, er áSur
gerSist. Eólkið á hægra aðstöSu í
öllu tilliti. Og menningarbragur-
inn fer vaxandi eftir því, sem tím-
arnir líða og ástæðurnar verða
hagfeldari.
Bjálkahúsin eru hér óðum að
hverfa, en í stað þeirra rísa upp
meira eða minna vegleg timbur-
hús. Og sumir, sem áður voru
búnir að koma upp timburhúsum
hjá sér, byggja nú önnur miklu
stærri og kostuglegri en þau fyrri.
Svo er það t. d. með Stefán
kaupm. Sigurðsson. Hann hefir
um allmörg undanfarin ár búið í
sæmilega snotru timburhúsi, en er
nú að láta reisa nýtt hús, afar
vandað og kostulegt. Þ]að er tvi-
lyft, með nýtizkulagi, verður hit-
aö með gufu og lýst meö gasi.
Svo kvað eiga að bora brunn
djúpt í jörð niður og leiða vatn úr
honum um húsið, eins og gerist í
bæjunum. Hús þetta verður heid-
ur en ekki prýði hér fyrir Víkina.
—Þ'að verður að likindum áiika
dýrt og vandaö eins og hús Jóns
J. Vopna í Winnipeg, sem sagt er
að hafi kostaö $xo,ooo. Yfirsmið-
urinn er Sigurgeir Stefánsson,
timburmeistari frá Selkirk.
Þá hefir og Baldvin bóndi Jóns-
son í Kirkjubæ bygt sér á þessu
ári stórt og vandað íbúðarhús.
Mun það vera með allra stærstu
húsum í þessari sveit. Það kem-
ur sér líka betur, því það er oft
mannkvæmt í Kirkjubæ.—Baldvin
er talinn með gildustu bændum
hér um slóðir og heimili hans eða
þeirra hjóna rausnar og myudar-
heimili. •!
Svo er og sagt, að Sigurður J.
Vídalín á Fitjum byggi sér timbur
hús á þessu hausti, en hversu stórt
hann byggir veit eg ekki. Hann
kom hingað að heiman blásnauður
maður með þunga ómegð, en er
nú talinn að vera við góð efm. —
Sigurður er maður greindur vel,
duglegur og áhugasamur og íarn-
ast þeim mönnum æfinlega vel i
þessu landi, eins og kunnugt er.
Kirkju nýja, er Breiðuvíknr-
söfnuður að láta byggja. Er það
dásnoturt hús, en ekki fullgjört
nema að utan enn þá. Kirkjan er
á stærð við algengar sveitak’rkjur
á íslandi, með þremur gluggum á
hvorri hlið, forkirkju með tttrni
upp af og skrúðhúsi út úr aftur-
stafninum, sem er með sama lagi
og aðalkirkjan, þótt lægra sé
miklu. Sæti verða í kirkjunni fyrir
full 200 manns. Kvenfélagskonnr
hér hafa tekið að sér að gefa sætin
í kirkjuna. Þau eru nú nýkontin
frá verksmiðjunni, og verða að
ilíkindum sett niður undir eins og
annir rninka. Yfirsmiður kirkj-
unnar var Trausti Vigfússon,
bóndi í Geysir-bygðinni, tengda-
sonur séra Odds V. Gíslasonar.
Hann er ágætur smiður og hafðt
fengist við kirkjusmiði á íslandi.
The DOMINION BANK
SELKIRK L'riBl'lÐ.
Alls konar bankastörf af hendi leyst.
Sparisjóösdeildin.
Tekið við innlögum, frá $1.00 að upphseð
og þar yfir. Hæstu vextir borgaðir. Við-
skiftum bænda og annarra sveitamanna
sérstakur gaumur gefinn. Bréfleg innlegg
og úttektir afgreiddar. Óskað eftir bréta-
viðskiftum.
Nótur innkallaðar fyrir bændur fyrir
sanngjörn umboðslaun.
Við skifti við kaupmenn, sveitarfélög,
skólahéruð og einstaklinga með hagfeldum
kjörum.
J GRlSDALE,
bankaat;órt.
Þá má það og teljast til frétta,
að Stefán kaupmaður Sigurðsson
er að láta gera við og stækka ann-
an gufubát sinn. Bátarnir heita
„Viking“ og „Fem“. Það er sá
síðarnefndi, sem verið er að
stækka. Hann var ofur smár gufu-
bátur, og verður nú á stærð við
„Viking“, sem er allstór og mynd-
arlegur bátur.. Sá bátur gengur
milli Selkirk og Hnausa 0g hefir
gert það í sumar.
