Lögberg - 18.03.1909, Blaðsíða 4
4-
IvGGBERG, FIMTUDAGINN 18. MARZ 1909.
IJ'tfgbcrg
er gefíð út hvern fimtudag af The Lögberg
Printing & Publishing Ce., (löggilt), að Cor.
William Ave. og Nena St., Winnipeg, Man. —
Kostar $2.00 um árið (á fslandi 6 kr.). — Borg-
ist fyrirfram. Einstök nr. 5 cents. ‘ZH
Published every Thursday by The LÖgberg
Printing & Publishing Co., (Incorporated), at
Cor. William Ave. & Nena St., Wihnipeg,
Man. — Subscriptjon price $2.00 peryear, pay-
able in advance Single copies 5 cents.
S. BJÖRNSSON, Editor.
J. A. BLÖNDAL, Bus. Manager
Auglýsingar. — Smáauglýsingar Tí eitt
skifti 25 ce.nt fjrrir 1 þml. Á stærri auglýsing-
um um lengri tíma, afsláttur eftir samningi.
BústaOaskifti kaupenda verður að. til-
kynna skriflega og geta um fyrverandi bústað
jafnframt.
Utanáskrift til afgreiðslustofu blaðsins er:
The LÖGKERG PRTG. & PUBL. Co.
Winnlpeg, Man.
P. O. Box 3084.
TELEPHONE 22 1.
Utanáskrift til ritstjórans er :
Editor Lögberg,
P. O. Box 3084. WiNNipee, IMan.
Samkvæmt landslögum er uppsögn kaupanda
á blaði ógild nema hann sé skuldlaus þegar
hann segir upp. — Ef kaupandi, sem er ( skuld
við blaðið, flytur vistferlum án þess að til-
kynna heimilisskiftin, þá er það fyrir dóm*
stólunum álitin sýnileg sönnun fyrir prettvfs-
legum tilgangi.
Fylkisþingið.
Fylkisþinginu var slitiö fyrra
miðvikudag.
Þingsetutíminn í þetta sinn hef-
ir veriö mun styttri en á nokkrum
síöustu þingum undanfariö.
Stjórninni var áríöandi aö fá
þinginu slitiö sem fyrst, því aö
sjaldan liefir rannsókn á geröum
hennar veriö nauösynlegri eöa bet-
ur á veg komin en nú. En svo
varö að hætta viö hana í miðjum
klíöum.
Stjórnin var auðsjáanlega hrædd
um sig og neytti hvaö eftir annaö
þingmanna meirihluta síns, til aö
hefta rannsóknir á sínum eigin
geröum, og til aö fella tillögur and
stæðinganna um aö halda áfram
viö hálfgerðar rannsóknir.
Liberalar í fylkisreikninganefnd
inni óskuöu síöast eftir því, aö fá
aö halda rannsóknum áfram tvo
eöa þrjá daga, eftir aö þeir kom-
ust aö því, aö slíta átti þinginu io.
þessa mánaðar, en þá var eftir aö
yfirheyra fjölda vitna, sem stefnt
haföi verið til aö gefa upplýsingar
í nokkrum málum, er þá var verið
í óöa önn aö rannsaka.
En þaö fékst ekki.
,‘Stjórnin þverneitaöi, og lét hún
’flokksmenn sína fella þær tillögur.
Stjórnarandstæöingar i fylkis-'
veikninganefndinni hafa annars.
gengiö skörulega aö verki á þessu
þingi. Þeir hafa ósleitilega g^agn-
rýnt ýmsar gerðir stjórnarinnar.
Þó stjórnarmenn i nefndinni
geröu hinum síöur en ekki auðvelt
um rannsóknirnar á ýmsan hátt,
hefir liberölum þó tekist aö draga
fram í dagsbirtuna ýmislegt í
meira lagi krumfengiö, er stjórn-
inni ætti ekki aö haldast uppi
framvegis.
