Lögberg - 05.09.1907, Page 1
!; Raturmagnsáhöld.
í ! ViB höfum nú nacgar birgðir af þeim, svo
sem raíurm.sléttijárn $6.50 hvert, rafur-
magns-blævængi $22 hvern, og önDur á-
< > höld, alt í frá aöalskiftiboröinu til glóö- -
j ■ arlampans. Veröiö er lágt. S
Anderson & Thomas,
! > Hardware & Sporting Goods. #
! j 538 MamSt. — Telephone 339 *
r i w
Nú er sumar
og þér þurfið þá á ltælivél að halda. Vér
höfum þæ r ágætis-góðar fyrir $7.00 og
þar yfir. Garðslöngur, garðsláttuvélar,
hrífur o. s. frv, með sumarverði.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
„ S38 Main Str. — Teíephone 889 1
20 AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 5. September 1907.
NR. 36
Fréttir.
Tekjur járnbrautarfélaganna í
Bandaríkjunum hafa aukist feikna
miki« sí«astli8i8 ár (1906,). ÞaB
neniur 235 milj. doll., sem þaer
eru meiri en áritS ábur ('1905J.
Margir hafa spáb Þvi, aö tekjur
þessara félaga mundu minka mjög
i ár þar sem ab ÞatS hefir verib
gert ab lögum í mörgum ríkjum,
a« fargjald fyrir mílu hverja
skyldi ekki vera meira en 2 cents.
iÞetta viríist ekki ætla a« rætast.
Þa« hefir nýlega veriö gefin út
skýrsla um tekjur þeirra þa« sem
af er árinu, og sást Þá a« enn
höföu þær aukist a« mun.
Nokku® hefir verið byltingasamt
á írlandi nú i seinni tí«- Hefir
mest þótt kveía a« þeim í Su«ur-
og Norbur- Langford, en þar á
innan skamms a« kjósa mann á
þing í stað Edward Blake, þing-
skörungsins gamla, sem sagöi af
sér fyrir skemstu. James F. Farr-
ell þingmabur i Norbur Longford,
og Mr. McKanna þingmannsefni í
SuSur-Langford hafa báöir veri®
settir í varðhald ásamt nokkrum
fylgismönnum sínum, og eru þeir
sakaðir a« vera með uppreisnar-
eggjanir. Þeir eru báðir í þjóð-
ræðisflokknum fNationalistarJ
Anarkistar eru að halda fund
meí sér um þessar mundir í
Amsterdam á Hollandi. Stjórn
Hollendinga eru þetta engir au-
fúsugestir og hefir strangt eftirlit
með fundarmönnum, að Þeir ekki
spengi rikisbyggingarnar í loft
upp. Emma Goldman, sú, er hér
flutti fyrirlestur í vetur.hafði sagt
í ræðu, er hún hélt Þar nýlega, að
ekkert nema “vigöld og vargöld”
gæti komið á hollri þjóðfélags-
skipun í Bandaríkjunum. O. T.
Ore heitir forseti fundarins,
belgiskur maður.
Tíunda Ágúst síðastliðinn var
50 ára rithöfundarafmæli norska
skáldsins Björnstjerne Björnson.
Þá voru 50 ár liðin frá því að út
kom Sigrún á Sunnuhvoli, hin ó-
viðjafnanlega fagra sveitasaga.
Með henni má segja, að Hefjist
nýtt tímabil í sagnaskáldskap
Norðmanna. Dag þenna bárust
Björnson fagnaðarskeyti úr öllum
áttum. Hann er enn þá vel ern þó
nær áttræðu sé kominn.
Vér gátum Þess stuttlega síðast
að Tyrkir æddu yfir Persalönd og
eyddu þar bygðina. Nú hafa
stjórnir beggja landanna skipað
nefndir til að rannsaka þetta mál
og soldán lofað að kalla Tyrkjana
út úr Persíu.
