Lögberg - 19.08.1909, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. ÁGÚST 1909.
——» v -
7
HINAR BEZTU
TRÉ-FÖTUR
hljóta aö týna 'gjöröunum og falla í stafi.
Þér viljiö eignast betri fötur, er ekki svo?
Biöjiö þá um fötur og bala úr
EDDY’S FIBREWARE
sem eru úr sterku, hertu, endingargóöu efni,
án gjaröa eöa samskeyta,
Til sölu hjá ölhim góöum kaupmönnum.
Biöjiö ávalt og alls staöar í Ca"hada um
EDDYS ELDSPÍTUR
Fyrsta deilan.
fEftir Inu Stockenstrand.J
Þeim haföi oröiö sundurorða
fyrsta skifti. Þau höföu hvorki
talast lengi viö eða fariö í háreysti,
en hún hafði setiö föst viö sinn
keip og hann líka; svo hafði hann
lagt af stað til skrifstofu sinnar,
fariö án þess að kyssa hana og
veriö þungbrýnn og illilegur á
svip. Henni féll það sárast, hve
fljót hún hefði orðið til þess að
rjúfa þann einlæga ásetning, sem
hún hafði sett sér, að láta aklrei
koma til rifrildis milli þeirra
hjónanna fhún kallaði það nöldur
meðan þau voru trúlofuðj, þvi að
hún vissi það hefði ill eftirköst.
Þaö hafði einlivern veginn auk-
ist orð af orði í dag, hún hafði
ekki getað stilt sig um að segja
mörg smávegis illyrði, sem henni
komu í hug, þó að hún segði þaui
ekki af sannfæringu; en hún vildi
sanna, að hún hefði á réttu aö
standa. Alt haföi þetta hlotist af
ótætis eldabuskunni, henni Júlíu,
sem ekki var unt að komast af án.
Hún hafði verið afundin hvað eft-
ir annaö, sv^ að Maria hafði farið
fram á það við manninn sinn, að
segja henni upp vistinni. Og
þetta Iítilræði varð til þess, að
koma þeim hjónunum í i!t skap,
eins og hjónaskilnaður stæði fyrir
dyrum.
Maria grét fögrum tárum í legu
bekknum, eins og hún viidi trúa
svæflinum fyrir því, að Emil hefði
enga ástæðu haft til að taka þessu
svona þunglega. Hann hafði sagt
að Júlíu væri margt vel gefið. Það
var satt, henni fó>rst vel að búa til
góðan mat, en húsmóðirin átti þó
liklega ekki að þola henni óvin-
gjartileg svör og útúrsnúninga í
hvert skifti, sem hún þurfti að
segja henni fyrir verktun. "Eg
vil láta virða mig,” sagði María,
en þá hló Emil — henni fanst það
hæðnishlátur. En eftir á þóttist-
hún sannfærð um, að hann hefði
að eins ætlað að stríða sér með
hlátrinum. Hún efaðist auðvitað
um, að hún gæti látið vinnukon-
tuna virða sig. Hún var að óska
eftir annari, sem hún gæti reynt
sig á, — hún mátti ekki vera eins
mikil fyrir sér og skapföst eins og
Júlía. Hún vildi hafa tögl og
hagldir og ekki alt of náin kynni.
En Emil haföi sagt, að þaö gæti
ekki komið til nokkurra mála að
skifta, hún yrði að hafa Júlíu, þaö
væri ekki að \vita, að önnur betri
fengist. Honum< var létt um mál.
Honum hafði ekki verið svarað.
Hann var vanur aö sjá óskir sínar
rætast og vjldi aldrei brjóta odd
af oflæti síiTu.
Henni fanst virðing sinni mis-
boðið. Hún rifjaði «pp hvert orö,
sem hann hafði sagt, og gerði úlf-
alda úr mýflugu, og fann nýja og
nýja orsök til að ergja sig yfir.