Við verzlun Stefáns kaupmanns
er sú breyting á orðin.að Sigurjón
Sigurðsson, sem verið hefir bók-
haldari og umsjónarmaður þar, er
nú farinn og byrjaður að verzla
upp á eigin býti í Winnipeg, en
við starfa hans hefir nú tekið
Marteinn M. Jónsson. Hefir hann
unnið hér við verzlanina í állmörg
undanfarin ár. Hann er maður
vel látinn og er orðinn æfður
verzlunarmaður.
Galli mun þeim þykja það, er
ferðast um Breiðuvík, að hér er
ekkert gistihús. Árið sem leið
hélt Andrés Rasmussen hér gisti-
hús, en nú er hann fluttur i burt
og húsið í eyði. — Eina bótin er,
að Kirkjubær er nærri og húsa-
kynni rúmgóð svo ferðafólk þarf
samt ekki að verða í vandræðum
með gististað. Enda gistir þar nú
flest ferðafólk, sem hér þarf að
vera nætursakir, síðan Rasmussen
fór í burtu.
Þetta er nú það helsta af frétta-'
tagi, sem eg man að segja frá nú
í bráðina.
Eftirfarandi
þrjár visur eftir skáldið Pál Ólafs-
son, hefir Björn sonur hans, sem
nú dvelur hér í bænum, góðfúslega
leyft LögKergi að birta. Vísurnar
eru ortar á höfuðdagsmorgun árið
1900, og teknar eftir eigin handriti
P. Ó., svo og skýringarnar við
þær. Vísurnar hafa aldrei áður
verið prentaðar.
Feigðin köld að fótum mér
Föstum höndu'm tekur,
Sama leiðin ætluð er
Öllum, sent hún veku.r
Dagur er liðinn, komið kvöld,
—Kalt er á vegamótiun—
Þessi Skuldar gömlu gjö’.d
Gjalda allir hljótum.
Eg finn ég er að falla á hnykk* *,
Og fell á íþrótt minni.
Réttið þið mér nú Dvalins
drykk*
Að dreypa á hinsta sinni.
*) Hnykkur, rnitt bezta bragð;
sbr. „fellur hver á sinni list um
siðir.“ — P. Ó.
*) Dvalins drykkur=skáldskaþ-
ur — nfl. að deyja með vísu á vör-
unum. — P. Ó.
-------0------
Minui Noregs.
Island, sjá hve austrið ljómar
yfir Noregs strönd;
heyr, hve Austmanns-orðstír
hljómar
■yfir fjarlæg .lönd:
nú, er frjálsir frændur draga
fána sinn á hún,
nú, er morgunn nýrra daga
neniur Dofra brún.
Glæsifold, með laufgum lundum,
lögð af jökla ís
yfir þúsund eyja sundum
ennið djarflegt rís.
Eftst til fjalla, yzt til strandar
ómar hvatamál;
svipur landsins eggjan andar
inn í hverja sál.
Snildaland, með ljóð á tungu,
líf 0g hetjumóð,
heill þeim öllum, er þér sungu
endurreisnarljóð;
þeim, sem hófu þjóðarframann,
þorðu að líta hátt,
þeim, er sögðu: „Þokið saman,
þá á fjöldinn máttl“
Land, sem ótal gæða gjöfum
guðs þíns miðlar hönd;
segl á öllum heimsins höfum
heiðra Þína strönd;
dáð í fjörðum, fremd í dölum,
frelsi studd og treyst, —
og nú loks í eigin sölum
efsta sætið reist.
Aldna ríki, endurborið,
oki þínu svift,
þitt er frelsið, þitt er vorið,
þér til vegs er lyft.
—Það er einnig ögn að skíma
yfir lands vors hag ;
auðnan sendir einhverntíma
okkur líka dag!
Löngum var vor svipuð saga
síðan hófst vor öld;
marga ramma raunadaga
réttu oss eriend völd.
Þú varst fyrri að höggva helsið,
heimta frjáls þín lönd;
þigg af oss, sem þráum frelsið,
þýða bróðurhönd!
G. M.
—Ingólfur.
Nýju kven-kápurnar.
Mesta úrval. með innlendu og útlendu
sniði. Bezta efni og bezti frágangur, sem
hægt er aS fí. Ekkert hefir verið sparai
til þess að leysa þessar kápur sem bezt af
hendi og með ánægju sýnum vér þær öll-
um. hvort sem þeir ætla að kaupaeða ekki
Ekkert dýrari en borgað er vanalega fyrir
miklu lakari kápur.
Sérstakir kveldkjólar.
Kveldkjólar úr bezta efni og Ijómandi
fallega skreyttir. Ýmsir litir. Sérstakt
kjörkaupaverð.... . . $n-75
Tilbúinn fatnaður. Belti. Hanskar
Vetlingar. Sokkar. Hálsbúuaðar-nýung
ar. Sólhlífar. Regnhlífar. Nœrfatnað
ur. Kventreyjur. Pils, Jakkar. Kveld
kjólar. Frægustu amerisk C. B. og D. A
og Crompton lífstykki. Kjólar. Kápur,
G. D. McKAY & CO.
297--299 Portage Ave.