Nú i nærri tvö ár hefir Walter
Wellman, fregnritari eins Chicago
blaðsins, verið að undirbúa ferð til
norðurpólsins í loftbát. Hann hef-
ir hætt við það einu sinni vegna
bilana í loftbátn. um- Stöðugt hafa
samt blöðin verið að flytja fréttir
um að Wellman ætlaði að leggja á
stað þann og þann dagmn og að
alt gengi að óskum fyrir honum.
Þegar það drógst von úr viti að
hann legði upp, fóru að heyrast
raddir itm að hann mundi alls
ekki fara og að til þess væru ref-
arnir skornir að láta tala um sig
og blað sitt sem mest. Þessir spá-
dómar virðast ætla að rætast.
Síðustu fregnir herma, að enn
hafi eitthvað bilað í loftbát hans
svo ekki geti orðið af förinni í ár.
Það er að vísu ekkert girnilegt að
sigla norður að pólnum og að því
varð líka André, sænska loftsigl-
ingamanninnum, sem ekkert hefir
til spurzt, en að ginna almenning
með slikum látalátum, sem Well-
man þessi virðist sekur um, ætti
engum að haldast uppi.
Englendigar hafa nýlega hleypt
af stokkunum nýju herskipi sömu
stærðar og drekinn Dreadnaught.
Það var ekki nema átta mánuði í
smíðum og er það óvanalega stutt-
ur tími. Herskipssiníð hefir áður
vanalega staðið yfir í iýá—2 ár.
Vatnsflóð hafa gert mikið tjón
á Japan rétt nýlega, hafa þau brot-
ið brýr, sprengt jarðgöng járn-
brautarlesta og heft samgöngur
allvíða. I Tokio hafa um sjötíu
og niu þúsund manna orðið hús-
viltir af þessum sökum.
Witte greifi, maðurinjn, sem
fyrir fjórum árum síðan var vold-
ugastur í Rússaveldi næst keisar-
anum, hefir nú að því er sagt er
tekið að sér ráðsmannsstöðu við
stórbanka einn í Rússlandi og sýn-
ir það berlega, að Witte hefir lík-
lega fyrir fult og alt afráðið að
hætta að gefa sig við stjórnmál-
um.
Brydda kvað nú á allískyggi-
legum óeirðum í Argentina lýð-
veldinu i Suður Ameríku. Upp-
reistarmenn hafa gripið þar til
vopna en engar nánar fréttir enn
komnar af uppreisinni, þegar
þetta er ritað.
Vér gátum um það nýlega, að
lokið væri kosningum fyrsta þjóð-
arþings á Filippseyjum, og að
þær hefðu gengið mjög svo i vil
þeirra manna er vilja algeran að-
skilnað nú þegar við Bandaríkin.!
Frá því að kosningunum lauk" hef-
ir merki þvi er uppreistarmenn
börðust áður undir, veriB haldið
mjög á lofti í Manila og víðar þar
á eyjunum. Stjórnin hefir nú gef-
ið skipun um, að hver sá er sjáist
með það opinberlega eða geymi
það í heimahúsum, skuli sæta alt
frá $250—$2,500 sektum eð*
fangelsi, þó eigi lengur en
fimm ár. Hyggjast þeir með
þessu þykjast muni geta bælt nið-
ur uppreistaranda þann, er sýni-
lega virðist nú ríkja þar i eyjun-
um. Bandaríkjamenn þeir, sem
þar búa, hafa nýlega haldið fjöl-
mennan fund og látið í ljósi á-
1 ægju sína yfir þessum ákvæðum
stjórnarinnar, og hafa farið hörð-
cm orðum um sjálfstæðisvini þar-
—Er svo að sjá á ýmsum Banda-
ríkjablöðum, að þeim litist eigi
allskostar vel á þessar horfur.
Verzlunarmálaráðgj afinn franslci
hefir látið það uppi á ráðgjafa-
fundi, í París, að verzlunarsamn-
ingur sá, sem lengi hefir staðið til
að kæmist á milli Frakklands og
Canada, sé nú rétt að eins óstað-
festur. Nú stendur að eins á lítil-
fjörlegum smáatriðum, sem búist
er við að ráðið verði til lykta ínn-
an mjög skamms tíma.