Meöal annars kom þaö i ljós, aö
tvö blöö, “Brandon Times” og
þýzka blaöiö “Germania”, höföu
verið höfð fyrir leppa, til aö dylja
fjárgreiöslu, til aöalflokksblaösins
“Winnipeg Telegram”. í fylkis-
reikningunum- stóö, aö “Brandon
Times” heföi verið greiddir $702.-
60, en viö frekari rannsókn á
plöggum stjórnardeildarinnar sann
aöist, aö af því fé haföi “Winni-
peg Telegram” fengiö $337 og
“Winnipeg Tribune” $49.
mania” heföi fengiö greidda $212-
10, en þegar önnur skjöl í sam-
bandi viö þá fjárgreiöslu voru
rannsökuð, kom þaö upp úr dúr-
unum, aö aumingja “German-
ia“ haföi ekki fengið greidda nema
$31.17 af þessari upphæö. Hitt
hafði fylkisstjórnarinnar ástkæra
Telegram fengiö, í viðbót við all-
ar hinar þúsundirnar, sem því
blaði standa greiddar skýrum stöf-
um i fylkisreikningunum, og ekki
er farið x neina launkofa með.
Annars sannaðist það við yfir-
heyrsluna, að það eru ekkert slor-
leg vilkjör, sem Telegram fær hjá
Roblin-stjórninni. Stjómin borg-
ar þvi fyrir auglýsingu, sem birt
var tniklu sjaldnar en um var
samið.
í því efni varð það uppvíst, að
stjórnin hafði gert samning við
Telegram um að greiða því $3,000
síðastliðið ár fyrir sérstaka aug-
lýsingu, er birta átti í blaðinu í
hvert sinn, er það kom út á árinu.
Vitni sóru þaö, aö blaöiö hefði
komið 314 sinnum út árið 1908, og
184 sinnum á því tímabili hefði
áðurgreind auglýsing ekki veriö
birt í því, eöa ekki fullan helming inu
af tilskilda tímanum. Eigi að
síður greiddi stjórnin blaðinu áö-
ur umgetna $3,000 og annað
tveggja lét eins og hún vissi ekki,
eða skeytti ekki u,m að líta eftir
því, hvort blaöið stæöi viö samn-
ingana eða ekki. Telegram fékk
því þarna $1,500 fyrir ekki neitt—
eða beinlínis gefins.
Lóðarkaupin alræmdu undir tal-
þráöabvgginguna og $900 dúsan,
sem C. H. Forrester fékk, hefir og
verið gagnrýnd, sömuleiöis ein ný
hneykslis-landsala fylkisstjórnar-
arinnar. Sú sala er þannig vaxin,
að stjórnin losaði fylkiö viö 16,000
ekrur af löndum í eitiu lagi, og
seldi þetta litla landflæmi í Uknar-
höndur Thomas nokkurs Guinan,
ráðsmanns Red River Valley land-
félagsins, og fór sú sala fram í
Maímánuði 1908. Guinan borgaöi
stjórninni aö eins $5,272.80 í byrj-
unargreiðslu, en seldi landið alt
fáum mánuðum síöar, eða fyrir
Septemberbyrjun, og sumt af því
væri,
meö
svo til, aö
hefir aldrei
að nefnd yrot sxipuð til að rann-
saka það mál. Þegar Mr. Norris
hóf máls á þessu, gekk stjórnar-
formaður brott úr þingsalnum og
lét ekki sjá sig þar meðan Mr.
Norris var aö tala. — Eins og til
var ætlast af stjórninni var tillaga
Norris feld, og skiftust atkvæði
algerlega eftir flokkum, stjórnar-
menn móti en stjórnarandstæðing-
ar meö.
Daginn eftir, rétt fyrir þingupp-
sögn, bað Mr. Roblin sér hljóðs,
og bar fyrir sig málamyndavörn í
sandmálinu.
íí þessari vörn sinni lagði stjórn
arformaðurinn sérstaklega áherzlu
á það, að hann og féiagar hans í
sandgróða fyrirtækinu hefðu ekki
sætt neinum ívilnunarkjörum hjá
C. N. R. félaginu. En hins vegar
þóttist hann hafa fulla heimild til
að reka sand-úim'«eíj eöa hvaöa
annað business, sem
stjórnarformenskunni.