Hvernig skyldi sambúöin veröa úr
þessu? Voðaleg! Hún tólc aftur
aö gráta, og sagöi fyrir munni
sér: “Þrátt, deilur og þung orö.”
. 1
Hver vissi, nema hann hætti alveg
að elska hana, úr því aö hann
vildi ekki gera þaö, sem henni var
þægð í? Ástin gat ekki verið sam-
vistum við sundurlyndið. Hún
hafði í marga daga verið tauga-
veikluð og dauf án þess að vita
orsökina til þess. Það var auðvit-
að fyrirboði. Ást hans var farin
að dofna, dofna eftir eina sex
mánuði! Tárin fóru enn aö
streyma.
Tárin runnu í svæulmn á legu-
bekknum. En menn geta líka
þreyst á grátinum. Frú Maxía
þerraði augun, þvotfi sér úr köldu
vatni og gekk út í eldhús, þvi að
henni leiddist einveran. Júlia var
þó betri en ekkert, þó að vond
væri.
Hún stóð við þvottaborðið og
horVöi stúrin á sprungiö steikara-
fat. Nefbrodduirinn var eldrauð-
ur eins og vindill, sem nýskeð
hefir verið kvéikt á, og hún horfði
ógnandi niður i þvottabalann.
Mariu fanst sér ofaukið og iðrað-
ist komu siivnar. En af því að
það var ekki satnboðið virðing
hennar að fara svona strax, vildi
hún lieldur ekkert skifta gínumöx
hún heldur en ekkert skipa eitt-
hvað fyrir um miödegismatinn.
“Það er líklega bezt, Júlía ntín,
að viö tökum leifamar síðan í gær
og svo sagógrjónasúpu í miðdegis-
matinn“-------—Málrómúrinn var
góðlegur, en þegar Júlía sneri sér
við — andlitið var stórt og augun
reiðileg — reyndi María að hafa
á sér einhvern svip, því að' hún
rmindi eftir hvaö hún hafði sagt
um virðinguna.
Júlia leit til skiftis á kaffikönn-
una, sem ætlaði að sjóöa út úr, og
á Maríu og sagði með angri og
iðrun:
“Ó, frúin getúr ekki trúað hvað
eg er hrygg yfir því, sem eg sagði
í morgun, og yfir þvi, að frúin og
mnöiiirinn skýldu fýerða ósátt iit
af mér. Eg vildi ekkert ilt með
þessu. Yður er óhætt að trúa því.
Lítið þér á, mér líður líka illa —
kærastinn minn hefir yfirgefið
mig og er kvæntur annari stúlku.
Hugsið þér um það, frú, hvað það
er þungt, að missa eina manninn,
sem mér þótti vænt um. En frúin
getur líklega ekki sett sig j mín
spor.”
María kom þjótandi og vafði
handleggjunum utan um axlir
Júlíu. Hún gleymdjf því, sem í
milli hafði borið, gleymdi virðing
sinni, og mundi það eitt, að þær
stóöu jafnt að vígi i sorgum sín-
um.
“Mér hefir liðið ákaflega illa,
hér, frú, af því aö það er erfitt, aö
bera alt ein. Þaö er miklw léttara
að geta talað viö einhvern um
það.”
María lagði höfuð sitt að breiðu
'brjósti Júlíu. Hún gat engu oröi
upp komið um sorgir sinar, en
henni fanst styrkur að þessu.
Hver veit nema það hafi veriö
bezt að svona fór, Júlía; hann hef-
ir líklega ekki veriö góðttr maö-
ur.”
“Mér er sama hvernig hann var;
mér þótti vænt um hann og eg
hefði Ieitt hann á rétta leið. Það
mátti ýmislegt að honum finna og
að mér líka; en stirðir geðsmunir
eru ekki ólæknandi. Mér finst al-
veg eins og menn gangi í endur-
nýjungu lífdaganna við hjóna-
bandið; j>að er ný veröld, frú, sem
menn eiga ekki að flytja ókosti
sína inn i. Eg þakka frúnni, að
hún er mér ekki reið. En Htið þér
á, vinnukona getur líka átt sér
sorgir og áhyggjur.”