Uppreistin á Cuba.
Komið og kaupið
á laugardaginn.;
ÓDÝRARA EN ANNARS STAÐAR
22pd rasp. sykur $1.00
i6pd mola sykur $1.00
Bezta steikar-smjör
nýtt, pundið.. .. i6c
Bezta borðsmjör .. 20C
9pd óbrent kaffi $1.00
Steinolía, gall. á 20C
Hveiti, 5 rósir, 99 pd
sekkur á.. . $2.35
J. Midanek,
Cor Wellington& Agnes
KOMIÐ TÍMANLEGA.
3 ofurlítil ávörp
til
karlmannanna.
í uppreistinni á Cuba hefir fátt
bori ð til tíðinda síðustu viku. Þó
hafa í grend við borgina Havana
orðið nokkrar skærur, er byltinga-
mönnum og stjórnarsinnum hefir
,lent saman, en eigi er svo að sjá,
að stórvægilegt mannfall hafi orð-
ið í nokkurri þeirri atlögu.
Mælt er að stjórniti hafi sent
sérstaka járnbrautarlest á upp-
reistarsvæðið, með valda herinenn
og stórskota vopnabúnað, en eigi
virðist að hann hafi verið notaður
mikið að þessu, og langt frá þvt,
að byltingamönnum hafi fallist
hugur við það. Aftur á móti hafa
þeir gert ýms spell bæði á eignum
stjórnarinnar og einstakra manna,
eyðilagt akra, og brotið brýr og
járnbrautir, til að hefta umferð og
aðdrætti.
Þó bera síðustu fréttir þaðan að
sunnan það með sér, að byltinga-
menn muni því eigi fjarlægir, aö
taka sættum, ef þeir fái þær kröf-
ur sinar nppfyltar, er þeim þykja
mestu ntáli skifta.
Hefir leiðtogi byltingarmanna,
Guerra herforingi, fengið áskorun
frá leynifélagi einu í New York,
sem hlynt hefir verið byltingar-
mönnum á Cuba um langan tíma,
þess efnis, að halda eigi áfram ó-
friðnum, en taka friðarkostum, ef
fáanlegir væru með aðgengilegum
skilmálum.
Hins vegar kvað stjórnin á
Cuba vera í óða önn að búa sig
undir að kæfa uppreistina niður,
en þó eigi því jnótfallin að taka
sættum. Er það ætlun manna, að
einmitt í þvt skyni, að ræða urn
hver sættaboð væru bjóðandi, hafi
ríkisforsetinn kallað saman þingið
á Cuba nú um miðjan þenna mán-
uð, en þó er enn fátt .ljóst af þvi,
sem þar hefir gerst.
Verkamenn í Havana eru rnjög
áfram um, að ófrið þessum lykti,
þvi ef honum heldur áfram, verð-
ur eigi komist hjá því, að verkfall
verði, og hinar miklu og mann-
mörgu tóbaks og vindlaverksmiöj-
ur verði að hætta starfsenti sinni,
vegna þess að einmitt á ófriðar-
svæðinu eru beztu tóbaksaknar
eyjarinnar. Og haldi ófriðnum á-
fram, er loku skotið fyrir það, að
sú uppskera fari þar fram í tækan
tíma. í Havana hefir álit verka-
mannalýðsins að líkindum eigi all-
lítið að segja, haldi hann fast sant-
an, því að tala verkamanna þar er
um hundrað þúsundir, að með-
töldum fjölskyldum þeirra, og
þannig stór meirihluti borgarbúa.
Af Bandaríkja h&lfu hefir enn
verið lítið gert í þessu máli, annað
en að senda herbúnar snekkjur
suður á bóginn, til að vera á vakki
í grendinni, ef til stór vandræða
skyldi horfa.
MYNDARAMMA-SMIÐUR,
495 JKX.EiaCA.N’DZIR
E>bone 2789. - Wp|
Myndir stækkaöar. Myndir settar í ramma.
GleymitJ ekki:
WINNIPEG PICTURE FRAME FACTORY.
E£ P. Cook setur myndirnar ySar í ramma þá verð-
ur það ágætlega gert.
Óskað eftir agentum.
The John Arbuthnot Co. Ltd.
HÚSAVIÐUR, HARÐVARA, GLUGGAR og HURÐIR,
innviöir 1 hús og alls konar efni til bygginga. — Áöur en þér
festið kaup annars staðar ættuð þér að fá að vita um verð hér.