En nú vill einmitt
stjórnarformanninum
verið hallmælt um þetta tvent, sem
hann er fjölorðastur um í varnar-
ræðu sinni. Þau atriöi koma mál-
ekkert viö. En honum hefir
verið borið á brýn, að hann hafi
notað vald sitt sem stjómarfor-
maöur og járnbrautamála ráðgjafi,
til að útvega C. N. K. félaginu á-
byrgð fylkisins, svo að bygöir
yrðu brautarstúfar, er hann heföi
haft fjárhagslegan hag af aö
lagðir væru.
Stjórnarformaðurinn bar ekki á
móti því, aö hann heföi átt hluti í
sandnámunum, sem andstæðingar
hans voru að vitna til. Hann
kvaðst jafnvel eiga hlut í einni
þeirra enn þá. Ekki bar hann
heldur á móti því, að fylkiö hefði
gengið í veð fyrir brautarstúfa að
námum þessum. En hann striddi
mikið við aö sýna, aö fylkisbúar
heföu haft hag af þvi, aö brautar-
stúfarnir heföu veriö lagðir aö
sandnámum þeirra félaga. Um þaö
eru þó mjög skiftar skoöanir, meö
því, að ekki hefir verið flutt ann-
að en sandur og möl eftir sumum
stúfunum, og um einn brautarkafl-
ann fórust þingmanni einum svo
orð á þinginu, aö C. N. R. félagið
heföi beinlínis neitað að flytja vör-
Menjagripur.
Mynd þessi er af drykkjarhorn;,
sem nokkrir Islendingar í Winni-
peg hafa gefiö skáldinu Stephani
G. Stephanssyni. Þaö er af vís-!
undi vestan úr Alberta, svart aö
lit, vel skygt, 12 þumlunga langt
en 7 þumlunga hátt. Þaö er fag-
urlega búiö silfri, sem sjá má.1
Fangamark skáldsins, St. G. St.,
er markaö ránutn á þann barm
hornsins, sem sér á myndinni, en
á hinn barminn er grafið; Vina-
minni. Nokkru neöar er mynd af,
dreka og fornum vopnum og á
miðhringinn er letraö: Winnipeg,
1909. Silfurskjöldur er á þeirri
hliö hornsins, sem ekki sézt á
myndinni. Þar er þetta grafiö:
fyrir réttum helmingi hærra verð
. , , ,,. ur fyrir bændur eftir þessum braut
en hann haföi keypt og græddi
$30,000 á kaupunum. Það er dá-
fallegur skildingur á ekki lengri
arstúf.
Öll varnarræöa stjórnarfor-
tíma.— Sannarlega eiga þeir menn jmannsins var afar vandræðaleg og
gott, sem komast upp á það kram- virtist helzt vera vesaldarlegur
búðarloftið að eiga kaup viö RoÞ ; vægðarbónarbragur á henni, sem
lin-stjórnina um fylkislöndin ;, þó er ólíklegt aö fylkisbúar taki til
Manitoba. — Ekki er svo að sjá, “reina-
aö Guinan þessi hafi samt veriö i Auk þess hnýtti stjórnarformaö-
neinn gustukamaöur, því aö hann urinn þessari vörn sinni aftan í all-
játaöi þaö viö yfirheyrsluna, aö!ar umræöur, þegar hann vissi, að
hann væri svo efnaður, aö hann ] hann þurfti eigi aö óttast andmæli
hefði fé til að “fleygja á eld”, ef! samþingsmanna sinna, og bendir
svo vildi verkast.
■•‘SBS*
í fylkisreikningunum stóð enn
fremur, að þýzka blaðið “Ger-
Mr. T. H. Johnson, þingmaöur
í West Winnipeg, hefir gengiö öt-
ullega fram í að gagnrýna geröir
fylkisstjómarinnar, eigi sízt er
hann starfaöi i fylkisreikninga-
nefndinni. Hann hefir yfirheyrt
þar fjölda vitna og fórst það vel
og myndarlega, eins og vænta
mátti. Mr. Johnson er nú viður-
kendur að vera einhver lang at-
kvæðamesti þingmaöur minnihlut-
ans, að áliti flokksbræðra sinna ís-
lenzkra og enskra.