María fór skjálfandi að sýsla
við silfur borðbúnaðinn. Henni
var þungt fyrir hjarta; hér bauðst
henni samkend, þó að úr fátæk-
legu brjósti kæmi. Hún feldi var-
irnar fast saman og deplaði augna
lokunum til aö hindra tárin. Ef
Emil yrði ófús til sátta, þá gat
hún ekki beðið um ást hans, og —
JúJia horfði á ungu konuna með
hughreystandi móðurlegu brosi.
*4Hver, sem náð hefir í vin, sem
henni þykir vænt um, frú, hún
þarf ekki að kviða neinum óþæg-
indum. Ef J>eim kemur eitthvað
illa saman, gleymist það undir
eins, ef eitt vingjarnlegt orð er
sagt. Okkur Sören varð oft sund-
urorða, en þó hann heföi barið mig
eins og harðan fisk, þá skyldi eg
hafa gert mitt til að koma öllu i
samt lag aftur. Það er víst satt,
frú, að. ástin er okkur meira viröi
en karlmönnunum. Þess vegna
verðum við að gera alt til að varö-
veita hana. Nú er talsímabjöll-
unni hringt. Þaö er sjálfsagt mað-
urinn yðar. Viö höfum vist steik
og kálmeti í miödegismatinn, og
búðing; manninum yöar þykir
hann góður.”
“Halló! Ert það þú, Emil? —
“Jú, auðvitað geturð-ui komið með
gamla vin þinn heim, þið þurfið
ekki að borða annarstaðar. Við
ætlum að búa til uppáhaldsréttina
þína. Júlía vildi að-------” “Nei,
við erum beztu vinur, sem til eru
undir sólinni. Þú varst ofurlitið
uppstökkur, góði minn, en menn
verða að vera þolinmóðir.” — “Eg
var svo vondur í morgíun, að þú
hefðir getað sótt um skiJnað tafar-
laust.” — — “Hversvegna kystir
þú mig þá ekki í morgun, úr því
að þér þótti eg svona falleg?” —
"Eg ætla að sjá um, að vinber
verði til, og svo höldum við
veizlu.”------“Eftir fyrstu deil-
una, segir þú. Ó, ef þú viss-
ir------”
fLauslega þýtt.J
ALLAN LÍNAN
Konungleg póstskip milli
LIVERPOOL og MONTREAL,
GLASGOW og MONTREAL.
Fargjald frá íslandi til Winnipeg......$56.10
Farbréf á þriöja farrými seld af undirrituöum frá
Winnipeg til Leith.................$59.60
A þriöja farrými eru fjögur rúm í hverjum
svefn-klefa. Allar nauösynjar fást án
aukaborgunar.
A ööru farými eru herbergi, rúm og fæöi
hiö ákjósanlegasta og aöbúnaöur allur hinn
bezti.
Allar nákvæmari upplýsingar, viövíkjandi því hvenær
skipin leggja á staö frá höfnunum bæöi á austur og
vestur leiö o. s, frv., gefur
H. S. BARDAL
Cor. Elgin Ave. og Nena straeti,
WINNÍPEG,
SETHODS HOlSS
MarkM Bqutre, Wlnnlpeg
Eltt aí beztu veltlngahúsum fc
lns. Má.ttl61r seldar A >5c. ••
>1.50 & dag fyrlr Íæ81 ogr grott
bergrl. Bllllardstofa og sérlega
u8 vlnföngr og vlndlar. — C v- ■
keyrsla tll ogr frá jftrnbrautastt * - n
JOHN BADID, elgan,: 1
MARKET
$1-1.00
á da ’.