Aðalskrifstofa: Cor. PRINCESS & LOGAN. Phone 588
Útibú: “ ROSS & TECUMSEH-. “ 3700
“ “ ROSSER & PEMBINA, Ft R. “ 1591
i Tlif Hat Portage Lnmlier l'o. i
-r -1—x a 1 mt_n i—v I
LIMITED.
9 AÐALSTAÐURINN til að kaupa trjávið, borðvið, múrlang-
i bönd, glugga, hurðir, dyrambúninga,
rent og útsagað byggingaskraut, kassa ] 1
i og laupa til flutninga. < 1
5 Bezta „Maple Flooring“ ætíð til. (l
ÍPöutunum á rjávið úr pine, spruce og tamarac nákvæmur gaumur gefinn.
Ol_t _________1____• mr__J Tel. 137*
L
Skrifstðfur o» mylnnr i Híorwood.
2343
4210
::
„_______l
SKYRTUR—
»•
Hvað :þær snertir stöndum við
öðrum framar. — Tylftir af nýj-
ustu gerð og litum úr að velja til
íaustsins— stífuð eða óstífuð
brjóst. Mansétturnar áfastar eða
lausar, satt að segja alls konar
gerð. Sniðfallegar, þykk brjóst.
Allar skyrturnar góðar, hvað senj
þær kosta, frá 75C. til $2.25.
KRAGAR—
- «
Við* erum stöðugt að fá inu
kraga. Niðurbeygð horn nú hæst
móðins, við höfum þá með hvöss-
um og ávölum hornum á ýmsri
breidd—tvöfalda kraga með ýmsu
lagi, með slip easy bands, sem er,
fljótlegt að smeygja hálsbindinu t.
Verð tveir fyrir 25C og 3 fyrir 50.
HÁLSBINDI—
Þau eru smáatriði í sögunní,
en þau spila engu síður sína rullu.
—Hálsbindin okkar eru gætilega
valin eftir tizku og smekk. Swag-
ger Ascot, meðal stærðin; reversi-
ble og 4 in hand eru nú þau helztu
Rautt, grátt og blátt eru nýjustu
litirnir—Verð 25C. upp í 75C.
stanfields nærfötin
handa mönnum og drengjum.__
Þau eru búin til úr Nova Scotia
ull og hlaupa aldrei. Eru viður-
kend haldbezt og hlýjust og fara
bezt. \ ið seljum allar stærðir, 32
til 46 handa karlmönnum á $1.50
flíkina. Handa drengjum á 75c.
til $1.25 eftir stærð.
The Alex. Black Lumber Co.. Ltd.
Verzla meö allskonar VIÐARTEGUNDIR:
Pine, Furu, Cedar, Spruce, Haröviö.
Allskonar borðviður, shiplap, gólfborð
loftborð, klæðning, glugga- og dyraum-
búningar og alt semtil húsagerðar heyrir.
Pantanir afgreiddar fljótt. 1
rel. 596. Higgins & Gladstone st. Winnipeg
frederick A. Burnham, forseti.
Geo. D. Eldridge, varraforseti og matsmaður
Lifsábyrgöartélagið,
MUTUAL RESRRVE BUILDING
305. 307. 309 Broadway. Ntw York.
InnborgaS fyrir nýjar ábyrgðir 1905............... #14,426.325,00
Aukning tekjuafgangs 1905.......................... 33,204,29
Vextir og leigur (eftir að borgaður var allur tilkostnaður og skatt-
ar) 4.15 prócent af hreinni innstæðu............
Minkaður tilkostnaður árið 1904.........................8j aoo.oo
ÍBorgað ábyrgðarhöfum og erfingjum 1905................. 3,388,707,00
Allar borganir til ábyrgðarhafa og erflngja frá byrjun ...64,400,000,00
^ Færir menn, með eða án æfingar, geta fengið góða atvinnu. Skrifið til
. Agency Departnaent—Mutual Reserve Building, 305, 307, 309 Broadway, N. Y
| ALEX. JA.WIESON, ráðsmaSur í Manitoba, 411 Mclntyr. Bllc.
**»€€<*s»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»0«
BULLDOG-BUXUR—
%
í hvert skifti og þér kaupiði
bulldog-buxur þá stigið þér sporí
rétta átt. Þær eru búnar til handa
mönnum, sem. vilja fá góða vörui
með vægu verði Á tvær sortir af
þeim viljum vér sérstaklega tenda
yður: Heavy Black Duck með
tweed fóðri, tvisaumaðar—á $2.50
—Heavy Untearable, tweed-fóðr-
aðar með svörtu flannelette, tvö-
föld íseta og hné — á $2.75. Værí
nokkuð betra til en þessar tvær,
tegundir, þá hefðum við þaS til
sölu, en það er ekki til.
Kvenhatta verziun opnuö 28. Sept.
J. F FDMERTON& GO.
Glenboro, Man.