þaö ekki á höfðinglegt hugrekki
eöa góöan málstað.
Bókafregn.
Þorbjörg Sveinsdðttir,
IjðsmðSir. Minningar-
rit. Hið islenska kven-
félag gaf út. Reykja-
vlk 1908.
Þorbjörg sáluga Sveinsdóttir,
Ijósmóðir í Reykjavík, var einhver
mesti kvenskörungur, sem uppi
hefir verið á íslandi um langan
aldur. Hún var systir Benedikts
heitins Sveinssonar sýslumanns og
Sand-ÚMiineíí Roblins stjómar- honum í mörgu lík og einkar sam-
formanns hefir verið pætt allmikið rýmd. Hún hafði mikil afskifti af
undir þinglokin. Nú síðast hélt stjórnmálum íslands og öðrum al-
Mr. Norris, liberal þingmaður, ít-! mennum málum. Hún var kvenna
arlega ræöu um öll sandgróöa fyr- mælskust og talaði oft á mannfund
irtæki stjórnarformannsins, og bar 'um í Reykjavík og hún þótti mesttx
fram tillögi: fyrra þriöjudag um ráða um kosningu alþingismanna
þar í höfuðstaðnum. Hún var
fædd 1828 en dó í Reykjavík 6.
Janúar 1903. Þar hafði hún gegnt
ljósmóðurstörfum í rúm 40 ár og
farist það mætavel.
Rit það, sem að ofan er nefnt,
hcfir hiö íslenzka kvenfélag gefi*
út til minningar um Þorbjörgu
sálugu, því að hún var stofnandi
þess og forseti um mörg ár.
I ritinu er æviágrip Þorbjargar
eftir Eirík meistara Magnússon í
Cambridge. Þar er m. a. skýrt
frá þeim tveim málum, sem hún
hafði mest afskifti af, en það var
Elliða-áa máliö og kvenréttinda-
máliö.
Þá eru kveðjuorö við jaröarför
Þorbjargar, eftir Þórhall biskup
Bjarnarson og ritgerð eftir frú
Jarþrúði Jónsdóttur um “Blóm-
sveigasjóðinn”, sem svo er nefnd-
ur, en hann er svo til orðinn, aö
Þorbjörg sáluga lagði svo fyrir,
að eigi skyldi gefa blómsveiga á
kistu sína, en ef menn vildu gefa
andvirði þeirra í peningum, skyldi
því safnaö í sjóö til styrktar fá-
tækum sængurkonum í Reykjavík.
Þetta var gert og er svo til ætlast,
að andvirði þessa rits gangi alt til
“Blómsveigasjóðsins”.
1 ritinu eru enn fremur erfiljóö
eftir Einar Benediktsson, Matth.
Jochumsson og Guöm. Guömunds-
son, og fremst er ágæt mynd íf
Þorbjörgu sálugu.
Ritið er að öllu leyti eigulegt,
og mun víða verða keypt.
Fréttir frá íslandi.
Reykjavík, 13. Febr. 1909.
Tóvinnuvélahúsið i ólafsdal
brann nýlega til kaldra kola meö
tóvinnuvélunum og öllu sem inni
var. Húsið var liðlega 10 ára gam
alt, tvílyft og vandaö, voru og vél-
arnar allar góðar. öllum er ókunn
ugt um hvernig eldurinn muni
hafa komiö upp.
Embættispróf í málfræöi hefir
Gunnar Egilsen tekiö við Hafnar-
háskóla með 2. einkunn.
J
Embættispróf viö læknaskólann
hafa þrir menn tekið 8. þ. m.:—
Magnús Pétursson og Guömundur
Guðfinnsson 1. eink., og Gunnl.
Þorsteinsson TT. eink. betri.
Bjór færi ek þér,
brynþings apaldr!
Magni blandinn
ok megintíri.
Fullr er hann ljóöa
ok líknstafa,
góöra galdra
og gamanrúna.
Stikill hornsins er lagöur 9 silf-
urhringum samfeldum og hnúöurá
enda. Baugarnir tákna Draupni,
en honum fylgdi sú náttúra, aö af
honum drupu 8 hringar jafn höfg-
ír ina níundu hverja nótt.