P. O’Connell
eigandi.
HOTiJ.
ft ' iötl markaSnum.
14« Princess Street.
WDÍNIPEG.
*
*
*
*
*
*
*
*
*
Bindara Tvinni
Olíur. Castor Véla OlIa
1 gall.könnur 50C. 5 gall. könnur $2
i tunnur, hvert gallon 3nc.
CYlinder Olía 1 gall. könnur 70C
5 gall. könnur >2.85.
i tunnur, hvert gallon 480.
Engine Olía 5 gallon könnur Í2.15
i tunnur, hvert gallon 31C.
Þetta eru beztu olíur, sem til eru
og ábyrgst mönnum líki þaer.
McTaggart & Wright Co. Ltd,
263 PORTAGE AVE. - WINNIPEG.
Pioneer Manila, 550 fet,
$8.85 hver 100 pnnd.
Þetta er sama tvinna tegund
sem vér seldum í fyrra.
Hann reyndist ágætlega.
*
*
¥
*
*
*
*
*
*
Vér þörfnumst pen-
inganna.
Ef þér hafiB ekki enn reist ástvinum yð-
ar minnisvarða, þá gerið það nú. Aldrei
hefir betra tækifæri boðist en nú, af því að
birgðirnar þarf að selja á þessu missiri,
hvað sem verðinu líður. Komið og sjáið
oss eða skrifið efíir verðlista. Engu sanngj.
tilboði verður hafnað, ef borgun fylgir.
4. L. McINTYRE
Dep. K.
Notre Danie & Albert,
WINNIPEG, - MANITOBA.
■'jJFk.
HREINN
ÓMENGAÐUR
B JÓR
gerir yöur gott
Drewry’s
REDWOOD
LAGER
Þér megiö reiöa yöur á aö
hann er ómengaöur.
Bruggaöur eingöngu af
malti og humli.
Reyniö hann.
Fornmenjarannsoknir.
Eins og getið var um í síðasta
blaði, ætla þeir félagar Finnur
Jónsson prófessor og DanielBruun
, kapteinn að rannsaka i sumar hof-
tópt i Ljárskógum I Dölum. í
fyrra sumar rannsökuðu þeir með-
al annars gamalt hof á Hofsstöð-
1 um við Mývatn, og hefir Þjóðólfi
verið send svolátandi skýrsla itm
í J»á rannsókn:
I Hofið snýr frá norðri til suðurs
og skiftist eins og flest hof í tvent,
afhús og veizluskála. Afhúsið var
um 7 metra á.lengd, skálinn rúm-
lega 36 metra, lengd alls hofsins
45 metrar. Dýrnar á afhúsinu
voru á vesturhlið, en á skálanum á
* austurhlið, nálægt þverbálkinum,
. sem greindi skálann frá afhúsinu.
í skálanum fundust greinilegar
leifar af langeldum, og fram með
' langveggjunum upphækkaðir pall-
ar til að siéja á. Nokkuð frá
1 veggjunum, langsetis eftir húsinu,
fundust'merki til að staðið hefðu
tvær súlnaraöir, sín hvoru megin,
er hefðui haldið uppi þakinu. Auk
lleifanna eftir langeldana fundust
Igryfjur, sem virtist hafa verið eld-
'að t, á 2 stöðum inni í skáJanum.
I í rústunum fundust ekki marg-
ar en þó nokkrar fornleifar, og
1 eru þessar hinar helztu:
| Bein af húsdýrum, einkum naut
■um, kindum og geitum, og líka af
I hestum og 'svínum og ýsubein, og
hafa þessi bein verið ákveðin af
berra Herluf Winge, umsjónar-
er ^ezta blað til að aug-
lýsa í og þar fáið þér fljótt
og vel af hendi leysta alla Py'pknf-llri
með mjög sanngjömu verði I * * U LU1
Lögb
| Lág Fargjöld í Sumarleyfinu
Til austurborganna
með Canadian Northern járnbrautinni
‘THE LAKE SGPERIOR
ExPRESS"
“THK IIL’LL'TH
EXPRESS"
Daglega
fer kl. 17.10 frá Winnipeg kemur kl.g.25
kemur 10.15 til Pt-Arthur fer kl. 16.20
Daglega
fer kl. 17 10 Wpeg kemur kl. 9.25
kemur 7.30 Duiuth fer kl. 19,10
Þesrar brautir tengjast Vesturlandsbrautum í Winnipeg.