----o-----
Svo sem kunnugt er þá veittl
Persasoldán í fyrra þegnum sin-
um hlutdeild í stjórn landsins.
Hefir þar reynst eins og viðar
þegar þjóðirnar fara að eiga með
sig sjálfar, að heldur róstuiamt
vill verða fyrst í stað, meða" þær
eru að læra að neyta þjóðræðisins
Nú krTað vera Þar í landi mesr- ó-
öld; forsætisráðherrann. kvað hafa
verið skotinn til bana á laugarlag*
inn var að kveldinu, er hann kom
af ráðherrafundi. Er nú sagt svo
að engin stjórnmálamaður í Peis u
vilji takn að sér forsætisráðhen a-
stöðuna.
Þegar vér gátum um sektardóm
Standard olífélagsins þá vissu
menn ekki hvort mál yrði haíið
j eða ekki gegn járnbrautafélögum, |
er flutt höfðu vörur þess fyrir of- j
lágt flutningsgjald. Nú er talið
fullvíst að ekkert verði úr málsókn'
gegn þvi félagi vegna þess, að það
hafi verið því félagi að þakka að
sektum varð komið fram við
Standard olíufélagið. Reiknings-
bækur járnbrautarfélagsins voru
lagðar fram í réttinum.
Einn San Francisco sögudólg-
urinn, L. F. Glass að nafni, hefir
verið dæmdur sekur fyrir að hafa
mútað bæjarfulltrúunum til að láta
félag það, er hann var varafor-
maður í, hafa einkaleyfi til tal-
þráðasambands i bænum. Hann
kvað una dómnum hið versta, og
sækir um að fá mál sitt prófað á
ný.
Hveitimjöl hefir enn þá hækkað
í verði hér í álfu um tíu cent hálf-
sekkurinn. Má því búast við að
brauð hækki i verði i bæjunum
innan skamms.
Þær fregnir berast frá Tangier
í Morocco að síður en svo séu lík-
ur til Þess að uppreist Máranna
verði sefuð með skjótum hætti.
Vitanlega eru það aðallega Frakk-
ar, sem uppreistin snertir enn sem
komið er, eins og lesendur vorir
hafa séð á fréttum þeim er vér
höfum flutt undanfarið um þetta
efni- Þeir ('FrakkarJ hafa hing-
að til haft alt eftirlit í Morocco.
Blöð Frakka sum eru þess mjög
fýsandi, að þeir fái leyfi stórveld-
anna nú Þegar til að taka landið
herskildi, því að litlar líkur eru á,
að uppreistin verði sefuð með öðru
móti. Ef svo yrði má ganga að
þvi visu, að Morocco yrði frá því
eign Frakka. Hvað sem úr verð-
ur þá þykir nú auðsætt að eigi
munið kálið sopið þó í ausuna sé
komið fyrir Frökkum, því að Már-
ar eru afburða bardagamenn
bæði að fornu ®g nýju. Nú hafa
Márar líka fengið sér nýtizku her-
gögn, að þvi er sagt er, og eru þá
því verri viðureignar. Við Casa
Blanca hafa orðið nokkrar smáor-
ustur síðustu viku og Frakkar
ætíð borið hærri hlut.—Morocco-
málið er nú orðið flóknara en það
var áður, vegna Þess að nú eru
tveir orðnir soldánarnir þar. Nýi
soldáninn, Mulai Hafid, sá er
krýndur var hér um daginn, kvað
vera miklu meiri atorkumaður en
gamli soldáninn, Abdul Azzis, og
eindreginn útlendinga óvilnur. —
Raisuli hefir McLean enn í haldi
og engar líkur taldar á því i bráð,
að hann náist þaðan, þvi að her
soldáns hefir nýlega beðið ósigur
fyrir stigamönnum.