G. Thomas, gullsmiöur, bjó
hornið, en Þþrsteinn skáld Þox-
steinsson geröi uppdrátt aö því.
Það er hinn bezti gripur, og óska
vinir Stephans skálds aö hann
megi njóta þess vel og lengi.
Riddarar af Dannebrog eru þeir
orðnir: séra Árni Jónsson á Skútu-
stöðum, Guðjón Guðlaugsson fyrv.
alþ.maöur, séra Kjartan Einarsson
í Holti, og Pétur Jónsson alþm.
á Gautlöndum.
1
I
Magnús Pétursson er settur
læknir í Strandasýslu.—Reykjavik
\
, Reykjavík, 10. Febr. 1909.
Ásgrímur Magnússon bóndi í
Geldingaholti í Skagafjarðarsýslu
gaf Seiluhreppi í haust sem leið
t,ooo kr. með þeim formála aö
þær skyldu vera á vöxtum i söfn-
unarsjóði þar til þær væru orðnar
1 milj. kr., en J)á á aö verja vöxt-
unum til búnaðarframfara i hrepp-
inum.
Frá Vestmannaeyjum er það
sagt, aö aldrei hafi litiö þar betur
út meö aflabrögð en nú. Einn
vélarbátur búinn aö fá 3,000 og
fleiri nálægt því.
Af ísafirði er einnig sagöur
góður afli. — Lögrétta.
' 1
Reykjavík, 12. Febr. 1909.
Dáinn er snögglega hér í bæn-
um 8. þ. m. Pétur Biering verzl-
unarmaöur, — fanst örendur upp
á túnum. Hann var sonur Moritz
W. Bierings kaupmanns er fórst
undir Svörtuloftum fyrir meir en
50 árum (Eaustiö 1857J meö konu
sinni og 2 börnum. Var Pétur
heit. þá á barnsaldri, ffæddur 18.
Marz 1849J °S sömuleiðis bróöir
hans Hendrik, síöast verzlunar-
í Borgarnesi, og látinn fyrlr nokkr
um árum.
í
Séra Hafsteinn Pétursson, er
, hingað kom meö Sterling, sækir
i um annað prestsembættiö hér í
höfuöstaðnum. Umsækjendur um
þaö verða eflaust margir áöur en
lýkur, en meö þvx aö umsóknar-
fresturinn er til loka þ. m., er ekki
enn séð hve margir þeir veröa.
Meðallandi 28. jan. — “Hér ber
I fremur fátt til tíðinda; heldur
: kranksamt; illkynjað kvef og kvill
ar ýmsir, svo sem lungnabólga, o.
s.frv. Fólk dáiö í flesta lagi hér
nærlendis næstliöiö ár; eru sumir
þeirra nafnkendir menn, og leyfi
eg mér aö nefna nöfn nokkurra
þeirra: Guölaug Hákonardóttir yf
irsetukona vor Meöallen'dinga;
Sigurður Nikulásson, er bjó á
Þykkvabæjarklaustri á Álftaveri;
Sverrir Magnússon, er var síöustu
ár æfi sinnar í Álftaveri og bjó
lengi hér í Meöallandi, skýr maö-
ur og skáldmæltur; var mörg ár í
The DOMINION BANK
SELKIRK CTIBUIÐ.
Alls konar bankastörf af hendi leyst.
Sparisjóösdeildin.
TekiP við innlögum, frá $1.00 aB upphæO
og þar yfir Hæstu vextir borgaðir tvisvar
sinnum á ári. Viðskiftum bænda og ann-
arra sveitamanna sérstakur gaumur gefinn.
Bréfleg innlegg og úttektir afgreiddar. Ósk-
að eftir bréfaviðskiftum.
Nótur innkallaðar fyrir bændur fyric
sanngjörn umboðslaun.