Fyrsta fiokks svefnvagnar — lengri, hærri og breiðari
svefnklefar.
Óviöjafnanlegar máltíðir seldar.
Menn geta valið um járnbrautarlestir eða skipaferðir.
Talið við einhvern umboðsmann Can. Northern félagsins
viðvíkjandi nánari upplýsfngum eða skrifið til
O- “WL COOPEE.
General Passenger Agent, Winnipeg. Man.
314 McDkrmot Avb. — ’Phone 4584,
á miUi Princess
& Adelaide Sts.
Sfhe City Xiquor J’torc.
Heildsala Á
VINUM, VTNANDA, KRYDDVINUM.
VINDLUM og ToBAKI.a
Pöntunum til ’heimabrúkunar sérsta! ,i
gaumur gefinn.
Graham & Kidd.
TIL BYCGINCA-
MANNANNA
GRIFFIN BROS
279 FORT STREE t
Tígulsteinar (tiles) og arinhelh;r.
Vér höfum beztu arinhellur viö
lægsta veröi hér í bænum.
KOMIÐ OG KYNNIST VEREKNU
manni við Dýragripasafnið í
KJaup m a n n ah o f nv
Mörg brýni.
2 sökkur (eða steinkylfurj ?
Ýmisleg járnbrot; þar á meöal
af 2 skærum, járnnaglar o. fl.
Einkennilegt verkfæri úr beini.
Alt, sem fanst, er afhent Forn-
menjasafni íslands.
Að lokinni ránnsókn var rústin
færð í samt lag aftur, svo að eng-
um steini er haggað úr sæti, og
þakið yfir. — Þjóðólfur.
Reykjavík, 28. Júlí 1909
Landsjóðslán það, sem veitt var
heimild til að taka, með lögum á
síðasta þingi, er fengið þessa dag-
ana» }]/* miljón króna. Fénu á að
verja til þess að kaupa hin nýju
veðdeildarbréf Landsbankans og
bætir það væntanlega að mun úr
peningavandræðunum.
Ögmundur Sigurðsson skóla-
stjóri, sem ef nýkominn úr hring-
ferð um landið og manna mest hef
ir ferðast um þetta land um mörg
ár, segist aldrei hafa séð jafnmik-
ið gras á landinu eins og i sumar.
Og svo virðist, §sem engin sveit
hafi orðið út undan í því efni. En
á Norðurlandi hafði gengjð örð-
ugra meS heyþurka en hér syðra.
—Isafold.
AUGLYSING.
Ef þér þurfið að senda peninga til ís -
lands, Bandaríkjanna eða til einhverrv
staða irnin Canada þá notið Demimon Ex
press Company's Money Orders, útlendai
ávísanir eða póstsendingar.
LÁG IÐGjÖLD.
Aðal skrifsofa
212-214 Bannatyne Ave.,
Bulman Block
Skrifstofar víðsvegar um borgina, cc
öllum borgum og þorpum víðsvegar uir
landið meðfram Can. Pac. Járnbrautinni.
A. S. BARDAt,
selur
Granite
Legsteina
alls konar stæröir.
Þeir sem ætla sér aB kaupy
LEGSTEINA geta því fengiö þa
meö mjög rýmilegu verOi og ættu
aö senáa pantanir sem fyrst til
A. S. BARDAL
121 Nena St.,
Winnipeg, Man