[ í verkfallsmáli símritaranna í
Bandaríkjunum virðist fátt hafa
gerst þessa síðustu viku. Talið
liklegt að bráðlega verði komið á
fundum með vinnuveitendum og
verkamönnum, en ekki er búist við
að verkfallinu linni fyr en i fyrsta
lagi 9. eða 10. þ. m.
Samkepnin milli gufuskipafé-
laganna í Evrópu og hér í álfu
heldur áfram. Hingað til hefir
stríðið staðið milli félaga i Banda-
rikjunum og austan við Atlanz-
haf, en nú er búist við að Canada-
gufuskipafélögin verði og að færa
niður fargjöld með skipum sínum.
Á síðasta þingi Breta voru loks
samþykt af báðum deildum Þings-
ins lög um að maður megi kvong-
ast syst-ur látnar konu sinnar. Lá-
varðadeildin hefir nú um fjölda-
mörg undanfarin ár felt nýmæli
þetta- Eitt sinn samþykti lávarða-
deildin það, en þá vanst ekki tími
til að koma Þvi gegn um neðri
deildina.
í fyrradag varð mikið járn-
brautarslys austur við Toronto.
Farþegalest hrökk af sporinu og
biðu þar sjö manns bana, en tvenn
ar tylftir meiddust.
Richard Mansfield, frægur leik-
ari enskur, lézt síðastl. föstudag í
New London, Conn. Hann hefir
verið lasinn undanfarið í sumar og
leitað sér heilsubótar víða, en ekk-
ert dugði. Fæddur var hann í
Helgolandeyju 24- Mai 1857.
Fyrstu leikfrægð sina hlaut hann
i Bandarikjunum, þá lék hann
Prinz Karl í “Alt Heidelberg”. Á
siðari árum hefir hann leikið í
mörgum Ibsens leikjum, en mis-
jafn hefir dómur inanna verið um
það hvernig hann leysti það af
hendi.
Mickelsen talinn at.
Vilhjálmur Stefánsson
heill á húti.
Þær fréttir bárust hingað frá
Athabasca Landing með skipi, sem
nýkomið er frá Fort McPherson,
að skip Mickelsen pólfara hefði
fylst af sjó og væri rétt sokkið
einhversstaðar skamt frá Fort
Anxious. En að Mickelsea sjálf-
ur og Leffingwell og þriðji
maður hefðu lagt norður í höf á
sleðum með hundum fyrir liðug-
um tveinnir mánuðum, en voru
ekki komnir aftur. Eitthvað af
hundunum höfðu komið aftur til
skipsins mannlausir.
Fregn þessa flutti A. Harrison,
enskur maður, er vér gátum um í
vetur að verið hefði með Vilhjálmi
um tima. Hann hafði hana eftir
Vilhjálmi sjálfum.sem var nýkom-
inn til Hercheleyjar frá skipinu,
þegar Harrison fór að noröan.
Þeir sem eftir höfðu orðið við
skipið björguðu öllu úr því tM
lands áður það fylti.
Mickelsen og félagar hans höfðu
farið að leita að landi, sem þeir
bjuggust við að væri norður af
skipinu. Þeir tóku með sér vistir
til sextíu daga en eitthvað sjdtíu
og fimm dagar liðnir frá því þeir
fóru, er síðast fréttist. Þó að vel
geti svo verið að þeir hafi komist
lífs af, þá er þó hitt líklegra, að
þeir hafi týnst.
Nyju ráöherrarnir.
Dr. Pugisley, sem áður var
stjórnarformaður í New Bruns-
wick, og George P. Graham, fyrr-
um fylkisþingmaður í Brockville í
Ontario, hafa nú verið teknir í
Laurier ráðaneytið. Hinn fyr-
nefndi gerður að ráðgjafa opin-
berra verka en síðarnefndur járn-
brautamálaráðgjafa m. m.
Dr. Pugisley hefir sýnt ágæta
stjórnmálahæfileika meðan hann
var stjórnarformaður í New
Brunswick og þá hefir eigi síður
þótt kveða að Graham sem verið
hefir leiðtogi liberalflokksins í
Ontario.