Við skifti við kaupmenn, sveitarfélög,
skólahéruð og einstaklinga með hagfeldum
kjórum.
d. GRISDALE,
bankastlórl.
hreppsnefnd og oddviti nokkuni
tíma. — Af Síöunni eru helztu
mannalát nú kunn: Páll Stefáns-
son á Hörgslandi, gamall maður
og bjó þar allan sinn aldur; Stef-
án sonur hans, efnismaður á bezta
aldri, og Eyjólfur Guömundsson
bóndi á Á. í Fljótshverfi gamall
maöur, Sveinn að nafni, bróöir
Ragnhildar konu Ingimundar heit.
hreppstjóa í Rofabæ. í Land-
broti: Jón Jónsson, bjó í Hraun-
koti, og hér í Meðallandi nú siöast
Guömundur Eyjólfsson, er bjó all-
an og langan búskap á Grímsstöö-
um í Meðallandi. — Tíðarfar var
hér gott næstliðið sumar, og g(ras-
vöxtur í meöallagi, en eftir 10.
Sept. brá til rosa og rigninga og
varö úti hjá allmörgum hey, er
slegið var eftir þann tíma. Tíö-
arfar hefir oftast veriö fremur
milt þaö sem af er vetri, frostlítiö
og snjólétt. — Hiö mesta aftaka-
rok, er menn muna, varö hér hinn
29. Desember; ekki varð þaö samt
alment stórkostlega aö tjóni i þess-
um næstliggjandi bygðarlögum.
Þó fauk af hlööu hér í Meðallandi
á Ytri-Lyngum, og annari í Land-
broti. En svo fer það aö veröa
meira, þegar kemur út i Mýrdal
og lengra vestur.” —Þjóðólfur.
Akureyri, 30. Jan. 1909.
Nýlega eru dánir vestur í Fljót-
um 2 bændur; Jón Ingimundarson
í Höfn og Pétur Jónsson á Gauta-
stööum, áöur bóndi á Sléttu. —
Norðurland.
I
Reykjavik, 17. Febr. 1909.
Skrifstofustjóri á alþingi er nú
Einar Hjörleifsson. Skrifarar hjá
honum séra Hafsteinn Pétursson,
Einar Þorkelsson og stúd. Vilh.
Knudsen.
Ræöuritarar i deildunum stú-
dentarnir Páll E. Olason og Pál!
Sveinsson ('neörij, og kandídat-
arnir Guöm. T. Hallgrimsson og
Björn Þóröarson ('efrij.
Flokksstjórn sjálfstæðismanna
(24) þennan þingtíma skipa:
Björn Jónsson ('form.J, Siguröur
Stfefánsson fskrif.J, Bjami Jö|ns-
son frá Vogi, Siguröur Gunnars-
son og Skúli Thoroddsen. —Fyrst
voru kosnir degi fyrir þingsetn-
ingu þeir Hannes Þorsteinsson og
Kristján Jónsson, en gengu úr
stjórnarnefndinni, er þeir uröa
forsetar, og voru þá kosnir í staö
þeirra þeir B. frá Vogi og Sigurö-
ur Gunnarsson. — ísafold.
Fréttabréf.
Brown, 15. Marz 1909.
Herra ritstjóri Lögbergs!
Héöan er fátt aö frétta nema
heilsufar er hiö bezta meöal okkai
Ianda. Uppskeran í haust var héi
hin bezta, aö jafnaöi 18 til 25 bush
af hverri ekruu Einn maöur fékl
53 bush. af fimm ekra stykki. 1
vetur hefir tíöin veriö hin ákjós-
anlegasta, snjór heldur lítill,, nóg
fóöur og skepnuhöld góö.
Hér er veriö aö byggja stórl
félagshús. Tvö pósthús eru hér 1
Mrs. M. Williams
702 Notre Dame
Hattasalan byrjuð. Allar nýjustu teg-
undir af vor-höttura. Mjög mörg sýnis-
horn úr að velja. Komið og leyfið oss
að sýna yður hvað vér höfum að bjóða
og hvernig verðið er. Einnig mjög
fallegt úrval af ..toques" handa mið-
aldra kvenfólki.
Vinsœlasta hattabúð í
WINNIPEG,
Einka umboösm. fyrir McKibbin hattan
idMmm
364 Main St. WINNIPEG.