Báðir eru þeir alkunnir sæmd-
armenn og enginn, sem til þekkir,
getur efast um, að þeir muni geta
sér góðan orðstír í þessum nýju
embættum.
Frá tslandi.
Úr bréfi úr Reykjavík höfum
vér frétt þet-ta;
“Björn Kristjánsson kaupmað-
ur og alþingismaður í Reykjavík
slasaðist nýlega. Hann hafði ver-
ið niðri í kjallara í húsi sínu við
efnafræðislegar rannsóknir og |
hafði lampi sprungið framan í [
hann, og hann stórskaðast í and- I
liti. Hann varð blindur í tvo j
daga, en er á batavegi.
Sigurður Jónsson, sá er ritaði j
um óregluna á skrifstofu bæjarfó- í
getans i Reykjavik í vetur, hefir j
verið dæmdur í 150 kr. sekt eða 40 j
daga einfalt fangelsi; auk þess
30 kr. málskostnað og orð hans
dæmd dauð og ómerk.
Svo segir í National Tidende að j
konungsflotinn hafi lagt af stað
frá Reykjavík 10. Ág. vestur og
norður um land. Hafi komið við
á önundarfirði og ísafirði, Akur-
eyri og Seyðisfirði.
Á ísafirði var tekið á móti' kon-
ungi og gestunum með mikilli við-
höfn. Guðm. skáld Guðmundsson
orti kvæði, og Magnús Torfason
sýslumaður og bæjarfógeti mælti
fyrir konungsminni.
Á Akureyri voru viðtökurnar
svipaðar. Konungur og fylgdar-
lið hans reið inn að Hrafnagili og
var þar etið og drukkið og ræður
haldna.
Á Seyðisfirði eintóm veizluhöld
og fagnaður.
Frá Seyðisfirði lagði konungur
á stað heimleiðis 15. Ágústmánað-
ar að kveldi.
Or bænum.
og grendinni.
Mrs. R. W. Chiswell frá Moose
Jaw, Sask. fKristjan ThomsenJ,
er í kynnisferð hér í bænum.
Hliðarspor hefir verið lagt á
William ave. rétt neðan við Isabel
stræti, svo að nú eru strætisvagna-
ferðir mun greiðari orðnar á því
stræti en verið hafa.
Látin er hér i bænum aðíaranótt
föstudags 30. f.m. Mrs. Margrét
Olafsson, McGee stræti. Hún var
jarðsungin næstliðinn sunnudag.
Mrs. M. Paulson, kona M.Paul-
sons ráðsm. Lögbergs, kom heim
aftur að vestan á fimtudaginn var.
Nú streymir sem óðast í bæinn
íolk, sem verið hefir upp í sveit í
sumar.
HaNdór Bjarnason verzlunar-
maður frá Glenboro, Man., kom
til bæjarins á þrið'judaginn var.
Hann býst við að flytja með fjöl-
skyldu sinni hingað til Winnipeg
E. R. Thomas, að 478 Langside,
biður viðskiftamenn sína að af-
saka að hann hafði ekki næga
menn við afgreiðslu í búð sinni á
laugardaginn. Slíkt ætlar hann
ekki að láta koma fyrir aftur.
Svo kváðu bæjarráðsmennirnir
hafa kveðið að orði, að ekki
mundi verða gert við Main street
fyr en næsta vor, hvort sem á því
verða meiri efndir en verið hefir
síðastliðið ár.
Carl J. Olson, sem gengt hefir
prestsverkum í Tjaldbúðinni nú
um nokkurn tíma undanfarið, hélt
suður til skólans,— Gust. Ad. Col-
lege í St. Peter, Minn.,— síðast-
liðinn þriðjudag. Hann útskrifast
þaðan næsta vor.
Runólfur Fjeldsted, guðfræðis-
nemi, var hér í bænum nokkra
daga um síðustu helgi. Hann
fór suður til Minneota. Ætlar að
þjóna þar söfnuðum séra Björns
B. Jónssonar, er nú mun ætla inn-
an skamms að byrja á fjársöfnun-
um (Tyrir skólann fyrirhugaðaj,
sem hann var ráðinn til á síðasta
kirkjuþingi.
Bjarni Þorsteinsson myndasmið-
ur, er bjó síðast hér í bæ á Lang-
side str., flutti í vikunni sem leið
með fjölskyldu sína til Selkirk og
bjóst við að setjast þar að fyrst
um sinn og stunda myndasmíði*
Hann nam þann starfa í Kaup-
mannahöfn og hefir fengist vi*
myndasmíði hér í bænum upp á
síðkastið og unnið hjá myndasmi*
sem íslendingar hafa haft töluverð
skifti við.
Einar Hjörleifsson leggur innan
skammj í fyrirlestraferð vestur til
Kyrrahafsstrandar. Koma ætlar
hann og við í íslenzku nýlendun-
um í Alberta og Saskatchewa*.
Óþarfi virðist að benda mönnum á
að sækja fyrirlestra hans. Hann
er tvímælalaust bezti fyrirlesarinn
er vér íslendingar eigum, enda
skemtun hin bezta að hlusta á
hann- Og líklega verður þess largt
að bíða að vér eigum svo góðum
langt að komnum gesti að
fagna. Vér munum í næsta blaði
segja nánar frá hvernig hann ætl-
ar að haga ferð sinni.
Á mánudaginn var 2. þ.m. var
haldin verkamannahátiðin fLabor
DayJ eins og venja er til. Að
morgni fylktu verkamannafélögin
hvert undir sínu merki og gengu í
skrúðgöngu um helztu götur bæj-
arins, en lúðraflokkar léku undir.
Síðdegis voru allskonar kappleikir
haldnir í Happyland og skemti-
görðunum kring um bæinn, en um
kvöldið fjölmentu menn mjög í
leikhúsin. Það kveld var i fyrsta
skifti leikið i Winnipeg-leikhúsinu
eftir sumarfríið.—Þar leika næsta
vetur flestir sömu leikendurnir,
sem gátu sér þar svo góðan orðstír
í fyrra.
VINNUKONUEKLAN.
fAðsentJ.
Mjög kvarta íslenzkar húsmæð-
ur hér í bæ yfir því, hve erfitt sé
að fá íslenzkar stúlkur til að taka
að sér vinnukonustörf. Flestar
vilja stúlkurnar heldur vinna á h®-
telum eða í Þvottahúsum, þar sem
meira kaup er í boði að jafnaði og
er það ef til vill ekki láandi. En
hitt mætti þó minna þær á, að þá
er þær taka sjálfar viö húsmóður-
störfum,er viðkunnanlegra að þær
kunni fleira en að búa um rúm á
hótelum eða vinna með vélum í
þvottahúsum. Fyrsta skilyrðið til
þess að ungar stúlkur geti orðið
vel hæfar húsmæður, er það að
þær kupni að búa til mat og fara
með börn. En slík kunnátta fæst
að eins með því að vinna i vistum
hjá góðum húsmæðrum og hæfum,
sem nú eru margar orðnar meðal
landa hér í Winnipeg. Svo ramt
er nú farið að kveða að þessari
hótela- og verksmiðju eftirsókn á
meðal ísle.izkra stúlkna, að jafn-
vel nýkomnar stúlkur frá íslandi
hafa þegar orðið herteknar af
henni hér eftir fárra daga dvöl
hér, eftir áeggjan þeirra sem hér
eru fyrir. Þetta er að mínu áliti
öfugur hugsunarháttur, þvi þó
girnilegt sé, fljótt á litið, að fá
hátt kaup til að geta búist vel og
fagurlega, þá er þó hitt meira um
vert fyrir hverja unga stúlku, að
vera búin að fá æfingu í innanhús-
störfum áður en hún þarf aö taka
við þeim sem húsmbóðir. Og
vil eg alvarlega benda ís-
lenzkum stúlkum á að hugleiia
þetta vandlega.